Greitt í ljóðum

[cs_text]
Elías Knörr
Greitt í liljum
Meðgönguljóð nr. 14
Partus, 2016
Elías Knörr hefur sagt að hann vilji að lesendur þurfi að leggja sig fram þegar þeir lesa ljóð hans. Í nýjustu ljóðabók sinni Greitt í liljum vinnur hann út frá því, eins og áður, að ljóðið sé sjálfstæð eining sem sé hvorki háð raunheiminum né höfundinum. Enda eru ljóð hans að einhverju leyti gátur sem lesendur þurfa að ráða í, eins og t.d. ljóðið „miðaldagáta II“:

myrkrið yrkir
í plógfar uxans
                        sofandi
                        skjannahvítt holdið (9)

Þegar fyrsta ljóðabók Elíasar á íslensku, Sjóarinn með morgunhestana undir kjólnum, kom út árið 2010 fannst honum mikilvægt að ekki kæmi fram að höfundur væri ekki íslenskur til að ljóð hans yrðu dæmd á eigin forsendum. Þar sem sú bók hlaut mjög góða dóma sér Elías líklega ekki lengur tilgang í því að dylja það að hann er ljóðskáld sem skrifar einnig á móðurmáli sínu galisísku og hefur gefið út nokkrar ljóðabækur á því máli.  En það er kannski einmitt einn helsti styrkleiki Elíasar Knarrar sem ljóðskálds að hann nálgast tungumálið úr annarri átt. Hann leikur sér með það til að skapa frumlegar samsetningar og myndir sem reyna á lesendur. Hljómfallið skiptir þar oft meginmáli og tengingarnar sem skapast geta verið af ýmsum toga. Sem dæmi má nefna ljóðið „rrhrss“ þar sem „barrhross og kjarrhryssur / greinast / flengríðandi“ (18) en það minnir á vissan hátt á ljóð Gríms Thomsen „Á Sprengisandi“ þar sem rúllandi r íslenskunnar og taktur ljóðsins eru notuð til að vekja upp tilfinningu fyrir hestum á ferð og vindi í greinum. Vísunin í ljóð Gríms vekur einnig upp tilfinningu fyrir yfirgnæfandi en óhöndlanlegri ógn og dauða.

Í fyrri bók Elíasar á íslensku var hafið ákveðið leiðarstef en það var á sama tíma tákn fyrir sköpun, erótík og fljótandi kyn og kynvitund. Í þessari bók er hafið víðs fjarri en sköpunin og sú umbreyting sem nauðsynleg er til að eitthvað nýtt geti orðið til er enn grundvallarþema ljóðanna. Það er erfitt að festa hönd á ákveðna merkingu vegna þess að hvert orð, hver mynd, umbreytist vegna tengsla sinna við önnur/aðrar þannig að merkingin stöðvast ekki heldur staldrar aðeins við í stutta stund áður en hún þróast áfram, enda er það líklega markmiðið því eins og Elías hefur sagt í viðtali þá á ljóðheimurinn að vera sjálfbært kerfi sem gengur upp.[1] En þessi einkenni ljóðlistar hans gera það að verkum að ljóðin fá aukna og dýpri merkingu í hvert skipti sem þau eru lesin og sumar myndirnar sjúga sig fastar þannig að lesandi getur ekki hætt að hugsa um þær.

Ljóðið Manifestó I lýsir hringrás þar sem ergi, orð sem vísar til þess að brjóta niður hefðbundna tvíhyggju líffræðilegs og samfélagslegs kyns, er uppspretta frjóseminnar.
Ljóð Elíasar eru gjarnan sjálfsvísandi þ.e. þau fjalla oft að miklu leyti um eigin sköpun. En sköpun ljóðsins er einnig samhliða sköpun í víðum skilningi. Það er kannski þess vegna sem kyn er svo órætt hugtak í ljóðum hans.  Skáldskapurinn er afkvæmi skáldsins sem er bæði faðir hans og móðir. Ljóðin eru á vissan hátt líkömnun hugsunar eða tilfinninga skáldsins. Fyrstu tvö ljóð bókarinnar, sem bæði eru á fyrstu blaðsíðunni lýsa grundvallarhugmynd bókarinnar vel, enda nefnd Manifestó I og II. Fyrra ljóðið lýsir hringrás þar sem ergi, orð sem vísar til þess að brjóta niður hefðbundna tvíhyggju líffræðilegs og samfélagslegs kyns, er uppspretta frjóseminnar. Við ræktum líkamann með ergi, vopn með líkamanum og ergi með vopnum svo að úr verður frjósöm sköpun því eins og segir í „Manifestó II“ (sem er aðeins ein lína): „handan við ergi bíður ljóðið“ (5).

Í kynningu á bókinni segir að umfjöllunarefni bókarinnar séu ást og dauði en eins og fyrr segir má lesa flest ljóðin í bókinni þannig að þau séu um það að skapa ljóð. Þannig að ástin og dauðin koma við sögu að því marki sem þessi fyrirbæri snerta skáldskapinn. Þetta er ekki sagt til þess að gera lítið úr ljóðunum, þvert á móti þá er sá frumkraftur sem felst í þessum samtengdu grundvallarandstæðum, ástinni og dauðanum, sköpuninni og eyðileggingunni, beislaður í skáldskapnum á frumlegan hátt sem nær að virkja bæði tilfinningarnar og vitsmunina. Ástin, og þá ekki síst kynorkan sem henni fylgir, þráin og löngunin er bæði erótísk og vitsmunaleg þar sem hið líkamlega, hið kynferðislega, merkingarsköpun tungumálsins og ljóðlistin sjálf ganga hver inn í aðra.

En ástin og þráin eru nátengdar dauðanum og eyðileggingunni eins og sjá má í ljóðinu „þögn“:

kveldu mig sárt
og láttu kirkjuna í mér
                                 klofna
 
allir himnar sameinast
allar fegurðir samræmast
ef ég græt (15)

Hér notar Elías einföld og frekar hefðbundin stílbrögð í sterku ljóði. Stuðlarnir í fyrra erindinu og sérstaklega harður og jafnvel staccato hljómur k-sins skapa sársaukatilfinningu og eru líka mótvægi við endurtekninguna og mjúkan hljóm seinna erindisins. Þegar þetta tvennt mætist verður ljóðið tregafullt. Myndmálið einkennist einnig af andstæðum þar sem klofning og sameining takast á. Upphafning og fegurð sársaukans sem ljóðið lýsir endurspeglast þannig í myndmáli og stíl.

Trúarlegar tilvísanir eða orðfæri eins og í „þögn“ er annað sem einkennir mörg ljóðin í Greitt með liljum: kirkjur, yfirbót, athafnir, guð, kraftaverk og opinberanir. En það er ekki kristin trú sem slík sem er umfjöllunarefnið heldur frekar það sem hún stendur fyrir, hið upphafna og ósnertanlega sem stundum er fagnað en oftast hafnað. Eins og í ljóðinu „ávarp“ þar sem okkur vantar „nýja opinberun / sem veitir okkur leyfi / til að drekka okkur blind / beint úr slökkvitækinu“ (12). Heiti ljóðabókarinnar má lesa sem tilvísun af þessu tagi. Liljur tengjast kristinni trú m.a. í gegnum orð Krists um liljur vallarins sem hafa til að bera fegurð án þess að vinna fyrir henni. Þær eru bara fagrar, ekki síst því þær trúa og treysta skapara sínum. Í íslenskri bókmenntasögu vildu einnig „allir Lilju kveðið hafa“ sem varð einhvers konar tákn um hið fullkomna ljóð. Elísas Knörr greiðir hér með liljum og má velta fyrir sér hvort hann ætlar að greiða úr einhverju, greiða götu einhvers eða greiða fyrir eitthvað með ljóðum sínum. En líklega er það allt þrennt og meira til sem ljóðin greiða.

[line] [1] Kristín Svava Tómasdóttir, „Fyrst og fremst á ljóðið að vera ný sköpun: Viðtal við Elías Knörr“, Druslubækur og doðrantar, 17. maí 2016, sótt 20. júní 2016 af http://bokvit.blogspot.ca/2016/05/fyrst-og-fremst-ljoi-vera-ny-skopun.html[/cs_text]
Um höfundinn
Ásdís Sigmundsdóttir

Ásdís Sigmundsdóttir

Ásdís Sigmundsdóttir er doktor í almennri bókmenntafræði og kennari við Íslensku og menningardeild. Rannsóknarsvið hennar eru evrópskar endurreisnarbókmenntir, leikhúsbókmennir, þýðingasaga, íslenskar samtímabókmenntir og þýðingafræði.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701