Sungið milli menningarheima

[cs_text]Söngur Kanemu var frumsýnd á Skjaldborg sl. vor, heimildarmyndahátíðinni á Patreksfirði, þar sem hún hreppti hvoru tveggja, dómnefndar– og áhorfendaverðlaunin, og er í sýningum um þessar mundir í Bíó Paradís. Myndin fjallar um Ernu Kanemu, átján ára stúlku sem alist hefur upp í Reykjavík, en er af sambísku bergi brotin – faðir hennar, Harry, er frá Sambíu en hefur búið hér á landi í tvo áratugi – og lifir hún því á mörkum tveggja menningarheima. Ásamt fjölskyldu sinni (föður, móður, systur og frænda) ferðast Erna til Sambíu og hverfist myndin um þetta ferðalag, mismun menningarheimanna tveggja og þýðingu þess fyrir Ernu að tengjast arfleifð sinni með beinum hætti, hitta fjölskyldu sína og upplifa menninguna, ekki síst tónlistina.

Eins og titillinn gefur til kynna gegnir tónlist ríku hlutverki í lífi Ernu og myndinni sjálfri. Erna, sem virðist gæfusamlega hæfileikarík söngkona, nemur djasssöng í FÍH. Hún er eðlilega áhugasöm um afrískar tónlistarhefðir og litast ferðalagið af þessum áhuga, sem hún deilir með systur sinni, Auði, en sambandi þeirra er miðlað með fallegum hætti og skipar Auður mikilvægan sess í myndinni. Landið sem þær ferðast til er um margt framandi, en þær eru þarna saman, systurnar, og það skiptir skýrlega máli. Erna og Auður nota hvert tækifæri til að viða að sér þekkingu og innsýn í þjóðlegar tónlistarhefðir Sambíu, nema hjá innlendum tónlistarmönnum og Erna gengur til fundar við háskólafræðimenn til að öðlast innsýn í þýðingu tónlistar í samfélaginu.

 

Ferðalagið sem myndin hverfist um er ekki í fyrsta sinn sem Erna ferðast til Sambíu, raunar hið þriðja. Fyrst þegar hún var þriggja ára, svo þegar hún var átta, en það öðruvísi fyrir fullorðna manneskju að taka sér fyrir hendur svona ferðalag en það er fyrir barn, enda hefur Erna nefnt í viðtali að ef frá er skilin heimsókn í kirkju hafi þessar fyrri ferðir ekki skilið eftir margar varanlegar minningar. Svo vill hins vegar til að þær voru engu að síður festar á filmu, og orsakast það af þeirri staðreynd að leikstjóri (og framleiðandi, klippari, og tökumaður) Söngs Kanemu, Anna Þóra Steinþórsdóttir, er móðir Ernu, og mögulegt reynist því að flétta myndefni úr fyrri ferðunum inn í nýja ferðalagið með upplýsandi og skemmtilegum hætti, nokkuð sem víkkar og dýpkar þá mynd sem dregin er upp af söguhetjunni, Ernu Kanemu.

 

Söngur Kanemu snýst öðrum þræði um rætur og hvernig sjálfsskilningur okkar er samfélagslega mótaður. Nú er Ísland einsleitt land og blöndun menningarheima hefur jafnan verið af skornum skammti, þótt það sé sem betur fer að breytast í hnattvæddum og samtengdum heimi. En hörundslitur Ernu hefur óhjákvæmilega stillt henni upp á örlítið sérstökum stað hér á hvíta Íslandi, að upplifa sig öðruvísi er auðvitað ekki óvanalegt en það að mismunurinn sé sjáanlegur, óumflýjanlegur í sjálfri líkamsgerðinni, kann að vekja spurningar – ekki endilega frá öðrum heldur spurningar sem maður spyr um sjálfan sig, og hafa þannig djúpstæð áhrif á manns innra líf og mynd af sjálfum sér, skilgreining er ávallt samþætt skilningi. Í staðinn fyrir að kveða svona spurningar í kútinn, hafna eða bæla, opnar myndin fyrir skoðun og hugleiðingu um þær. Auðvitað er Sambía allt öðruvísi en Ísland. Auðvitað skiptir máli að reyna að skilja lykilhluta af uppruna sínum. Þessi opna og jákvæða umföðmun á mismun er hluti af því sem gerir Söng Kanemu jafn gleðiríka og ánægjulega og raun ber vitni. Áhorfandi getur ekki verið ósammála Ernu um gildi þess að kynnast þessum nýja menningarheimi, framandi sem hann kann að vera.

Það að standa svona á milli tveggja heima þarf auðvitað ekki að hamla nokkrum hlut, rýra eitt eða neitt; þvert á móti, það auðgar litróf lífisins og gefur sjálfinu tækifæri til að stækka og verða víðsýnna. Hér gegnir tónlistin mikilvægu hlutverki, það er tónlistin sem brúar bilið og skapar rými til að yfirstíga mismun, bæði fyrir Ernu og fjölskyldu hennar í Sambíu, sem auðvitað mætir jafnframandi einstaklingi í Ernu og hún í þeim.

 

Söngur Kanemu er afskaplega vel gerð heimildarmynd, mæðgnanándin í viðtölunum við Ernu og Auði er næstum áþreifanleg, allavega takast þær á við burðarhlutverk sín í myndinni af stökustu prýði, það sem þær hafa að segja er forvitnilegt, einlægt og algjörlega laust við tilgerð. Myndskeiðin sem sýna Ernu eina eða með systur sinni í Sambíu eru oft ótrúlega falleg, jafn vel til fundin og þau eru römmuð og tekin. Myndavélin er jafnan í mikilli nánd við persónurnar en hún er líka sérlega hreyfanleg (sumar hreyfingar myndavélarinnar eru reyndar furðu metnaðarfullar miðað við aðstæðurnar sem áhorfandi getur ímyndað sér að hafi markað tökurnar) og fangar vel félagsleg rýmisvensl milli fjölskyldunnar sem ferðast hefur til Sambíu og heimafólksins. Viðtölum við Ernu þar sem hún veltir vöngum um upplifun sína og reynslu er haganlega skeytt saman við atburðina sjálfa. Og svo er það tónlistin fallega sem ómar yfir framvindunni og nær ákveðnum hápunkti í blálokin þegar systurnar vinna og flytja saman lag sem rætur á að rekja til og kallast á við ömmu þeirra, Kanemu. Yfir myndinni allri er hjartanlegur bjarmi, hún er fumlaus og á sannarlega erindi.[/cs_text]

Um höfundinn
Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson er dósent í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði. Sérsvið hans eru skörun og samræða kvikmynda og bókmennta, tækni og menning, nýmiðlar af ýmsum toga, og íslensk kvikmyndasaga. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1312

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

30036

30037

30038

30039

30040

30041

30042

30043

30044

30045

80046

80047

80048

80049

80050

80051

80052

80053

80054

80055

80056

80057

80058

80059

80060

80061

80062

80063

80064

80065

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

news-1312