Róska lifir áfram: Viðtal við Lee Lorenzo Lynch um endurvinnslu Sóleyjar

[cs_text]Kvikmyndin Sóley eftir listakonuna róttæku Rósku kom fyrst út árið 1982. Kvikmyndin hefur í gegnum árin verið kölluð ein frægasta týnda mynd Íslandssögunnar, en hún var talin glötuð mjög lengi. Eftir að Lee Lorenzo Lynch, þá nemi en nú kvikmyndagerðarmaður og kennari við Listaháskóla Íslands, sá myndina á spólu fór af stað margra ára ferli við að endurvinna verkið og koma því í sýningar á ný. Blaðamaður ræddi við Lee og hlaut söguna frá byrjun, en hún hófst þegar Bandaríkjamaðurinn stundaði nám við listaháskólann California Institute of the Arts.

Cal Arts er það sem við gætum kallað róttækan skóla. Þar er engin einkunnagjöf og fólkið var mjög frjálslegt; synti til dæmis nakið í sundlauginni á skólalóðinni. Rosalega góður kvikmyndaskóli í alla staði, mjög avant-garde og umhverfið lifandi og skemmtilegt.“ Lee hefur verið að búa til kvikmyndir síðan hann var 14 ára gamall en byrjaði að kenna eftir útskrift, þá 21 árs. „Það er mikið af tengslum hérna á Íslandi við Cal Arts. Til dæmis fór Bjarki [Bragason], sem er lektor við Listaháskólan, í þennan skóla.“ Annar Íslendingur sem stundaði nám við skólann var ung kona að nafni Þorbjörg Jónsdóttir, en þau Lee eru nú gift. „Þegar ég var í grunnnámi var Þorbjörg í framhaldsnámi, við kynntumst sem sagt í skólanum. Við bjuggum saman í Los Angeles í tólf ár eftir að við útskrifuðumst en fluttum okkur svo hingað til Íslands fyrir sirka fimm árum með syni okkar.“

Einn daginn kynnist Lee kvikmyndinni Sóley óvænt þegar hann kemur að Þorbjörgu að horfa á gamla vídjóspólu inni í stofunni þeirra. „Ég spurði hana að sjálfsögðu hvað hún væri að horfa á, sá samstundis að þetta væri eitthvað töff, og hún sagði að hún ætti frænku sem hafði verið listakona og hafði búið til þessa bíómynd. Þetta var um hábjartan dag og algjörlega óplanað, en ég horfði á alla myndina með henni og varð uppfrá því gjörsamlega forfallinn.“

Þorbjörg hafði fengið spóluna hjá mömmu sinni, sem reyndist vera engin önnur en systir hennar Rósku. Aðspurður hvað var svona hrífandi við fyrsta áhorf svarar Lee: „Mér fannst þetta strax vera bíómynd eins og ég sjálfur hefði viljað búa til. Ég er rosalega hrifinn af því þegar fólk gerir þetta upp á eigin spýtur, sem sagt sjálfstæðum myndum og svona pönk-kvikmyndagerð.“

Draumur sem hófst heima í stofu

Kvikmyndin hafði á þessum tíma ekki verið aðgengileg fyrir almenning en nokkur VHS eintök leyndust hjá örfáum einstaklingum. „Lengi vel var þetta eina leiðin fyrir fólk til að sjá þessa mynd. Upp frá þessum örlagaríka degi í stofunni heima byrjaði þessi draumur hjá okkur hjónunum að koma myndinni í endurvinnslu, sjá til þess að hún kæmist í almennilega dreifingu.“ Það ferli hófst, að sögn Lee, ekki heima á Íslandi heldur Vestanhafs. „Það fyrsta sem við gerðum, fyrir þá svona sjö árum, var að borga kvikmyndasafni í Los Angeles litla upphæð til að brenna spóluna og koma henni á stafrænt form. Þannig gátum við sýnt myndina úti og gert fólk spennt fyrir verkefninu.“ Það næsta sem hjónin gerðu eftir að þau fluttu sig um set var að setja sig í samband við Kvikmyndasafn Íslands. „Það kom í ljós að þau áttu til gamalt sýningareintak af myndinni og þau skönnuðu það fyrir okkur í HD (háskerpu). Það er eitthvað sem hefði átt að kosta mörg hundruð þúsund krónur en þau gerðu það okkur að kostnaðarlausu, sem hjálpaði ferlinu gífurlega.“

Sú útgáfa af Sóley slapp í kjölfarið inn á streymisveitur sem varð til þess að fólk gat í fyrsta sinn nálgast myndina á netinu. „Fyrir það var bara alls ekki hægt að sjá hana nema þú, eða einhver sem þú þekktir, ættir hana til á spólu. Eftir það fóru síðan að detta inn ritgerðir um myndina frá háskólanemum. Það var þá sem við fórum að taka verkefninu virkilega alvarlega og hófum söfnun á Karolinafund til þess að láta laga filmuna frá grunni þannig að hún yrði sýningarhæf í kvikmyndahúsum.“

