Snerting – Gleymskublik og minningarbrot

[cs_text]Sýn á Snertingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson (Reykjavík 2019)

Að elta sólskinið

Sagan Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson snertir lesanda sannarlega. Þetta er saga um lífið sem oftar en ekki skilur fá spor eftir sig. Sporlaust átak, sporlaus barátta og sporlaus saga sögumannsins Kristófers, sem staldrar við þegar líða tekur að ævilokum. Sagan er um ferðalag hinna fullorðnu yfir ævi sína og óuppgerða hluti, þar sem einstaklingurinn hefur þvælst með sjálfum sér og þvælst fyrir sjálfum sér í gegnum lífið og hugsar um hverju hann áorkaði allan þennan tíma. Saga Kristófers er einnig ástarsaga hans, saga um ástina sem snerti hann ungan og lifði með honum alla tíð, en var ávallt fjarstödd.

Kristófer er ekkjumaður á áttræðisaldri þegar heimsfaraldurinn brýst út í samtímanum. Útbreiðsla veirunnar er áfall fyrir samfélög heimsins og verður tilefni atburðarrásar og persónulegs uppgjörs Kristófers. Hann lítur yfir farinn veg, frá því hann var ungur maður að hefja nám í London árið 1969 og hugleiðingar hans um líf sitt hálfri öld síðar, þegar hann með skömmum fyrirvara ákvað á fyrstu mánuðum kófsins að loka veitingastað sínum í Reykjavík sem hann hafði rekið til margra ára. Alltaf grillir í samfélagið og söguna í bakgrunni, rammann sem einstaklingarnir hrærast í.  Veitingastaðir eru áberandi sögusvið bókarinnar, Kristófer vinnur á veitingastöðum, rekur veitingastað í áratugi, hittir fólk á veitingastöðum og ræðir við fólk um mat. Flakkað er milli tímabila í frásögninni og lesandinn fylgir sögumanni í ferðalagi um líf hans, í hugrenningatengslum, endurupplifun, afneitun og skilningi sem að lokum gægist fram smám saman.

Atburðarrásin sem myndar ramma uppgjörsins er hins vegar annað ferðalag Kristófers, flugferð frá Reykjavík til Japans með millilendingu í London árið 2020. Hann ákveður með stuttum fyrirvara að fara af landi brott, lætur engan vita fyrr en á síðustu stundu og kaupir sér flugmiða aðra leið. Kannski er þetta ferðalagið sem hann langaði að fara í alla ævi en fór aldrei í. Hann ætlar til Japans að leita að Mikó, japanskri kærustu sinni til nokkurra mánaða árið 1969. Hún hvarf sporlaust frá London ásamt japönskum föður sínum það ár. Kristófer hafði engar fregnir fengið af henni í hálfa öld fyrr en hann óvænt fékk vinabeiðni á facebook í þann mund sem hann var að skella veitingastað sínum í lás og loka vorið 2020. Hann ákvað þá að láta slag standa, ganga frá sínum málum sómasamlega og fara til Japans. „Ég get ekki treyst á að ég muni snúa aftur.“ (bls. 18), hugsar hann með sér þegar hann er að undirbúa Japansferðina, gengur vel frá öllu eftir sig og veit ekki alveg hvað muni bíða sín. Hann vildi ekki láta stoppa sig, ekki láta aðra stýra ákvörðun sinni eins og gjarnan hafði verið. Hann lét því engan vita, sérstaklega ekki fósturdóttur sína. Eiginkonan Ásta var látin. Í Japan var (kannski) sólskinið sem Kristófer hafði leitað að allt sitt líf.

Texti bókarinnar líður vel áfram, er áferðarfallegur og oft mjög góður. Málsnið persónanna gerir þær raunverulegar. Kápumyndin er afar vel heppnuð og titill bókarinnar hittir í mark. Þetta rennur upp fyrir lesanda að lestri loknum. Snerting og nánd eru lykilhugtök í allri frásögninni, bæði í huglægri og eiginlegri merkingu. Þau eru jafnvel sett fram sem andstæður, í það minnsta í túlkun á tengslum Kristófers við konurnar tvær í lífi hans. Míkó og Kristófer snertu líf hvers annars í hálfa öld, en hittust ekki nema í fáeina mánuði. Ásta og Kristófer voru gift í áratugi en nánd var þeim víðs fjarri. Snerting ratar í bókartitlinn og segir fyrir um hvar hjarta sögumannsins slær. Kórónuveiran varð til þess að það rann upp fyrir Kristófer að hann yrði að elta sólskinið.

