Hressileg hvatning til gæsku og hjálpsemi

[cs_text]
Sigrún Eldjárn
Sigurfljóð hjálpar öllum!
Mál og menning, 2016
Í sinni nýjustu bók, Sigurfljóð hjálpar öllum!, kynnir Sigrún Eldjárn til sögunnar spánnýja sögupersónu, eldhressa og hjálpsama ofurstelpu sem heitir Sigurfljóð. Telpan hefur ekki alltaf verið ofurhetja, alls ekki. Það er ekki fyrr en hún horfir á sjálfa sig í speglinum einn morguninn og sér og finnur að ekki aðeins hefur hún misst eina framtönn heldur hefur hún öll breyst – hún er orðin miklu, miklu sterkari, öflugri og fljótari en áður. Hún getur stokkið, hlaupið, flogið og meira að segja steypt sér í tvöfaldan kollhnís í loftinu.

Sagan um hana Sigurfljóð sver sig í ætt hefbundinna ofurhetjusagna að því leyti að boðskapurinn er ósköp góður og þegar hún hefur uppgötvað ofurkrafta sína er hún knúin áfram af þörf fyrir að bæta heiminn, laga samfélagsmein og hjálpa náunganum.
Sigurfljóð er í stuttu máli orðin ofurhetja og slíkar hetjur eiga sér nokkuð langa sögu. Samkvæmt því sem segir í bókinni Enter the Superheroes (2013) eftir Alex S. Romagnoli má rekja sögu ofurhetjunnar til myndasögunnar á tímum kreppunnar miklu í Bandaríkjunum. Það var fyrst þá, segir Romagnoli, sem slíkar sögur urðu virkilega vinsælar. Ástæðan var fyrst og fremst sú að ódýr dagblöð og myndasögur voru oft eina skemmtunin sem almenningur hafði efni á og allir – bæði ungir sem aldnir – virtust geta fundið eitthvað við sitt hæfi í ofurhetjusögum. Foreldrum þótti heldur ekki verra að nær undantekningarlaust höfðu sögurnar góðan boðskap fram að færa. Sagan um hana Sigurfljóð sver sig í ætt hefbundinna ofurhetjusagna að því leyti að boðskapurinn er ósköp góður og þegar hún hefur uppgötvað ofurkrafta sína er hún knúin áfram af þörf fyrir að bæta heiminn, laga samfélagsmein og hjálpa náunganum. Það sem er hins vegar óvanalegt við hana er að hún er bæði barn og kvenkyns. Innan barnabókmenntahefðarinnar, sérstaklega myndabókahefðarinnar, er þó nóg til af óhefðbundnum ofurhetjum — við Íslendingar getum meira að segja þakkað Björk Bjarkadóttur fyrir að sjá okkur fyrir ömmu ofurhetju og þess má líka geta að Kafteinn ofurbrók er enginn normal garpur.

Allir hamast við að hjálpa og þá gildir einu hvort um ræðir bálreiða býflugu, mædda mús, pissublauta englabossa eða galdranorn sem glímir við brotið kústskaft.
Þar sem Sigurfljóð uppgötvar ofurkrafta sína fyrir framan baðherbergisspegilinn hringar rautt baðhandklæðið sig um háls hennar og með nýfenginni ofursjón sér hún strák sem „slær prikinu sínu fast og reiðilega  í grindverkið“. Handviss um að honum líði ekki vel fer hún beint til stráksa og sannfærir hann um að þiggja hjálp sína svo honum líði betur. Saman ákveða þau að hjálpa öllum sem þess þurfa. Þau lenda svo  í klóm svipljótra og öskugrárra hrekkjusvína en tekst að fá þau til að lofa að „hætta að stríða og fara í staðinn að hjálpa“. Reiðilegt augnaráð og fúll munnsvipur víkur fyrir björtum augum og brosi og grá fötin verða bæði litrík og mynstruð. Allir hamast við að hjálpa og þá gildir einu hvort um ræðir bálreiða býflugu, mædda mús, pissublauta englabossa eða galdranorn sem glímir við brotið kústskaft. „Þau hjálpa öllum sem eru hjálparþurfi“. Þegar allt er fallið í ljúfa löð leggur Sigurfljóð við hlustir og heyrir að úti í heimi eru börn sem þarfnast hjálpar, „hún heyrir jörðin kalla á hjálp” og einsetur sér að hjálpa öllum. Ljóst er að lesendur geta hlakkað til að lesa meira um ævintýri Sigurfljóðar ofurhetju.