Spurður hvort að Karolinafund söfnunin hafi fjármagnað restina af verkefninu svarar Lee: „Við fengum reyndar mjög gott framlag frá Myndlistarsjóði. En jú, það sem gerði útslagið var peningurinn frá Karolinafund söfnuninni. Svo kom skemmtilega á óvart að það voru ekki bara Íslendingar sem tóku þátt í fjáröfluninni heldur líka fullt af fólki frá Bandaríkjunum, þá út af sýningunum okkar úti, sem var bara æðislegt.“

Alvaran tekur við

Eftir að fjármögnunin var komin í hús byrjaði vinnan fyrir alvöru. „Það var fyrrum nemandi minn, Matthew Roscoe, sem tók að sér að laga til myndina. Hann hefur unnið mikið í fyrirtæki úti sem býr til heimildarmyndir, hann var þannig með dýrmæta reynslu í að laga hluti til í tölvu; til dæmis ef búnaður sást í einhverju skoti gat hann fjarlægt það með tæknibrellum.“ Aðspurður hversu mikla vinnu Matthew átti fyrir höndum segir Lee hana hafa verið gífurlega. „Upprunalega filman, eða negatvían, er alveg glötuð og það eina sem er til er þetta sýningareintak frá Kvikmyndasafni Íslands, sem var fullt af rispum og skemmdum. Hljóðið var einnig í rúst og litirnir mjög daufir. Þetta var heljarinnar verk.“

Matthew þurfti að vinna í lagfæringu á myndinni í yfir ár og fór bróðurparturinn af fjáröfluninni í að greiða fyrir það. „Hann var í raun að vinna fyrir mjög lítið tímakaup, þetta var bara svo langt ferli. Síðan sá ég sjálfur um mest af litaleiðréttingunni, ég hef oft gert það áður en þetta var erfiðasta litaleiðrétting sem ég hef tekið að mér.“ Sýningareintakið reyndist einnig vera með áföstum enskum texta sem var áskorun í sjálfu sér. „Það var ómögulegt að fjarlægja textann þannig við þurftum í staðinn að laga hann og setja nýjan texta ofan á, stundum staf fyrir staf. Það er einnig það helsta sem mun bitna á dreifingu myndarinnar í framtíðinni, því flestar streymisveitur taka alls ekki við verkum séu þau með texta.“ Eins og sjá má er gífurlega margt sem þarf að huga að þegar kemur að því að lagfæra gömul eintök af kvikmyndum. Lee heldur áfram: „Að lokum borguðum við um 100.000 krónur til að láta lagfæra hljóðið. Það var ekki gert í stúdíói en það var mixað upp á nýtt í tölvu og tókst vel.“

Sýningarkvöldið fór fram úr öllum vonum

Eftir alla þessa vinnu var loksins komið að því að sýna myndina í kvikmyndahúsi, en það var gert með pompi og prakt í Bíó Paradís þann 19. september síðastliðinn. Þegar Lee var spurður út í viðtökurnar ljómaði hann og svaraði: „Virkilega góðar. Eftir svona langan tíma er maður með allskonar áhyggjur af því hvort fólki muni finnast þetta líta vel út og þannig, en allir voru rosalega hrifnir.“ Lee segir einnig að fólk sem kom að myndinni upprunalega hafi verið sérstaklega spennt yfir sýningunni þar sem frumsýningin árið 1982 hafi ekki verið upp á marga fiska. „Við heyrðum það frá Rúnari, sem lék eitt aðalhlutverkanna, að það hafi verið vesen með upprunalegu sýninguna, eitthvað með gallaðan spilara, og að myndin hefði bókstaflega aldrei litið betur út í bíó fyrr en bara núna.“

Rúnar Guðbrandsson, sem lék Þór í myndinni, var einn heiðursgestanna á sýningarkvöldinu stóra. Lee segir okkur meira: „Hann átti líka til eina plakatið sem vitað er af, sem þýddi að við gátum lagfært það og búið til splunkunýtt plakat sem var þá fullkomin endurgerð af þessu gamla.“ En hvað um leikkonuna sem lék sjálft titilhlutverk myndarinnar, Sóleyju? „Því miður var hún ekki á sýningunni því hún hefur ekki fundist. Við vitum að hún heitir Tina Olsen og er dönsk, en við höfðum enga leið til að ná sambandi við hana. Einn leikaranna sagði okkur að bróðir hennar væri á Facebook, og við fundum hann, en hann skrifaði aldrei til baka þannig slóðin varð aftur köld. Svo gerist það að eiginkona bróðursins var í bandi við okkur og mætti á sýninguna, og hún ætlar að koma okkur í samband við hann og hjálpa okkur að finna leikkonuna þannig. Ef ekki væri fyrir sýninguna hefðum við aldrei hitt þessa konu, þannig boltinn heldur áfram að rúlla í allar þessar áttir.“

