Milli lífs og dauða

Einar Kárason
Opið haf
Mál og menning, 2022

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, fjallar um Opið haf, nýja bók eftir Einar Kárason.

Þegar ég var smá bjó móðurafi minn í kjallaranum hjá okkur. Skáldskapur var hans líf og yndi en hann var einnig töluvert fyrir svokallaðan „þjóðlegan fróðleik“ og kannski þá fyrst og fremst áhugamaður um hrakningasögur sem hann, nær blindur, lét okkur systkin lesa fyrir sig. Ég þó sýnu minnst enda minnst, en þó situr ýmislegt eftir af þessu, titlar eins og Hrakningar á heiðavegum, og sögur um slys og mannshvörf sem komu svo upp í kollinn á ferðalögum um landið, ekki síst lengst upp í óbyggðum, þar sem allt gat gerst. Þessar sögur ræktuðu þannig með manni tilfinningu fyrir hættum landsins, ólu með manni ótta við að villast í þoku eða við að týnast í vályndum veðrum. Hrakningasögur eru mjög þjóðleg bókmenntagrein, rækilega bundin landinu og hafinu, sem enn nýtur töluverðra vinsælda, eins og Útkalls-bókaflokkur Óttars Sveinssonar er ágætt dæmi um.

Í síðustu verkum sínum hefur Einar Kárason fetað þessar slóðir hrakninga og slysa, í Stormfuglum (2018) og Þung ský (2021), og hann er á sömu slóðum í nýjustu bókinni Opið haf. Allar eru þetta ákaflega vel smíðaðar nóvellur byggðar á þekktum atburðum úr sögunni, sjó- og flugslysum, og Opið haf segir frá fræknu og vel þekktu sundi (og göngu) Guðlaugs Friðþórssonar þegar hann bjargast af báti sem sökk undan Heimaey. Frásagnarformið er nokkuð ólíkt því sem gerist í hefðbundnum slysasögum því hér er vopnum skáldskaparins beitt til að lýsa hugarlífi þeirra sem eru staddir í miðju atburðanna.

Eins ogí Stormfuglum, þá gerist Opið haf mitt í öldurótinu og þetta sjónarhorn gerir það að verkum að þótt við þekkjum vel hvernig fer fyrir aðalsöguhetjunni þá eru spennuþrungnir kaflar sem grípa lesandann, enda veit sá sem sjónarhornið er bundið við ekki hvort hann muni hafa þetta af eða ekki. Þannig eru, einkum í upphafi og undir lokin, dramatískir kaflar og átakanlegir, en það er ekki síst millibilsástandið, kaflarnir þar sem aðalsöguhetjan bara syndir og syndir og er hvorki hólpinn né sokkinn í sæ, sem eru áhrifamiklir. Hann stendur á þröskuldi milli heima, heimurinn eins og hann var er horfinn, báturinn sokkinn, vinir og vinnufélagar drukknaðir, hann veit að hann kemst ekki til baka, en hann hefur ekki náð landi og er því ekki víst hvort hann komist yfir þröskuldinn til nýs lífs. Hvað er þar til ráða? Hvernig á að lifa af eitthvað sem enginn hefur lifað af? Á hvaða undarlegu slóðir leitar hugurinn á þessu endalausa sundi í óbærilegum kulda? Auðvitað sækir að honum það sem honum finnst hann eiga óuppgert, en þar eru það ekki bara stóru málin – ástin sem aldrei almennilega varð eða harmur foreldranna, sem leita á hann, heldur líka algjörleg hversdagslegir hlutir úr dagsins amstri; smávægilegt rifrildi við vin, mótorhjólið sem hann hafði lofað að kaupa. Til að bægja burt lífshættunni, dauðanum og sorginni, hamast hann við að reyna að muna eitthvað skemmtilegt, mútar sjálfum sér með gamansemi til að halda áfram að synda og rifjar upp vægast sagt léttvæga aulabrandara og ýmiss konar Eyjasögur og vísur. Þannig er sýnt hvernig mitt í ógnvænlegum aðstæðum þá er hversdagurinn þrátt fyrir allt fyrirferðarmikill, og það er hann sem er haldreipið, heldur honum lífsins megin við þröskuldinn.

