Skjöl Landsnefndarinnar

[cs_text]Landsnefndin fyrri V. Fundargerðir og bréf nefndarinnar. Ritstjórar Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir. Reykjavík: Þjóðskjalasafn Íslands 2020. 780 bls. og myndaörk 32 bls.

Það hefur verið magnað að fylgjast með þeim ævintýralega hraða sem er á útgáfu Þjóðskjalasafns Íslands, Sögufélags og Ríkisskjalasafns Danmerkur á skjölum Landsnefndarinnar fyrri sem starfaði hér á landi árin 1770–1771 og átti sér það háleita en vonlitla markmið að útfæra leiðir til að bæta hag innfæddra. Helsti afraksturinn var mikill skjalahaugur sem Bergsteinn Jónsson réðst til atlögu við á sjötta áratug síðustu aldar, með þeim árangri að tvö lítil bindi komu út árin 1958 og 1961. Undirritaður starfaði við það á vegum Sögufélags sumarið 1980 að vélrita álitsgerð Magnúsar Ketilssonar sýslumanns og sitthvað smálegt annað, en öll áform um framhald á útgáfunni runnu út í sandinn. Nú er öldin önnur og atgangurinn ógurlegur. Fyrstu tvö bindi glæsilegrar heildarútgáfu í stóru broti og góðu bandi voru kynnt með látum árið 2016 og með réttu lögð áhersla á að í því fyrsta væru bréf frá almúganum, það er hreppstjórum, bændum, jafnvel verkafólki og vinnufólki. Athygli vakti að skjöl á íslensku voru þýdd á dönsku og að inngangur með tengdu efni var á báðum tungumálum. Fyrir vikið var ljóst að verkið myndi nýtast jafnt íslenskum fræðimönnum og hinum sem aðeins eru læsir á dönsku, norsku eða sænsku – enda eru greinar slíkra höfunda byggðar á þessum textum þegar teknar að birtast. Hitt bindið féll í skuggann, aldeilis að ósekju því það er barmafullt af yndislegum og nánast skoplegum fordómum presta gagnvart almúganum. Allir voru þessir mætu menn fullvissir um að „að dygðin og sannur guðsótti“ væru „grundvöllur til stjórnarstandsins viðhalds, eflingar og besta í einu landi“, eins og séra Guðmundur Guðmundsson í Undirfelli og séra Jónas Benediktsson í Vesturhópshólum skrifuðu 5. maí 1771. Fyrsta skref í átti til umbóta, töldu þeir, var að þess yrði gætt að bændur borguðu vinnufólki ekki of há laun og að tekið yrði fyrir giftingar fátæks ungs fólks, enda myndi það áreiðanlega lenda á vonarvöl sem „betlarar og húsgangsfólk, sjálfum sér og sveitunum til stærstu þyngsla og vandræða sem allt of mörg dæmi daglega sanna“ (Landsnefndin fyrri II, bls. 409–410).

