Lífið er kabarett ….

[cs_text]Marta Nordal er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.  Við hana eru bundnar miklar vonir því að sýningar hennar með hinum frábæra leikhópi „Aldrei óstelandi“ voru með því frumlegasta og athyglisverðasta sem sést hefur síðari ár. Fyrsta verkefni hennar á Akureyri, söngleikurinn Kabarett er metnaðarfullt val.

Vinsæll – dáður – áhrifamikill

Á bak við söngleikinn er löng keðja af framleiðslu og endurframleiðslu, allt frá smásögu Christopher Isherwood, Goodby to Berlin (1939) gegnum leikgerðir, bíómynd og loks söngleik (1966) og aðra bíómynd (1972) sem varð feykivinsæl.  Þar lék og söng Liza Minelli hlutverk Sally Bowles og Joel Grey lék skemmtanastjórann.

Skýringin á sívaxandi vinsældum sögunnar af því þegar ameríski rithöfundurinn Cliff Bradshaw kemur til Berlínar á fjórða áratugnum eru margvíslegar. Í upphaflegu sögunni dvelur hann þrjú ár í Berlín, kynnist Sallý og fjölmörgum öðrum jaðarpersónum í skemmtanalífi Berlínar, fólkinu sem lenti í kreppunni miklu. Kuldi, hungur og örbirgð eru hinumegin við hornið, upplausn allra gilda og siðferðis og óttinn ryðja braut fyrir nasismann sem veður uppi hvert sem litið er. Þessi efniviður hefur verið slípaður og fágaður og aðlagaður að allra smekk í leikgerð, bíómynd og loks söngleiknum Kabarett (1966) með grípandi lögum John Kander, textum Fred Ebb og leikgerð Joe Masteroff.

Samkomuhúsið

Þegar ég var stelpa á uppvaxtarárum mínum á Akureyri gat ég ekki ímyndað mér að til væru stærri svið en leiksviðið í Samkomuhúsinu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og stærri svið verið séð. Það hefur kostað mikla útsjónarsemi að koma þetta viðamikilli sýningu með tíu manna hljómsveit fyrir á fjölum Samkomuhússins. Það var samt mikils virði að hafa hana í bakgrunni og sjá og heyra þessa fínu tónlistarmenn undir stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar. Tónlistin er náttúrlega í fyrsta sæti hér.

Leikmyndin sýndi næturklúbbinn KitKat og leiguhúsnæði Frau Schneider og var leyst með einföldum flekum sem var rennt til og frá. Útsjónarsamar sviðslausnir voru notaðar til að spara pláss, bar Sallýjar var til dæmis taska, hengd á snaga og opnaðist út. Annars var leikmynd Auðar Aspar Guðmundsdóttur hrjúf og naumhyggjuleg öfugt við búningana sem voru skrautlegir og dansatriði skemmtileg með hápunkti í górilludansi Fanný Lísu Hevesi.

Strákur hittir stelpu

Þó að Cliff Bradshaw virðist vera meira fyrir stráka en stelpur fellur hann fyrir Sallýju og þau verða par (í söngleiknum, ekki sögu Isherwood). Það breytir miklu því að þannig verður hann þáttakandi í lífi sem hann ætlaði bara að horfa á utan frá. Hjalti Rúnar Jónsson lék Cliff, var vinalegur og sjarmerandi og hefur fína söngleikjarödd. Sally Bowles var leikin og sungin af Ólöfu Jöru Skagfjörð sem sömuleiðis hefur fína rödd, er stórglæsileg og fór vel með hlutverk Sallyjar.  Fyrsta innkoma hennar var rosalega flott. Ég var hins vegar efins um leikgervi skemmtanastjórans, eða Master of Ceremony, sem leikinn var af Hákoni Jóhannessyni. Í KitKat klúbbnum er hann límið í sýningunni, kynnir, er söngvari með eigin númer og sá sem skapar og æsir upp losta gestanna og þar með viðskiptin. Í túlkun Joel Gray í bíómyndinni frá 1972 er hann hvorki karl né kona heldur hvort tveggja, háll eins og áll, feiminn dóni.

Hákon er fínn dansari en gervið var einhvers konar blanda af trúð og pönkara með svartan varalit og ógnandi eða ögrandi, stripbúllulegar hreyfingar. Þetta var eina hlutverkið sem var ekki í períódu og það var misráðið að mínu mati.Kabarett er sögulegt verk enda ekki hægt að gera hvort tveggja að staðfæra hann og hafa uppgang nasista í bakgrunninum. .

Senunni stálu svo Fräulein Schneider, leikin og sungin af Andreu Gylfadóttur og Herr Schultz leikinn af Karli Ágústi Úlfssyni sem einnig þýðir textann. Þau voru reyndustu leikararnir, tilgerðarlaus, pottþétt og bónorðssenan var hjartaskerandi. Ég hef aldrei séð Andreu leika áður á sviði en bæði leikur hennar og söngur voru framúrskarandi.

Menningarferð norður

Við rétt sluppum norður og að norðan fyrir snjóa – bærinn er fallegri en nokkru sinni, maturinn góður og menningin blómstrar alls staðar. Það var mjög gaman að sjá þessa sýningu hjá Leikfélagi Akureyrir og ástæða til að óska Mörtu og hennar fólki til hamingju með hana  og full ástæða til að byrja að hlakka til að sjá meira frá þeim.[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1312

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

30036

30037

30038

30039

30040

30041

30042

30043

30044

30045

80046

80047

80048

80049

80050

80051

80052

80053

80054

80055

80056

80057

80058

80059

80060

80061

80062

80063

80064

80065

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

news-1312