Aðspurður hvað sé næst á dagskrá svarar Lee: „Það væri auðvitað draumur að hafa uppi á upprunalegu filmunni, hún hlýtur að vera til einhverstaðar og því lengra sem við göngum með þetta því líklegra er að hún muni finnast. Okkur langar líka virkilega að fá myndina sýnda á RÚV, þannig það væri næsta skref. Svo höfum ég og konan verið að vinna að sjálfstæðri víkingamynd í mörg ár, sem er gerð í svipuðum stíl og Sóley, þannig að ef við náum að selja réttinn til RÚV getum við fjármagnað þær tökur sem við eigum eftir í Nýja-Sjálandi.“ Lee og Þorbjörg hafa nú þegar tekið upp rúman hálftíma af efni, myndin verður um Leif Eiríksson í nýja heiminum og er það tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon sem fer með aðalhlutverkið.

Aðspurður hvort Lee hafi mikinn áhuga á víkingum og íslenskum sögum svarar hann því játandi. „Ég hef alltaf heillast af Íslandi, alveg frá því áður en ég kynntist konunni minni. Ég heillast af þessu öllu saman; álfum, heiðni, öllum menningararfinum. Það var annað sem heillaði mig svo mikið við Sóley, hvernig hún fjallar um álfa, en mér þykja þjóðsögurnar og allur þessi menningararfur allt of sjaldgæft viðfangsefni í íslenskri kvikmyndagerð yfirhöfuð.“

Sykurmolana vantar í kvikmyndagerð á Íslandi

Lee lýsir því einnig hvernig honum þykir vanta upp á jaðarstefnuna í kvikmyndagerð á klakanum: „Það vantar svo mikið upp á tilraunabíóið hérna og þessa framúrstefnulegu kvikmyndagerð, sem mér hefur alltaf þótt svo skrýtið þar sem íslensk list er alls ekki bundin við meginstrauminn á öðrum sviðum.“ Lee rifjar upp fyrstu kynni sín af íslenskri menningu þegar vinur hans í æsku var með stórt plakat af Björk inni hjá sér. „Björk gerði alltaf nákvæmlega það sem hún vildi þegar kom að tónlist, hún fór ekki eftir settum reglum en varð samt risastór út í heimi. Hvar eru þeir listamenn þegar kemur að kvikmyndum? Róska fór svo sannarlega sínar eigin leiðir, og það líka sem kona í heimi karla, en annað sem heillar við Sóleyju er hvernig myndin er feminísk, kvenröddin er svo sterk, en það er narratíva sem ég hef alltaf viljað styðja við.“

Þegar Lee er spurður hvort hann fyndi til tengingar við listakonuna frægu eftir þetta langa ferli svarar hann því játandi. „Auðvitað náði ég aldrei að hitta hana þar sem hún féll frá á tíunda áratuginum, en ég finn algjörlega til tengingar við hana eftir þetta allt saman. Ég hef líka fengið að kynnast fólki sem þekkti Rósku náið, eins og Jörmundi fyrrum allsherjargoða, sem lék einmitt lítið hlutverk í myndinni. Þegar hann komst að því hvernig ég tengdist Rósku tók hann mér með opnum örmum og núna erum við góðir félagar. Síðan er það tengingin í gegnum konuna mína, hvernig þetta er allt bókstaflega innan fjölskyldunnar.“ Þó að Lee hafi að sjálfsögðu skorað prik hjá tengdafjölskyldunni með endurvinnslunni segir hann það aldrei hafa verið aðalatriðið. „Það er bara bónus“ segir hann og hlær. „Ég upplifði þetta alltaf fyrst og fremst sem listræna tengingu frá því að ég sá myndina fyrst. Eins og ég sagði er þetta kvikmynd sem ég hefði sjálfur viljað gera, ég kannast við þetta að ströggla við kvikmyndagerð, að vinna frá jaðrinum, að vilja segja öðruvísi sögur sem listamaður og gera það upp á eigin spýtur á hnefunum.“

Hjónin Lee Lorenzo Lynch og Þorbjörg Jónsdóttir vonast til að halda aðra sýningu á Sóleyju sem fyrst og að sjá þar sem flesta. Þangað til bíða þau svara frá RÚV og halda áfram að vinna hörðum höndum að víkingamyndinni In the Land of Meadows og taka þannig virkan þátt í áframhaldandi sjálfstæðri kvikmyndagerð á Íslandi.[/cs_text]

Um höfundinn
Salvör Bergmann

Salvör Bergmann

Salvör Bergmann er meistaranemi í kvikmyndafræði í Háskóla Íslands, en hún lauk þar við BA-gráðu í sama fagi. Hún hefur starfað við kvikmyndagerð á Íslandi og var auk þess penni fyrir ferðaþjónustuvefsíðu, en vinnur núna á gistiskýli fyrir heimilislausar konur.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701