Gott fólk í vondum málum

[cs_text]
Gott fólk eftir Val Grettisson var frumsýnt í Kassanum, Þjóðleikhúsinu, á föstudagskvöldið. Leikritið er samið upp úr bók höfundarins um sama mál og hér er rakið, það var orðið hitamál áður en það var frumsýnt og ég spái því að ekki verði minna um það talað þegar fleiri hafa séð verkið.
Stílhrein og glæsileg
Myndbandið vann fallega með sýningunni. Sömuleiðis lýsing Jóhanns Friðriks Ágústssonar og Magnúsar Arnars Sigurðarsonar. Tónlist Gísla Galdurs Þorgeirssonar var hunang.
Öll umgerð sýningarinnar er stílhrein og einkennist af naumhyggju. Það er Eva Signý Berger sem gerir leikmynd og búninga. Leikmyndin er aðeins upphækkaður ferhyrndur pallur með þremur stólum og í bakgrunni er tjald þar sem rennur myndband sem Eva Signý Berger og Roland Hamilton hanna og þeir Guðmundur Erlingsson og Roland hafa fyllt af fínum nærmyndum af þeim hlutum sem umkringja okkur í hversdagslífinu. Myndbandið vinnur fallega með sýningunni. Sömuleiðis lýsing Jóhanns Friðriks Ágústssonar og Magnúsar Arnars Sigurðarsonar. Tónlist Gísla Galdurs Þorgeirssonar var hunang.

Leikararnir voru allir eins klæddir, í svartan samfesting, allir á svipuðum aldri. Þau eru lík og þau eru hópur og það undirstrikaði kannski að það sem gerðist hefði getað komið fyrir hvert og eitt þeirra – ef mál hefðu þróast þannig. Þegar leikararnir voru ekki á sviðinu sátu þeir í skugga upp við vegginn, beggja vegna sviðsins. Þetta var flott og Gott fólk er besta uppfærsla sem ég hef séð eftir Unu Þorleifsdóttur sem leikstýrir verkinu.

hugras-gott-folk-thjodleikhusid-dagny-kristjans-3

Ábyrgðarferli

Í upphafi sýningarinnar ávarpar Sölvi (Stefán Hallur Stefánsson) áhorfendur og segir okkur frá sjálfum sér. Hann er menningarblaðamaður, misheppnað ljóðskáld, sjálfshæðinn og skemmtilegur – sjarmerandi og klár gaur.  Grímar (Baltasar Breki Samper) kemur og afhendir honum persónulega bréf, eða eins konar stefnu, þar sem fyrrverandi kærasta Sölva, Sara (Vigdís Hrefna Pálsdóttir) segir honum hve grátt hann hafi leikið sig og biður hann að undirgangast svokallað ábyrgðarferli þar sem hann á að viðurkenna að hafa beitt hana andlegu ofbeldi í fimmtán mánaða sambandi þeirra. Hann á að gangast undir margs konar nálgunarbann en fyrst og síðast á hann að skilja brot sitt. Það er ekki nóg að hann segist gera það, hann verður að meina það og iðrast.

hugras-gott-folk-thjodleikhusid-dagny-kristjans-4

Lögfræðingur Sölva og vinur, Tryggvi (Snorri Engilbertsson) gengur í málið með honum og semur við lögfræðing Söru, Guðrúnu (Láru Jóhönnu Jónsdóttir). En hver getur skorið úr um að nóg sé skilið og nóg iðrast? Hvenær er Sölvi laus undan samningnum? Við því fæst ekkert svar.  Smám saman kemur líka  í ljós að Sölvi hefur ekkert um mál sitt að segja en því er hann ekki vanur og það gerir hann æstan og reiðan. Hann fer meðal annars til lögreglunnar, lýsir sig sekan og biður um að fá refsingu sem hann geti afplánað og byrjað nýtt líf. En nei – það er ekki hægt því það hefur engin kæra verið lögð fram og þar af leiðandi enginn dómur felldur. Og fyrir bæði Sölva og Söru skiptir það mestu máli að Sölvi skilur alls ekki að hann hafi beitt neinn ofbeldi.

Hvað er ofbeldi?

