Þjálfun í kynhlutverkum

[cs_text]

„Maður fæðist ekki kona, heldur verður maður kona.“ – Simone de Beauvoir

Fyrsta kvikmynd belgíska leikstjórans Lukas DhontGirl, fylgir hinni fimmtán ára unglingsstúlku, Láru í gegnum kynleiðréttingarferli hennar. Samhliða þessu er Lára nýflutt í ókunnugt umhverfi ásamt litla bróður og föður sínum. Lára leggur stund á ballett og kemst inn í einn besta ballettskóla Belgíu þar sem hún stendur sig vel en fyrir það þarf líkaminn að gjalda. Girl vekur upp spurningar um kyn og kynhlutverk. Hvað þýðir það að vera stelpa og hvenær verður maður að stelpu?

Kynleiðréttingarferli Láru er bæði andlegt og líkamlegt. Hvað varðar andlegu hliðina stendur Lára sig afar vel en líkamlega hliðin er vandasamari. Þetta sést hvað best í ballettnum er ballettkennarinn bendir Láru á að hún muni eiga erfitt með að verða hæf ballerína þar sem hún lærði upprunalega ballett í líkama stráks. Frá unga aldri eru áherslur í ballett ólíkar hjá strákum og stelpum. Vandinn felst þá í því að Lára hefur ekki grunninn sem hinar stelpurnar í bekknum hennar hafa. Hún þarf að „aflæra“ stóran hluta af því sem hún kann og læra frá grunni að vera ballerína í kvenlíkama. Í sífellu er Lára að ofreyna og misþyrma líkama sínum til þess að uppfylla þetta nýja hlutverk. Hún blóðgar tær sínar og bælir líkamann niður með því að teipa kynfæri sitt. Lára pyntar líkama sinn af því hún vill að hann sé samferða hennar kyni.

Dhont notar með þessum hætti ballettiðkun Láru til að sviðsetja samfélagslega þjálfun okkar í kynjahlutverkum og draga fram hið flókna og erfiða ferli sem kynleiðrétting er. Valið er áhugavert þar sem ballett er gjarnan álitin fremur „kvenleg“ iðja og spurningin sem vaknar í kjölfarið er hvort það sé nauðsynlegt að vera kvenleg transkona? Finnur transfólk fyrir þrýstingi til þess að „sanna“ fyrir skeptískum almenningi að það tilheyri í raun öðru kyni með því að gangast inn á bókstaflegustu birtingarmyndir kynhlutverksins? Þarf Lára að vera hin „fullkomna“ kona til þess að hún fái að vera kona? Í þessu sambandi er áhugavert að þegar líður á myndina fer Lára jafnframt að leika hlutverk húsmóðurinnar. Í staðinn fyrir kraftmiklar ballettsenur fáum við að sjá hana elda og vaska upp, líkt og hún gangist upp í steríótýpum kvenleikans. Ekki fæst einfalt svar við því hvort þessi hegðun hennar komi til af hennar eigin frumkvæði eða hvort aðrar ástæður liggi að baki.

Inn á milli sjáum við Láru ferðast inni í litlum millirýmum sem brúa bilið á milli heimilis hennar og ballettskólans. Áhorfendur sjá Láru nokkrum sinnum um borð í lest þar sem hún stendur sjálfsörugg innan um annað fólk og ber höfuðið hátt. Þetta eru stuttar en mikilvægar senur þar sem þær veita innsýn í andlega líðan Láru. Markmiðið er að fá áhorfendur til þess að bera Láru saman við aðra farþega lestarinnar og sjá að hún er eins og þeir.

Samband Láru við bekkjarsystur sínar virðist vera gott. Þær sýna henni virðingu og eru ekki of uppteknar af því að hún sé „öðruvísi“. Á þetta reynir hins vegar í gistipartýi þar sem hinar stelpurnar skora á kyn hennar á hátt sem kemur Láru í uppnám. Hún fer niðurlút heim og í lestinni sjáum við Láru í fyrsta sinn sitjandi, niðurbrotin eftir atvikið. Lestin er einnig í fyrsta sinn stopp enda er líf Láru það líka.

