Hugmyndaheimur Páls Briem

Í Fréttir, Hugvarp, Pistlar höf. Hugrás

Út er komin bókin Hugmyndaheimur Páls Briem, en í hana skrifa sjö sagnfræðingar um Pál Briem, sýslumann og þingmann. Páll Briem var einn áhrifamesti stjórnmálamaður Íslands á seinni hluta 19. aldar og markaði víða spor í íslensku þjóðlífi þó að hann næði ekki háum aldri. Starfsævi hans spannaði allan seinni hluta Landshöfðingjatímans og er til marks um þá gerjun sem var í íslensku samfélagi á þeim tíma. Ný baráttumál komu til sögunnar til viðbótar við þjóðfrelsisbaráttuna, svo sem áhersla á verklegar framkvæmdir og efnahagslegan viðgang Íslands en einnig aukið lýðræði, jafnrétti kynjanna og meiri pólitíska þátttöku almennings.

Páll vildi lyfta umræðu um framtíð Íslands úr hjólförum stjórnarskrármálsins og átti umdeildasta hugmynd hans, Miðlunin, að vera skref í þá átt. Þar hafði Páll ekki erindi sem erfiði en með nýjum áherslum í stjórnmálaumræðunni og deilum Valtýinga og Heimastjórnarmanna um aldamótin 1900 virtist aftur hafa skapast rými fyrir Pál og sjónarmið hans. Starfsævi Páls er því bitastætt og margslungið viðfangsefni. Í bókinni eru birtar greinar sjö sagnfræðinga sem fjalla um Pál Briem í ljósi sinnar sérþekkingar og er útkoman sagnfræðirit þar sem ferill Páls er greindur út frá ýmsum sjónarhornum. Sjónum er sérstaklega beint að vanmetnu framlagi hans til stjórnmála- og hugmyndasögu Íslendinga.

Það eru Háskólaútgáfan og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands sem gefa bókina út en ritstjórar eru sagnfræðingarnir Ragnheiður Kristjánsdóttir og Sverrir Jakobsson. Hér að neðan má hlýða á viðtal við þau en einnig er hægt að gerast áskrifandi að Hugvarpi, hlaðvarpi Hugvísindasviðs, á öllum hlaðvarpsveitum.

[fblike]

Deila