[cs_text]Nýlega skrifaði Jón Magnússon lögmaður á Facebook: „Við eigum ekki að sætta okkur við það að fólk sem vinnur verslunar- og þjónustustörf á Íslandi tali ekki íslensku þó ekki væri nema öryggisins vegna.“ Í athyglisverðum úrskurði kærunefndar jafnréttismála frá því í ágúst kemur fram að það „orkar ekki tvímælis að mati kærunefndarinnar að kröfur um tungumálakunnáttu geta í ýmsum tilvikum talist lögmætar, enda þótt þær komi að einhverju marki niður á einstaklingum sem eru af erlendum þjóðernisuppruna og búa þar með hugsanlega ekki yfir íslenskukunnáttu“.

Þetta er viðkvæmt og vandmeðfarið mál. Það er lífsnauðsyn fyrir íslenskuna að hún sé notuð á Íslandi þar sem mögulegt er. En við verðum að hafa í huga að þjóðfélagið er orðið fjölmenningarlegt og á Íslandi býr fjöldi fólks sem ekki skilur íslensku, að ekki sé talað um alla ferðamennina sem hingað koma. Auðvitað er óhjákvæmilegt, eðlilegt og sjálfsagt að koma til móts við þetta fólk með notkun ensku (og annarra erlendra tungumála) þar sem við á – enskan á fullan rétt á sér á Íslandi, samhliða íslenskunni á mörgum sviðum. En hún má ekki koma í stað íslensku eða ryðja henni burt.

Ég veit um fólk sem hefur búið hér í 10-15 ár og talar enn ekki íslensku þótt það skilji hana kannski þokkalega. Þetta er fólk sem er hér af ýmsum ástæðum en er langflest komið til að vinna, vegna þess að getum ekki mannað öll nauðsynleg störf eða viljum ekki vinna þau. Því hefur verið spáð að þörf sé á verulegum innflutningi vinnuafls á næstu árum, og vonandi sjáum við sóma okkar í því að taka við fleiri flóttamönnum og hælisleitendum – enda erum við alltof fá.

En ef innflytjendur verða 15-20% landsmanna innan fárra ára eins og búast má við segir það sig sjálft að það hefur áhrif á stöðu íslenskunnar sem til skamms tíma var einráð á öllum sviðum þjóðfélagsins. Þessi breytta staða skapar spennu milli íslensku og ensku. Því er oft haldið fram að allir Íslendingar kunni ensku og þótt það sé sannarlega ofmælt er samt enginn vandi að búa í íslensku þjóðfélagi árum og jafnvel áratugum saman án þess að kunna íslensku því að enskan er alls staðar.

Það er auðvitað gott fyrir þá sem hingað koma, en ber í sér hættu fyrir íslenskuna. Það þýðir að þrýstingurinn á að læra málið er ekki alltaf mjög mikill, a.m.k. ekki fyrir fólk í fullri vinnu sem það hefur nóg með að sinna. Við höfum ekki heldur staðið okkur nógu vel í að auðvelda fólki að læra málið. Við þurfum einhvern veginn að finna leið sem tekur tillit til útlendinga og gerir þeim kleift að bjarga sér í samfélaginu, án þess að íslenskan verði ævinlega víkjandi. Þetta er ekki einfalt, en þetta þarf að ræða – sem er sjaldan gert.

En þótt fólk geti búið í þjóðfélaginu til langframa án íslenskukunnáttu felur það ekki í sér fulla þátttöku. Þetta fólk tekur yfirleitt lítinn þátt í félags- og stjórnmálum, það sækir sér sjaldan langskólamenntun, og þótt sumt af því komi hámenntað til landsins á það erfitt með að fá menntun sína viðurkennda. Ef fólk úr þessum hópi ætlar sér að taka fullan þátt í þjóðfélaginu fær það iðulega á sig gagnrýni vegna ófullkominnar íslenskukunnáttu eins og t.d. Nichole Leigh Mosty fyrrverandi alþingismaður fékk að finna.

Sú hætta er fyrir hendi að íslenskan verði notuð, meðvitað eða ómeðvitað, til að búa til lagskipt þjóðfélag – annars vegar menntað fólk sem talar íslensku samkvæmt viðurkenndum málstaðli og ræður öllu í þjóðfélaginu, meðal annars í krafti málfarslegra yfirburða, og hins vegar fólk af erlendum uppruna, jafnvel aðra og þriðju kynslóð innflytjenda, sem hefur ekki gott vald á íslensku og kemst hvergi áfram en situr eftir í láglaunastörfum, áhrifalaust um umhverfi sitt og framtíð. Það er alveg hugsanlegt að til séu atvinnurekendur sem kæra sig ekkert um að erlent starfsfólk þeirra læri íslensku því að þá gæti það farið að gera meiri kröfur, áttað sig betur á réttindum sínum o.s.frv.

Ég legg áherslu á að ég er alls ekki að amast við fjölgun útlendinga – öðru nær. Við þurfum á þeim að halda til fullrar þátttöku í þjóðfélaginu – til að halda uppi því  vestræna velferðar- og menningarþjóðfélagi sem við viljum búa í – og við megum ekki nota tungumálið til að halda þeim niðri. En barátta fyrir íslenskunni má aldrei snúast upp í þjóðrembing og hana má aldrei nota til þess að útiloka fólk á ómálefnalegan hátt eða gera með einhverju móti lítið úr því.

