Meginatriði þessarar tillögu byggir á því að rúmlega helmingur þingmanna, eða 32 alls, yrði kosinn á forsendum núverandi kjördæmakerfis. Restin, eða 31 þingmaður, yrði landskjörinn. Landinu yrði skipt upp í átta kjördæmi þaar sem hvert kjördæmi hefði 4 þingmenn. Í meðfylgjandi töflu má sjá mögulega útfærslu á nýju kjördæmakerfi sem byggir á núverandi kerfi að mestu leyti en skiptir stærstu kjördæmunum upp þannig að nokkurn veginn sami fjöldi atkvæða yrði á bak við hvern kjördæmaakjörinn þingmann.
Eins og hér má sjá væru rétt rúmur helmingur þingmanna kjördæmakjörinn samkvæmt þessari tillögu. Fólk hvar sem er á landinu ætti þá aðgang að sínum þingmönnum sem væru fulltrúar þess. Restin af þingmönnum, eða 31, yrði kosinn á landsvísu. Þeir sem væru kosnir á þann hátt væru allir þeir sem væru í framboði í kjördæmunum 8. Flokkarnir bæru ábyrgð á því að raða þeim í forgangsröð á landslistanum. Framkvæmdin væri sú að þegar búið væri að úthluta þingsætum til kjördæmakjörinna þingmanna færi restin af atkvæðum flokkanna á lista yfir landið allt þar sem þingmenn yrðu kosnir út frá fyrirframgefinni forgangsröð flokkanna.
Niðurstaðan úr þessu væri sú að allir hefðu nokkuð jafnan aðgang að því að velja sér fulltrúa í sínu kjördæmi. Vægi allra atkvæða yrði hins vegar fullkomlega jafnt þegar kæmi að kjöri þingmanna á landsvísu. Þar sem röð frambjóðenda í landskjöri væri ákveðin fyrirfram yrðu breytingar á kjöri manna meðan á kosningu stæði skiljanlegar og hófstilltar, nokkuð sem væri líklegt til að auka traust almennings á skipulagi lýðræðis hér á landi.[/cs_text]
Deila