Í þriðja bindi árið 2018 voru einkum skýrslur sýslumanna og í því fjórða birtust ári síðar sendingar til nefndarinnar frá æðstu embættismönnum, svo sem biskupum, amtmanni og landfógeta. Verður ekki nánar sagt frá þeim bindum hér heldur vikið að því fimmta í röðinni sem var kynnt til sögunnar 27. október síðastliðinn með fyrirlestrum ritstjóranna, Hrefnu Róbertsdóttur og Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur (sjá Vef. www.youtube.com/watch?v=tV0IulFTV7Y). Síðasta erindið flutti Helga Hlín Bjarnadóttir sem einmitt á inngangskafla þessa bindis (bls. 31–63) um hugmyndir manna um húsaga og landsaga á 18. öld eins og þær birtast í tillögum Þorkels Fjeldsteds, eins þriggja nefndarmanna (hinir voru danskir). Þorkell var þá rétt orðinn þrítugur, fæddur að Kvíabekk í Ólafsfirði árið 1740 eða 1741. Hann lauk lögfræðiprófi við háskólann í Kaupmannahöfn sumarið 1766 og fékk þremur árum síðar lögmannsembætti í Færeyjum en átti að loknum landsnefndarstörfum glæstan feril í Noregi og Danmörku til dánardags 19. nóvember 1796. Uppkast hans að landsagatilskipun (d. politie- og landforordning) er hér á bls. 333–398 og drýpur íhaldssemi af hverju orði, eins og Helga Hlín útskýrir vandlega og setur í samhengi við fyrri tilhlaup að slíkum lagabálki sem aldrei varð neitt úr. Vart gætir upplýstra viðhorfa hjá lögmanninum í öðru en áherslu á vegagerð sem hreppstjórar á hverjum stað áttu að eiga frumkvæði að en bændur skyldu mæta með vinnumenn sína og verkfæri til að ryðja burt grjóti eða brúa keldur og mýrar sem víða tálmuðu för: „som paa mange stæder gjör overfarten særdeeles vanskelig“ (bls. 368). Athugasemdir sýslumanna, lögmanna og stiftamtmanns við tilskipunina fylgja (bls. 402–653). Sumum þeirra þótti Þorkell helsti langorður og vildu stytta skjalið eða jafnvel taka heilu greinarnar út. Aðrir vildu draga ögn úr sektum og öðrum refsingum, svo sem beitingu gapastokks, eða þeir andmæltu innflutningi svonefndra tréhesta þar sem þjófar og aðrir sakamenn voru festir á bak og jafnvel hýddir. Þorkell vildi hafa gapastokk við hverja kirkju og tréhest við þær helstu. Í gapastokkinn átti meðal annars að setja þá sem voguðu sér að koma kenndir til kirkju, svo sem í klukkustund eða tvær (bls. 339–340). Sveinn Sölvason lögmaður taldi tréhesta bara henta í hernum og vildi auka því við málsgreinina að bannað yrði að fólk hefði sísvanga hunda sína með til kirkju, en slíkt væri slæmur siður sem almenningur hefði vanið sig á: „som pöbelen har vedtaget i det, at eenhver lader sine hunde löbe med til kirken“ (bls. 512). Þess má geta að tréhestar voru bannaðir í Danmörku ekki löngu síðar eða árið 1787 (sjá Vef. denstoredanske.lex.dk/træhest).

Þarna fást og sjást á einu bretti ískyggileg viðhorf veraldlegra embættismanna til vinnumarkaðar og opinbers lífs, til viðbótar við það sem fram er komið í fyrri bindum. Annars eru eigin gögn landsnefndarinnar þungamiðja þessa bindis, með öðrum orðum skjöl sem hún tók með sér til landsins (bls. 111–150), bréfabók hennar sjálfrar (151–194), fundargerðarbækur (196–313) og loks bréf sem hún að mestu skrifaði rentukammeri (657–683), en það var sú stjórnardeild í Kaupmannahöfn sem annaðist fjárreiður ríkisins. Bréf nefndarinnar eru ekki ýkja bragðmikil, ef svo má að orði komast, en bráðnauðsynleg til skilnings á verkferlum og væntingum sem viðmælendur svo uppfylltu í mismiklum mæli í greinargerðum sínum. Fundargerðirnar eru miklum mun áhugaverðari aflestrar, allt frá fyrsta fundi með embættismönnum á Þingvöllum 20. júlí 1770 til hins síðasta sem stóð dagana 3.–14. ágúst í Reykjavík. Allt höfðu nefndarmenn þá lesið sem þeim hafði borist og tekið flest af því til umræðu, staðhæfa þeir, en luku sér svo af með því að árétta það sem almenningur helst hafði kvartað undan. Það var ánauð af leigukúgildum sem fylgdu jörðum og mannslánum í þágu jarðeigenda, að ógleymdum bágum verslunarkjörum og þeirri byrði sem greiðsla tíundar var. Þetta síðasta töldu þeir að mætti lagfæra um leið og búið yrði að koma skipan atvinnuvega og stjórnarháttum í betra horf: „paa bædre födder“ (bls. 312–313).

