Ástin sem einangrað fyrirbæri

[cs_text text_align=”none”]
Lena Andersson
Í leyfisleysi
Bjartur, 2014
Í símanum er manneskja sem spyr hvort hann geti flutt fyrirlestur um þekkta listakonu. Hann uppveðrast yfir þessu, hefur lengi fylgst með þessari listakonu af aðdáun. Hún hefur rætt um samfélagslega ábyrgð og haldið því fram að listamaður sem ekki taki „afstöðu til samfélagsins og þjáningar mannsins í miskunnarlausri tilveru [eigi] ekki að kalla sig listamann“ (s. 9). Viku áður en hann á að halda erindið byrjar hann að skrifa og finnur hvernig hann færist nær viðfangsefninu, hvernig orðin taka að umvefja og snerta verk listakonunnar eins og þau væru hún sjálf.

Listakonan hrífst af fyrirlestri hans og segir ókunnuga manneskju aldrei hafa sýnt sér svona djúpstæðan skilning. Hún kyssir hann á báðar kinnar. Í kjölfarið fer hann að afrækja sambýliskonu sína, sem hefur sinnt líkamlegum og andlegum þörfum hans í mörg ár, og verður ástfanginn af listakonunni, verður heltekinn af ástarþrá, getur ekki um annað hugsað í marga mánuði. Hann skilur við sína fyrrverandi: „Stökkið er tekið þegar við viljum ekki glata þeirri framtíð sem við höfum þegar kynnst“ (21). Hann hringir, sendir henni smáskilaboð og tölvuskeyti en hún er oftast tómlætið eitt. Samt lætur hann sér ekki segjast og les minnstu bendingu og kæruleysislegasta tilsvar sér í hag.

Svona hljómar upphafið á verðlaunaskáldsögu sænsku skáldkonunnar Lenu Andersson, Í leyfisleysi (þýð. Þórdís Gísladóttir, Bjartur 2014), snúið upp á karlmann. Hvers vegna í ósköpunum var ég að snúa því upp á karlmann?

Ester og feðraveldið

Aðalpersóna sögunnar er í rauninni kvenkyns og heitir Ester. Hún kolfellur fyrir listamanninum Hugo Rask „sem vann með sambland hreyfimynda og texta“ (9) og var upptekinn af samfélagslegu hlutverki listamannsins. Sem er hlálegt í ljósi þess hvernig mál æxlast milli þeirra Esterar.

Eftir langa mæðu og mörg samtöl tekst Ester að fá Hugo til lags við sig. Þau eiga saman þrjá ástarfundi á sex dögum en síðan dregur Hugo sig í hlé, vill greinilega ekki frekari nánd. Hann svarar henni ekki dögum og vikum saman, skákar í því skjólinu að hann hafi svo mikið að gera. Hún er ósátt við þetta tómlæti, finnst að maður sem hafi verið inni í líkama hennar hafi skyldum við sig að gegna, nokkuð sem manni virðist gamaldags hugmynd nú á tímum frjálsra ásta. Hún sendir honum skilaboð, sum allhvöss, og hann fer undan í flæmingi, finnst hún helst til herská. Ekki verður af frekari ástarfundum heldur myndast vík milli vina. Ester gefur sig samt aldrei alveg og reynir öðru hverju að ná sambandi við Hugo. Hún kemst að því að hann er í tygjum við aðra konu og hefur ekki verið hreinskilinn hvað það varðar. Samt gefur hún ekki upp alla von. Hún fer að lesa í minnstu merki af hans hálfu; ef hann nefnir að hann hafi séð bók sem hann langaði til að gefa henni les hún í það merkingu og fyllist von. Þar með er hún á forsendum hans, bíður eftir því að honum þóknist að hafa samband eða einhverri staðfestingu frá honum. Hann hefur augljóslega lítinn sem engan áhuga og lesandi getur jafnvel spurt sig hvort hann sofi hjá henni í og með til að þóknast henni eða hvort það er eina nándin sem hann getur höndlað því hann hraðar sér jú af vettvangi morguninn eftir. Svo mikið fyrir samfélagslega ábyrgð og skilning á þörfum annarra.

Eigi að síður gjörbreyta þessar upplýsingar bókinni og kippa henni upp úr stöðluðum feðraveldisfarvegi, þetta er ekki lengur spurning um kyn eða almenna tilhneigingu heldur valdahlutföll milli einstaklinga.
Við getum spurt hvort Hugo sé fulltrúi feðraveldisins. Hann hafi valdið og geri það sem honum þóknast, sé kaldur og fjarlægur ef því er að skipta, en tilbúinn til hvílubragða þegar náttúran kallar. Margt gengi upp í slíkri hliðstæðu, margar klassískar niðurstöður gætu fengist, ef ekki væri fyrir það að Ester hegðar sér nánast eins gagnvart fyrrverandi sambýlismanni sínum. Sá er í rusli yfir sambandsslitunum og elskar hana ennþá en sársauki hans snertir hana ekki. Hún segist varla trúa honum. Höfundur eyðir ekki miklu púðri í þennan kafla eins og til að sýna að hennar fyrrverandi skipti Ester takmörkuðu máli. Eigi að síður gjörbreyta þessar upplýsingar bókinni og kippa henni upp úr stöðluðum feðraveldisfarvegi, þetta er ekki lengur spurning um kyn eða almenna tilhneigingu heldur valdahlutföll milli einstaklinga. Þess vegna lék ég mér að því að snúa bókinni upp á karlmann hér að ofan; það er prófraun á kenninguna. Þó ber að hafa í huga að karlmenn gætu hagað sér svolítið öðruvísi en konur við slíkar aðstæður enda félagslega skilyrtir á annan hátt.

