Þungt loft, þungar byrðar

[cs_text]Kvikmyndin Moon, 66 Questions er fyrsta mynd gríska handritshöfundarins og leikstjórans Jacqueline Lentzou í fullri lengd en áður hefur hún vakið athygli fyrir stuttmyndir sínar. Myndin var frumsýnd í Frakklandi árið 2020 og er sýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF um þessar mundir. Hún segir sögu Artemis (Sofia Kokkali), grískrar unglingsstúlku sem flytur til Aþenu til að sjá um föður sinn, Paris (Lazaros Georgakopoulos), sem hefur veikst skyndilega af MS-sjúkdómnum. Yfirskrift Moon, 66 Questions birtist áhorfendum í byrjun myndarinnar og má þýða einhvern veginn á þessa leið: „Kvikmynd um flæði, hreyfingu og ást (og skort á þessu þrennu).“

Óbærilegur hiti

Það var margt um manninn á kvikmyndahátíðinni RIFF í Bíó Paradís þegar ég fór að sjá myndina og þegar ég kom inn í kvikmyndasalinn tók á móti mér heitt og þungt loft. Um leið og ég settist niður hugsaði ég með mér að mögulega þyrfti að athuga loftræstinguna í salnum, en þegar myndin hófst leið ekki á löngu þar til ég fór að velta fyrir mér hvort að þetta sérkennilega þunga loft hafi átt að vera hluti af áhrifum myndarinnar. Sennilega ekki, en á einhvern ótrúlegan hátt rímuðu aðstæðurnar í bíósalnum vel við sögusvið myndarinnar sem er borgin Aþena í grískum sumarhita. Myndin er hæg og hverfist um aðalpersónuna Artemis sem tekur á sig þungar byrðar í öllum skilningi. Hún býr ein með föður sínum, Paris, og fyrir utan það að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir um líf hans í tengslum við lyf, hjálpartæki og önnur praktísk mál neyðist hún til að aðstoða föður sinn, sem er líklega tvöfalt þyngri en hún sjálf, við allar daglegar athafnir; sjúkraþjálfun, æfingar og klósettferðir. Þannig fylgist áhorfandinn með hinni ungu aðalhetju taka á sig æ meiri ábyrgð og leggja á sig líkamlega vinnu í hitanum í stað þess að njóta sumarsins með jafnöldrum sínum.

Of sannfærandi raunsæi?

Skemmst er frá því að segja að í það minnsta fjórir gengu út af myndinni í Bíó Paradís. Ég skal ekki fullyrða um hver ástæðan var; hún gæti hafa verið loftleysið eða þá einfaldlega þreyta eftir langa helgi á RIFF. Þó að mér sjálfri hafi ekki komið til hugar að ganga út hugsaði ég samt með mér að þessi mynd væri sannarlega ekki fyrir alla. Með hægum og nánast dáleiðandi skotum tekst leikstjóranum að skapa sannfærandi atburðarás, til að mynda eru senurnar þar sem Artemis hjálpar Paris með líkamlegar hreyfiæfingar sérlega áhrifamiklar. Dýnamíkin á milli feðginanna kemur skýrt fram í þessum atriðum og myndhverfist í eins konar dansi á milli þeirra sem er þeim báðum líkamlega erfiður – stundum um of. Samtímis kom mér til hugar að myndin væri nánast of sannfærandi, of þung – að minnsta kosti fyrir þá sem hafa upplifað eitthvað í líkingu við þróunina sem á sér stað í myndinni. Það er ekki hægt að segja að feðginin brosi í gegnum tárin heldur virðist líf þeirra þvert á móti vera þunglamalegt á alla vegu. Þetta gæti að minnsta kosti verið ein skýringin á því að fólk gekk út í miðri sýningu.

Að því sögðu á kvikmyndin þó hrós skilið fyrir að detta aldrei ofan í tilfinningalegar klisjur. Hún fjallar ekki um sjúklinginn Paris heldur um manneskjuna Paris og á bak við hin líkamlegu erfiði sem bæði Artemis og Paris þurfa að þreyja leynist flókið samband foreldris og barns þar sem einhvers konar tengslaleysi eða rof virðist hafa átt sér stað. Í gegnum hið erfiða ferli sem Artemis hefur fyrir höndum sér sem aðstandandi og umönnunaraðili verður hún nánast heltekin af persónu föður síns og byrjar í kjölfarið að grafast fyrir um fortíð hans í tilraun til að skilja hann betur. Þannig nær hægt og flæðandi andrúmsloft myndarinnar að mettast af spennu og vekja forvitni áhorfandans. Í lok sögunnar verða kaflaskil í samskiptum feðginanna en fram að þeim verða litlar sem engar breytingar á samskiptum þeirra, sem alla jafna eru ópersónuleg og einkennast af afskipta– og áhugaleysi Paris, bæði á dóttur sinni og lífinu sjálfu.

Innræn kvikmyndataka eykur á þyngslin

Myndin gerist að stórum hluta inni í húsi þeirra feðgina og þó að kvikmyndatakan sé á köflum áhrifarík þykir mér hún helst til of innræn á heildina litið. Svo virðist sem innra líf Artemis eigi að vera aðalatriðið í vissum senum og þá er jafnvel súmmað inn á andlit hennar í miðju samtali til að beina sjónum að viðbrögðum hennar. Þetta getur virkað í einhverjum tilfellum en verður að mínu mati of fyrirferðarmikil frásagnartækni í myndinni og beinlínis truflandi á köflum þegar hún tekur athyglina frá mikilvægum atriðum í fléttu sögunnar. Sömuleiðis ýkti þetta upp hægaganginn og þyngslin í verkinu sem fór ekki sérlega vel saman við loftið í bíósalnum. Frásögnin sjálf er þó heilsteypt og persónusköpunin sterk, ekki síst fyrir tilstilli aðalleikaranna tveggja sem fara á kostum í myndinni og lyfta verkinu upp á hærra plan. Á heildina litið er Moon, 66 Questions falleg og marglaga kvikmynd sem skilur mikið eftir sig, en þó er ef til vill vissast að þeir sem hyggjast skella sér á hana á RIFF séu búnir að kynna sér efnistökin áður en þeir splæsa í miða.[/cs_text]

Um höfundinn
Guðrún Brjánsdóttir

Guðrún Brjánsdóttir

Guðrún Brjánsdóttir er meistaranemi í íslenskum fræðum við Íslensku– og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000631

118000632

118000633

118000634

118000635

118000636

118000637

118000638

118000639

118000640

118000641

118000642

118000643

118000644

118000645

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000701

128000702

128000703

128000704

128000705

128000706

128000707

128000708

128000709

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

208000356

208000357

208000358

208000359

208000360

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701