Nýtt skáldverk eftir Rúnar Helga Vignisson

Uppheimar hafa gefið út bókina Ást í meinum eftir Rúnar Helga Vignisson, lektor í ritlist við Háskóla Íslands. Rúnar Helgi hefur gengið til liðs við bókaforlagið Uppheima og sendir hann nú frá sér áttunda skáldverk sitt, Ást í meinum. Bókin geymir fimmtán nýjar smásögur sem tengjast allar efnislega – raða sér í svokallaðan sagnasveig – en þær eiga það sammerkt að fjalla um náin samskipti. Höfundur spyr áleitinna spurninga um hjónabandið, ástina, kynlíf, barneignir, lífsstíl og heilbrigði og ekki hvað síst um það að eldast saman. Ef um sjálfshjálparbók væri að ræða héti hún mögulega „Listin að þola makann“. Svo er hins vegar ekki, hér er um listræn skrif að ræða þar sem tekist er á við lífið í öllum sínum fjölbreytileika, allt frá getnaði til dauða. Flestar sögurnar leiftra af kímni en þó er undirtónninn jafnan alvarlegur, enda gerast ótrúlegustu hlutir á langri lífsleið. Fólk getur verið býsna harðskeytt þegar það leitast við að eiga saman farsæla ævi.

Rúnar Helgi Vignisson er Ísfirðingur, fæddur 1959. Hann hefur sent frá sér fjölmargar bækur, jafnt skáldverk sem þýðingar, og verið verðlaunaður á báðum þeim sviðum. Undanfarin ár hefur hann haft umsjón með ritlistarnámi við Háskóla Íslands.

Heimasíða Rúnars Helga Vignissonar.

 

 


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *