Eldklerkurinn í sviðsljósinu

[container] 

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

Jón Steingrímsson eldklerkur (1728–1791) á Prestsbakka á Síðu hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu og það jafnvel í bókstaflegri merkingu rúmum 220 árum eftir dauða sinn. Vissulega er hann persóna úr sögu þjóðarinnar sem verðskuldar að hans sé minnst. Hann stóð stranga vakt á einu mesta hörmungarskeiði sem yfir landið hefur gengið í Skaftáreldum og móðuharðindunum sem fylgdu í kjölfarið. Á þeim tíma tók hann sjálfstætt frumkvæði til að styrkja og styðja sóknarbörn sín auk þess að mæla yfir moldum allra þeirra sem létust og hugga hina sem eftir lifðu. Þannig mætti hann hinum fjölþættu kröfum sem gerðar voru til sálusorgara á neyðartímum. Líklega var Jón allt í senn Almannavarnirnar holdi klæddar, eins manns hjálparsveit og stuðningsfulltrúi sem veitti áfallahjálp. Auk þess að tengjast þannig beint einu dramatískasta tímabili þjóðarsögunnar sker Jón Steingrímsson sig úr fjöldanum með því að hafa látið eftir sig nærgöngul og opin sjálfsskrif, ævisögu sína, sem komið hefur út í þremu útgáfum (1913, 1945 og 1973). Getur verið að Hrunið hafi að einhverju leyti vakið athygli á eldklerkinum og samtíð hans?

Skáldasagan um Jón

Haustið 2010 kom út Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur og undirbjó komu hennar & nýrra tíma (Reykjavík: Mál og menning). Þar spinnur höfundurinn, Ófeigur Sigurðsson, á hugvitsamlegan hátt þráð sem hann sækir til ævisögunnar nánar til tekið kap. XXV­–XXVII (13 bls. í ævisögunni móti 213 bls. í skáldsögunni!) og er sagan að því leyti heimildasaga. Ófeigur fylgir vel lýsingu Jóns á ferð hans ásamt Þorsteini (d.  1794) bróður sínum, síðar bónda í Kerlingardal í Mýrdal, og Jóni Þorgeirssyni vinnumanni úr Skagafirði og suður Kjöl um veturnætur 1755 uns þeir settust að Hellum í Mýrdal. Þar voru eignarjarðir sjúpbarna Jóns, þ.e. barna Þórunnar Hannesdóttur (Scheving) (d. 1784) og fyrri manns hennar, Jóns Vigfússonar (d. 1752) klausturhaldara á Reynistað í Skagafirði. Með flutningi suður hugðist Jón flýja harðindi norðanlands en auk þess þann þráláta orðróm að þau Þórunn hefðu orðið klausturhaldaranum að bana skömmu áður sökum óreglu hans og heimilisofbeldis en Jón Steingrímsson hafði verið djákni á staðnum. Hvað byggingu áhrærir skiptist skáldsagan eins og ráða má af titlinum í 27 bréf sem Jón ritar konu sinni. Þannig verður hún að stórum hluta hugflæði Jóns er hann tjáir konu sinni hug sinn en segir henni jafnframt hvað á daga hans drífur.

Hið frjálsa framlag Ófeigs Sigurðssonar hefst fyrir alvöru þegar Jón er sestur að í Hellum. Sjálfur segir hann svo frá í ævisögunni:

Þá ég nú eftir veturnætur 1755 settist að í Hellum, fékk Einar [Eiríksson, „umboðsmaður“ Jóns] mér til íveru skemmukofa fyrir vestan bæjardyr. Hún var höggvin inn í bergið, en ég bjó hana svo stóra inn lengra í bergið, að ég kom þar fyrir rúmi mínu, borðkorni og bekk og öllu því, er meðferðis hafði, og vorum við þar bræður báðir um veturinn og áttum þar bezta og rólegasta líf (Jón Steingrímsson, Ævisagan og önnur rit, Kristján Albertsson gaf út, Reykjavík: Helgafell, 1973, bls. 127).

Út af þessu stefi leggur Ófeigur er hann lætur Jón hola suðurodda landsins að innan og breyta honum ekki aðeins í híbýli fyrir sjálfan sig, heldur lærdómssetur, sjúkrahús og ljósvita fyrir sæfarendur, heilan heim sem horfir til framfara og upplýsingar. Þar ganga einnig helstu umbótamenn Íslands ljósum logum, Skúli fógeti Magnússon (1711–1794), Eggert Ólafsson (1726–1768) og Bjarni Pálsson (1719–1779) en úti fyrir geysa Kötlueldar líkt og fyrirboði þess sem koma skal tæpum 30 árum síðar. Skúli kom mjög við sögu Jóns til ills og góðs og þeir Jón og Bjarni voru persónulegir vinir. Eggert virðist Jón þó aðeins hafa þekkt sem rithöfund og skáld. Rannsókarleiðangur Eggerts og Bjarna stóð einmitt yfir 1752–1757 en ekkert bendir til að neinn þeirra hafi komið í skemmuna til Jóns í Mýrdalnum veturinn 1755. Með samskiptum við þá er Jóni aftur á móti skipað í hóp helstu athafnaskálda landsins þar sem hann á ýmsan hátt á heima.

Sá söguheimur sem Ófeigur byggir upp í bréfunum er heillandi og miðlar ævistarfi Jóns í hnotskurn eins vetrar. Þá hæfir málfar og hófstilltur lítið eitt fyrndur stíll bréfanna efninu. Úr verður hugljúfur lestur þar sem sögulegt efni er hagnýtt á skapandi hátt.

