Eftireldaöld í harðgerðu landi

[cs_text]Sölvi Björn Sigurðsson. Selta. Apókrýfa úr ævi landlæknis. Reykjavík 2019.

Landlæknir er sá sem mest er hlustað á þessa dagana, landlæknisembættið varð 260 ára á dögunum og landlæknir er aðalpersóna skáldsögunnar sem fékk íslensku bókmenntaverðlaunin 2019 í flokki fagurbókmennta.

Hægfara heillandi mætti segja um þessa áhugaverðu bók Sölva Björns Sigurðssonar, Seltu. Apókrýfu úr ævi landlæknis, sem út kom fyrir jólin 2019. Eftir fyrsta lestur, byrjaði ég aftur á bókinni. Hún vinnur á hægt og hægt. Það má ekki lesa of hratt, þá er hætta á að missa af smáatriðunum. Eða réttara sagt, stóru málin birtast mörg hver í smáatriðum sem auðvelt er að láta framhjá sér fara.

Söguþráðurinn hverfist um tvö bréf. Annað skrifar landlæknir til stjórnvalda í Kaupmannahöfn árið 1839, sem segja má að sé bókin sjálf, en þó með útúrdúrum og efni sem ekki á að koma fyrir augu stjórnarskrifstofanna í Kaupmannahöfn (apókrýfurnar). Hitt bréfið er bréf til landlæknis sjálfs, skrifað 40 árum fyrr, en það berst honum ekki fyrr en í lok bókarinnar.

Tími bókarinnar er því að einu leyti fjórir áratugir í lífi landlæknis. Þó aðallega kannski árið 1839. Eða ekki. Bókin er líka samtímasaga, sem sett er fram sem 19. aldar saga. Á einum stað gæti manni dottið í hug að bókin væri framtíðarsaga – handan við atburði 19. og 20. aldar – þegar landlæknir á einum stað segist vera 230 ára gamall. Að sumu leyti er Selta líka bók með sterku þjóðsagnalegu ívafi, sem er eðli málsins samkvæmt tímalaust. Tímablandan sem birtist í bókinni dýpkar viðfangsefni hennar og gerir það að verkum að lesandi staldrar við og hugsar sig tvisvar um.

Í bréfi landlæknisins til manna konungs í Kaupmannahöfn árið 1839 birtist líf hans á fullorðinsárum, viðbrögð hans við áskorunum og missi í lífinu, erfiði sem hlutgerist í sókn hans í að sundríða ár á Suðurlandi. Meginefni bókarinnar má segja að sé innri lífsbarátta landlæknisins, tilvistarlegar hugsanir og hugmyndir hans um veru mannsins í eigin ævi. Von, yfirvegun og æðruleysi eru sterkir þræðir sem ganga í gegnum alla bókina.

Orðfæri bókarinnar er sérstakt og þarf kannski fremur málfræðing en sagnfræðing til að greina hvernig höfundur beitir því til að skapa dýpt og tengingar í bókinni. Nöfn persóna, nöfn hesta, nöfn staða og ýmis hugtök vekja lesandann reglubundið til umhugsunar, auk þess sem nútímalegt orðalag í bland við fornlegt, og jafnvel fornleg nýyrði, geta ekki annað en ýtt undir þá tilfinningu að bókin eigi sér stað í fleiri en einum tíma.

Yfirbragð frásagnarinnar er stillt inn á að vera um miðbik 19. aldar. Síðan koma við sögu umræður um skítamix og bitafisk, núðlur og kolvetni, landnámshænur og drullumall. Einn er sagður malplaseraður á meðan fokkerast er í öðrum. Að miklu leyti er verið að endurskapa andblæ ársins 1839 með fornlegu orðfæri, en það er reglubundið rofið með „malplaseruðum“ hugtökum. Umhverfislýsingar beina lesendum á 19. öldina, en landslag tekur minni breytingum en hugur manna. Því er kannski ekki allt sem sýnist.

Persónur sögunnar heita eftirtektarverðum nöfnum á meðan landlæknirinn sjálfur og nokkrir til er nafnlausir. Þar ber mest á H. Sophie, Ohne-Lise, Mister Undertaker, Fyndnahesti og Monsieur Pons. Að ógleymdri Dagmar og Aðalbirni Hássyni. Allar hafa persónurnar eitthvað með Ísland að gera, en þær má líka tengja við Danmörku, Belgíu, Frakkland og England.