Minni og gleymska

Fjölmargar vísbendingar eru í bókinni um gleymsku og minni. Stundum getur Kristófer minnisleysis eins og í framhjáhlaupi, stundum er minnisleysi Kristófers útskýrt og það látið líta út fyrir að vera eðlilegt. Stundum hefur hann áhyggjur af gleymskunni og stundum tekur hann alls ekki eftir henni. Gleymskan tifar undir niðri á sama tíma og hann þrætir fyrir tilvist hennar.

Lesandinn er ekki alveg viss hvað Kristófer man og hvað ekki. Er hann trúverðugur í frásögn sinni? Er hann búinn að gleyma of miklu úr lífi sínu til að geta gert það upp? Víða rifjar hann upp nákvæma atburði og samtöl sem áttu sér stað jafnvel fyrir mörgum áratugum og sem eru búin að fara í gegnum síu áranna og túlkun daglega lífsins, réttlætingu, rökræðu og afstöðu. Hann búinn að rýna þá í tengslum við ákvarðanir sem hafa haft áhrif á hvert lífið leiddi hann. Hvað er rétt og rangt í slíkri túlkun á eigin lífi og ákvörðunum, er eitthvað til sem er rétt eða rangt? Líklega allt rökréttar og gildar ákvarðanir á hverjum tíma, þegar enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Þessi afhjúpun á gleymskublikum og minningarbrotum í samhengi upprifjunar er sett fram með næmum hætti og er afar áhugaverð til umhugsunar.

Í frásögninni úr samtímanum bætist við hið gleymda í önnum hversdagsins. Kristófer gleymir grímu á leið um borð í flugið, gleymir nafni á manni sem hann þekkti, gleymir að hringja og gleymir að skrifa minnislistann. Innra samtal vegna læknisheimsókna kemur einnig við sögu, þar sem læknirninn er að reyna að komast að því hvort um minnisglöp sé að ræða hjá Kristófer, sem á sama tíma streitist listilega á móti greiningunni. Til öryggis gerir hann samt minnisæfingar á hverjum morgni, er hræddur um að vita hvert mögulega stefnir. Hin mannlegu viðbrögð eru að vinna á móti eigin hnignun, hann streitist á móti því að komið sé að leiðarlokum í löngu lífi, enn leitandi að því hvar hann missti af geislum sólarinnar.

Þegar á söguna líður kemur í ljós að það skiptir líklega ekki öllu máli hvað Kristófer man eða man ekki í endurliti sínu yfir farinn veg, hvort hann hafði rétt fyrir sér í samskiptunum við þennan eða hinn, sem hann þó endurhugsar og endurupplifir aftur og aftur. Hann gleymir stundum nýlegum viðburðum sem hann ætti að muna, rifjar orðrétt upp gamlar minningar um samtöl og skilur stundum illa viðbrögð þeirra sem nálægt honum standa. Stundum koma minningarnar ekki fram í rökrænu samhengi, eru blik úr fortíðinni sem hann nær ekki að tengja saman. Stundum eru minningarnar skýrar, tengjast við ákvarðanir og afstöðu til hlutanna. Stundum eru minningarnar óskýrar tilfinningar eða hugarástand. Kannski eru minningar einmitt ekki réttar eða rangar, heldur endurspegla sífellda hringrás ákvarðana í lífinu sem endurskapast á hverjum tíma í nýju samhengi. Lífið speglast í minningarbrotum og gleymskublikum og beinir sjónum að því sem öllu máli skiptir, heilindunum.

Heilindi  

Í skoðun sinni á lífinu sér Kristófer örðugleika í samskiptum við flesta í kringum sig, sem hann samt tók kannski ekki alltaf eftir á sínum tíma. Hann lifði fremur venjulegu og viðburðarlitlu lífi, kom úr venjulegu umhverfi, reyndi að sinna sínu vel og standa sig, stofnaði veitingastað, kvæntist, átti eina fósturdóttur, fannst flest ganga þannig séð þokkalega, en þó ekki alltaf. Upprifjun Kristófers á lífshlaupinu fer fram í gegnum sögur af samskiptum hans við samferðafólk sitt og fjölskyldu. Hann reyndi jafnan að þóknast fólki í kringum sig, oft á eigin kostnað. Til lengri tíma bitnaði það ekki síður á eiginkonu hans. Um það og hjónabandið snýst uppgjörið að mörgu leyti.