Í fundargerðunum kennir ýmissa grasa sem vert væri að staldra við en látið verður duga að nefna fáein atriði. Meðal þess sem nefndinni var falið í erindisbréfi dagsettu 22. maí 1770 var að meta þörf fyrir yfirsetukonur (bls. 100). Almennt álit manna á fundinum var að slíkra kvenna væri ekki þörf og frekar ætti að verja fjármunum í nauðsynlegri hluti: „til andre nödvendigere ting“ (bls. 199). Í framhaldinu var lagt til að Eystribyggðar í Grænlandi yrði leitað frá höfnum á Vesturlandi (bls. 201). Á fundi 4. mars 1771 var meðal annars rætt um fólksfjölda í landinu og hafði einmitt verið talið upp úr manntali ársins 1769, sem sýndi að landsmenn voru einungis 46.201 talsins. Það þótti nefndarmönnum lítið miðað við það hversu stórt og heilnæmt eylandið væri: „en saa stor og sund öe som Island er.“ Manntalið frá 1703 var reyndar óþekkt og nefndarmenn vissu ekki að þá höfðu íbúar verið rúmlega fjögur þúsund fleiri, en greining þeirra á gögnum leiddi í ljós að Íslendingum fór fjölgandi þrátt fyrir harðindi áranna 1755–1757 og bólusóttarfaraldur ársins 1762 (bls. 210–212). Þeirri niðurstöðu fylgja stórmerkilegar hugleiðingar um það hvernig mætti stuðla að fólksfjölgun og meðal atriða var bólusetning eða „inoculation“, sem væri nýlega uppfundin og hefði þegar bjargað hundruðum þúsunda mannslífa. Aðferðin væri svo einföld að jafnvel fátæk húsfreyja í sveit gæti beitt henni: „Og er det en höjst lykkelig sag, at de mest heldige i deres methode gaae saa simpel til verks, at en fattig bondekone ved nöye at benytte sig af de faae regler og midler, hvilke skal fölges og bruges, kommer ligesaavel til maalet som de saakaldede inoculister“ (bls. 214). Á fundi 1. júní spáðu menn í málma og surtarbrand en líka saltvinnslu úr sjó á jarðhitasvæðum við Reykhóla í Barðastrandarsýslu og á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp sem Þorkell hafði einmitt kannað sérstaklega og fylgja skýrslur hans um það efni, með uppdráttum bæði í svarthvítu og í lit (bls. 279, 321–329, myndaörk xiii–xix).

Um útgáfu textans er vísað í greinargóðar verklagsreglur í fyrsta bindinu og stikkprufur benda ekki til annars en að vel sé vandað til verka – en myndir eru þegar komnar á vefslóð verkefnisins, landsnefndin.is (og textarnir kannski væntanlegir). Gervallt bindið er á dönsku fyrir utan nokkuð ítarlegar athugasemdir Vigfúsar Schevings sýslumanns í Skagafjarðarsýslu við landsagatilskipunartillögu Þorkels (bls. 572–578) og er þeim snarað á góða nútímadönsku sem þó virðir snúna setningaskipan og flóknar hugsanir (bls. 578–583). Meðal annars þótti Vigfúsi óráðlegt að vinnuhjú sem fyndu að mat á heimili sínu skyldu sett í gapastokk við kirkju, heldur ætti fremur að sekta þau, því örðugt gæti verið fyrir húsbónda þeirra að koma slíkum meinhornum á staðinn: „kynni það því gefa honum orðsök til heldur að umbera þess aðfyndni en líða þar af fljótandi ómak og vinnumissir“ (bls. 575). Þýðingin er snöggtum skýrari: „det kunne derfor give ham anledning til snarere at tolerere denne kritik end at lide konstant besvær og arbejdstab ved det“ (bls. 580). Að sama skapi eru hér neðanmáls sérlega góðar millivísanir í önnur skjöl í fyrri bindum þar sem við á. Ýmis hugtök og fyrirbæri sem fyrir koma í texta eru útlistuð jafnharðan og neðanmáls eru þar að auki athugasemdir um handritin, svo sem varðandi undirstrikanir og merkingar með rauðkrít. Þá eru karlar sem nefndir eru á nafn eða embætti þeirra útskýrðir hverju sinni, bæði á íslensku og dönsku, sumir jafnvel oftar en einu sinni og tvisvar – án þess að það komi að sök. Sérstök skrá með orðskýringum er í bókarlok, að nokkrum hluta sameiginleg fyrri bindum. Henni fylgja efnisorðaskrá, mannanafnaskrá og staðanafnaskrá. Allt ber þetta vitni um óþrjótandi elju aðstandenda því svona nokkuð er ekkert spaug. Sjötta bindi er nú væntanlegt og verður hið síðasta – því er nú verr – og óskandi væri að útgefendur hreinlega gleymdu sér og linntu ekki látum, heldur tækju rakleiðis að sér útgáfu á skjölum Landsnefndarinnar síðari sem starfaði árin 1785–1787, sem vart ætti að vefjast fyrir þeim þótt afrakstur hennar sé víst enn meiri að umfangi.[/cs_text]

