Hlaðvarp Engra stjarna #4: Bíó Paradís – fyrsta listabíóið, síðasta listabíóið?

Í fjórða þætti Hlaðvarps Engra stjarna ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Hrafnkel Úlf Ragnarsson um sérstöðu Bíó Paradísar í íslenskri kvikmyndahúsamenningu og mikilvægi þess að hér á landi sé starfandi að minnsta kosti eitt listabíó. Þá ræðir Björn Þór við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar, um sögu bíósins, stöðu mála nú um mundir og framtíðarhorfur. Að lokum kemur Oddný Sen í þáttinn en hún er verkefnisstjóri kvikmyndafræðslu Bíó Paradísar og hún segir Birni frá þessum mikilvæga þætti í starfi bíósins.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþætti Engra stjarna og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á Spotify, iTunes og öðrum hlaðvarpsveitum.

[fblike]

Deila