Ný tegund sjónvarpsefnis nýtur vinsælda

Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir, sem áttu góðu gengi að fagna í Söngvakeppni Ríkissjónvarpsins 2017 með lagið „Hvað með það?“, eru nú stödd í Kambódíu og senda frá sér ferðaþætti í samvinnu við RÚV sem hafa notið mikilla vinsælda. Fyrsti þátturinn sem fór í loftið hefur fengið 24 þúsund áhorf á Facebook en til samanburðar má nefna að fjöldi þeirra sem „líkar“ við almenna Facebook-síðu RÚV er 21 þúsund. Fjórði þátturinn hefur notið mestra vinsælda til þessa en 55 þúsund manns hafa horft á hann. Í þeim þætti semur Daði tónlist upp úr hljóðprufum sem þau Árný tóku upp í nærumhverfi sínu í bænum Kampot í Kambódíu. Þáttunum er ætlað að koma til móts við ungt fólk sem sækir sér frekar afþreyingu gegnum samfélagsmiðla og netið en línulega dagskrá sjónvarpsins.

Í umsjá Árnýjar og Daða frá a til ö

Þættirnir „Árný og Daði í Kambódíu“ eru stuttir, um það bil átta mínútna langir, og birtast á Sarpinum og Facebook á þriðjudögum og föstudögum. Árný og Daði sjá alfarið um gerð þáttanna og segjast skipuleggja vikuna út frá þeim. „Við reynum að fara á viðburði eða á ákveðna staði og hitta skemmtilegt fólk,“ segir Árný. Hún segir að þau styðjist ekki við eiginlegt handrit. Aftur á móti leggi þau upp með að hafa annars vegar einskonar ferðablogg og hins vegar þema, eins og tónlist eða áskorun í formi sandkastalakeppni, einu sinni í viku. Saman grófklippa þau efnið en Daði sér síðan um eftirvinnslu auk þess sem hann semur alla tónlist sem flutt er í þáttunum.

Framleitt fyrir RÚVnúll

Árný segir að það hafi lengi verið draumur hjá þeim Daða að fara saman út í heim og kynnast framandi menningu. Þau hafi verið búin að ákveða að fara til Kampot í Kambódíu, og gælt við þá hugmynd að gera þætti um dvölina, þegar þau sáu RÚV auglýsa hugmyndadaga. „Við sendum inn okkar hugmynd og vorum svo kölluð inn í viðtal þar sem við kynntum hugmyndina betur og þeim leist svona ljómandi vel á,“ segir Árný. Ingólfur Bjarni Sigfússon, vef- og nýmiðlastjóri, staðfestir að þættirnir „Árný og Daði í Kambódíu“ eru framleiddir fyrir RÚVnúll sem er ný þjónusta RÚV fyrir ungt fólk. RÚVnúll er liður í teyminu „Númiðlun – Rás 2“ en það leggur upp með að bjóða upp á síkvika dagskrárgerð á vef, í útvarpi og á samfélagsmiðlum eins og fram kemur á vef RÚV. Þessi aukna áhersla á efni fyrir ungt fólk birtist skýrt í stefnu RÚV til ársins 2021 sem lögð var fram síðastliðið vor. Þá var tilkynnt að markvisst ætti að auka það fé sem lagt er í dagskrárefni fyrir aldurshópinn 15 til 29 ára. Í ljósi þess að RÚVnúll leitast við að ná betur til yngri kynslóðarinnar er þó áhugavert, eins og Árný hefur bent á, að áhorfstölur á Facebook sýna að stærsti áhorfendahópur Árnýjar og Daða eru konur á miðjum aldri.

Ný tegund af sjónvarpi

RÚVnúll framleiddi einnig þættina „Hvað í fjandanum á ég að kjósa?“ sem voru í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur og sýndir í aðdraganda þingkosninganna síðastliðið haust. Þeir voru líkt og „Árný og Daði í Kambódíu“ einungis birtir á Sarpinum og Facebook en ekki í línulegri dagskrá í sjónvarpinu. Örsjónvarpsþættir sem þessir eru nýjung á Íslandi en eiga sér erlendar fyrirmyndir. „Skam“ er dæmi um slíka þætti en þeir voru framleiddir fyrir NRK, norska ríkissjónvarpið. Daglega var hægt að nálgast nýja örþætti á vef NRK sem síðan voru teknir saman í einn lengri þátt í lok vikunnar. Þá mátti fylgjast með sögupersónunum á Instagram. Eitt af því sem einkennir þessa nýju tegund sjónvarps er einmitt aukin samskipti á milli áhorfenda og dagskrárgerðarfólks í gegnum samfélagsmiðla.

Gleði sem smitar út frá sér

Með virkni á samfélagsmiðlum vill RÚV ná til víðari hóps og þá sérstaklega til yngra fólksins. Árný segir að markmið þeirra Daða fyrir RÚV sé að víkka út miðla þeirra með áherslu á vefsíðuna, Facebook og Snapchat. Stór hluti af tíma Árnýjar og Daða í kringum þáttagerðina fer einmitt í að svara fyrirspurnum og ummælum sem þeim berast frá ungu fólki í gegnum Snapchat og Facebook. Þau hvetja áhorfendur sína til að senda sér skilaboð, hugmyndir og áskoranir sem gætu komið fram í þættinum. „Við viljum hafa þættina svolítið gagnvirka, þannig að fólk geti tekið þátt og haft áhrif,“ segir Árný. Þeim finnist gaman að fá viðbrögð við þáttunum og þau vilji gjarnan fá að vita hvað áhorfendum líkar vel og hvað megi betur fara. Að sögn Árnýjar eiga þættirnir fyrst og fremst að vera skemmtilegir áhorfs þó að þeir hafi einnig fróðleiksgildi. Persónulega langi þau einfaldlega að sýna fólki hvernig það er að flytja til framandi lands og koma sér fyrir þar. „Markmið okkar eru í raun ekki flóknari en svo að hafa gaman sjálf og láta gleðina smita út frá sér,“ segir Árný.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[fblike]

Deila