Við þurfum að átta okkur á hættunni á því að við séum að búa til tvær þjóðir í landinu – „okkur“, sem tölum góða íslensku og sitjum að bestu bitunum hvað varðar völd, áhrif, menntun, tekjur o.s.frv. – og svo „hina“, þá sem tala ófullkomna eða enga íslensku og sitja fastir í láglaunastörfunum, áhrifalausir á öllum sviðum þjóðfélagsins. Fyrir utan þann skaða sem þetta veldur fólkinu sem í því lendir er þetta stórhættulegt fyrir lýðræðið og býr til jarðveg fyrir lýðskrum og öfgastefnur.

Þetta er ekki einfalt mál – að halda íslenskunni á lofti, halda því til streitu að hún sé nothæf og notuð á öllum sviðum, en jafnframt gæta þess að íslenskukunnátta og -færni sé aldrei notuð til að mismuna fólki. Það er brýnt að stjórnvöld geri sér grein fyrir þessu og móti stefnu í þessum málum, eins og mennta- og menningarmálaráðherra hefur talað fyrir. En það er líka brýnt að við, fólkið í landinu, áttum okkur á vandanum og veltum fyrir okkur hvernig eigi að taka á málinu. Þess vegna þurfum við að ræða þetta – „taka umræðuna“ eins og nú er sagt.

En ekki á forsendum útlendingaandúðar og -hræðslu, heldur á jákvæðum nótum. Eins og segir í áðurnefndum úrskurði getur verið nauðsynlegt gera kröfur um íslenskukunnáttu „til að tryggja skilvirk samskipti við viðskiptavini, þar á meðal í störfum í þjónustugeiranum“, en við þurfum að auðvelda útlendingum að læra íslensku og nota hana á öllum sviðum, og við þurfum að vera jákvæð gagnvart allri íslenskunotkun, þótt framburður sé ekki fullkominn, beygingar vanti stundum og setningagerðin sé óhefðbundin. Íslenska er alls konar.[/cs_text]

Um höfundinn
Eiríkur Rögnvaldsson

Eiríkur Rögnvaldsson

Eiríkur Rögnvaldsson er prófessor emeritus í íslenskri málfræði. Undanfarin ár hefur hann einkum fengist við máltækni en hefur einnig stundað rannsóknir í samtímalegri og sögulegri setningafræði, svo og orðhlutafræði og hljóðkerfisfræði. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 888000081

article 888000082

article 888000083

article 888000084

article 888000085

article 888000086

article 888000087

article 888000088

article 888000089

article 888000090

article 888000091

article 888000092

article 888000093

article 888000094

article 888000095

article 888000096

article 888000097

article 888000098

article 888000099

article 888000100

cuaca 898100176

cuaca 898100177

cuaca 898100178

cuaca 898100179

cuaca 898100180

cuaca 898100181

cuaca 898100182

cuaca 898100183

cuaca 898100184

cuaca 898100185

cuaca 898100186

cuaca 898100187

cuaca 898100188

cuaca 898100189

cuaca 898100190

cuaca 898100191

cuaca 898100192

cuaca 898100193

cuaca 898100194

cuaca 898100195

article 710000191

article 710000192

article 710000193

article 710000194

article 710000195

article 710000196

article 710000197

article 710000198

article 710000199

article 710000200

article 710000201

article 710000202

article 710000203

article 710000204

article 710000205

article 710000206

article 710000207

article 710000208

article 710000209

article 710000210

article 710000211

article 710000212

article 710000213

article 710000214

article 710000215

article 710000216

article 710000217

article 710000218

article 710000219

article 710000220

article 710000221

article 710000222

article 710000223

article 710000224

article 710000225

article 710000226

article 710000227

article 710000228

article 710000229

article 710000230

article 710000231

article 710000232

article 710000233

article 710000234

article 710000235

article 710000236

article 710000237

article 710000238

article 710000239

article 710000240

article 710000241

article 710000242

article 710000243

article 710000244

article 710000245

article 710000246

article 710000247

article 710000248

article 710000249

article 710000250

artikel 338000001

artikel 338000002

artikel 338000003

artikel 338000004

artikel 338000005

artikel 338000006

artikel 338000007

artikel 338000008

artikel 338000009

artikel 338000010

artikel 338000011

artikel 338000012

artikel 338000013

artikel 338000014

artikel 338000015

artikel 338000016

artikel 338000017

artikel 338000018

artikel 338000019

artikel 338000020

artikel 338000021

artikel 338000022

artikel 338000023

artikel 338000024

artikel 338000025

artikel 338000026

artikel 338000027

artikel 338000028

artikel 338000029

artikel 338000030

artikel 338000031

artikel 338000032

artikel 338000033

artikel 338000034

artikel 338000035

artikel 338000036

artikel 338000037

artikel 338000038

artikel 338000039

artikel 338000040

artikel 338000041

artikel 338000042

artikel 338000043

artikel 338000044

artikel 338000045

artikel 338000046

artikel 338000047

artikel 338000048

artikel 338000049

artikel 338000050

artikel 338000051

artikel 338000052

artikel 338000053

artikel 338000054

artikel 338000055

artikel 338000056

artikel 338000057

artikel 338000058

artikel 338000059

artikel 338000060

artikel 338000061

artikel 338000062

artikel 338000063

artikel 338000064

artikel 338000065

artikel 338000066

artikel 338000067

artikel 338000068

artikel 338000069

artikel 338000070

artikel 338000071

artikel 338000072

artikel 338000073

artikel 338000074

artikel 338000075

artikel 338000076

artikel 338000077

artikel 338000078

artikel 338000079

artikel 338000080

artikel 338000081

artikel 338000082

artikel 338000083

artikel 338000084

artikel 338000085

artikel 338000086

artikel 338000087

artikel 338000088

artikel 338000089

artikel 338000090

news-1701