Um höfundinn
Már Jónsson

Már Jónsson

Már Jónsson er prófessor í sagnfræði.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

berita 128000726

berita 128000727

berita 128000728

berita 128000729

berita 128000730

berita 128000731

berita 128000732

berita 128000733

berita 128000734

berita 128000735

berita 128000736

berita 128000737

berita 128000738

berita 128000739

berita 128000740

berita 128000741

berita 128000742

berita 128000743

berita 128000744

berita 128000745

berita 128000746

berita 128000747

berita 128000748

berita 128000749

berita 128000750

berita 128000751

berita 128000752

berita 128000753

berita 128000754

berita 128000755

artikel 128000821

artikel 128000822

artikel 128000823

artikel 128000824

artikel 128000825

artikel 128000826

artikel 128000827

artikel 128000828

artikel 128000829

artikel 128000830

artikel 128000831

artikel 128000832

artikel 128000833

artikel 128000834

artikel 128000835

artikel 128000836

artikel 128000837

artikel 128000838

artikel 128000839

artikel 128000840

artikel 128000841

artikel 128000842

artikel 128000843

artikel 128000844

artikel 128000845

artikel 128000846

artikel 128000847

artikel 128000848

artikel 128000849

artikel 128000850

article 138000756

article 138000757

article 138000758

article 138000759

article 138000760

article 138000761

article 138000762

article 138000763

article 138000764

article 138000765

article 138000766

article 138000767

article 138000768

article 138000769

article 138000770

article 138000771

article 138000772

article 138000773

article 138000774

article 138000775

article 138000776

article 138000777

article 138000778

article 138000779

article 138000780

article 138000781

article 138000782

article 138000783

article 138000784

article 138000785

article 138000816

article 138000817

article 138000818

article 138000819

article 138000820

article 138000821

article 138000822

article 138000823

article 138000824

article 138000825

article 138000826

article 138000827

article 138000828

article 138000829

article 138000830

article 138000831

article 138000832

article 138000833

article 138000834

article 138000835

article 138000836

article 138000837

article 138000838

article 138000839

article 138000840

article 138000841

article 138000842

article 138000843

article 138000844

article 138000845

article 138000786

article 138000787

article 138000788

article 138000789

article 138000790

article 138000791

article 138000792

article 138000793

article 138000794

article 138000795

article 138000796

article 138000797

article 138000798

article 138000799

article 138000800

article 138000801

article 138000802

article 138000803

article 138000804

article 138000805

article 138000806

article 138000807

article 138000808

article 138000809

article 138000810

article 138000811

article 138000812

article 138000813

article 138000814

article 138000815

story 138000816

story 138000817

story 138000818

story 138000819

story 138000820

story 138000821

story 138000822

story 138000823

story 138000824

story 138000825

story 138000826

story 138000827

story 138000828

story 138000829

story 138000830

story 138000831

story 138000832

story 138000833

story 138000834

story 138000835

story 138000836

story 138000837

story 138000838

story 138000839

story 138000840

story 138000841

story 138000842

story 138000843

story 138000844

story 138000845

article 138000726

article 138000727

article 138000728

article 138000729

article 138000730

article 138000731

article 138000732

article 138000733

article 138000734

article 138000735

article 138000736

article 138000737

article 138000738

article 138000739

article 138000740

article 138000741

article 138000742

article 138000743

article 138000744

article 138000745

article 208000456

article 208000457

article 208000458

