Miðaldadómkirkjur í nýju ljósi

[x_text]
Þorsteinn Gunnarsson
Hóladómkirkjur til forna
Hið íslenska bókmennta-félag, 2015
Miðaldadómkirkjurnar íslensku hafa verið nokkuð í umræðunni síðastliðin ár og þá einkum vegna áforma athafnaskálda um að endurreisa slíka byggingu í Skálholti. Virtust áformin um skeið njóta stuðnings meðal áhrifamanna í þjóðkirkjunni en hún á staðinn sem kunnugt er. Nú hefur líklega fjarað undan þessum hugmyndum og þykir ýmsum að þar kunni menningarslysi að hafa verið afstýrt.

Þessu máli er hreyft hér og nú vegna þess að fyrr á þessu hausti sendi Þorsteinn Gunnarsson arkítekt frá sér rit um hinar fornu dómkirkjur á Hólum sem taldar eru hafa verið áþekkar að stærð, stíl, byggingarlist og byggingartækni út miðaldir á báðum biskupsstólunum. Tvímælalaus fengur er að ritinu en Þorsteinn þekkir manna best núverandi Hóladómkirkju sem var reist á árunum 1757–1763 og kom mjög að endurnýjun hennar 1988–1989 sem gerð var á grundvelli viðamikilla rannsókna. Setur hann þær nú í víðara sögulegt samhengi.

Bók Þorsteins skiptist í fjóra meginhluta. Fyrst er kafli um elstu dómkirkjurnar sem kenndar voru við Jón Ögmundsson (biskup 1106–1121) og Jörund Þorsteinsson (biskup 1267–1313). Þá tekur við umfjöllun um Halldórukirkju sem Halldóra Guðbrandsdóttir (d. 1658) Þorlákssonar (biskup 1571–1627), sem fór með staðarforráð að föður sínum látnum, hóf að reisa 1625 eftir að síðasta miðaldakirkjan fauk. Þar á eftir kemur kafli um rannsóknir á núverandi kirkju á Hólum og loks er fjallað um svokallaða Péturskirkju, síðustu miðaldakirkjuna, sem upphaflega var reist 1394 og var fyrirrennari fyrrnefndrar Halldórukirkju. Hún var kennd við Pétur Nikulásson (biskup 1391–1411) sem var einn hinna erlendu biskupa sem hér voru um skeið á síðmiðöldum en hann var danskur maður. Péturskirkja stóð því í tvær aldir og 30 árum betur. Um hana eru til mun viðameiri heimildir en eldri kirkjurnar. Þá var hún tvímælalaust mikilfenglegasta kirkjan sem verið hefur á staðnum, ekki síst eftir breytingar sem að öllum líkindum hafa verið gerðar á henni síðar. Þá var líklega svokölluðum stúkum bætt við hana og grunnfleti hennar þar með breytt í krossform líkt og algengt er með dómkirkjur.

Athygli vekur að kaflarnir um Halldórukirkju og núverandi dómkirkju rjúfa hið sögulega eða „krónólógíska“ flæði í ritinu. Virðist þetta gert til að gefa kaflanum um Péturskirkju aukið vægi en hann er tvímælalaust það efni bókarinnar sem sætir mestum tíðindum þótt vissulega sé líka mikill fengur að greinargerðinni um núverandi Hólakirkju. Ástæðan fyrir mikilvægi Péturskirkjunnar felst í því að til hennar hafa fyrirmyndir að nýrri „miðaldakirkju“ í Skálholti mjög verið sóttar og m.a. ráðið stærð tilgátuhússins.

