Fyrirlesarar á Hugvísindaþingi

Hugvísindaþing verður haldið á netinu 18. og 19. september. Af því tilefni sló Hugvarp á þráðinn til fjögurra fræðimanna og bað þá um að segja okkur frá þeirra fyrirlestrum og málstofum. Boðið verður upp á 22 málstofur um fjölbreytt viðfangsefni, þ.á m. konur og örnefni í fornsögum, samtöl við sýndarverur, íslenska vísindaskáldskaparmynd, hvítleikann í íslenskri samtímalist, annálaðan harðindakafla í Íslandssögunni, íslenska táknmálssamfélagið og sögur sem til þessa hafa rykfallið í handritageymslum.

Hér að neðan má hlýða á hlaðvarpið en einnig er hægt að gerast áskrifandi að Hugvarpi, hlaðvarpi Hugvísindasviðs, á öllum hlaðvarpsveitum.

Um höfundinn
Hugrás

Hugrás

[fblike]

Deila