Töfrafjallið og snillingurinn

Nýlega var opnuð sýningin Fjallið innra með málverkum Stefáns V. Jónssonar, betur þekktur sem Stórval, í galleríinu i8 á Tryggvagötu. Þrjátíu ár eru liðin síðan Stefán féll frá.

Sunna Austmann Bjarnadóttir er með BA gráðu í myndlist, stundar meistaranám í listfræði við Háskóla Íslands og starfar sem bóksali

Stefán flutti frá Mörðudal á Austurlandi til Reykjavíkur árið 1955 til að sinna verkamannavinnu og listinni. Hann nýtti sér málverkið til að tjá sig, sínar upplifanir og þrá eftir sveitinni. Hann var afkastamikill listamaður og hélt fjölmargar sýningar undir berum himni frá árinu 1959. Fyrsta sýning Stefáns innandyra var haldin árið 1979 í Gallerí SÚM við Vatnsstíg.[1] Galleríið var rekið af SÚM-hópnum sem kom sem ferskur andblær á sjöunda áratug síðustu aldar með nýjar listhugmyndir sem ekki höfðu áður sést í íslensku listasenunni. Meðlimir hópsins litu á FÍM, Félag íslenskra myndlistarmanna, sem boðbera íhaldsseminnar og vildu búa til vettvang til að skoða ókannaðar slóðir listarinnar.[2] Stefán segir sjálfur í viðtali við Pál Heiðar Jónsson dagskrágerðarmann að hann hafi orðið fyrir mismunun og ítrekað svikinn um sýningarhald, þar til Sigurður Guðmundsson, einn stofnanda SÚM, leitaði til hans. Sýningin sem haldin var í kjölfarið í Gallerí SÚM vakti mikla athygli, meðlimir hópsins löðuðust að afdráttarlausu viðhorfi Stefáns gagnvart listinni, sköpunarkrafi hans og dugnaði. Stefán varð Stórval og eru verk hans nú orðin að eftirsóknarverðum listmunum.[3] En það voru ekki aðeins verk hans sem vöktu athygli, Stefán var sjálfur óvenjulegur karakter sem synti á móti straumnum.

Í kynningartexta sýningarinnar Fjallið innra, skrifaður af Unnari Erni, er dregin upp mynd af listamanninum. Ljóst er að Stefán var litríkur karakter í lífi miðbæjar Reykjavíkur. Tungumál og flæði textans er taktfast og ljóðrænt og minnir á form ævintýranna. Unnar Örn fer ansi stórum orðum um Stefán í textanum. Lof hans um Stefán varpar vissum skugga á sýninguna þar sem verk Stefáns og listsköpun eru upphafin og á þar persónugerð hans ríkan þátt í. Verkin sjálf eru sjarmerandi á sinn einfalda hátt en vinsældir þeirra eru sterklega tengdar við sjálfan listamanninn. Sérstaða málverka Stefáns í samtímanum mótast því af áhrifum persónuleika hans á upplifun áhorfandans. Ef listamaðurinn er fjarlægður úr formúlunni sitja eftir naív málverk og erfitt er að færa rök fyrir upphafningunni á þeim. Stefán var vel þekktur maður, kynlegur kvistur, sem almenningur tók eftir á götum Reykjavíkur. Sýningin er knúin áfram á goðsögninni um Stefán sem er það nátengd verkunum að ekki er hægt að aðskilja þau. Inntak verkanna fellur því í skugga goðsagnarinnar.