Hvernig sem bókinni er snúið, þá eru heilindi og samskipti ríkt stef. Kristófer reynir til þrautar að muna hvernig hann lifði lífinu og er undir niðri að leita að því hvar hann fór útaf sporinu. Framan af er hann þó viss um að hann hafi oftast verið á réttri leið og hafi ekki farið útaf. Hann man mjög margt þó sumt sé óljóst. Hann man ekki alltaf samhengið í samskiptum sínum við samferðamennina, né skynjar hvernig aðrir túlkuðu hans framkomu. Hann hagræddi oft sannleikanum, jafnvel að óþörfu, reyndi að stýra viðbrögðum viðmælandans. Gera öllum til geðs. Lesandinn fær líka stundum hina hliðina, Ásta konan hans talar til okkar í gegnum samtöl við Kristófer, líka Bárður kokkur og samstarfsmaður til margra ára, fósturdóttirin Gerður, Mundi bróðir, Mikó hin japanska og faðir hennar og Jói Steins í London. Stundum eru lesendur líklega sammála Kristófer og stundum viðmælendunum. Hlustun var ekki hans sterka hlið og misskilningur í samskiptum víða á ferð, á köflum stutt í afneitun. Eða eru þetta minnisglöp?

Kristófer gerir sér stundum grein fyrir því að hann hafi á köflum brugðist trausti samferðamanna sinna, hagræðir hlutum með að segja ekki alla söguna og leynir því sem hann er að hugsa. Stundum hefur hann áhyggjur af því, en þó ekki miklar. Það er því erfitt að lesa frásagnirnar öðruvísi en að eitthvað hafi vantað upp á heilindin í lífi hans. Hann sér eftir ýmsu, sér sennilega eftir hjónabandinu til áratuga, nokkuð sem hann gerði sér eiginlega grein fyrir áður en hann fór upp að altarinu. Þessi hálfi sannleikur hefur litað allt líf Kristófers og ekki endilega fært honum ró og sátt.  Mesta samviskubitið er gagnvart Ástu.

Þegar Kristófer fer að átta sig í hinu hægfæra uppgjöri í ferðalagi sínu til Japans, „sekkur“ hann við tilhugsunina. Hann man eftir að hafa séð erfiðleika hjá öðru fólki, og „stundum þykist ég sjá brestina fyrir áður en blessað fólkið hefur látið gefa sig saman, stundum langar mig beinlínis að vara það við.“ (bls. 5) Hann sá alla tíð eftir að hafa kvænst Ástu. Kristófer var ekki heill í lífinu og missti kannski af því sem mestu máli skipti – þrátt fyrir allt. Í sáttinni sem kemur um síðir áttar hann sig á þessu, en tók ekki eftir því á meðan hann reyndi að gera sitt besta og lífið leið hjá. Það tók hann alla ævi að komast að því að það sem mestu máli skipti sigldi framhjá á meðan hann var að reyna að standa sig. Það er erfiðisvinna að vera manneskja.

Sögulegt minni

Sagan um Kristófer teflir á áhugaverðan hátt saman einstaklingnum og samfélaginu og snertir þar með á áhrifum sögunnar á samfélagið og menninguna. Sterku afli menningar og viðhorfa lýstur niður í bókinni. Ljósi er varpað á menningarheima sem hittast og skilja ekki hvorn annan. Reynsla fegðininna frá Japan við að forðast fortíðina, kjarnorkusprengjuna í Hiroshima áratugum fyrr, en komast ekki undan, fléttast á áhugaverðan hátt inn í tilraunir einstaklingsins til að fóta sig í sínum heimi, sínu eigin menningarlega og samfélagslega umhverfi. Kristófer forðaðist eigið líf í áratugi á sama tíma og hann reyndi að lifa því eins og hann taldi að til væri ætlast.

