Lífið finnur leið

Jurassic World: Fallen Kingdom (2018, J.A. Bayona) tekur upp þráðinn þremur árum eftir hörmungar Jurassic World (2015, Colin Trevorrow), sem áttu sér stað á eyjunni Isla Nublar, þeirri sömu og hýsti upprunalega Júragarðinn (Jurassic Park, 1993, Steven Spielberg). Risaeðlurnar hafa fengið að lifa á eyjunni óáreittar en þegar eldfjall vaknar til lífsins blasir endurútrýming við, nema maðurinn grípi inn í.

Hvort slík afskipti séu réttmæt er siðferðisleg spurning sem rædd er í upphafi Fallen Kingdom Ráðleggur þar prófessor Ian Malcolm (Jeff Goldblum), sem svo eftirminnilega ræddi óreiðukenningu sína í Júragarðinum, öldungadeildinni að skipta sér ekki af þróuninni og leyfa skepnunum að enda lífdaga sína í eldgosinu til þess að leiðrétta þau mistök sem klónun þeirra hefur reynst vera. Umheimurinn er hins vegar ekki heilt sammála þeirri yfirlýsingu og telur það skyldu sína að bjarga eðlunum og starfa grasrótarsamtök markvisst að því. Þessi lýsing kann að eiga sér vissa stoð í raunveruleikanum þar sem heilu dýrategundirnar færast nær útrýmingarhættu með hverju árinu sökum ágangs mannfólksins á náttúruauðlindir og mengunar nútímalegrar neyslumenningar. Hins vegar hefur Malcolm bent á það áður í Júragarðinum að risaeðlurnar hafi fengið sitt tækifæri en náttúran valið þær til útrýmingar fyrir 65 milljón árum. Eru vísindamenn of uppteknir af því að velta því fyrir sér hvort þeir geti, í stað þess að doka við og hugsa hvort þeir ættu? Svo staðhæfði Malcolm á sínum tíma en þessi umræða lifir enn góðu lífi í dag, 25 árum síðar, í skugga útrýmingarhættu og skorts á matvælum. Erfðabreytt matvæli (GMO) eru bjargvættir heimsbyggðarinnar að áliti sumra en stórhættuleg að áliti annarra – svo ekki sé minnst á deilur um róttæk inngrip genamengjabreytinga CRISPR tækninnar svokallaðrar.

Síðan eru þessar vangaveltur lagðar til hliðar þar til í blálok myndarinnar. Þess í stað er lagt upp í svaðilför með Owen Grady (Chris Pratt) og Claire Denning (Bryce Dallas Howard), ásamt urmul af öðrum stereótýpum. Þeim er gefið tækifæri til þess að fara til eyjarinnar í boði auðkýfingsins Benjamin Lockwood (James Cromwell), sem var meðstofnandi John Hammond (Richard Attenborough úr Júragarðinum) að InGen sem kom upprunalega garðinum á fót, en hefur aldrei verið minnst á í fyrri kvikmyndunum. Lockwood vitnar blíðlega í Hammond sem á að hafa sagt að risaeðlurnar þurfi ekki á björgun okkar að halda, heldur afskiptaleysi. Það er því hulin ráðgáta af hverju hann fer þvert á vísdómsorð stofnfélaga síns, og fyrrum vinar, og reynir að bjarga eðlunum með því að flytja þær til annarrar eyju sem kosta mun hann formúu fjár. Staðgengill Lockwood, Eli Mills (Rafe Spall), fer fyrir aðgerðinni en reynist vera alger skúrkur – engum til undrunar – og til þess að reka smiðshöggið á fyrirsjáanlega framvinduna vill hann hervæða risaeðlurnar og bjóða þær út.

Nokkrar illskeyttar eðlur á borð við grameðluna prýða myndina en þó helst á kostnað samúðar áhorfenda með hinum eðlunum og afdrifum þeirra. Snareðlan Bláa, sem Owen þjálfaði og ól upp í fyrri myndinni, er tilfinningalegt samúðartól og kemur engum á óvart að spili veigamikið hlutverk í lokauppgjöri myndarinnar. Mills og málaliðar hans eru einfaldar andstæður Owen og Claire og hugsa í dollaramerkjum og svífast einskis í aðgerðum sínum til fjárframa. Tölvusjéníið er afkáralega nördalegur og á að þjóna grínhlutverkinu en í besta falli lyftir öðru munnviki áhorfenda upp um nokkrar gráður. Í hópnum með þeim er einnig forsögudýralæknir (e. paleo-veterinarian) sem aldrei hefur séð eða snert risaeðlu áður en getur engu að síður læknað þær.

Jurassic World var skemmtileg endurræsing (e. reboot) á Júra-myndunum en Fallen Kingdom reynir um of að þenja út mörkin og kemst mögulega að ystu mörkum. Ef til vill finnur framhald sér leið.

Heimasvæði Engra stjarna er hér.

Um höfundinn
Sigurður Arnar Guðmundsson

Sigurður Arnar Guðmundsson

Facebook

Sigurður er nemandi í kvikmyndafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og meðlimur Engra stjarna.

[fblike]

Deila