article 208000459

article 208000460

article 208000461

article 208000462

article 208000463

article 208000464

article 208000465

article 208000466

article 208000467

article 208000468

article 208000469

article 208000470

journal-228000376

journal-228000377

journal-228000378

journal-228000379

journal-228000380

journal-228000381

journal-228000382

journal-228000383

journal-228000384

journal-228000385

journal-228000386

journal-228000387

journal-228000388

journal-228000389

journal-228000390

journal-228000391

journal-228000392

journal-228000393

journal-228000394

journal-228000395

journal-228000396

journal-228000397

journal-228000398

journal-228000399

journal-228000400

journal-228000401

journal-228000402

journal-228000403

journal-228000404

journal-228000405

article 228000376

article 228000377

article 228000378

article 228000379

article 228000380

article 228000381

article 228000382

article 228000383

article 228000384

article 228000385

article 228000386

article 228000387

article 228000388

article 228000389

article 228000390

article 228000391

article 228000392

article 228000393

article 228000394

article 228000395

article 228000396

article 228000397

article 228000398

article 228000399

article 228000400

article 228000401

article 228000402

article 228000403

article 228000404

article 228000405

article 228000406

article 228000407

article 228000408

article 228000409

article 228000410

article 228000411

article 228000412

article 228000413

article 228000414

article 228000415

article 228000416

article 228000417

article 228000418

article 228000419

article 228000420

article 228000421

article 228000422

article 228000423

article 228000424

article 228000425

article 228000426

article 228000427

article 228000428

article 228000429

article 228000430

article 228000431

article 228000432

article 228000433

article 228000434

article 228000435

article 238000461

article 238000462

article 238000463

article 238000464

article 238000465

article 238000466

article 238000467

article 238000468

article 238000469

article 238000470

article 238000471

article 238000472

article 238000473

article 238000474

article 238000475

article 238000476

article 238000477

article 238000478

article 238000479

article 238000480

article 238000481

article 238000482

article 238000483

article 238000484

article 238000485

article 238000486

article 238000487

article 238000488

article 238000489

article 238000490

article 238000491

article 238000492

article 238000493

article 238000494

article 238000495

article 238000496

article 238000497

article 238000498

article 238000499

article 238000500

article 238000501

article 238000502

article 238000503

article 238000504

article 238000505

article 238000506

article 238000507

article 238000508

article 238000509

article 238000510

article 238000511

article 238000512

article 238000513

article 238000514

article 238000515

article 238000516

article 238000517

article 238000518

article 238000519

article 238000520

update 238000492

update 238000493

update 238000494

update 238000495

update 238000496

update 238000497

update 238000498

update 238000499

update 238000500

update 238000501

update 238000502

update 238000503

update 238000504

update 238000505

update 238000506

update 238000507

update 238000508

update 238000509

update 238000510

update 238000511

update 238000512

update 238000513

update 238000514

update 238000515

update 238000516

update 238000517

update 238000518

update 238000519

update 238000520

update 238000521

sumbar-238000396

sumbar-238000397

sumbar-238000398

sumbar-238000399

sumbar-238000400

sumbar-238000401

sumbar-238000402

sumbar-238000403

sumbar-238000404

sumbar-238000405

sumbar-238000406

sumbar-238000407

sumbar-238000408

sumbar-238000409

sumbar-238000410

news-1701