Mitt kóngsríki fyrir hest ….

[cs_text]Mikið lof hefur verið borið á sýningu Borgarleikhússins á Ríkharði III og það er engin furða. Þetta er afbragðsgóð sýning. Leikstjórnarsigur fyrir Brynhildi Guðjónsdóttur og  leiksigur fyrir Hjört Jóhann Jónsson.  Í þetta sinn er Shakespeare sýndur í nýrri þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem er lipur, skiljanleg og skáldleg í senn og í þetta sinn var framsögn allra leikara svo skýr að jafnvel þungur texti virtist léttur.

Myrkur heimur

Margt hef ég séð fallegt eftir ljósahönnuðinn Björn Bergstein Guðmundsson en þessi sýning sló öllu öðru við. Sviðsmynd Ilmar Stefánsdóttur er mínimalísk, lýsingin kemur til móts við hana og magnar hana upp. Ljós og skuggar leika stórt hlutverk í allri sýningunni. Skáljós úr lækkuðu kösturunum voru skorin af löngum eltiljósum og áferð sýningarinnar var oft eins og hálfrökkvuð bæði vegna sviðsreyks og lýsingar. Minnti á gömul flæmsk málverk.  Stundum mynduðu ljósin veggi og stundum skáru þau rákir í gólfið. Það var þakið svörtum glansandi pappírsræmum sem minntu á hraun, hrafntinnu. En fyrst og fremst undirstrikaði lýsingin hið mannlega myrkur sem William Shakespeare bendir okkur á í þessu fræga verki.

Ríkharður

Sýningasaga Ríkharðs III sem Kate Wilkinson hefur skrifað í RichardIII: A Critical Reader, ber vott um að ímyndunarafli leikhússfólks eru nánast engin takmörk sett þegar kemur að túlkun og skilningi á þessu verki. Það er meðal annars af því að aðalpersónan er snúin gáta. Hvað er í höfðinu á manni sem svívirðir konur og lætur myrða bræður sína og lítil börn þeirra með brosi á vör?  Hvað knýr hann áfram?

„Hinn myrki þríhyrningur“ er það kallað ef þrír geðsjúkdómar koma saman í einni persónu þ.e. siðblinda, narsissismi og valdafíkn (machiavellianismi).  Ætli þetta sé ekki nokkuð góð lýsing á hlutverki Ríkharðs þriðja? Hann skilur ekki orðið „siðferði“, hann elskar ekki sjálfan sig og þar af leiðandi er hann ófær um ást eða samlíðan. Völd er það eina sem getur fyllt upp í tómið innra með honum.  En hann er líka fyndinn og hann heillar bæði konur og karla þó hann eigi að vera mjög bæklaður.  Sjarminn og húmorinn einkenna túlkun og leik Hjartar Jóhanns Jónssonar. Hjá hans Ríkharði er valdabaráttan leikur sem hann dregur áhorfendur inn í.

Konur

Hlutur kvenna er dreginn fram og stækkaður í þessari leikgerð Brynhildar og Hrafnhildar Hagalín. Sigrún Edda Björnsdóttir leikur móður Ríkharðs sem hefur aldrei getað elskað hann. Hún er eins og frosin, valdalaus horfir hún á leik sonarins og harmar gjörðir hans. Mannleg verður hún fyrst þegar þær setjast saman gömlu konurnar, hún og hin kyngimagnaða ekkjudrottningi Margrét sem Kristbjörg Kjeld leikur og Elísabet yngri, 12 ára sem Sólbjört Sigurðardóttir leikur.  Gömlu konurnar staupa sig á vasapela og rekja raunir sínar. Elísabet drottning sem leikin er af Eddu Björgu Eyjólfsdóttur stendur hjá. Lengi hefur hún staðið gegn Ríkharði og það er ömurlegt að sjá hana og Lafði Önnu, sem Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikur, falla fyrir honum. Þegar þær hafa gert það brýst hatur hans á konum fram og kóngur sýnir sitt rétta andlit.

Allir leikararnir eru með míkrófóna og það er orðið frekar regla en undantekning á stóra sviðinu og jafnvel minni sviðum í dag. Það er af því að leikarar kunna ekki lengur að láta röddina berast um allt hús, segja sumir, aðrir benda á að tónlistin sem líka er orðinn fasti í sýningunum krefjist þess að leikarar hækki sig og reykurinn sem svo mjög er notaður í sviðsmyndum sé líka fjandsamlegur rödd leikarans. Með míkrófónunum fylgja bæði kostir og ókostir en það er önnur umræða.

Leikhús í leikhúsi

Öll sýningin bendir á sig sem leikhús sem er undirstrikað strax í upphafinu þar sem persónur leiksins ganga kringum Ríkharð sem situr á stól með hjólum og sveiflar hendi eins og hljómsveitarstjóri.  Viðamesti hluti leikmyndarinnar er upphækkaðir áhorfendabekkir þar sem persónur og leikendur taka sér sæti öðru hvoru og horfa á átök milli hinna þátttakendanna og viðbrögð áhorfenda í salnum. Oft hefur þetta verið gert áður en hér er sviðsmyndin notuð hugvitsamlega sem tákn hinna óvirku og samúðarlausu áhorfenda að harmleikjum annarra sem svo mjög einkennir okkar tíma. Ríkharður virðist skemmta sér betur yfir þessum leik en flestir aðrir af því að það er list hans að leggja gildrur fyrir fólk og veiða það í vef sinn. Það er eitthvað dýrslegt við hann þegar hann þeytist yfir sviðið á stólnum eins og kónguló sem finnur að flugan er föst í vefnum. Og þegar menn neita að lúta stjórn hans í lokin tekur óreiðan við. Sjálfur hangir hann niður úr loftinu eins og strengjabrúða sem enginn vill taka að sér. Það er magnað.[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701