Frásögn í óheflaðri litanotkun

Sýningarrýmið í i8 er með náttúrulegri birtu þar sem heill veggur er þakinn gluggum. Það er því hægt að virða fyrir sér sýninguna frá gangstéttinni og horfa inn í hugarheim Stefáns. Málverk sýningarinnar eru hengd upp á veggi rýmisins og minnir uppsetningin á frásögn, eða jafnvel tónstef. Stefán hengdi upp verkin á sínum eigin sýningum frá gólfi til lofts, eins og algengt var á listsýningum í Evrópu fyrr á öldum. Uppsetning i8 rímar því við hefðir samtímans, línuleg frásögn mynda. Það sem einkennir verk Stefáns er litagleði og endurtekningar sem birtast skýrt á sýningunni. Til að mynda málaði hann fjölmörg málverk af Herðubreið, í mismunandi litum og stærðum, og eru nokkur dæmi af þeim til sýnis í i8. Einfaldleiki Herðubreiðarverkanna, formfesta þeirra og óhefluð litanotkun, vekur upp gleðitilfinningu. Titill sýningarinnar, Fjallið innra, gefur í skyn að fókusinn sé á tilfinningalega miðlun Stefáns á sveitinni þar sem lögð er áhersla á gleði og gaman. Þegar áhorfandinn gengur um salinn þarf hann að velja hvaða leið hann gengur og þar með hvaða frásögn hann vill skapa. Ef valin er sú leið sem rýnir tók, klukkuhringinn, þá hefst sýningin á verkum sem best væri að lýsa sem draumkenndum. Guðlaugsstaðir „Húnvassá“  er málað í jarðlitum, allar línur þess eru fljótandi og lausar og því algjör andstæða við verk Stefáns af Herðubreið. Á næsta vegg tekur málverk á móti manni, Örnefni í Möðrudal og Víðidal, sem kallar fram hugleiðingar um ævintýralönd. Það minnir þó einnig á götulistaverk, ekki síst verk hins bandaríska Jean-Michel Basquiat. Landslagsmyndir og fjöll eru áberandi viðfangsefni en einnig eru til sýnis hestar, hrútar og nokkur málverk af konum. Kvennaverkin bera öll titilinn Untitled og eru máluð í svipuðum stíl og verkin af Herðubreið. Mikil formfesta er yfir myndunum og uppbyggingin sterkleg. Litavalið og svipir kvennanna vekja upp forvitni um hvaða hlutverki þær eigi að sinna í frásögninni – hverjar eru þær og hvað vilja þær áhorfandanum?

Skrúður eða eik

Það sem stingur rýnanda þó allra helst í augu eru myndarammar sýningarinnar. Öllum upprunalegum römmum verkanna, sem voru skrúðugir og umfangsmiklir, var skipt út fyrir hinn klassíska eikarramma – einkenningsbúningur verka í galleríum. Með því er búið að breyta upplifun áhorfenda af verkunum, aðlaga þau að hvíta kassanum. Rammar eru stór hluti af verkum og geta breytt upplifun áhorfanda á verkinu. Val á römmum fyrir málverk ætti ávallt vera gert í samstarfi við listamanninn sjálfan. Þar sem listamaðurinn í þessu tilfelli er látinn og hefur því ekki tækifæri til þess að tjá skoðun sína á valinu ætti helst að líta á verkin eins og safngripi eða sögulegar heimildir. Sem dæmi eru verk Kjarvals alltaf sýnd í þeim römmum sem endurspegla þau tímabil sem verkin voru máluð. Hægt er að líta á ramma sem framlengingu af verkum sem gefa aukna dýpt í sögulegt samhengi verkanna. Verk sýningarinnar koma öll úr einkaeigu og það hefði verið mun hversdagslegra ef upprunalegu rammarnir hefðu fengið að fylgja. Sú ákvörðun að skipta þeim út vekur upp spurningar um hvað á í raun heima innan veggja gallería. Ef það þarf að fjarlægja hluta verksins til þess að það passi betur inn í sýningarsalinn, á verkið yfir höfuð heima þar?

Hverjir eiga að endurskrifa listasöguna?

I8 er eitt elsta og áhrifamesta gallerí Íslands sem leggur áherslu á hugmyndafræðilegan aga og vitsmunaleg vinnubrögð listamanna.[4] Galleríið er faglegt, þ.e. það vinnur með sérvöldum atvinnulistamönnum með þann tilgang að koma þeim á framfæri og selja verk þeirra.[5] Fjallið innra er því sölusýning sem ætlað er að koma verkum Stefáns á framfæri, bæði hérlendis og erlendis. Stefán hefur verið kallaður alþýðulistamaður, hann var sjálflærður, utangarðsmaður í íslenskri myndlist. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, tók saman í bók sinni Einfarar í íslenskri myndlist þá listamenn sem nefndir hafa verið næfir eða einfarar og fjallar þar meðal annars um Stefán. Lykiorðið er þó utangarðsmaður. Stefán, ásamt öðrum næfum listamönnum, fékk ekki að vera með, hann var lægra settur en listaelítan.[6] Síðastliðin ár hafa verið haldnar sýningar með verkum einfara í íslenskri myndlistarsögu, t.d. Sölva Helgasonar (Sólon Íslandus) á Kjarvalstöðum og Ísleifs Konráðssonar í gamla bókasafninu á Drangsnesi. Er þetta augljós tilraun til þess að endurskrifa íslenska myndlistarsögu og horfa á verk þessara alþýðulistamanna með sömu augum og á verk viðurkenndari listamanna. Verk Stefáns hafa haft áhrif á mjög stóran hóp íslenskra listamanna sem hafa kunnað að meta skarpleikann og leikinn sem verk hans bera vott um.