[pullquote type=”left”]Í grófum dráttum má segja að mikilvægt sögulegt samhengi hafi verið talið milli þeirra kirkna á biskupsstólunum sem byggingarlistarlega séð hafi staðið undir sæmdarheitinu dómkirkja.[/pullquote]Í grófum dráttum má segja að mikilvægt sögulegt samhengi hafi verið talið milli þeirra kirkna á biskupsstólunum sem byggingarlistarlega séð hafi staðið undir sæmdarheitinu dómkirkja. Þá fyrstu þessara kirkna reisti Jón helgi Ögmundsson og hefur verið talið að hann hafi sótt fyrirmyndir sínar til Lundardómkirkju og yfirfært byggingartækni hennar úr steini í tré.[1] Jörundur og Pétur eru síðan álitnir hafa byggt kirkjur sínar líkar að gerð, stærð og hlutföllum en að því leyti ólíka Jónskirkju að þær hafi ekki haft bogadregin kór né stúkur sem mynduðu krossform. Slíkum stúkum telur Þorsteinn Gunnarsson að hafi svo verið bætt við í tíð Gottskálks Kenekssonar, norsks auðmanns sem var biskup á Hólum 1442–1457. Hefur Hóladómkirkja þá væntanlega náð mestri stærð og reisn. Hörður Ágústsson sem mest hefur lagt af mörkum við rannsóknir á Skálholtsdómkirkjum, og raunar íslenskri byggingarsögu almennt, hefur leitt rök að því að norðlenska dómkirkjan hafi síðan orðið fyrirmynd miðaldadómkirkna í Skálholti frá og með kirkju Klængs Þorsteinssonar (biskup 1152–1176) sem stóð frá 1153–1309, eða í rúma eina og hálfa öld, og gaf tóninn fyrir síðari kirkjur.[2] Í þessari samfelldu dómkirkjusögu landsins má því segja að Jónskirkja fyrir norðan og Klængskirkja fyrir sunnan gegni lykilhlutverkum og samhengið komi meðal annars fram í að kirkjurnar hafi verið nokkurn veginn jafnstórar.

Hér skal ekki farið út í smáatriði í stærð, gerð, útliti og byggingartækni þessara viðhafnarhúsa heldur aðeins staðnæmst við tvö atriði sem Þorsteinn Gunnarsson endurskoðar í riti sínu. Í eldri rannsóknum hefur verið gengð út frá að íslensku miðaldadómkirkjurnar hafi verið tæpir 48 m að lengd. Þorsteinn leiðir hins vegar rök að því að þær hafi verið um 10 m styttri og önnur hlutföll þeirra ráðist af því.[3] Þá gekk Hörður Ágústsson út frá því að þakhæð stúkanna sem mynda þverás krossins í grunnformi kirkjunnar hafi verið jöfn hæð framkirkjunnar sjálfrar. Þorsteinn telur á hinn bóginn að þær hafi verið sýnu lægri.[4] Þetta hefur breytt miklu um ytra útlit kirknanna.

[pullquote type=”left”]Þetta er hér dregið fram miklu fremur til að undirstrika hve þekking okkar á miðaldadóm-kirkjunum er raunar tak-mörkuð enn sem komið er og hve nauðsynlegt er að þoka rannsóknum á þeim áfram líkt og Þorsteinn Gunnarsson hefur nú gert. [/pullquote]Hér skal því ekki haldið fram að Þorsteinn Gunnarsson hafi sagt síðasta orðið um stærð og gerð „íslensku miðaldadómkirkjunnar“. Hann sýnir þó fram á að hún hefur verið meira „fljótandi“ að gerð en hingað til hefur verið haldið, til dæmis hafi hinar raunverulegu kirkjur stundum verði krosskirkjur og stundum ekki. Því skal heldur alls ekki haldið fram að niðurstöður hans hljóti að vera réttari en túlkanir Harðar Ágústssonar. Þetta er hér dregið fram miklu fremur til að undirstrika hve þekking okkar á miðaldadómkirkjunum er raunar takmörkuð enn sem komið er og hve nauðsynlegt er að þoka rannsóknum á þeim áfram líkt og Þorsteinn Gunnarsson hefur nú gert. Fornleifarannsóknir, einkum á Hólum, kunna að bæta miklu við núverandi þekkingu. Á grundvelli svo takmarkaðrar þekkingar virðist hæpið að ráðast í svo stóra framkvæmd að reisa tilgátubyggingu að „miðaldadómkirkju“ í hlutföllunum einn á móti einum sem beitu fyrir ferðamenn. — Verra væri þó ef slík bygging yrði reist á grunni núverandi brotakenndu þekkingar í fræðslu- eða upplýsingarskyni!

[line]

[1] Hörður Ágústsson, Skálholt. Kirkjur, Staðir og kirkjur I, Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands, Hið íslenska bókmenntafélag, 1990, bls. 295–296.

[2] Hörður Ágústsson, Skálholt. Kirkjur, bls. 295.

[3] Þorsteinn Gunnarsson, Hóladómkirkjur til forna, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 2015, bls. 113–123.

[4] Þorsteinn Gunnarsson, Hóladómkirkjur til forna, bls. 117, 140.[/x_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701