Þessir kaflar minntu mig á sérkennilega senu úr hrakningamyndinni Touching the Void  (Kevin Macdonald, 2003). Sú mynd segir af fjallgöngumanni sem bjargast úr hrikalegum aðstæðum og í þessari senu fær aðalsöguhetjan á heilann lagið „Brown Girl in the Ring“ með Boney M, sem honum finnst algjörlega óþolandi lag og hugsunin sem heldur honum gangandi á síðustu metrunum er sú að hann geti ekki endað ævina með þessi ósköp hringlandi í kollinum.

Í aðstæðum sem þessum lendir fólk oft í einhvers konar óráði og alls ekki alltaf ljóst hvað er veruleiki og hvað ímyndun. Þessu millibilsástandi er lýst á einkar sannfærandi hátt og það er í raun eitt af leiðarstefjum sögunnar, því sagan hefst þar sem hann er vakinn þegar báturinn er að sökkva. Þetta ástand sem við erum í milli svefns og vöku, þar sem við vitum ekki í þennan heim né annan, býður uppá tilvistarlegar spurningar, vangaveltur um líf milli heima, um reynd og ímyndun eins og mörg dæmi úr bókmenntasögunni sanna. Okkar maður er aleinn úti á hafi, hvergi sála sem getur rétt honum hjálparhönd – en í dýraríkinu finnur hann þó ákveðna huggun; hann spjallar við múkka, höfrunga, seli og sauðfé. Og það „bætti sálarástandið að hafa þessa samfylgd“ (63).

En hvernig á að takast á við þessi áföll þegar í land er komið, þegar maður er hólpinn? Á okkar tímum er gríðarleg áhersla og trú á lækningamátt þess að segja frá, að segja sögu sína, að bera vitni. Marc Augé hefur hins vegar bent á að „skyldan til að muna“ sé ekki endilega þeirra sem hafa komist af, það sé ekki hægt að krefjast þess að þeir þurfi að rifja upp aftur og aftur hörmulega atburði, heldur að þeirra skylda sé fyrst og fremst að lifa af.[1] Aðalpersónan í Opnu hafi er heldur ekki hrifinn af þeirri athygli sem hann fær. Hann rifjar upp þegar hann flúði ásamt fjölskyldu sinni gosið í Heimaey og allir vildu tala við hann „bara af því að hann var úr Eyjum og hafði þurft að flýja heimili sitt“. Honum fannst „athyglin vond“ (88). Og þegar honum er sagt á spítalanum þar sem hann er að jafna sig eftir volkið að það sé „varla talað um annað í þjóðfélaginu“, það líst „honum einhvernveginn ekki alveg á“ (119). Saga hans er saga af hörmungum þar sem allir fórust nema hann og þegar honum er óskað til hamingju með afrekið blasti það við honum „að það sem gerðist þessa nótt var auðvitað harmleikur, fjórir ungir menn og allt góðir vinir hans höfðu dáið, og hlaut ekki að blasa við að sú óhamingja væri einhvern veginn stærri en þótt einn hefði lifað af?“ (121).  

Eitt sinn var ég spurð af írskri samstarfskonu sem hafði lesið þó nokkuð af íslenskum glæpasögum, ekki síst eftir Arnald Indriðason, hvort að mannshvarfið væri álíka klisja í íslenskum bókmenntum og kaþólski presturinn í írskum. Ég svaraði því neitandi, sagði þetta vera þvert á móti það sem við öll óttuðumst. Þar sem þetta samtal átti sér stað í fyrsta sinn sem við hittumst, þá var hún ekki alveg viss hvort hún ætti að taka mig alvarlega (reyndar er hún ekki ein um það svona almennt séð). Þess vegna, nokkrum árum eftir þennan fund, þegar við voru saman á ráðstefnu nú í vor og sátum yfir dönskum bjór í lok dags ásamt þremur íslenskum fyrirlesurum þá nefndi hún þetta á ný og þegar nánar var að gáð kom í ljós að allar höfðu þær sögur úr sinni fjölskyldu eða sínu umhverfi af mannshvörfum, gömlum sem nýjum.

