Víða leitað fanga í nýju örsagnasafni: Frá Buenos Aires og Genf til Eskifjarðar

[cs_text]Á haustdögum 2018 kom út í Buenos Aires í Argentínu bók sem á að hluta rætur að rekja til Íslands. Örsagnasafn dr. Enrique del Acebo Ibáñez,[1] sem ber yfirskriftina Arrojando microrrelatos al mar (Buenos Aires – Ginebra – Eskifjörður), eða Örsögum fleytt til hafs (Buenos Aires – Genf – Eskifjörður).[2] Bókin er í senn umfangsmikið safn mislangra örsagna og athyglisverð myndlíking um það hvernig heimsbókmenntirnar tvinnast saman frá degi til dags. Dregnar eru upp myndir af sögu, aðstæðum og reynslu fólks í fjarlægum menningarafkimum, samtímis því sem þeir eru gerðir keimlíkir og jafnvel áþekkir. Atlantshafið gegnir mikilvægu hlutverki sem miðill og ferðamáti flöskuskeyta sem eftir langt ferðalag rekur í net öldungs við Eskifjörð.

Acebo leiðir lesanda sinn af stað með stuttum inngangi sem hann titlar „[U]m ósögðu söguna sem örsögurnar segja“ (bls. 9).[3] Hann þjónar því hlutverki að tvinna verkið saman og tryggja að til verður sagnasveifur sem lokast í síðustu örsögu safnsins. Í inngangi sínum kynnir Acebo til leiks tvo sagnamenn, rithöfunda, sem báðir sitja við skriftir árið 1899. Í Buenos Aires situr óþekktur höfundur, don Luis, og festir hugleiðingar sínar á blað. Hann hefur verið dæmdur í eins konar útlegð því örsagnaformið er á þessum tíma óþekkt og álitið framandi. Menntamönnum borgarinnar fellur það ekki í geð. Því gerist það að í stað þess að gefa sögur sínar út á prenti velur hann úr safninu og gengur dag einn niður að árminni Silfurárinnar – Rio de la Plata – og kastar þeim til hafs í flöskuskeyti. Annað skáld, don Jorge, situr einnig afskiptur og innilokaður í turni í Genf og stundar sömu iðju. Sínu flöskuskeyti fleytir hann frá fjöru Lemanvatns. Hvor um sig skrifa þeir um sömu viðfangsefnin; manninn í umhverfi sínu, tilfinnatengsl, ástina, tímann, tiltekna staði, frelsi, fangelsi, hafið og síðast en ekki síst um bókmenntir. Hugleiðingar þeirra eru margvíslegar. Sumar eru örstuttar og heimspekilegar, eins og í sögunni „Að koma auga á“ („Abrir de ojos“), en þar segir: „Þegar hann hafði talið upp að hundrað og opnað augun, sá hann eftir því. Blindur, kom hann auga á það sem hann hafði alltaf óttast.“ (bls. 16). Í örsögunni „Gleymska“ („Olvido“) segir: „Hann vildi vita nafn hennar til að gleyma henni betur.“ (bls. 48).[4] Aðrar sögur eru kankvísar og kímnar, rétt eins og ber við í sögunni „Draumur“ („Sueño“). Þar segir:

Hann klæddi sig í bestu jakkafötin og fallegustu skyrtuna sem hann átti. Hann setti upp silkibindið sem ætlað var fyrir sérstök tilefni og fór í nýburstaða svarta spariskó. Hann fletti ábreiðunni af rúminu, lagðist fyrir og dró sængina upp að höku. Hann beið þess spenntur að hitta aftur konuna sem hafði birst honum í draumi nóttina áður. Hann vildi að hún sæi sig í sínu fínasta pússi.

Þegar hann vaknaði daginn eftir, var hann allsnakinn (bls. 65).

Enn aðrar, eins og sagan um merkingu hugtaksins „tangó“ (bls. 77) eða um mállýskuna „lunfardo“ (bls. 44),[5] eru lýsandi frásagnir. Rétt eins og enn aðrar hverfast um greinandi skoðun á sögulegum atburðum, samtíma sögumanna eða nútímanum. Í því samhengi mætti t.d. nefna örsögurnar „Sjóræningjar Drakes“ („Los piratas de Drake“) eða „Matarvenjur kelta“ („Los celtas y su dieta“).

Kaflinn sem snýr að umfjöllum um bókmenntir skiptist í tvennt eins og aðrir kaflar safnsins. Fyrst birtast örsögur hins meinta don Luis frá Buenos Aires og því næst hins meinta Jorges frá Genf. Í sögu don Luis „Örstutt“ („Brevísimo“) segir:

Bókmenntagagnrýnandi nokkur skilaði umsögn um nýtt örsagnasafn vel þekkst rithöfundar. Þegar hann átti þess kost að lesa umsögnina kom í ljós að í henni voru engin orð. Gagnrýnandinn vann í kjölfarið mikilvæg verðlaun fyrir stysta ritdóm sögunnar. Rithöfundurinn, miður sín yfir því að enginn frétti af nýútkominni bók hans, lést skömmu síðar úr harmi.

