Skáld í tungumálakrísu

[cs_text]Skáldin Elena Illkova og Kristján Jóhann Kristjánsson skrifa að jafnaði ekki á móðurmáli sínu og eiga það líka sameiginlegt að hafa tekið þátt í útgáfu bókmenntatímaritsins Ós Pressan. Markmið útgáfunnar er að koma á framfæri verkum höfunda sem hafa ekki fengið hljómgrunn í bókmenntalífinu á Íslandi þar sem þeir eru fæddir erlendis eða kjósa að skrifa ekki á íslensku. Ós vill að raddir þeirra sem falla ekki að norminu fái að heyrast. Bakgrunnur Elenu og Kristjáns er ólíkur – hún er frá Makedóníu en hann frá Íslandi – en sem höfundar hafa þau bæði mótast af fjölmenningu og hlutdeild í fleiru en einu málsamfélagi.

Makedónskur fjöltunguhöfundur

Elena kom til Íslands þegar eiginmaður hennar hóf doktorsnám hér. Ætlun þeirra var að vera á Íslandi í þrjú ár og flytja síðan til Singapúr. Þau áform breyttust og segist Elena viss um að hún hefði skráð sig strax í íslenskunám ef hún hefði vitað að þau myndu ílendast hér. „Það hefði jafnvel getað farið svo að ég hefði byrjað að skrifa á íslensku í stað ensku því það var á öðru ári mínu hér á Íslandi sem ég hóf að stunda skapandi skrif á ensku. Ég sé samt ekki eftir neinu,“ segir Elena. Hún segir að það hafi nefnilega verið í gegnum meistaranámið Literature, Culture and Media, sem hún stundaði við Háskóla Íslands, sem hún öðlaðist sjálfstraust til að nota ensku eins og hún gerir nú. Þar kynntist hún einnig fjöltungubókmenntum (e. translingual, multilingual literature) en hún hefur á síðustu misserum spreytt sig á þessari bókmenntagrein. „Minn skilningur er sá að fjöltunguhöfundar skrifi á skapandi hátt á tungumáli sem þeir hafa ekki enn náð fullu valdi á og geti því ekki talist tvítyngdir. Bókmenntafræðin á ef til vill eftir að skilgreina hugtakið nánar en ég vona að þetta bókmenntaform geti verið svona metalanguage, hjálparmál, og skapað vettvang fyrir skapandi tileinkun á tungumálum.“

Þegar Elena skrifar fjöltungusögur eru tungumálaskiptin, svo sem á milli ensku og íslensku, byggð á persónunum og aðstæðum þeirra. Þessa stundina vinnur Elena til að mynda að sögu um pólska konu sem býr á Íslandi, segir sögu sína á ensku en skrifar dagbók á íslensku sem tilraun til að ná valdi á tungumálinu. „Þegar Íslendingar tala við söguhetjuna segir hún frá því sem þeir hafa sagt á íslensku, eins og hún heyrði það. Hún er, tungumálalega séð, ekki áreiðanlegur sögumaður. Sögupersónurnar mínar eru allar þannig. Þær brjóta gegn stöðluðu máli. Með þessu reyni ég að finna leið til að tjá mig án þess að hljóma fáránlega. Ég mun aldrei ná sama valdi á tungumálinu og innfæddir.“

Elena segist eiga það til að skrifa á móðurmáli sínu, makedónsku, þótt hún skrifi nú  yfirleitt á ensku. ,„Að verða fyrir daglegu máláreiti á ensku og íslensku hefur einfaldlega áhrif á það hvernig ég tjái mig,“ segir hún. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé synd að sóa tungumálum. Ég lærði hebresku eins og páfagaukur og fannst það mjög leiðinlegt. Það sama átti við enskunám þegar ég var lítil. Ég held að ástæðan hafi verið sú að ég þurfti að finna tilgang með tungumálanáminu og geta notað það á skapandi hátt. Að tala, lesa og skrifa á nýju tungumáli er því, að mínu mati, skynsamlegasta leiðin til að tileinka sér tungumál. Að skrifa gefur mér tíma til að hugsa, íhuga og útfæra áform mín. Það er ákveðin minnistækni fólgin í því.“

Upplifun Elenu af því að vera hluti af mörgum málsamfélögum er súrsæt. „Upplifun mín af ensku er sú að hún skemmdi makedónskuna mína. Í langan tíma fann ég fyrir tómleika þegar kom að tungumálum. Ég skrifaði einu sinni á Twitter: „Enskan mín er ekki almennileg enska og makedónskan mín er ekki almennileg makedónska. Og ég er rithöfundur, hvað geri ég nú?“ Ég get ekki nefnt kosti og galla þess að vera tvímála því tilvitnunin: „When you speak two languages but start losing vocabulary in both of them. Byelingual,“ lýsir mér svo vel. Ég lít á sjálfa mig sem byelingual frekar en bilingual,“ segir hún.

„Þegar ég skrifa á makedónsku veit ég hvers konar höfundur ég er. Ég hef góða tilfinningu fyrir klisjum og viðkvæmni. Á ensku hef ég ekki þessa tilfinningu og þarf því að stóla á gagnrýni lesenda minna. Lesendum sem ekki hafa ensku að móðurmáli finnst sögurnar mínar gjarnan heillandi og ég á nú þegar aðdáendur sem bíða með óþreyju eftir meira. Fólki með ensku að móðurmáli finnst textarnir mínir, aftur á móti, stundum svolítið ruglandi þó ötulir lesendur líti frekar á ringulreiðina sem áskorun og hafi gaman að henni. Lesendur mínir eru alþjóðlegir,“ útskýrir Elena.

Íslendingur sem skrifar á ensku

Kristján Jóhann Kristjánsson er Garðbæingur sem fann sig aldrei á Íslandi og flutti strax utan eftir að hann lauk stúdentsprófi. Leið hans lá til Barcelona þar sem hann fór í gítarnám. „Ég átti samt enga framtíð fyrir mér í gítarleik en Barcelona var mín fyrsta ást svo ég þverneitaði að koma aftur heim fyrr en löngu seinna,“ segir hann. Kristján hóf samstarf við Ós Pressuna þar sem hann taldi sig ekki eiga upp á pallborð íslenskra forlaga þar sem hann skrifar nær alfarið á ensku.

„Ég var aldrei neitt sérstaklega góður í íslensku. Enska, aftur á móti, bara rann inn í mig þegar ég var krakki og ég var orðinn altalandi á ensku fyrir tíu ára aldur, langt á undan mínum jafnöldrum. Þegar ég flutti til Spánar kom spænskan fljótt hjá mér og þá komu í ljós hinir ólíku persónuleikar þessara þriggja tungumála. Það var þó ekki fyrr en ég var orðinn 26  ára að ég byrjaði allt í einu að skrifa ljóð og stutta texta á ensku,“ segir Kristján. Hann nefnir að honum hafi farið fram í ensku þegar hann var á Spáni af því flestir vinir hans voru enskumælandi, frá Englandi, Írlandi og Skotlandi.

Upplifun Kristjáns af því að hafa aðgang að nokkrum málsamfélögum á sitthvað skylt við byelingual-hugmyndina. „Tungumál eru eins og lungu og hjarta; án aðhalds og æfingar hrörna þau. Vandamálin koma aðallega upp þegar þú ert í kringum fólk sem talar sömu tungumál og þú. Þá er svo auðvelt að blanda öllu saman og nota bara „góðu“ orðin úr hverju tungumáli. Ákveðin orð úr hverju tungumáli eru einfaldlega best fyrir tilteknar aðstæður. Óþjálu orðin eiga þá til að gleymast. Ég tala af reynslu,“ segir hann. Að endingu bætir Kristján við: „Það besta við að tala önnur tungumál, helst af mikilli færni, er að þú getur eiginlega búið til aðra manneskju, eða allavega aðeins öðruvísi útgáfu af sjálfum þér. Make of that what you will.“

Aðalmynd: Manolo Chretien af Unsplash.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000476

118000477

118000478

118000479

118000480

118000481

118000482

118000483

118000484

118000485

118000486

118000487

118000488

118000489

118000490

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

138000401

138000402

138000403

138000404

138000405

138000406

138000407

138000408

138000409

138000410

138000411

138000412

138000413

138000414

138000415

138000416

138000417

138000418

138000419

138000420

158000316

158000317

158000318

158000319

158000320

158000321

158000322

158000323

158000324

158000325

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

news-1701