Þannig eru mannshvörf, skipsskaðar og hrakningar á heiðavegum hluti af sameiginlegu minni samfélagsins. Marion Lerner ræðir um varðveisluhlutverk skrifa Pálma Hannessonar sem tekur sögur sem hafa varðveist í munnlegri geymd og færir á bók sem verða þá hluti af menningarlegu minni samfélagsins. Marion nefnir að tilgangurinn hafi meðal annars verið sá að „heiðra þessar hvunndagshetjur sem slíkar og  bregða upp mynd af þeim sem íslenskum þjóðhetjum, holdgervingum lífsvilja og þrautseigju þjóðarinnar“.[2] Skáldskapur gegnir líka mikilvægu hlutverki í minnismenningu þjóða, því eins og Ann Rigney hefur bent á, þá eru skáldsögur „hreyfanleg minnismerki.“ [3]  Þannig má segja að þessar sögur Einars verði hluti af minningunni um þessa atburði, þó á annan veg en í verkum Pálma, því að hér er ekki verið að búa til þjóðhetjur. Þess í stað setur skáldskapurinn lesandann inn í aðstæður sem hann myndi aldrei vera í að öðrum kosti (vonandi), þar sem hann lýsir hugsanagangi og innra lífi hversdagslegs fólks í skelfilegum aðstæðum. Með því bætist ný vídd við þekkingu okkar á atburðunum og minningunni um þá.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.


[1] Marc Augé, Les formes de l‘oublie, (París: Payot et Rivages, 1998), bls. 87.

[2] Marion Lerner, „Staðir og menningarlegt minni: Ferðalýsingar og vörður,“ Ritið (2013) (1): 9-28, bls. 8.

[3] Ann Rigney, „Portable Monuments: Literature, Cultural Memory, and the Case of Jeanie Deans,“ Poetics Today (2004) 25 (2): 361–396.