Af þeim fjölda minningargreina og kveðjuorða sem birtust að honum látnum vöktu skrif umrædds bókmenntagagnrýnanda mesta athygli. Þau voru ítarleg, hástemmd og einstaklega lofsamleg. Ekki hvað síst um síðustu bók hans (bls. 155).

Innlegg don Jorge, einnig í kaflanum um bókmenntir, birtist m.a. í örsögunni „Ráðleggingar rithöfundar“ („Consejos de escritor“):

„Ég ætla að skrifa bók“, skrifaði hann sem titil á fyrsta verk sitt. Hann hófst handa. Daga og nætur sat hann við og skrifaði af áfergju. Í hverjum kaflanum á fætur öðrum útlistaði hann nákvæmlega ástæður þess að honum hefði til þessa ekki tekist að skrifa ásættanlega texta. Honum tókst, með eljusemi, að ljúka verkinu. Bókin seldist eins og heitar lummur.

Lesendum varð ljóst að þeir voru ekki einir um óttann við skrifin og hættu að hafa áhyggjur. Þeir urðu hins vegar uggandi yfir því að út kæmi ný bók eftir höfundinn sem nú var landsþekktur (bls. 165).[6]

Og í þann mund sem íslenskur lesandi er við það að missa þolinmæðina og skilur síst í tilvísuninni í Eskifjörð í titli bókarinnar gerist það að síðasta örsaga safnsins blasir við og sagnasveigurinn lokast. Í sögunni, „Íslenski sjómaðurinn“ („El pescador islandés“), gerist það þann 24. ágúst, árið 1999, að öldungurinn Garðar, sem dregið hefur fisk úr sjó úti fyrir Austurlandi frá barnsaldri, fær í net sín tvær glerflöskur stútfullar af þvældum handritum. Hann trúir því að Ægir hafi eitthvað með þennan undarlega feng að gera, en vegna vanþekkingar á erlendum tungumálum getur hann fátt annað gert en dregið aflann að landi og kynnt hann fyrir sonarsyni sínum Garðari yngri. Á leiðinni í land tautar hann fyrir munni sér: „Guðir hafsins og vindsins, þakkir fyrir þessa hinstu gjöf. Ég vissi að hún bærist mér.“ (bls. 176). Undir Hólmatindi er síðan legið yfir textunum, en það er ekki fyrr en löngu síðar, eða þegar Garðar yngri hefur lokið námi í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og sérhæft sig í skrifum argentínska rithöfundarins Jorge Luis Borges, að greiðist úr flækjum völundarhússins og gátan leysist.

Örsagnasafn dr. Enrique del Acebo Ibáñez, Örsögum fleytt til hafs, Arrojando microrrelatos al mar (2018), er margslungið verk, marglaga þraut þar sem bókmenntaarfur margra menningarheima kemur við sögu.

 

[1] Dr. Enrique del Acebo Ibáñez er prófessor í félagsfræði við Salvador-háskólann í Buenos Aires og við Buenos Aires háskóla. Hann er fræðimaður innan vébanda CONICET, Vísindaakademíu Argentínu, og gestaprófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur gefið út fjölda fræðibóka og greina, og eftir hann liggja til þessa fimm örsagnasöfn. Hann vinnur auk þessa við kvikmyndagerð og er frístundamálari.
[2] Enrique del Acebo Ibáñez. Arrojando microrrelatos al mar (Buenos Aires – Ginebra – Eskifjörður). Buenos Aires: Macedonia Ediciones, 2018.
[3]Yfirskrift inngangsins er: „Sobre el cuento no contado que cuenta los microrelatos por contar“.
[4] Hér mætti rétt eins nota kvk, þar sem spænskan gerir ekki endilega greinarmun á kk og kvk í þriðju persónu.
[5] Hugtakið lunfardo vísar til mállýsku (e. dialect, s. jerga) sem varð til meðal lágstéttarfólks og innflytjenda í Buenos Aires undir lok nítjándu og byrjun tuttugustu aldar. Henni bregður víða fyrir í tangó textum þess tíma.
[6] Þýðingar höfundar.[/cs_text]

Um höfundinn
Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir er prófessor í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Í rannsóknum sínum hefur hún lagt áherslu á bókmenntir Rómönsku Ameríku og um þessar mundir vinnur hún að nýrri bók um málefni minnihlutahópa við Karíbahafsströnd Mið-­Ameríkuríkja. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701