Þrjár smásögur

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu.

Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar. Jón Karl Helgason, prófessor við Íslensku og menningardeild, les sögu sem hann þýddi sjálfur og birtist í Evrópuhefti ritraðarinnar. Sagan, sem kom fyrst út árið 2009 og er eftir króatíska rithöfundinn Zoran Malkoč, heitir „Þegar ég var Pila gamla, dauð en í blóma lífsins“. Kristín Guðrún Jónsdóttir, dósent við Mála- og menningardeild, les sögu sem hún þýddi sjálf og birtist í Smásögum Rómönsku-Ameríku. Sagan, sem er eftir gvatemalska rithöfundinn Augusto Monterroso, birtist á frummálinu árið 1959 og heitir „Mr. Taylor“. Rúnar Helgi Vignissyni valdi að lesa smásögu sem hann þýddi sjálfur, eftir norska rithöfundinn Lailu Stien sem kom út árið 1979 og heitir „Ferðin út í eyjuna“.

Um höfundinn
Hugrás

Hugrás

[fblike]

Deila