Verk Stefáns eru mikilvægur hluti íslenskrar listasögu, en rétti staðurinn fyrir þá staðfestingu er ekki innan veggja hugmyndafræðigallerís. Sýningin er í raun sett upp á röngum stað. Ef það á að endurskrifa listasöguna er það hlutverk listasafna að taka þátt í þeirri umbreytingu. Listasöfn safna verkum og varðveita, rannsaka þau og sýna.[7] Með því hafa þau mjög mikil áhrif á hvernig sagan leggur sig. Listamannarekin rými, eins og Gallerí SÚM á sínum tíma, taka einnig virkan þátt í endurritun listasögunnar. Þar er list oft sýnd án hagsmunasjónarmiða og áhersla lögð á vinnu og verk listamannanna. Þar gefst jaðarlistamönnum tækifæri til þess að miðla sinni list til almennings og einnig geta þeir fangað athygli stærri stofnanna eins og listasafna. Stefán var ekki hugmyndalistamaður og því passa verk hans ekki í hugmyndafæðilegt umhverfi i8. Þar sem galleríið starfar með sérvöldum listamönnum sem eiga það sameiginlegt að vinna með hugmyndalist er spurning af hverju Stefán varð fyrir valinu. Hann er settur í hóp með atvinnulistamönnum vegna persónueinkenna sinna og hafinn upp á stig snillingsins. Hver hefur það vald til að ákveða hvaða alþýðulistamenn eru upphafnir sem snillingar? Upphafning Stefáns setur hann ofar í hefðarveldi listasögunnar en kvenkynseinfara á borð við Gunnþórunni Sveinsdóttur og Sigurlaugu Jónasdóttur. Verða þær líka teknar inn í endurskoðun myndlistarsögu Íslands?

Þegar á heildina litið eru sýnd í i8 verk manns sem var jaðarsettur og er sýningin tilraun til þess að upphefja bæði verkin og manninn. Málverkin draga fram bros, litadýrð þeirra og frásagnargleði, og eru ljós í haustsúldinni. Þó að verkin beri ekki saman við áherslur gallerísins hvetur rýnir til áframhaldandi umfjöllunar um fleiri einfara íslenskrar myndlistarsögu.

Sunna Austmann Bjarnadóttir er með BA gráðu í myndlist, stundar meistaranám í listfræði við Háskóla Íslands og starfar sem bóksali

Textinn er unninn í Vinnustofu í menningarblaðamennsku við Háskóla Íslands.


[1] Unnar Örn, „Stefán V. Jónsson a.k.a. Stórval,“ i8, 3. september 2024.

https://i8.is/exhibitions/212

[2] Inga S. Ragnarsdóttir og Kristín G. Guðnadóttir, Útisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972 (Reykjavík: Minningarsjóður um Ragnar Kjartansson 1923-1988 í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, 2017), bls. 52.

[3] Unnar Örn, „Stefán V. Jónsson a.k.a. Stórval.“

[4] „About,“ i8, 3. september 2024.

https://i8.is/about

[5] Einar Falur Ingólfsson, „Samtímalist sem skiptir máli.“ Lesbók Morgunblaðsins, 30. október 1999: bls. 17.

https://timarit.is/page/3314947#page/n16/mode/2up

[6] Aðalsteinn Ingólfsson, Einfarar í íslenskri myndlist (Reykjavík: Almenna bókavélagið, 1990), bls. 5, 7-8, 13-14.

[7] „Hvernig virkar listasafn?,“ Listasafn Íslands, 11. september 2024. https://gamli.listasafnreykjavikur.is/midlun/abrakadabra/spurtogsvarad/hvernigvirkarlistasafn

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701