Átök í álfheimum

[cs_text]
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Skuggasaga: Undirheimar
Vaka-Helgafell, 2016
Undirheimar Ragnheiðar Eyjólfsdóttur er síðari bók tvíleiksins Skuggasaga en sú fyrri, Arftakinn, kom út á síðasta ári. Fyrir hana hlaut Ragnheiður Íslensku barnabókaverðlaunin og Bóksalaverðlaunin í flokki táningabóka. Í Arftakanum kynnast lesendur Sögu, 12 ára vansælli og óeftirtektarverðri stúlku sem hefur lifað hversdagslegu og fremur leiðinlegu lífi fram að þessu. Grámóskulegu hversdagslífinu lýkur þegar Saga kemst að því að hún á ættir að rekja til Álfheima og þangað fer hún með fylgju sinni, talandi skuggabaldri að nafni Baldur. Lífið í Álfheimum, og þjálfunarbúðunum þar sem Saga þjálfar sig til að taka við hlutverki sínu sem svokallaður skuggi, er nýstárlegt og spennandi. Lífið er þó ekki eintómur dans á rósum. Sögu og Baldri tekst að ögra þjóðþinginu sem öllu ræður í Álfheimum auk þess sem forn kvæðabálkur spáir fyrir um að dag einn muni „einstaklingur með fylgju koma fram og breyta skipulagi Álfheima“ (8). Allar líkur eru á að þessi einstaklingur sé Saga. Hlutverk Sögu, kvæðabálkurinn forni, örlög móður hennar sem hafði einnig verið álfur og að lokum hræðilegt dauðaslys verða til þess að hún og Baldur leggja á flótta frá Elfaborg. Með í för er svarinn óvinur þeirra, Örvar, og fylgjan hans, hrafninn Blakkur. Um það bil svona er staðan í upphafi Undirheima.

Undirheimar eru hröð og spennandi saga og heimurinn sem Ragnheiður Eyjólfsdóttir hefur skapað er uppfullur af furðuverum og kynjaskepnum sem búa í heimi stútfullum af göldrum, sögum, álögum og örlögum.
Undirheimar eru saga um baráttu góðs og ills en það er ekki alltaf ljóst hvorum hópi álfar og aðrar verur tilheyra. Sumir sigla undir fölsku flaggi, aðrir leyna því hverjir þeir eru eða hvert markmið þeirra er til að vernda aðra og enn aðrir vita ekki hvoru liðinu þeir vilja tilheyra. Stundum er ekki einu sinni á hreinu hverjir teljast til góðu gæjanna og hverjir til þeirra vondu. Saga og vinir hennar reyna eins og þeir geta að lesa rétt úr aðstæðum, orðum og gjörðum annarra til að finna hina réttu leið sem og að bjarga íbúum Álfheima undan kúgun og ofríki. Þetta reynist þó þrautinni þyngri. Saga er ásökuð um svartagaldur, þau eru hundelt af hræðilegum berserki, eftirlýst, réttdræp og neyðast til að leita til Undirheima eftir vernd og aðstoð.

Einhverjir áhugaverðustu kaflar bókarinnar eru þeir sem gerast í Undirheimum. Þar er bústaður þeirra sem ekki geta, einhverra hluta vegna, búið ofanjarðar, forðast yfirvöld og eru jafnvel eftirlýstir. Þarna langt ofan í jörðinni, fjarri sólarljósi, grænu grasi og ferskum mat, býr fjöldi fólks við langvarandi skort á nauðsynjum og einkum fer fábreytilegur maturinn fyrir brjóstið á Sögu. Einn skammtur á dag af gráleitum graut finnst henni ekki nægur matur en íbúar Undirheima kvarta þó ekki og láta engan bilbug á sér finna, þrátt fyrir sögur um ofbeldi, útgöngubann, matarskort og handtökur. Saga er steinhissa af fólkið skuli ekki hafa glatað allri lífsgleði en það segir:

„Við þekkjum ekkert annað. Við heyrum bara frásagnir af ferska loftinu, grasinu og trjánum. Börnin okkar vaxa upp við að heyra söguna af því að einhvern tíma komi Bláeygur og leiði okkur út úr myrkrinu og þá fái þau að sjá Álfheima. Það fyllir okkur öll ómældri gleði að finna loksins fyrir von. Von um að geta boðið börnum okkar betra líf en við höfum mátt þola.“ (137)

Fólkið í Undirheimum bindur vonir við að Saga sé sjálfur Bláeygur. Ekki er því nóg með að Saga, sem er vön því að enginn veiti henni eftirtekt, þurfi að venjast því að allir þekki hana og að henni séu ætluð þau örlög að kollvarpa núverandi stjórnskipulagi heldur er hún fyrsti og eini vonarneisti langkúgaðra íbúa Álfheima. Þetta er stór biti fyrir 12 ára gamla stúlku að kyngja.

Í Álfheimum er sannarlega söguefni í fleiri bækur og ef til vill hefði verið snjallt að geyma einhverjar persónur eða sögur og segja frá þeim síðar.
Saga sjálf er spennandi persóna og vel skrifuð en ekki síður áhugavert er samspil hennar, Baldurs, Örvars og Blakks. Baldur er, eins og áður sagði, fylgja Sögu og þau geta vart án hvors annars verið. Þeim líður vel saman, þau skilja hvort annað auk þess sem Baldur er þeim hæfileikum gæddur að geta talað. Böndin á milli þeirra styrkjast dag frá degi. Þau skynja návist og tilfinningar hvors annars auk þess sem hæfileikar annars þeirra smitast yfir til hins; sem dæmi má nefna að lyktarskyn Sögu tekur miklum framförum eftir að hún kynnist Baldri. Eftir því sem böndin á milli þeirra verða sterkari tekst þeim meira að segja að stunda hugsanaflutning – tala saman án þess að segja orð. Loks tekst þeim að færa meðvitund sína inn í líkama hvors annars og hefur þessi hæfileiki heilmikil áhrif á gang mála í sögunni. Samband Sögu og Baldurs við þá Örvar og Blakk er af allt öðrum toga. Þau þola ekki hvort annað, verður hreinlega illt af að vera í sama rými og finna hjá sér líkamlega þörf til að ýmist ráðast á eða verja sig gegn hinum. Samband þeirra tekur gríðarmiklum breytingum í rás sögunnar og kennir lesendum að ekki er allt sem sýnist og oft reynist nauðsynlegt að láta af eigin fordómum og reyna að sjá hlutina með öðrum augum en sínum eigin.

Undirheimar eru hröð og spennandi saga og heimurinn sem Ragnheiður Eyjólfsdóttir hefur skapað er uppfullur af furðuverum og kynjaskepnum sem búa í heimi stútfullum af göldrum, sögum, álögum og örlögum. Þarna ægir öllu saman svo lesanda finnst stundum nóg um og á í fullu fangi með að henda reiður á öllum persónunum, stöðunum og sögunum sem dansa um á síðum bókarinnar. Þetta er forn heimur sem aðdáendur fantasía munu gleypa í sig en ég hugsa að þeir vilji meira, að þeir vilji aðra bók. Í Álfheimum er sannarlega söguefni í fleiri bækur og ef til vill hefði verið snjallt að geyma einhverjar persónur eða sögur og segja frá þeim síðar. Miðað við sögulok er ljóst að það er sannarlega efni í fleiri sögur af átökum í Álfheimum.[/cs_text]

Um höfundinn
Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands en doktorsverkefni hennar fjallar um barnabókmenntir. Helga hefur skrifað greinar, haldið fyrirlestra og kennt námskeið á sviði nútímabókmennta, einkum þó á sviði barnabókmennta og afþreyingarbókmennta.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701