[cs_text]Kvikmyndin Andið eðlilega var frumsýnd hér á landi 9. mars síðastliðinn. Handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar er Ísold Uggadóttir en hún var á dögunum valinn besti leikstjórinn í flokki alþjóðlegra kvikmynda á Sundance-kvikmyndahátíðinni. Einnig hlaut Ísold Fipreci-verðlaun alþjóðlegra gagnrýnenda á Gautaborgarhátíðinni. Umfjöllunarefni myndarinnar, málefni flóttamanna, er athyglisvert og talar sterkt inn í samtímann.

Lára (Kristín Þóra Haraldsdóttir) starfar við vegabréfaeftirlit á flugvellinum í Keflavík. Hún er í peninga- og húsnæðisvanda og á erfitt með að sjá sér og ungum syni sínum, Eldari (Patrik Nökkvi Pétursson), farborða.  Einn daginn er Adja (Bebedita Sadjo), ung kona frá Gíneu-Bissá, stöðvuð í eftirlitinu með falsað vegabréf. Henni er meinað að fara úr landi og  bíður milli vonar og ótta eftir því að vita hvort hún fær dvalarleyfi. Adja verður á óvæntan hátt bjargvættur íslensku mæðginanna og milli þeirra þriggja myndast sterk bönd.

Handrit Ísoldar er þaulhugsað. Myndin fer rólega af stað þegar við fylgjum Láru fyrstu dagana í vinnunni í gráum hversdeginum. Hún er nýbyrjuð í vinnunni á vellinum og það er auðséð að hún vill sanna sig og vinna sig upp í betri stöðu, einkum til að geta búið sér og syni sínum betra líf. Þetta gerir það að verkum að áhorfandinn heldur næstum ósjálfrátt með henni. Um leið sér hún starfið í vegabréfaeftirlitinu öðrum augum en þeir sem eru orðnir samdauna því og hún er strax full samúðar í garð Ödju, þrátt fyrir að vera sú sem stöðvaði hana. Eftir því sem líður á myndina verður saga Ödju fyrirferðarmeiri og samhliða því eykst spennan. Sú saga einkennist af vonbrigðum, sorg og tómlæti af hálfu yfirvalda. Hún kemur að öllum dyrum lokuðum og sér sér ekki annað fært en grípa til stórhættulegs örþrifaráðs í atriði sem er það átakanlegasta en jafnframt spennuþrungnasta í myndinni. Endalok myndarinnar koma ánægjulega á óvart og skilja áhorfendann eftir hugsi.

Í heildina er sagan þó sögð á látlausan hátt og handritið er laust við alla óþarfa dramatík. Leikararnir þrír sem fara með aðalhlutverkin túlka þau öll á áreynslulausan hátt. Adja ber harm sinn að langmestu leyti í hljóði og leyfir næstum engum að sjá sig gráta, nema unga drengnum Eldari. Samband þeirra markast af tungumálaörðugleikum, því Adja kann aðeins örfá orð í íslensku, en í þeim fáu orðum sem fara á milli þeirra endurspeglast einhver kjarni; hrein umhyggja og hreinn sársauki. Lára og Adja eiga það sameiginlegt að vera samkynhneigðar en Lára á í leynilegu ástarsambandi við Kolbrúnu (Sólveig Guðmundsdóttir). Sú saga fer þó að mestu leyti fyrir ofan garð og neðan. Leikhæfileikar Sólveigar hefðu mátt fá að njóta sín betur en hún hefur sýnt það og sannað, meðal annars í leiksýningunni Sóley Rós ræstitæknir, að hún er frábær leikkona.

Drungalegt yfirbragð Suðurnesja rímar vel við vonleysið sem einkennir aðstæður sögupersóna. Það er þó ekki nýtt af nálinni fyrir áhorfendur íslenskra kvikmynda. Hér má til dæmis nefna má Fúsa (2015) og Mýrina (2006), þar sem Reykjanesið kemur einnig við sögu og fleiri landsbyggðarmyndir, svo sem Hafið (2002), Nóa albinóa (2003), París norðursins (2014) og Þresti (2015). Þó var ánægjulegt að sjá sólarljósið gægjast inn á milli gluggatjaldanna að morgni í hjartnæmum senum milli mæðginanna og Ödju. Þrátt fyrir hræðilegar kringumstæður ná þessar þrjár persónur að finna huggun og styrk hver hjá annarri og Adja, sem hefur ekki mætt neinu nema skilningsleysi og fordómum, skýtur skjólshúsi yfir konuna sem stöðvaði hana og annast barnið hennar.

Andið eðlilega er ánægjuleg viðbót við íslenska kvikmyndaflóru af tveimur ástæðum: Annars vegar er hér um að ræða vandað listaverk, handritið er haganlega fléttað saman, persónusköpunin góð og efnistökin fersk. Hins vegar tekur hún á brýnum samfélagsmálum og sýnir hvernig hælisleitendur hérlendis mæta skeytingarleysi og kulda. Þeir eru jafnvel rifnir upp um miðjar nætur og sendir aftur í þær hörmulegu aðstæður sem þeir flúðu. Þetta er veruleiki sem við, mörg hver, neitum að horfast í augu við og aðstandendur myndarinnar eiga hrós skilið fyrir að vekja athygli á honum.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir

Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir

Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir er meistaranemi í ritlist.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

news-1701