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 328000601

article 328000602

article 328000603

article 328000604

article 328000605

article 328000606

article 328000607

article 328000608

article 328000609

article 328000610

article 328000611

article 328000612

article 328000613

article 328000614

article 328000615

article 328000616

article 328000617

article 328000618

article 328000619

article 328000620

article 328000621

article 328000622

article 328000623

article 328000624

article 328000625

article 328000626

article 328000627

article 328000628

article 328000629

article 328000630

article 328000631

article 328000632

article 328000633

article 328000634

article 328000635

article 328000636

article 328000637

article 328000638

article 328000639

article 328000640

article 328000641

article 328000642

article 328000643

article 328000644

article 328000645

article 328000646

article 328000647

article 328000648

article 328000649

article 328000650

article 888000031

article 888000032

article 888000033

article 888000034

article 888000035

article 888000036

article 888000037

article 888000038

article 888000039

article 888000040

article 888000041

article 888000042

article 888000043

article 888000044

article 888000045

article 888000046

article 888000047

article 888000048

article 888000049

article 888000050

article 888000056

article 888000057

article 888000058

article 888000059

article 888000060

article 888000061

article 888000062

article 888000063

article 888000064

article 888000065

article 888000066

article 888000067

article 888000068

article 888000069

article 888000070

article 878000011

article 878000012

article 878000013

article 878000014

article 878000015

article 878000016

article 878000017

article 878000018

article 878000019

article 878000020

article 878800021

article 878800022

article 878800023

article 878800024

article 878800025

article 878800026

article 878800027

article 878800028

article 878800029

article 878800030

article 878800031

article 878800032

article 878800033

article 878800034

article 878800035

article 878800036

article 878800037

article 878800038

article 878800039

article 878800040

article 868000011

article 868000012

article 868000013

article 868000014

article 868000015

article 868000016

article 868000017

article 868000018

article 868000019

article 868000020

article 868100021

article 868100022

article 868100023

article 868100024

article 868100025

article 868100026

article 868100027

article 868100028

article 868100029

article 868100030

article 868100031

article 868100032

article 868100033

article 868100034

article 868100035

article 868100041

article 868100042

article 868100043

article 868100044

article 868100045

article 868100046

article 868100047

article 868100048

article 868100049

article 868100050

article 868100051

article 868100052

article 868100053

article 868100054

article 868100055

article 868100056

article 868100057

article 868100058

article 868100059

article 868100060

cuaca 898100001

cuaca 898100002

cuaca 898100003

cuaca 898100004

cuaca 898100005

cuaca 898100006

cuaca 898100007

cuaca 898100008

cuaca 898100009

cuaca 898100010

cuaca 898100011

cuaca 898100012

cuaca 898100013

cuaca 898100014

cuaca 898100015

cuaca 898100016

cuaca 898100017

cuaca 898100018

cuaca 898100019

cuaca 898100020

cuaca 898100021

cuaca 898100022

cuaca 898100023

cuaca 898100024

cuaca 898100025

cuaca 898100026

cuaca 898100027

cuaca 898100028

cuaca 898100029

cuaca 898100030

cuaca 898100031

cuaca 898100032

cuaca 898100033

cuaca 898100034

cuaca 898100035

cuaca 898100036

cuaca 898100037

cuaca 898100038

cuaca 898100039

cuaca 898100040

cuaca 898100041

cuaca 898100042

cuaca 898100043

cuaca 898100044

cuaca 898100045

cuaca 898100046

cuaca 898100047

cuaca 898100048

cuaca 898100049

cuaca 898100050

cuaca 898100051

cuaca 898100052

cuaca 898100053

cuaca 898100054

cuaca 898100055

kasus 898100001

kasus 898100002

kasus 898100003

kasus 898100004

kasus 898100005

kasus 898100006

kasus 898100007

kasus 898100008

kasus 898100009

kasus 898100010

kasus 898100011

kasus 898100012

kasus 898100013

kasus 898100014

kasus 898100015

kasus 898100016

kasus 898100017

kasus 898100018

kasus 898100019

kasus 898100020

article 898100021

article 898100022

article 898100023

article 898100024

article 898100025

article 898100026

article 898100027

article 898100028

article 898100029

article 898100030

article 898100031

article 898100032

article 898100033

article 898100034

article 898100035

article 898100036

article 898100037

article 898100038

article 898100039

article 898100040

article 898100041

article 898100042

article 898100043

article 898100044

article 898100045

article 898100046

article 898100047

article 898100048

article 898100049

article 898100050

article 710000011

article 710000012

article 710000013

article 710000014

article 710000015

article 710000016

article 710000017

article 710000018

article 710000019

article 710000020

article 710000021

article 710000022

article 710000023

article 710000024

article 710000025

article 710000026

article 710000027

article 710000028

article 710000029

article 710000030

article 710000031

article 710000032

article 710000033

article 710000034

article 710000035

article 710000036

article 710000037

article 710000038

article 710000039

article 710000040

article 710000041

article 710000042

article 710000043

article 710000044

article 710000045

article 710000046

article 710000047

article 710000048

article 710000049

article 710000050

article 710000051

article 710000052

article 710000053

article 710000054

article 710000055

article 710000056

article 710000057

article 710000058

article 710000059

article 710000060

article 710000061

article 710000062

article 710000063

article 710000064

article 710000065

article 710000066

article 710000067

article 710000068

article 710000069

article 710000070

article 710000071

article 999990001

article 999990002

article 999990003

article 999990004

article 999990005

article 999990006

article 999990007

article 999990008

article 999990009

article 999990010

article 999990011

article 999990012

article 999990013

article 999990014

article 999990015

article 999990016

article 999990017

article 999990018

article 999990019

article 999990020

news-1701