Ríkið og rökvísi stjórnmála

[container] rikidogrokvisiÚt er komin bókin Ríkið og rökvísi stjórnmála. Í þessari nýju bók ræðir Páll Skúlason spurninguna hvernig við getum myndað heilsteypt og gott samfélag. Hann telur að meginvandi stjórnmálanna spretti fyrst og fremst af tilteknum vandkvæðum okkar á að mynda samfélag sem hugsandi verur, borgarar og einstaklingar. Jafnframt má finna í bókinni skarpa gagnrýni á hugmyndafræði markaðshyggjunnar, um ræðu um þörfina fyrir nýja stjórnarskrá, hvert sé eðli og markmið skattlagningar, hvaða lífsgildi við ættum að tileinka okkur, til hvers við höfum ríki og hvað felst í hugtakinu réttlæti. Bókin á erindi við alla sem takast vilja á við verkefni samtímans á Íslandi.

Páll Skúlason (f. 1945) lauk doktorsprófi frá Kaþólska háskólanum í Louvain í Belgíu 1973 og hefur verið prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands frá 1975. Hann var rektor Háskóla Íslands 1997–2005.

Háskólaútgáfan gefur bókina út.
[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *