
Í bókinni eru heimili, efnisleg gæði og daglegt líf fátæks fólks á 19. öld og á fyrri hluta 20. aldar til skoðunar. Fátækt hafði afgerandi áhrif á alþýðu landsins en hver voru hin samfélagslegu úrræði? Höfundar bókarinnar fjalla um fátækt á liðinni tíð frá ýmsum hliðum með sérstakri áherslu á híbýli og í bókinni er birt stórt ljósmyndasafn Sigurðar Guttormssonar bankastarfsmanns frá Vestmannaeyjum (1930–45) um hreysi á Íslandi.
Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþætti Hugvísindasviðs og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á Spotify, iTunes og öðrum hlaðvarpsveitum.[/cs_text]
Deila