Eitthvað fyrir alla – líka fyrir fíla

[cs_text]hugras_bleiki_fillinn_litilÍslenski fíllinn er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Brúðuheima hins margverðlaunaða Bernds Ogrodniks og er leikstýrt af Ágústu Skúladóttur. Bernd hefur í nógu að snúast en hann semur handritið, ásamt Hildi M. Jónsdóttur, auk þess sem hann sér um brúðugerð og brúðuleik, tónlist og sjálfa leikmyndina. Það var því vel við hæfi að það var hann sjálfur sem trítlaði niður tröppurnar sem liggja upp að leikhúsloftinu og bauð gesti hjartanlega velkomna á sýninguna. Ungir áhorfendur virtust sérlega ánægðir með svo vinalegar móttökur. Salurinn er bæði lítill og dimmur en þröngt mega sáttir sitja og eftir ábendingu frá Bernd hömuðust fullorðnir gestir við að raða sér og sínum þannig upp að ekki skyggði á neinn og allir sæju vel á sviðið. Þegar ró var komin í salinn brá Bernd sér baksviðs og sýningin hófst.

Ayodele er svo heppin að hún kynnist kríu einni sem segir henni frá útópíunni Íslandi þar sem allt flæðir í vatni – allir geta drukkið eins og þeir vilja auk þess sem nóg sé af grasi.
Sagan hefst í Afríku og fyrstu senurnar eru án orða. Tónlistin sem ómar gefur til kynna hvar í heiminum við erum stödd og sá hluti sviðsmyndarinnar sem notaður er í þessum senum er óneitanlega hefðbundið „afrískur“ að sjá, hvort sem er náttúran eða vísanir í afríska myndlist. Sögð er sagan af því hvernig tveir fílar hittast við vatnsból, fella hugi saman og eignast lítið barn – hana Ayodele (Vigdís Hrefna Pálsdóttir). Þurrkar herja á Afríku, vatnsbólið þornar upp og foreldrar fílsungans deyja. Eftir stendur Ayodele munaðarlaus og þarf að leita að nýju vatnsbóli. Í þessum hluta leikritsins eru ekki notaðar eiginlega brúður heldur það sem helst mætti kalla dúkkulísur og leikið er með ljós og skugga til að skapa rétta stemningu en Ólafi Ágústi Stefánssyni tekst þarna einkar vel upp. Þetta er fallegur en hægur kafli í verkinu og mjög svo vel virku fylgisveinar mínir voru farnir að iða ansi mikið þegar inn á neðri pall sviðsins þrammaði loksins Ayodele, fagmannlega stjórnað af Bernd, og hóf upp raust sína.

hugras_bleiki_fillinn3

Ayodele er svo heppin að hún kynnist kríu einni (Lára Jóhanna Jónsdóttir) sem segir henni frá útópíunni Íslandi þar sem allt flæðir í vatni – allir geta drukkið eins og þeir vilja auk þess sem nóg sé af grasi. Hún leggur af stað í leiðangur en ferðalagið reynist henni erfitt og þegar hún er við það að gefast upp á að synda til Íslands fær hún far hjá vingjarnlegum hvali (Ragnheiður Steinþórsdóttir) sem stefnir á Íslandsmið. Ayodele er uppnumin við komuna í Paradís og sér að allt sem krían hafði sagt henni, er satt: Nóg er bæði að bíta og brenna, hér ætti henni sannarlega að líða vel. Íslensku dýrin eru hins vegar ekki ánægð með þennan framandi gest. Kindurnar finna henni allt til foráttu og flæma fílinn upp á fjöll sem hefur þá leit sína að hinum alvísa ref sem getur veitt henni góð ráð. Með í för eru svo tvær mýs (Snorri Engilbertsson og Oddur Júlíusson), hrafn (Ólafur Egill Egilsson), kýr (Tinna Lind Gunnarsdóttir) og hestur (Stefán Hallur Stefánsson) en þetta eru vinir Ayodele og vilja henni allt hið besta. Á langri leið upp snarbratt fjallið sýnir Ayodele sig og sannar þegar henni tekst, sérstöðu sinnar vegna, að bjarga kind í sjálfsheldu. Í framhaldi af því fær hún blessun hinna fúlu kinda og refurinn vísi blessar dvöl hennar á Íslandi.

