Glataðar bækur og saga þeirra

Um höfundinn
Jón Karl Helgason

Jón Karl Helgason

Jón Karl Helgason er prófessor í Íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað fræðibækur og -greinar, fengist við þýðingar og komið að ritstjórn tímarita, bóka og vefja á Netinu. Sjá nánar

Skoski ritstjórinn og bókmenntagagnrýnandinn Stuart Kelly, höfundur The Book of Lost Books.

Hver kannast við skáldsögurnar La Spirale eftir Gustave Flaubert, Pilgrim on the Hill eftir Philip K. Dick og Sanditon eftir Jane Austen? Eða er einhver sem hefur séð uppfærslu á leikritunum Penelópa eftir Æskílos, Kókalos eftir Aristófanes og Love‘s Labour‘s Won eftir Shakespeare? Bók glötuðu bókanna. Ófullkomin saga allra snilldarverkanna sem þú munt aldrei lesa (The Book of Lost Books. An incomplete history of all the great books you‘ll never read) er titillinn á riti sem skoski ritstjórinn og bókmenntagagnrýnandinn Stuart Kelly sendi frá sér árið 2005 en kom út í endurskoðaðri útgáfu á liðnu ári. Um er að ræða einskonar uppflettirit þar sem hver kafli er helgaður einum höfundi og höfuðáhersla lögð á þau rit viðkomandi sem eru ófullgerð eða týnd og tröllum gefin. Höfundum er nokkur veginn raðað í tímaröð. Fyrsti almenni kafli bókarinnar fjallar um Hómer (sem var kannski aldrei til) og  gamankviðu hans Margítes en yngsti höfundurinn sem kemst á blað er franska ólíkindatólið Georges Perec.

Ástæður þess að ótal „snilldarverk“ hafa horfið af yfirborði jarðar í tímans rás eru af mörgum toga. Í sumum tilvikum hafa rithöfundar ákveðið að farga svo að segja fullkláruðum verkum, í öðrum tilvikum hafa þeir dáið frá hálfköruðum handritum og svo eru fjölmörg dæmi um að verk hafi týnst, brunnið eða hreinlega gufað upp fyrir gráglettni örlaganna. Svo virðist sem Kelly hafi fengið verulegan áhuga á þessu efni þegar hann lagði stund á forn-grískar bókmenntir og komst að því að varðveitt leikrit þekktra leikskálda eins og Sófóklesar og Æskílosar eru aðeins lítið brot af því sem þeir sömdu í lifanda lífi. Sá síðarnefndi er til dæmis talinn hafa sett saman eitthvað í kringum áttatíu leikrit (+ eða – tíu) en aðeins sjö þeirra eru enn aðgengileg okkur nútímafólki.

Bók glötuðu bókanna eftir Stuart Kelly.

Nýleg umfjöllun um ófullgert handrit sænska rithöfundarins Stiegs Larsson að fjórðu bókinni í svokölluðum Millenium-þríleik minnir okkur á að það er stöðugt verið að skapa snilldarverk sem við fáum líklega aldrei tækifæri til að lesa. En bók Kellys vekur mann jafnframt til umhugsunar um það hvernig bókmenntasagan liti út ef viss varðveitt verk hefðu glatast og önnur glötuð hefðu varðveist. Í niðurlagi umfjöllunar sinnar um Margítes veltir Kelly því til dæmis fyrir sér hvort við megum þakka fyrir að þessi kviða standi ekki við hliðina á Illíonskviðu og Ódysseifskviðu í bókaskápnum okkar. „Það er nauðsynlegt að enduruppgötva það sem fer forgörðum,‟ segir Kelly og gefur því undir fótinn að gamansamur skáldskapur síðari tíma hafi orðið hálfu fjölbreyttari en hann hefði orðið ef áhrifavaldur á borð við Hómer hefði slegið þar tóninn í upphafi.

Að sjálfsögðu fá skrif Kellys mann líka til að velta fyrir sér hvaða höfundar og verk geti raðað í Bók glataðra íslenskra bóka. Væntanlega er hér af nógu að taka, ekki síst ef hugað er að miðaldabókmenntum okkar. Skjöldunga saga, sem er aðeins varðveitt í endursögn Arngríms lærða, er afar þekkt dæmi sem Bjarni Guðnason skrifaði heila fræðibók um. Einnig má nefna hér Huldar sögu, sem Úlfar Bragason hefur nýlega fjallað um í tímaritsgrein. Af yngri bókmenntum má nefna fyrsta stórvirki Halldórs Laxness, skáldsöguna Aftureldingu, sem bæði  Helga Kress og Hermann Stefánsson hafa greint með forvitnilegum hætti. Gaman væri ef lesendur þessa pistils gætu bent á fleiri íslensk rit sem ættu heima á þessum lista. Það er aldrei að vita nema hér sé á ferðinni efniviður í svo sem eina „glataða“ lokaritgerð.

Deildu


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

news-1701