Við upphaf lestrar er ekki augljóst hvaðan nafn bókarinnar Selta er komið og hverju það tengist. Nöfn og orðfæri bókarinnar eru þó ekki tilviljun. Margar tilvísanir eru til salts, bæði líkingar og beinar lýsingar. Salt birtist sem mikilvægur kjarni þegar eitthvað brýnt er til umræðu. Í lokin þegar landlæknir á samtal við drenginn Fyndnahest segir hann: „„En veistu hvað ég held að þú sért?“ segi ég: „Þú ert selta. Þú ert tárið sem hafið missti og skolaði upp á land. Og nú finnum við augnkrókinn sem saknar þín.““ (s. 249)

Nákvæmni og vísindaleg frásögn samkvæmt orðanna hljóðan stingur á áhugaverðan hátt í stúf við þjóðsagnalegan blæ atburða og tenginga sem aðalpersónurnar segja frá í bókinni. Ævintýralegur blær á þátt í því að lesandinn fer að velta fyrir sér hvað höfundur sé að fara. Þjóðsagnalegu frásagnirnar eru læsilegar og æsilegar, draugagangur og fjársjóðsleit inni í hvalsmaga. Landlæknir segir sjálfur: „Á Íslandi er sagt að enginn munur sé á þjóðsögum og sagnfræði. Þetta spinnst í einn órofa þráð og við vitum ekki hvað er satt og hvað ekki nema við förum sjálf af stað og skoðum það.“ (s. 90)

Söguþráðurinn hefur skrautlega framvindu, ýmislegt undarlegt á sér stað og persónurnar eru margar hverjar sérstakar. Mister Undertaker – sá sem valdið hefur í Danmörku og Belgíu – er enskur þjónn Danans Jons Himmelwunder, lærimeistara landlæknis og tengdaföður. Hann hefur m.a. það hlutverk að hafa eftirlit með verðandi landlækni þegar hann býr á heimili Jons, sem og áfram á ferðalagi hans til Belgíu. En á Íslandi snúast hlutverkin við. Landlæknir tekur Mister Undertaker með sér til Íslands, Englendinginn sem kominn var í ræsið og þjónar þeim sem valdið hefur hverju sinni. Þrátt fyrir þjónshlutverkið verður hann áfram örlagavaldur landlæknis á Íslandi. Fyrst geymir hann að afhenda mikilvægt bréf til landlæknis, tapar því síðan í spilum, og reynir áratugum síðar að bæta fyrir það bak við tjöldin, ávallt skrefi á undan landlækninum.

Undirliggjandi saga gægist fram í smáatriðum sem vísa til samfélagsins. Þar eru á ferðinni samfélagslega stór málefni í vestrænni menningu allt frá sögutíma til samtíma og er ljósi varpað á þau í gegnum persónu hins lánlausa landlæknis. Án þess að beinum orðum sé beint að þeim, og þvert á móti lögð áhersla á að árið sé 1839 í raunsannri íslenskri sveit við strönd, er varpað ljósi á flóttamannastraum, heimilisofbeldi, félagsmál, misskiptingu, fátækt, kvenréttindi, stríðsrekstur, loftslagsmál, ofbeldi, iðnvæðingu, samþjöppun auðs, mansal, erlendar fjárfestingar og neyslusamfélagið. Dæmi má nefna þegar Frakkinn Monsieur Pons er með útimarkað með skó á Mýrdalssandi fyrir hreppsbúa. Þá segir landlæknir, áður en hann sjálfur freistast til að kaupa skó: „Guð á ekki eftir að birtast upp úr þessari verslunarkerru, þótt ýmsir virðast halda það.“ (s. 221)

Höfundi tekst snilldarvel að koma orðum að þessum stóru málum á fínlegan hátt. Lítið fer fyrir boðun og auðvelt er að láta þessi „smáatriði“ framhjá sér fara í söguþræðinum og þjóðsagnalegri atburðarrás. Helst mætti nefna beina umfjöllun um rétt kvenna til mennta sem tekin er fyrir í tengslum við hina 18 ára Dagmar, eina aðalpersónu bókarinnar. Þáttur hennar í sögunni fer þó að hluta til framhjá lesanda þar til undir lok bókarinnar. En einmitt það dæmi, fátækur hreppsómagi árið 1839, sem á unga aldri er orðin bæði frönskumælandi og forstöðumaður á sambýli og sem 18 ára stefnir á læknisfræðinám í Kaupmannahöfn, dregur lesandann út úr 19. öldinni og leitinni að sögulega samhengi þess tíma sem frásögnin er sett í.

Ef samtíminn er undirtónn sögunnar, þá er mennskan yfirtónninn. Landlæknir er alla bókina að rökræða við sjálfan sig og aðra um hvernig á að lifa lífinu. Vísindin og heimspekin leika þar stórt hlutverk, vangaveltur um hvað skiptir máli í lífinu og leit hans að eigin sáluhjálp með því að bjarga öðrum. Hann er nýgiftur maður á leið til Íslands að taka við landlæknisembætti, þegar hann týnir bæði konunni og systur hennar sem til stóð að færu með honum til Íslands. Fyrir þetta bætir hann alla ævina sem landlæknir. Innra ferðalag hans um tilgang lífsins er því sterkasti þráður bókarinnar. „Stundum þarf maður að týna hlutum og finna þá aftur til að vita hvers virði þeir eru manni.“ (s. 64). Bókin er ein stór leit.

