Gamli maðurinn og fortíðarþráin

[cs_text]Við lifum á nostalgískum tímum og stundum er eins og fortíðarþráin sé allt að yfirtaka, og kvikmyndagerð er þar engin undantekning. „Eydísin“ svokallaða, eða níundi áratugurinn ásamt þeim áttunda eru áberandi í tónlist og tísku, og samtengdi Marvel heimurinn, pólstjarnan í kvikmyndagerð þessa áratugar, grundvallast á fjórða og fimmta áratugnum. Sporgöngumenn fylgja sínum fyrirmyndum spakir í bragði og nostalgían staðfestir vistaböndin við fortíðina. Treysta má þó Martin Scorsese til að finna öðruvísi vinkil á úrvinnslu hins liðna, sveigja útaf meginstraumnum um leið og spilað er með honum upp að ákveðnu marki. Ekki að Scorsese sé ónæmur fyrir segulafli nostalgíunar, Hugo (2011) bókstaflega baðaði sig í upprunaljóma tilkomu kvikmyndamiðilsins um aldamótin 1900 og með hrífandi myndfléttum og endurlitum dró Goodfellas (1990) sömuleiðis upp rómantískar myndir af uppvaxtarárum aðalpersónanna. En nú á gamals aldri – Scorsese, ennþá sprækur, siglir brátt í áttrætt – hefur leikstjórinn að því er virðist uppgötvað að fortíðin er ekki alltaf rósrautt samansafn seiðandi atburða, staðurinn þar sem rokkið deyr aldrei og Rolling Stones eru alltaf svalastir.

Raunar er eins og áratuga lífsreynsla og þroski hafi skyndilega þröngvað sér upp á Scorsese. Það er í öllu falli ekki sama höfundarvitund sem stendur að baki The Wolf of Wall Street(2013) og The Irishman (2019),  þessarar nýjustu myndar leikstjórans. Myndin um verðbréfaúlfinn – þessi stórfurðulegi áástaróður Scorcese til eiturlyfja, peninga, og eyðslugleði – ber öll merki ofvirkrar hormónaframleiðslu, en vanþroskaðs vitsmunalífs. Hún væri með öðrum orðum unglingur ef líkingar væru sóttar í þroskaskeið mannsins, alveg eins og heimildar- og tónleikamyndirnar sem leikstjórinn hefur verið að gera um rokkhetjur æsku sinnar. The Irishman á hinn bóginn einkennist öll af því sem stjórnmálaheimspekingurinn Edward Said kenndi við síðstíl (e. late style), það er að segja, efnistök og framsetningu sem endurspegla ríka meðvitund um að stigið hafi verið inn í ljósaskiptin, að lífshlaupið sé senn á enda, og sjónarhornið bæði melankólískt og ígrundað af þeim sökum.

Í The Irishman glímir Scorsese við eigin fortíð í formi höfundarverksins sem eftir hann liggur, og þá sérstaklega auðvitað mafíumyndirnar og samstarfsmyndirnar með Robert De Niro, og svo spyr hann líka spurninga um merkingarvirkni hins liðna í menningunni og lífi einstaklingsins. Hvaða hlutverki gegnir fortíðin í okkar daglega lífi? Og ef fortíðin er sannarlega miðlæg í skynjun okkar á líðandi stund, ef skurðpunktur fortíðar og nútíðar er eilíflega og alltaf að virkjast, hlýtur þá þungi hins liðna ekki að aukast með árunum, allt þar til núið verður nær merkingarlaust? Sem er kannski ekki alslæm lýsing á ytri mörkum ellinnar.

Frásögnin fylgir „Írska“ Frank Sheeran (Robert De Niro), fyrst flutningabílstjóra en síðar verkalýðsfrömuði og leigumorðingja fyrir Ítölsk-amerísku mafíuna. Sheeran er rumur og durgur sem er jafn tilfinningalega heftur og hann er mælskulega lamaður. Við upplifum minningar Franks um lífshlaup sitt samhliða honum sjálfum, og þótt rammafrásögnin virðist vera löng bílferð sem lagt er í árið 1975, en þaðan er horfið með löngum endurlitum aftur til seinna stríðs og áranna í kjölfarið, reynist ramminn enn víðari, hann teygir sig fram að árþúsundamótunum þegar Sheeran hefst við, saddur lífdaga, á elliheimili. Fyrir honum liggur ekkert, ef val á líkkistu fyrir sjálfan sig er undanskilið (en við fylgjumst með lokaúrskurðinum), því allt sem skiptir máli er að baki, ævin hefur bókstaflega þurrkast út, gufað upp í himinhvolfið án þess að skilja eftir sig önnur ummerki en laskaðan og hruman líkama aðalpersónunnar. Minningar sem verða að endurminningum þegar þeim er miðlað má í þessu samhengi lesa sem viðnám gegn útþurrkun fortíðarinnar, og af þessu viðnámi samanstendur myndin. Raunar mætti halda því fram að miðlægasta viðfangsefnið í The Irishman sé einmitt fortíðin sjálf, ekki mafían eða morðið á Hoffa heldur hvað fortíðarhugtakið þýðir í mannlegu lífi og hvernig fortíðin verður saga, bæði samfélagssaga og sagan sem við segjum okkur sjálfum um okkur sjálf.