Lára þarf að ganga í gegnum margt í kynleiðréttingarferlinu og eins og hvert barn með vandamál sem virðist óyfirstíganlegt læðist Lára upp í rúm til föður síns um miðja nótt í von um að hann hafi lausnina. Lára óttast að hormónanir reynist ekki skipta sköpum þegar að kynleiðréttingunni kemur. Pabbi hennar hughreystir hana og hvetur hana til að vera þolinmóð. Orð Simone de Beauvoir bergmála í gegnum pabba Láru er hann spyr hana hvort hún haldi að hann hafi orðið að karlmanni um leið og hann fæddist. Því þó að hann hafi fæðst með karlkyns kynfæri þýðir það ekki endilega að hann sé karlmaður. Maður verður að kyni, maður fæðist ekki sem kyn.

Lára fagnar sextán ára afmæli sínu með vinum og ættingum. Þetta er gleðistund af því hún er loksins byrjuð á hormónalyfjum sem faðir hennar tilkynnir gestunum með stolti. Frænka hennar hefur einnig fréttir, hún er ólétt af dreng! Það hvernig þessi tilkynning frænkunnar birtist í myndinni gefur til kynna að áhorfendum sé ætlað að velta fyrir sér hugmyndinni um fyrirframgefin kynhlutverk. Þarna er móðirin skýrlega búin að festa niður kyn hins ófædda barns. Þegar barnið fæðist í heiminn neyðist það svo til að taka þátt í hlutverkaleiknum, fylgja handritinu í tengslum við það kyn sem samfélagið telur það tilheyra. Síðar spyr Lára konuna, „hvernig líður barninu?“. Lára kyngerir ekki barnið, því hún veit af persónulegri reynslu að lífið er flóknara. Í upphafi myndarinnar ber geðlæknir upp eftirfarandi spurningu: „Sérðu konu þegar þú lítur í spegil?“. Lára svarar neitandi en geðlæknir hennar segist sjá unga fallega konu sem er það sem áhorfendur sjá. Lára bíður þess að líkami hennar falli að kynverund hennar og líður eins og hún geti ekki byrjað að lifa að fullu þangað til svo sé. Hún telur sig ekki getað elskað né verið elskuð, sem er ekki satt.

Þegar dregur að lokum kvikmyndarinnar tekur Lára ákvörðun sem gæti reynst henni banvæn. Þrátt fyrir stuðninginn ber þrýstingurinn sem fylgir kynleiðréttingarferlinu Láru ofviða og í óþolinmæði sinni framkvæmir hún hið óhugsanlega. Um leið og faðir hennar fréttir af því sem hefur gerst sjáum við hann hlaupa upp hringstigann á heimili þeirra á meðan myndavélin fylgir honum og snýst hring eftir hring líkt og ballerína.

Girl hefur verið gagnrýndi fyrir að hafa karlkyns leikara, Victor Polster, í hlutverki Láru í stað transkonu. Það að hafa karlmann í hlutverkinu ýtir undir þær ranghugmyndir að transkonur séu í raun og veru karlmenn. Kvikmyndir eins og þessi sem fjallar um málefni transfólks er frábært tækifæri fyrir transfólk til þess að leika hlutverk sem þeim stæði mjög nærri. Hægt væri að benda á að sögupersónan Lára væri líkleg til þess að vera ósátt með leikaravalið á sinni eigin persónu. Þrátt fyrir að birta með skilningsríkum hætti mynd af kynleiðréttingarferli staðfestir myndin því miður með leikaravali þá staðreynd að transfólk fær ekki sömu tækifæri og aðrir leikarar.

Að því sögðu er Girl samt sem áður fallega einföld kvikmynd sem segir kraftmikla sögu um málefni sem loksins má ræða og fjalla um af alvöru. Kvikmyndin knýr áhorfendur til að ígrunda hugmyndir sínar um kyn og kynhlutverk, jafnvel taka þær til gagnrýnnar endurskoðunar. Líkt og hæfir mynd sem setur ballett í forgrunn er frásögnin sjálf fim og kvik og kallar fram tilfinningalegan dans í brjósti áhorfanda.

Hrafnkell Úlfur Ragnarsson er nemandi í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands og meðlimur í Engum stjörnum.

Jóna Gréta Hilmarsdóttir er nemandi í kvikmyndafræði við Íslensku– og menningardeild Háskóla Íslands og meðlimur í Engum stjörnum.

Vefsvæði Engra stjarna er hér.[/cs_text]

 
[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701