Aðdáendur Sigrúnar kannast fljótt við sig á síðum bókarinnar. Stíllinn, teikningarnar, strigaskórnir og myndir sem líta út fyrir að hafa teiknað sig sjálfar, svo áreynslulausar virðast þær vera. Eins og vanalega eru andlit sögupersóna sérlega tjáningarrík en mér hefur alltaf þótt gaman hvað Sigrúnu tekst með örfáum strikum að breyta svip og skapi persóna sinna. Mest er lagt í myndirnar af Sigurfljóð sem er með stór og skærblá augu en andlitsdrættirnir minna svolítið á söguhetjur í Manga-teiknimyndum án þess þó að vera jafn karkaterlausar og svo algengt er í slíkum bókum. Sigurfljóð er með sítt, ljóst og liðað hár sem virðist lifa sjálfstæðu lífi. Það smeygir sér og læðir út fyrir myndfletina og ljær síðunum mikið líf – hvort sem telpan er á hreyfingu eða ekki. Skikkja Sigurfljóðar – rauða baðhandklæðið – er einnig á stöðugri hreyfingu og fylgir hreyfingum telpunnar. Hreyfingar Sigurfljóðar eru sýndar með rauðum strikum, krúsídúllum og sveigjum. Rauðu sveigjurnar fylgja líka lesendum inn í söguna en á saursíðunum gefur að líta rúm Sigurfljóðar. Rúmið er galtómt fyrir utan samankuðlaða sængina en rauðar lykkjurnar gefa til kynna að einhver hafi stokkið upp úr rúminu og flogið inn í bókina. Á baksíðunni smá svo sjá hvernig rauðu lykkjurnar þeytast í burtu – út úr bókinni og sögunni og inn í ný ævintýri. Neðst standa krakkarnir úr sögunni og veifa.

Rauði ofurhetjuliturinn gengur eins og rauður þráður í gegnum alla bókina.
Sigurfljóð hjálpar öllum er feikilega skemmtileg og lífleg saga og bókin öll myndar eina heild, þ.e.a.s myndir, texti og allt umbrot hjálpast að við að koma sögunni til skila til lesenda og/eða áheyrenda. Rauði ofurhetjuliturinn gengur eins og rauður þráður í gegnum alla bókina. Kjölur bókarinnar er í þessum lit, skikkja og skór Sigurfljóðar sömuleiðis og hluti bókartitilsins, svo dæmi séu nefnd. Hreyfingar Sigurfljóðar eru, eins og áður sagði, gerðar augljósari með þessum sama lit og hið sama er að segja þegar Sigurfljóð skynjar eitthvað með nýfenginni ofursjón eða ofurheyrn – það er sýnt með fallega rauðum brotalínum. Texti og myndir fylgjast að, þ.e.a.s. það er samræmi á milli mynda og texta sem hjálpast að við að segja söguna alla. Dæmi um það er þegar Bogi ætlar að stinga Sigurfljóð af þegar þau fyrst hittast. „Bogi tekur á sprett“, segir í sögunni, fyrir neðan sést Bogi á harðahlaupum og síðan stendur: „Þá heyrist þytur í lofti“. Á næstu síðu má sjá fimm bogadregnar rauðar línur og fyrir neðan stendur Sigurfljóð. Með því að lesa saman mynd og texta er augljóst að Sigurfljóð hefur stokkið eða flogið upp í loft og síðan lent fyrir framan Boga. Þetta er þó alls ekki skýrt ef aðeins er rýnt í myndirnar eða textinn lesinn einn og sér.

Ofurhetjusagan um hana Sigurfljóð, litla telpu í röndóttum náttfötum með rautt handklæði um hálsinn, er sérlega hressileg hvatning til að vera bæði góður og hjálpsamur. Ekki veitir af að hamra á mikilvægi þess og ekki er verra þegar boðskapurinn er færður í svo glæsilegan og skemmtilegan búning. Ég vona að ég hafi túlkað síðustu síður bókarinnar rétt – að það sé von á fleiri ævintýrum um Sigurfljóð.[/cs_text]

Um höfundinn
Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands en doktorsverkefni hennar fjallar um barnabókmenntir. Helga hefur skrifað greinar, haldið fyrirlestra og kennt námskeið á sviði nútímabókmennta, einkum þó á sviði barnabókmennta og afþreyingarbókmennta.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701