Af veður- og fortíðarþrá

[cs_text]Hugras_Oljos_thra1Tíminn og veðrið eru viðfangsefni Jónu Hlífar Halldórsdóttur á sýningunni Óljós þrá í Grafíksalnum að Tryggvagötu. Efniviðurinn endurspeglar það. Um er að ræða annars vegar traustleg veggverk úr áli eða marmara og misveðruðum kopar og hins vegar viðkvæmnislegan skúlptúr í miðju rýminu; samsafn lítilla hluta eða sýnishorna úr náttúrunni, til dæmis pappír, steina, silkibúta, lifandi kaktus og þurrkuð blóm, sem raðað er með natni á þrjú há og mjó, þrífætt tréborð.

Veggverkin eru öll textaverk, enda hefur Jóna Hlíf lengi unnið með orð og texta í myndverkum sínum. Í koparplötur, sem hún lét tærast úti í íslensku veðri í nokkra daga, hefur hún sagað út stutta texta sem tengjast tímanum. Textarnir eru settir upp eins og línur í ljóði og má þar m.a. finna vísun í eina þekktustu veðurvísu Íslands, eftir Jónas Hallgrímsson, sem hljóðar svo:

Hugras_Oljos_thra2Veðrið er hvorki vont né gott
varla kalt og ekki heitt
það er hvorki þurrt né vott
það er svosem ekki neitt.[1]

Í verki sínu heldur listakonan áfram með þessa hugmynd og bætir við nýrri vídd, tímanum: „Án minnis er tíminn / rétt eins og veðrið / svo sem ekki neitt“. Samþætting veðurs og tíma einkennir alla sýninguna og samspil hins að því er virðist óhagganlega, endingargóða, óflekkaða marmara og koparsins, sem halda mun áfram að tærast og breytast eftir því sem tíminn líður, er vel heppnað. Það lýsir m.a. togstreitunni milli óljósrar þrár okkar eftir varanleika og þeirri staðreynd að „Tíminn veðrar / sálina / Lífið drepur / tímann“. Efni og tími vinna þannig saman í þessum verkum og togast jafnframt á.

Hugras_Oljos_thra3Það sama gildir um efnivið listamannsins og orðin sem hún notar; þetta tvennt spilar saman og togast á í baráttu sinni við tímann. „Vatnið  máir steininn / orðin söm við sig“ segir á nokkuð frísklegri koparplötu og á annarri mun veðraðri við hliðina á stendur: „Steinninn máir tímann / orðin söm við sig“. Hér er m.a. vísað til þess að hin óefnislegu orð geta staðist tímans tönn mun lengur en efni sem veðrast og eyðist, enda munu útskorin orðin á koparplötunum haldast lengi óbreytt þótt áferð koparsins breytist smám saman. Tíminn og efnið má ef til vill hvort annað en orðin standa óhögguð af bæði tíma og efni. Á sama tíma sækir sýningin innblástur í bókina Veðurfræði Eyfellings, greinargerð um veður og veðurmál undir Eyjafjöllum, sem Þórður Tómasson frá Vallnatúni gaf út árið 1979[2] og er að einhverju leyti viðbragð við forgengileika orðanna; því að orðaforði fyrri kynslóða yfir veður, sem var „með ólíkindum mikill“, sé nú „að fjúka út í veður og vind“. Þórður kemur þessum orðum í efnislegan búning, sem prentsvertu á blaðsíður bókar, í tilraun til að halda þessu gamla „veðurmáli […] til haga fyrir seinni tíma“.[3][/cs_text]

 
[cs_text]Jóna Hlíf ólst sjálf upp undir Eyjafjöllum og þekkir vel bæði veðurfarið þar og hina sterku hefð að hyggja stöðugt að veðri og spá í skýin. Þórður lýsir því svo í inngangi bókar sinnar: „Veðurútlit var ráðið af láði og legi, af útliti loftsins í blikum og skýjafari og heiðríkju, af atferli lífsins frá æðsta stigi til hins lægsta. Forvitri maður byggði veðurspá sína á hugboði og draumum og sá þá oft langt inn í komandi tíð. Líkami mannsins gat orðið honum nokkurs konar loftvog, ekki síst, er þreyta og gigtarstingir tóku að hrjá hann.“[4] Hlutverk veðursins og hugleiðinga um veðrið í daglegu lífi okkar, veðurtengdur orðaforði, hjátrú og búverk, er viðfangsefni orðanna á hvítum veggverkum úr áli og þá sérstaklega staðbundið veðurfar og kúnstin að þekkja inn á veðurfar ákveðins staðar og búa því sess innan tungumálsins og menningarinnar. Jóna Hlíf tekur þannig þátt í að varðveita falleg og sérstæð orð eins og þerrifluga og deyfutíð og halda þeim í notkun. Verkin hanga á hvítum veggjum, hvít á hvítu, en orðin sjálf gefa þeim dýpt; þrívídd sem listakonan skapar með því að skera þau út í efnið. Að því leyti minna þau á skýin sem eru í raun veðrið sjálft efnisgert; hin sýnilega hlið annars óljósra veðrabrigða.

Hugras_Oljos_thra4

Jóna Hlíf hefur undanfarin tíu ár unnið textaverk sín náið með eiginmanni sínum, Hjálmari Stefáni Brynjólfssyni, og sömdu þau saman texta sem liggur frammi útprentaður á sýningunni. Textann kalla þau mónólóg og er hann settur fram sem brotakenndar, persónulegar vangaveltur um viðfangsefni sýningarinnar, til dæmis veður, tíma og orð sem vekja þrá – „hvort sem það er dauðaþrá eða fortíðarþrá, burtþrá, þrákelkni, veðurþrá eða heimþrá“.

Skúlptúrarnir í  miðjum salnum skapa svo eins konar orðalaust tilbrigði við stef sýningarinnar; þeir eru hlutbundin framsetning þess sem veðrast og eyðist í náttúrunni. Hins vegar gerir framsetningin, þar sem litlum hlutum er tyllt á viðkvæm borð, það að verkum að orðin á veggjunum eru í raun efnislega traustari. Togstreita og samspil hins varanlega og hins forgengilega, hins trausta og hins viðkvæma, og óljós mörkin þar á milli, eru þannig endurtekin á ýmsan hátt í sýningunni. Eftir situr óljós þrá okkar, eftir fortíðinni og eftir að varðveita hið forgengilega, að vinna gegn þeirri staðreynd að: „Tíminn liggur í eina átt / Enginn fær snúið / til baka“. En um leið er það ef til vill dauðaþráin og forgengileikinn sem skapar dýnamík sýningarinnar og gefur henni gildi.

[Ljósmyndir við grein: Vigfús Birgisson] [line]

[1] Tekið úr bók Þórðar Tómassonar: Veðurfræði Eyfellings, Reykjavík, Bjartur, 2014, bls. 58.
[2] Bókin var endurútgefin með viðbótum fyrir tveimur árum.
[3] Þórður Tómasson: Veðurfræði Eyfellings, bls. 9-10 og 12.
[4] Sama rit, bls. 9.[/cs_text]

Um höfundinn
Auður Aðalsteinsdóttir

Auður Aðalsteinsdóttir

Auður Aðalsteinsdóttir, ritstjóri Hugrásar, er doktor í bókmenntafræði við Íslensku­ og menningardeild Háskóla Íslands og hefur jafnframt víðtæka reynslu af menningarblaðamennsku.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701