Árekstur vitsmuna og tilfinninga

Spáum þá aðeins í einstaklingana. Eins og áður sagði er Ester algjörlega upp á náð og miskunn Hugos komin. Hún þarf að þola ákveðna niðurlægingu í samskiptum við hann vegna þess að hann hafnar henni og skilur ekki ást hennar. Þetta er áfall fyrir sjálfsvirðingu hennar, þarna missir hún visst sjálfstæði og finnur jafnvel fyrir ákveðinni skömm. Hún reynir að nýta heimspekimenntun sína til að vinna úr þessu á vitsmunalegan hátt, greinir samskiptaferlið en nær samt ekki að breyta atferli sínu. Það er eins og hún megni ekki að tengja hið tilfinningalega og hið vitsmunalega.

Hugo er fjarlægur í sögunni þó að hann sé önnur aðalpersóna hennar. Maður getur jafnvel spurt sig hvort hann sé ekki helst til einhliða miðað við hversu stórt hlutverk hann leikur. Að mínu mati þarf hann að vera fjarlægur til þess að ná fram þeim firringaráhrifum á vitundarmiðju sögunnar, Ester, sem höfundur sækist eftir. Lena Andersson hefur sagt í viðtali að Hugo geti ekki bundist fólki vegna þess að hann hafi ekki fengið nóga hlýju í æsku. Mér finnst hann frekar óáhugaverð persóna og ég velti því jafnvel fyrir mér hvort höfundur hafi beinlínis lagt upp með að skapa óáhugaverða karlpersónu til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. Hugo er átakafælinn, óttast gagnrýna hugsun Esterar, finnst hún herská og hann hefur engin svör við áleitnum spurningum hennar. Þrátt fyrir stöðu sína í menningarlífinu virðist hann ekki hafa mikið fram að færa annað en klisjukennda listamannsafstöðu. Auk þess sýnir hann af sér meinillsku þegar hann skýlir sér hvað eftir annað á bak við það að vera svo önnum kafinn.

Hvers vegna kona með doktorspróf í heimspeki verður gjörsamlega heltekin af ástarþrá til þessa sjálfhverfa manns, sem þrífst á aðdáun annarra en hafnar samt borgaralegum viðmiðum, er ein athyglisverðasta spurningin sem verkið vekur.
Hvers vegna kona með doktorspróf í heimspeki verður gjörsamlega heltekin af ástarþrá til þessa sjálfhverfa manns, sem þrífst á aðdáun annarra en hafnar samt borgaralegum viðmiðum, er ein athyglisverðasta spurningin sem verkið vekur. Ester tapar sér algjörlega og virðist ófær um að sjá að Hugo er ekki rétti maðurinn fyrir hana þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar vinkvenna. Enda er ekki víst að hún hafi beinlínis orðið ástfangin af honum heldur af hugmyndum sínum um hann. Ást er hér þráhyggja sem tekur engum rökum, eins konar geðsjúkdómur sem virðist illlæknanlegur. Nema Ester læknist í næstu bók sem einnig fjallar um ástarævintýri hennar. Þar ku henni takast ögn skár upp þó að hún fari að halda við giftan mann. Utan frá séð – og frásagnaraðferð bókarinnar býður upp á slíka fjarlægð – þarf Ester næstum að vera þunn í krummann, skrýtin eða andlega veik til þess að átta sig ekki á þessari undarlegu stöðu. En það er hún einmitt ekki. Eða hvað?

Andersson virðist vinna markvisst með valdahlutföll. Hún skoðar valdið sem þekktur listamaður öðlast. Hún lætur Hugo umgangast innflytjanda með vafasamar skoðanir og dregur upp hliðstæðu við framferði Bandaríkjanna gagnvart löndum sem þau hafa ráðist inn í. Þessi bók er sumsé í nokkrum lögum og höfundurinn leitast að vissu marki við að setja ástina í víðara samhengi þó að hún sé skoðuð sem einangrað fyrirbæri, eins mótsagnakennt og það kann að hljóma. Mótsagnirnar eru jafnframt eitt af því sem gerir söguna áleitna, við könnumst við þá nánast sjúklegu þráhyggju sem hér er lýst, höfum jafnvel bæði verið í sporum Hugos og Esterar. Var maður virkilega svona?[/cs_text]

Um höfundinn
Rúnar Helgi Vignisson

Rúnar Helgi Vignisson

Rúnar Helgi Vignisson er dósent í ritlist við Íslensku­ og menningardeild Háskóla Íslands. Hann hefur umsjón með ritlistarnámi við skólann og er jafnframt rithöfundur og þýðandi. Sjá nánar

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701