Lífshættan er alltaf á næsta leiti, bæði læknisins sjálfs og samferðamanna hans. Á námsárunum gengur landlæknir meistara sínum (skrattanum) á hönd, svíkur sannfæringu sína gegn því að fá bréf upp á landlæknisembættið á Íslandi og hönd dóttur hans, og tekur að sér „verkefni“ í Belgíu á leiðinni til Íslands frá Danmörku. Ekki fer allt eins og best hefði verið á kosið í Belgíu, og eftir að landlæknir um síðir kemst til Íslands hefjast tilraunir til yfirbótar í lánlausu lífinu. Hann reynir í fjóra áratugi að bjarga bæði sjálfum sér og nokkrum börnum – Ohne-Lise, Dagmar og Fyndnumhesti. Landlæknir eyðir ævinni í yfirbót, bjargar líka Mister Undertaker þrátt fyrir allt það sem hann hefur á hlut hans gert. Mister Undertaker gerir síðan sína eigin yfirbót í hvalshræinu.

Í lokin skrifar landlæknir skýrslu til ráðamanna í Danmörku (bókina), þar sem hann svíkur í raun samning sinn við „skrattann“ um að segja aldrei frá neinu af því sem gerst hafði í Danmörku. Verðmiðinn fyrir embættið og konuna. Víða segir landlæknir frá því að hluti bókarinnar sé skrifaður á spássíurnar (apókrýfurnar), sem hann ætlar síðar að þurrka út áður en hann sendir skýrsluna til yfirvalda. Hvort hann gerir það eða ekki og hvort hann sendir skýrsluna eða ekki, það er lesandum látið eftir að meta. Siðferðisspurningarnar eru því að mörgu leyti kjarni bókarinnar.

Hvort bókina Seltu megi túlka sem sögulegu skáldsögu eða ekki er ákveðin ráðgáta. Sumt í bókinni bendir til 19. aldarinnar, sérstaklega hinn ytri rammi. Sögupersónan býr á sama bæ og landlæknir nokkur, sem eitt sinn var í afleysingum á Höfðabrekku í Vestur Skaftafellssýslu. Þar skammt frá er Kirkjubæjarklaustur. Dagmar fer fyrir heimili fyrir veika og sjúka á Kirkjubæjarhæli, en á svipuðum slóðum var áður holdsveikraspítali. Skýrar óbeinar vísanir eru til fortíðarinnar og sögu landsins. Vísað er til Frakka við suðurströnd Íslands, til Skaftáreldanna, til holdsveikraspítala, til Kaupmannahafnar og margs fleira. Landslagið er líka tengt við sýsluna, Skaftáreldahraun, sandfjörur, erfiðar ár og fjallvegir. Skagafjörður, Danmörk og Belgía eru líka staðir á sínum stað. Ekki virðast þó vera raunverulegar fyrirmyndir að persónum eða leikendum, atburðum né viðfangsefnum. Samspilið er við samtímann í umhverfi 19. aldarinnar.

Vísanir bókarinnar hverfast þó síður en svo eingöngu um árið 1839, eða tímann 1799-1839. Auðsöfnun samtímans og hnattvæðing eru ljóslifandi í textanum, þótt í 19. aldar ramma sé. Áhugaverð lýsing er þar sem landlæknir er staddur ásamt Dagmar og Frakkanum Pons í Kirkjubæjarhæli. Landlæknir er nýbúinn að hitta Pons í fyrsta skipti, en líkar ekki alls kostar við hann, tekur honum og áformum hans um að stofna ilmverksmiðju á sandinum fálega og með varúð. Dagmar reynir hins vegar að fullvissa landlækni um að Pons væri bara stressaður og að reyna að ganga í augun á honum og hafi hlakkað mikið til að hitta hann. Þá hugsar landlæknir sitt, lítur í kringum sig á fólkið á hælinu, m.a. á einn 230 ára gamlan jafnaldra sinn, og heldur áfram að tala við Pons.

Hér fer raunveruleikinn á flug, í nákvæmri atburðafrásögn. Ævintýri, þjóðsaga, leikur. Eða framtíðin? Er samtíminn með sínum heimsvandamálum tekinn inn í framtíðina, og litið aftur í tímann þar sem bæði 19. og 20. öldin eru orðin fortíð, eftir eftireldatíma? Bókin er umfram allt hugmyndarík og læsileg. Textinn byggir á von og æðruleysi, þótt lífsbaráttan sé þrautaganga og tekst höfundi á kjarnyrtan hátt og án boðunar að vekja máls á tímalausum siðferðislegum og tilvistarlegum málum.[/cs_text]

Um höfundinn
Hrefna Róbertsdóttir

Hrefna Róbertsdóttir

Hrefna Róbertsdóttir er þjóðskjalavörður og starfar við Þjóðskjalasafn Íslands. Hún er sagnfræðingur að mennt, hefur sinnt ritstörfum og ritstjórn um árabil og verið stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701