Sem betur fer eru persónur leikritsins sumar drepfyndnar, án þess hefði boðskapurinn örugglega kaffært frásagnargleðina.
Íslenski fíllinn er ekki alls ekki flókin saga og er örugglega ekki ætlað að vera það. Engu að síður ber hún mikinn boðskap sem tengist umhverfisvanda jarðarinnar og flóttamannavandanum. Afstöðu Íslendinga, og raunar allra sem búa við svipuð forréttindi og við, er lýst mjög vel og sögu sem þessa er auðvelt að nota í samræðum við unga leikhúsgesti til að ræða ýmis samfélagsmein. Sem betur fer eru persónur leikritsins sumar drepfyndnar, án þess hefði boðskapurinn örugglega kaffært frásagnargleðina.

hugras_bleiki_fillinn

Íslenski fíllinn er skemmtilegt leikrit og persónurnar eru það líka. Ayodele er ljúf hnáta og áhorfendur finna ósjálfrátt til með henni. Hrafninn, leiðsögumaður hennar á Íslandi, er óneitanlega fyndnasta persóna leikritsins auk þess sem mýsnar eiga sína spretti. Áhorfendum líkar hins vegar verst við hinar grautfúlu kindur sem koma illa fram við Ayodele. Raddir leikbrúðanna eru leiknar af bandi, sem kom ágætlega út þrátt fyrir einstaka hnökra. Bernd stýrði brúðunum af mikilli leikni og ekki skemmdi fyrir að hann sjálfur var hluti af sýningunni með látbragði sínu og svipbrigðum. Þannig varð það aldrei ankannalegt að hann skyldi sjást fyrir aftan sviðið eða vera augljóslega að stýra brúðunum heldur fékk maður á tilfinninguna að hann væri jafnvel einn af leikurunum.

Vissulega þurftu þeir tíma til að komast inn í söguna og ná taktinum í sýningunni en þegar það var komið sátu þeir gjörsamlega heillaðir.
Brúðurnar eru allar undurfagrar en skemmtilegastar þóttu mér kindurnar sem voru íklæddar íslenskum lopapeysum í sauðalitunum með hefðbundnum íslenskum mynstrum. Sviðið sjálft er sannarlega stórbrotið þrátt fyrir að vera lítið. Það eru ekki notaðir margir leikmunir fyrir utan sjálfa sviðsmyndina sem var einföld og látlaus, að mestu í dempuðum litum, og ákaflega heillandi. Sviðsmyndinni gat Bernd „snúið“ áfram þannig að hún breyttist eftir því sem leið á leikritið. Að auki var hluti hennar á hjörum bæði til vinstri og hægri og þannig hægt að „opna“ hluta sviðsins og loka þegar við átti.

Íslenski fíllinn er lágstemmt leikrit í hægum takti, óralangt frá ógnarhröðum klippingum, neonlitum og æðisgenginni tónlist nútímabarnaefnis. Það hefur eflaust verið freistandi fyrir leikstjórann að færa sýninguna í nútímalegra form, ef svo má segja, en ég er fegin að Ágústa Skúladóttir lét ekki undan þeirri freistingu. Það verður þó að viðurkennast að ég hafði áhyggjur af því að ógnarspenntir samferðarsveinar mínir yrðu leiðir og óþreyjufullir, því sjálfri fannst mér sýningin full hæg á köflum. Svo var þó ekki. Vissulega þurftu þeir tíma til að komast inn í söguna og ná taktinum í sýningunni en þegar það var komið sátu þeir gjörsamlega heillaðir. Að sýningu lokinni risu þeir á fætur, hrópuðu húrra, klöppuðu sem mest þeir máttu og þustu svo með öllum hinum börnunum að heilsa upp á Bernd og skoða leikbrúðurnar.[/cs_text]

Um höfundinn
Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands en doktorsverkefni hennar fjallar um barnabókmenntir. Helga hefur skrifað greinar, haldið fyrirlestra og kennt námskeið á sviði nútímabókmennta, einkum þó á sviði barnabókmennta og afþreyingarbókmennta.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000746

118000747

118000748

118000749

118000750

118000751

118000752

118000753

118000754

118000755

118000756

118000757

118000758

118000759

118000760

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

158000346

158000347

158000348

158000349

158000350

158000351

158000352

158000353

158000354

158000355

158000356

158000357

158000358

158000359

158000360

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

228000116

228000117

228000118

228000119

228000120

228000121

228000122

228000123

228000124

228000125

228000126

228000127

228000128

228000129

228000130

228000131

228000132

228000133

228000134

228000135

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701