Eldklerkur Möguleikhússins

Eldklerkurinn í leikgerð Péturs Eggerz sem frumsýnt var á vegum Möguleikhússins í nóvember 2013 er að sínu leyti hreinræktaðra heimildaverk en saga Ófeigs Sigurðssonar að þar er ævisagan rakin í heild og auk þess stuðst við eldrit Jóns eða Fullkomið skrif um Síðueld frá 1788. Uppfærsla Péturs Eggerz (og Sigrúnar Valbergsdóttur leikstjóra) er þó alls ekki flöt endursögn heldur hefst verkið og lýkur með sömu senunni þar sem Jón Steingrímsson tekur út refsingu á alþingi 1786. En hann hafði hann verið dæmdur til að reiða af hendi 5 ríkisdala sekt og að biðjast opinberlega fyrirgefningar fyrir að hafa vikið frá fyrirmælum stiftamtmanns um meðferð „viðlagasjóðs“ er honum hafði verið falið að flytja frá Bessastöðum á hamfarasvæðið. (bls. 198–200, 205–218). Dómurinn var að frumkvæði H. C. D. V. von Levetzow sem hér var stiftamtmaður 1785–1789. Um hann segir Magnús Ketilsson (1732–1803) að hann hafi haft „góðar sinnisgáfur“ og verið „fljótskarpur“ en heldur áfram: „En hans stoltu hissugheit gjörðu það, að honum missýndist margt og stundum mistókst, ekki so af ásetningi, sem af fljótræði.“ (Stiftamtmenn og amtmenn á Íslandi 1750 til 1800, Þorkell Jóhannesson bjó til prentunar, Reykjavík: Sögufélag, 1948, bls. 35) Þannig varð Jón eins og fram kemur í verkinu eini einstaklingurinn sem tók út refsingu í kjölfar hörmunganna í Síðueldum en hélt þó mannorði sínu trausti Hannesar Finnssonar (1739–1796) biskups, sem þó fær ekki að öllu leyti góð ummæli í ævisögunni. Vera má að hér sé komin ein helsta ástæða þess að Jón tók að rita sögu sína auk orðrómsins um sviplegan dauðdaga klausturhaldarans. (Matthías Viðar Sæmundsson, „Upplýsingaröld 1750–1840“, Íslensk bókmenntasaga III, ritstj. Halldór Guðmundsson, Reykjavík: Mál og menning, 1996, bls. 125)

Með þessari áherslu er einstaklingi teflt fram gegn kerfinu, frumkvæði og persónulegum viðbrögðum gegn hlýðni, réttlæti gegn skriffinnsku. Ljær þetta verkinu boðskap. Þá má finna í því vísanir til samtímans í fleygum frösum eins og „Maybe I should have“ og „Guð blessi Ísland“! Hvort tveggja, endurtekin niðurlægingarsenan og frasarnir, gefur sýningunni brodd sem einnig mátti lesa út úr handarhreyfingu leikarans á réttum stöðum! — Eftir stendur umhugsunarverð útgáfa af sjálfsævisögu eldklerksins.

Pétur bregður sér í fjölmörg hlutverk í sýningunni auk þess sem hann er sögumaður sem tengir einstaka þætti verksins saman. Vissulega má segja að persónurnar séu staðlaðar eftir tveimur fyrirmyndum: mýrdælskum hjárænulegum kotbónda og dönskum, pepíulegum höfðingja. Stöðluninni hjálpar þó ef til vill til við að draga aðalpersónuna, eldklerkinn, betur fram og leggja meiri dýpt í persónu hans.

Sýningin er sniðinn að því að vera farandsýning, sviðbúnaður er því í lágmarki en nýtist vel (verk Rósu Sigrúnar Jónsdóttur). Það vakti þó athygli mína á sýningunni hve áberandi var að leikarinn sneri baki við flestum áhorfendum er hann var í gerfi Jóns sjálfs og talaði við ímyndaðan viðmælanda eða mótleikara úti í horni. Þetta kann að stafa af því að verkið hafi verið æft inn í öðru vísi rými en það sem notað var þegar ég sá sýninguna. Það var vel að merkja í menningarhúsinu Hlöðunni í Litla-Garði skammt framan Akureyrar. Rýmið er hrátt og frumstætt (í góðri merkingu) og gefur frumlegum listamönnum ýmsa möguleika til uppfærslna.

Menningarhúsin og menningin

Svo virðist sem tilkoma Hörpu fyrir sunnan og Hofs fyrir norðan ætli að skapa ýmis konar vanda í menningar- og listalífinu þegar um er að ræða viðburði sem ekki eru líklegir til að þjóna sem kassastykki eða draga af öðrum ástæðum fjölda fólks á staðinn. Getur hugsast að stóru menningarhúsin verði til að markaðsvæða sviðlistirnar? Nú lítur til dæmis svo út að Hof muni að minnsta kosti óbeint og hugsanlega tímabundið verða ein af ástæðum þess að sjálfstæðar uppfærslur leikverka með atvinnufólki leggist af og aftur verði horfið í það far er Þjóðleikhúsið eða LR ferðuðust um landið og buðu upp á sýnishorn að leikárinu. Það væri stórt skref afturábak eftir frjótt tímabil atvinnuleikhúss í höfuðstað Norðurlands.

Deila

[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701