Hannah Arendt og lágkúra illskunnar

Um höfundinn
Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson er prófessor í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hans eru almenn þýðingafræði, enskar og þýskar bókmenntir, upplýsingin í Evrópu, þýðingasaga, málstefna á Íslandi og annars staðar og íslenskar samtímabókmenntir. Sjá nánar

Þýski leikstjórinn Margarethe von Trotta gaf sér á dögunum í sjötugsafmælisgjöf kvikmynd um Hönnuh Arendt, sem skilgreindi kannski einna best á undanfarinni öld skelfilegustu myndir alræðisins og þátt einstaklingsins, tannhjólsins í þeim morðverksmiðjum sem þessi ríki voru.

Myndin um Hönnuh Arendt er engin ævisaga heldur eru umdeildar greinar hennar og bók um réttarhöldin yfir Adolf Eichmann snemma á sjöunda áratugnum í brennipunkti. Þessi réttarhöld vöktu mikla athygli á sínum tíma vegna þess að ísraelska leyniþjónustan Mossad rændi Eichmann í Argentínu þar sem hann fól sig og flutti til Jerúsalem til að rétta yfir honum. Hannah Arendt, sem starfaði sem háskólakennari í New York, skrifaði ritstjórn tímaritsins The New Yorker og bað um að fá að skrifa um réttarhöldin. Í myndinni er það sett fram þannig að ekki hafi allir innan blaðsins verið jákvæðir, sem vel getur verið dramatískt bragð og líka sannleikanum samkvæmt, en það sem myndin dregur mjög vel fram, og kannski hefur fallið í gleymsku núna, eru viðbrögð sumra gyðinga við greinum hennar.

Kenning Hönnuh Arendt um lágkúru illskunnar (e. banality of evil) er víðkunn og er tilraun til að skilja hvernig fjöldi fólks, Þjóðverjar og reyndar miklu fleiri, gátu orðið þátttakendur í morðverksmiðjum alræðisríkis. Skýring hennar er sú að ekki sé um að ræða djöfla í mannsmynd, demóna sem myrða af sadískri ánægju, heldur um lágkúruleg meðalmenni, möppudýr sem aðeins gera það sem þeim er sagt, af því þau neita sér um að hugsa um afleiðingar gerða sinna og ákvarðana og sjá þær einungis sem fyrirmæli annarra. Að hennar dómi eru þetta manneskjur sem afneita eigin persónuleika og vinna bara vinnuna sína.

Þetta eitt mátti leggja út sem einhvers konar afsökun að margra dómi, og er vel farið yfir það í snjöllum samtölum í myndinni, stundum í samkvæmum og stundum annars staðar, en þau eru svo vel heppnuð að það er drama í þeim sem byggir undir spennuna í framvindunni. Gyðingum þótti ýmsum að tekið væri frá þeim hið andgyðinglega í þessum fígúrum, ef svo má að orði komast, að þeir væru ekki lengur fórnarlömb nasistanna vegna uppruna síns heldur vegna einhvers skrifræðis. Það var vitaskuld ekki réttur skilningur, heldur var Arendt aðeins að reyna að skilja hvernig kerfið gat verið svona skilvirkt og hún taldi sig sjá það í manneskjunni Adolf Eichmann sem vitnaði í regluparagröf sér til varnar og notar leikstjórinn upprunalegt efni við þau tækifæri.

Greinarnar í The New Yorker urðu þó enn umdeildari út af öðru atriði sem snart marga gyðinga djúpt, en þar bendir Arendt á að sumir úr hópi gyðinga urðu hluti af þessari stjórnvaldsmaskínu alræðisins og aðstoðuðu þar með möppudýrin við framkvæmd þjóðarmorðsins. Þetta er þekkt söguleg staðreynd og reyndar sem almennt sálarástand fórnarlamba líka, en myndin undirstrikar heiftarleg viðbrögð og vinslit sem urðu vegna þessara fullyrðinga Arendt. En kannski höfðu menn almennt áttað sig á þessu þegar Listi Schindlers var gerður, þar eru sumir aðstoðarmenn möppudýranna úr hópi gyðinga og skiptir líkast engu hver uppruni þeirra er, lífsháskinn breytir mörgum manninum í allt það sem hann fyrirlítur og hatar meðan hann er öruggur og saddur. En margir hafa enn ekki fyrirgefið Hönnuh Arendt fyrir þessi skrif sín eins og sjá má í nýlegri grein í vefritinu Slate.

Ein mikilvæg persóna er í aukahlutverki í myndinni, heimspekingurinn Martin Heidegger, sem var elskhugi Hönnuh Arendt meðan hún var nemandi hans og hvílir yfir honum langur skuggi nasismans sem hann þótti hallur undir og víst er að frami hans hikstaði ekkert á valdatíma nasista. Þessi hluti myndarinnar er dálítið klaufalegur í formi endurlits og skil ég ekki alveg hvað hann er að gera þarna; kannski á hann að skýra að þrátt fyrir allt hafi Heidegger kennt henni að hugsa, eða kannski að hún hafi orðið fyrir miður góðum áhrifum af honum. Vísast hefur leikstjóra og handritshöfundi einfaldlega ekki þótt stætt á að sleppa heimspekingnum fræga, en þær hefðu betur gert það því meira að segja samtölin og leikurinn detta niður í þessum senum.

En þótt kenningar Arendt séu kannski enn umdeildar og eigi reyndar ekki endilega við um Eichmann sjálfan (ég heyrði ungan heimspeking segja í viðtali í sjónvarpi að hún hafi ekki haft rétt fyrir sér um hann, en þó um mörg önnur möppudýr kerfisins; hún vildi meina að Eichmann hafi einfaldlega hermt eftir þeim sér til varnar), þá finnst manni „möppudýrakenningin“ sannfærandi þegar maður kynnist þeim kerfum sem ríki heims, líka lýðræðisleg réttarríki, koma sér upp til að takast á við þarfir fólks, einkum fólks sem ekki á neitt undir sér og er framandi. Kannski ætti að skylda alla sem vinna t.d. í útlendingastofnunum heims að lesa um lágkúru illskunnar og velta fyrir sér hvort hent geti að þeir eða þær hætti að hugsa með öllu.

Deila


Comments

One response to “Hannah Arendt og lágkúra illskunnar”

  1. Magni Hjámarsson Avatar
    Magni Hjámarsson

    Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það að leggja eyrun við slúðri og lygum um náungann og taka þannig beinan og óbeinan þátt í einelti, sé ekki af sama meiði og “lágkúruleg illska” sem Hannah Arendt skilgreinir. Veistu hvar ég get fundið meiri upplýsingar um þetta? Finnst þér við hæfi að nota hugtakið þannig?
    Kveðja,
    Magni

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000616

118000617

118000618

118000619

118000620

118000621

118000622

118000623

118000624

118000625

118000626

118000627

118000628

118000629

118000630

118000631

118000632

118000633

118000634

118000635

118000636

118000637

118000638

118000639

118000640

118000641

118000642

118000643

118000644

118000645

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

128000676

128000677

128000678

128000679

128000680

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000696

128000697

128000698

128000699

128000700

128000701

128000702

128000703

128000704

128000705

128000706

128000707

128000708

128000709

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

208000341

208000342

208000343

208000344

208000345

208000346

208000347

208000348

208000349

208000350

208000351

208000352

208000353

208000354

208000355

208000356

208000357

208000358

208000359

208000360

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000371

208000372

208000373

208000374

208000375

208000376

208000377

208000378

208000379

208000380

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

news-1701