Tíminn hvílir þungt á aðalpersónunum í lokahluta þessarar þriggja og hálfrar klukkustunda löngu myndar, en í undanfaranum sviðsetur Scorsese gjarnan atriði sem draga fram hvernig þessir tveir hlutir fléttast saman, samfélagssagan og einkasagan, og hvernig merking mikilvægra sögulegra atburða breytist eftir því hver viðtakandinn er. Hér má nefna atriði á veitingahúsi sem sýnir viðbrögð gesta við fréttum í sjónvarpinu um að JFK hafi látist eftir skotárásina í Dallas. Flestir eru í miklu uppnámi, brotna niður og gráta. En þeir sem þátt áttu í launmorðinu eru líka að horfa, og viðbrögð þeirra fela í sér hagsmunamiðaða ánægju yfir að hafa hnikað framrás sögunnar af einni sporbraut yfir á aðra.

Fyrrnefndu viðbrögðin verða auðvitað ofaná og umbreytast að lokum í þjóðargoðsögn og hið samþykkta viðhorf, en þessu tilfinningalega framhaldslífi vindur hins vegar fram innan þess sögulega ramma sem þrjótarnir kölluðu fram og sköpuðu með verknaði sínum. Nútíðin verður um leið að fortíð sem er svo miðlað áfram og fleytt inn í eigin framtíð í gegnum huglægt minni einstaklinga, en vitund þeirra er hverful og forgengileg og því gallað varðveislutæki. Þess vegna er líka þörf á menningarminni (e. cultural memory), og The Irishman gerir slíkt menningarminni að viðfangsefni og er sjálf dæmi um það. Bandaríska mafían væri til dæmis ekki svipur hjá sjón í hugum okkar allra ef ekki væri fyrir glæpamyndir Scorsese og hér gefur að líta hið epíska lokaverk  í glæpasveignum.

Glamúrinn sem einkenndi Goodfellas og Casino (1995) er þó víðsfjarri, líkt og uppspretta frásagnarinnar gefur til kynna. Úr hjólastól á elliheimili miðlar gamall maður fortíð sinni til okkar, áhorfenda myndarinnar. Ef vel er fylgst með má ennfremur sjá að aldraður Sheeran er ekki að tala við neinn annan en okkur. Enga persónu er að finna í myndinni sem mögulega gæti þjónað hinu hefðbundna milliliðshlutverki milli þess er segir söguna og áhorfenda. Í staðinn horfir Sheeran beint í gegnum linsu tökuvélarinnar og á okkur, eina fólkið hann getur talað við, eina fólkið sem hefur fyrir því að hlusta. Því lengra inn í frásögnina sem við fylgjum honum því skýrari verða ástæður þessar einangrunar á elliheimilinu, hvers vegna aðalpersóna myndarinnar hefur engan til að tala við, að okkur undanskildum og sömuleiðis tekur okkur að gruna hvers vegna fortíðin liggur á honum eins og mara, af hverju gera þarf hana upp, og af hverju frásögnin staldrar við tilteknar minningar.

Frank var fjölskyldumaður, átti dætur og eiginkonu sem þótti vænt um hann en í frásögn hans jaðrar hann þær allar, þær eru hliðarfígúrur í besta falli og þær hverfa jafnvel af sögusviðinu án þess að Frank veiti því nokkra athygli. Alla sína ævi hundsaði hann eða lét fjölskyldulíf sitt mæta afgangi og í staðinn einbeitti hann sér að vinnunni og „ferlinum“ – en ferillinn er klofinn í tvennt eins og áður hefur verið nefnt, starfið í verkalýðshreyfingunni annars vegar og launmorð út um allar trissur hins vegar. Endurminningar Franks hverfast nær alfarið um líf hans og störf í þágu verkalýðsforingjans Jimmy Hoffa (Al Pacino) og mafíu-donsins Russells Buffalinos (Joe Pesci), en erfitt er að þjóna tveimur kóngum og Frank fær að finna það á eigin skinni. En af þessu leiðir að Frank er einsamall í ellinni, þjakaður af því eina sem hann á sem eru minningarnar, og hér er mikilvægt að taka fram að það er ekki samviskubit sem hrjáir hann. Heldur er það tilfinningin um að ekki nógu mikið standi eftir til að réttlæta allar fórnirnar. Og aftur, með fórn á hann ekki við fórnarlömb sín heldur fjölskylduna, það var henni sem hann glataði og eftirsjáin er eina tilfinningin sem bærist innra með honum. Þessi eftirsjá er jafnframt aflvaki frásagnarinnar, ástæðan fyrir því að hann (og myndin) leita sífellt í fortíðina, endurupplifa hana og útskýra fyrir þeim einu áheyrendum sem hann á eftir: okkur.

Vefsvæði Engra stjarna er hér.[/cs_text]

Um höfundinn
Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson er með BA próf í kvikmyndafræði og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701