Sölvi hefur ekki lagt hendur á Söru og ekki nauðgað henni. Það eru þau sammála um. Sara segir aftur á móti að hann hafi brotið sig niður kerfisbundið, hann hafi tekið allar ákvarðanir fyrir þau bæði, ráðskast með sig og þvingað sig óbeint til að gera hluti sem hún hafi ekki viljað gera. Samt hafi hún látið sig hafa það til að reyna að kaupa ást hans og viðurkenningu. Þegar hann slítur sambandinu er hún illa farin og hálfgert flak. Vigdís Hrefna leikur Söru afskaplega vel.  Hún sýndi hina ástföngnu og viðkvæmu Söru sem verður öryggislausari og ástsjúkari eftir því sem á líður sambandið og Sölvi verður leiðari á henni. Eftir að hlutverkin hafa víxlast er hún ísköld og hörð og það er eins og eitthvað sé dáið í henni.[/cs_text]

 
[cs_text]Málið er þó að lögin skilgreina ekki sem ofbeldi þá kúgun sem hún verður fyrir í sambandinu. Lögin geta bara haldið sig við gjörðir og áþreifanleg sönnunargögn. Þegar karlar beita orðræðuvaldi og/eða öðru því valdi sem „þeim ber“ sem hinu æðra kyni er það ekki refsivert ofbeldi í augum laganna. Þetta vita Sara og Guðrún og allir femínistar. Ábyrgðarferlið svokallaða á þannig að sjá um ákæru, dóm og refsingu á persónulegum nótum án þess að blanda dómskerfinu í málið. En hvers vegna skyldi „brotamaðurinn“ samþykkja ferli sem skerðir frelsi hans og auðmýkir hann? Sölvi gerir það í orði en ekki á borði og því skrifar Guðrún lögfræðingur fésbókarfærslu þar sem hún, viljandi eða óviljandi, sigar netheimum á hann.

Sölvi

Stefán Hallur er stórgóður í hlutverki Sölva. Við horfum á hann hlaupa aftur og aftur á sama vegginn vegna þess að hann getur alls ekki skilið að hann hafi gert neitt rangt og getur ekki sett sig í spor Söru. Ekki heldur í spor fyrrverandi kærustu sinnar og þeirrar sem hann hefur lengst verið með, Hildar (Birgittu Birgisdóttur), sem reynist hafa hliðstæða sögu og Sara að segja. Birgitta sýndi líka hörkuleik í fjórum mismunandi hlutverkum í sýningunni, ný manneskja í fasi og töktum í hverjum hlutverki.

hugras-gott-folk-thjodleikhusid-dagny-kristjans-6

Þetta er veiki punkturinn í handritinu, Sölvi á ekki til samlíðan með öðru fólki og það er ekki auðvelt að hafa samúð með honum.
Sölva er samkeppnin, átökin, ofbeldið hluti af því að lifa lífinu og uppáhaldskenning hans sækir myndhverfða sönnun þess arna í náttúruna. Að iðrast framkomunnar við Söru er eins og að iðrast þess að vera manneskja í hans augum. Þetta er veiki punkturinn í handritinu, Sölvi á ekki til samlíðan með öðru fólki og það er ekki auðvelt að hafa samúð með honum. Myndin af honum í leikritinu verður of einsleit.

Brýn umræða

Leikritið Gott fólk opnar umræðu um að minnsta kosti þrjú mikilvæg efni.

Í fyrsta lagi: Hvernig eigum við að skilgreina ofbeldi? Sölvi segir um Söru að hún hafi allan tímann verið frjáls og getað bara farið. Sagt bless. Hún segir að hann hafi brotið sig niður og þannig skert frelsi hennar til að fara. Þá mætti spyrja hana til baka í anda Jean Paul Sartre hvort hún sé ekki „í vondri trú“ því að hún sé frjáls og enginn geti firrt sig ábyrgðinni af frelsi sínu til að velja og hafna þeim kostum sem eru í stöðunni.

Þetta er umdeilt og spurning hvort ekki sé verið að samþykkja kerfið með því að beita aðferðum þess á þennan hátt?
Í öðru lagi má spyrja um siðferðilega réttlætingu þess að taka lögin í eigin hendur eins og hér er gert. Þetta ábyrgðarferli sem góða fólkið beitir fyrir sig er sýnt sem algjör einstefna og endar í því að karlremban er hengd án dóms og laga! Femínistar hafa beitt hryðjuverkum og ofbeldi í baráttunni til að undirstrika að rödd þeirra og málflutningur er hunsaður af kerfinu sem verndar hagsmuni og heimspeki karlveldisins. Slíkar aðgerðir hafa þá verið skilgreindar sem nauðvörn. Þetta er umdeilt og spurning hvort ekki sé verið að samþykkja kerfið með því að beita aðferðum þess á þennan hátt?

Og í þriðja lagi í hvaða hringekju erum við eiginlega að snúast þar sem samband verður blogg sem verður fésbókarfærsla sem verður bók sem verður leikrit sem verða útvarpsþættir sem verður fésbókarfærsla sem verður bloggfærsla sem verður samband sem verður … Þurfa menn að grafa sig svona ofan í líf „opinberu persónanna“ til að finna efnivið til að ræða frelsi, sjálfsábyrgð, siðferði og samfélag?

[line] Ljósmyndir: Hörður Sveinsson[/cs_text]
Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

128000741

128000742

128000743

128000744

128000745

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

228000086

228000087

228000088

228000089

228000090

228000091

228000092

228000093

228000094

228000095

228000096

228000097

228000098

228000099

228000100

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701