Í bókinni kemur fram skýrt sögulegt sjónarhorn á langtímaáhrif stríðsreksturs á einstaklinga. Skýringuna á hvarfi Mikó og föður hennar frá London má rekja til eftirstríðsáranna í Japan og þeirra áhrifa sem sprengjan hafði til lengri tíma. Hvarf feðgininna var stóra áfallið í lífi Kristófers, en hann skildi ekki hvers vegna þau hurfu fyrr en hálfri öld síðar, heilu lífi síðar. Hann hafði enga leið til að komast að því á sínum tíma hvað hafði gerst og hvers vegna og leit hans bar engan árangur. Japan hvarf Kristófer ekki úr minni, áhugi hans á japönskum bókmenntum og samfélagi litaði samskipti þeirra hjóna alla tíð. Ásta gat ekki sætt sig við þann sess sem Japan átti í huga hans, hugarheimi sem hún hafði engan aðgang að.

Þegar til Japans kom fann Kristófer frið í lífi sínu, kannski í fyrsta skipti. Á meðan hann beið eftir að hitta Míkó skrifaði hann sms til Gerðar fósturdóttur sinnar: „Það kemur á óvart en er ekki svo undarlegt þegar maður hugsar út í það skrifaði ég svo, að hér þar sem atómsprengjan féll skuli allir minnisvarðar – söfn og garðar, götur og torg – tileinkað friði. Og ekki skrítið heldur að hann skuli síast inn í mann.“ (bls. 284) Hann upplifði frelsi og frið á bekk í Japan og gerði sér loks grein fyrir samhenginu.

Skellt í lás

Hálfrar aldar lífshlaup og tengingar í tíma og rúmi ná beint til lesandans. Ólafi Jóhanni tekst ákaflega vel að skapa tengingu milli tímabila og menningarheima og varpa ljósi á hvernig fortíðin getur haft áhrif á framtíðina. Þrjóska og litlir hálfósýnilegir hlutir hafa oft meiri áhrif en meðvitaðar ákvarðanir og skipulag. Kristófer skellir í lás og fer í óþægilegt endurlit yfir ævi sína, veltir fyrir sér hvað varð og hvað varð ekki. Hver er sagan um eigið líf? Hvernig verður sú saga til? Hvernig sá hann lífið fyrir sér ungur og hvernig varð það? Kristófer fannst honum oft hafa verið stillt upp við vegg á lífsgöngunni, bæði af sjálfum sér, konu, fósturdóttur, fjölskyldu og samferðamönnum. Hann reyndi með sínum aðferðum að þola það. Óróleikinn kraumaði sífellt meira eftir því sem styttra varð í endalok lífsins. Þegar þau voru í augsýn varð uppgjörið knýjandi.

Í lok bókarinnar er lesandanum ljóst að þrátt fyrir gleymsku og minnisleysi, hefur minnið yfirhöndina, nægjanlega mikið minni fyrir lífsuppgjörið. Kristófer gerir sér fulla grein fyrir hvernig líf hans hefur verið þótt hann hafi á stundum verið í afneitun og hann átti sig ekki alltaf á því hvers vegna allt fór eins og það fór. Þá fór hann sitjandi á bekk í Japan að velta fyrir sér ferðinni til Japans. Af hverju keypti hann flugmiða aðra leið? „Það fer farsótt um heiminn. Ég skellti í lás og er kominn hálfa leið í kringum hnöttinn. Til hvers? Til að endurheimta það sem aldrei var? Til að friðþægja sjálfan mig og finna eitthvað sem réttlætir hvernig ég hef lifað lífinu?“ (bls. 254)

Sagan af Kristófer teflir á einstakan hátt saman sögunni og menningunni, einstaklingnum og samfélaginu, draumunum og daglega lífinu. Með tregafullum undirtóni tekst hann á við sig sjálfan, næmur og ótengdur í senn. Reynsla fegðininna frá Japan af því að forðast söguna, án þess að eiga möguleika á að sleppa frá henni, fléttast inn í tilraunir Íslendingsins við að fóta sig í eigin heimi án þess að komast burt. Menningarheimar rekast saman og skilja ekki alltaf hvern annan, hvar sem þeir eru, heima eða heiman.[/cs_text]

Um höfundinn
Hrefna Róbertsdóttir

Hrefna Róbertsdóttir

Hrefna Róbertsdóttir er þjóðskjalavörður og starfar við Þjóðskjalasafn Íslands. Hún er sagnfræðingur að mennt, hefur sinnt ritstörfum og ritstjórn um árabil og verið stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701