[cs_text]Borgarleikhúsið endurtekur verkefnið NÚNA frá 2013 og kynnir fyrir landsmönnum þrjú ung leikskáld, þau Hildi Selmu Sigbertsdóttur, Þórdísi Helgadóttur og Matthías Tryggva Haraldsson í NÚNA 2019. Leikskáldin sömdu hvert fyrir sig um þrjátíu mínútna langt verk og unnu það áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjórann, Kristínu Jóhannesdóttur. Afraksturinn eru verkin Sumó, Þensla og  Stóri Björn og kakkalakkarnir.

Sumó

Sumó, eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur, fjallar um hjónin Rannveigu og Axel (Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson) sem leigja sér bústað í von um að eiga rómantíska stund saman. Kvöldið tekur óvænta stefnu þegar Edda (Vala Kristín Eiríksdóttir), ung kona úr næsta bústað, ryðst yfir til þeirra með öll sín vandamál. Einar (Hannes Óli Ágústsson), kærastinn hennar, hefur skilið hana eina eftir og keyrt í bæinn. Aðstæðurnar verða smátt og smátt furðulegri, sjónarhornið færist til Axels en hann á, líkt og áhorfendur, sífellt erfiðara með að átta sig á því hvað er satt og hvað er logið, hvað er alvara og hvað er leikur einn. Ólíkum sjónarhornum eru fléttað listilega vel saman þó endirinn sé skyndilegur og skilji áhorfendur eftir í lausu lofti, óvissa um það hvort Axel sé virkilega á geðdeild eða hvort hann sé bara enn í sumarbústaðnum. Blekkingin skapar hugrenningatengsl við verkin Fólk, staðir og hlutir eftir Duncan Macmillan og Faðirinn eftir Florian Zeller en þess má geta að Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði einnig því síðarnefnda (í uppsetningu Þjóðleikhússins 2017). Þar sem sögusvið Sumó er sumarbústaður og heitur pottur hluti af sviðsmynd verksins er ekki annað hægt en að minnast líka verksins Himnaríki eftir Árna Ibsen. Sumó skortir örlítinn frumleika en úrvinnsla hugmyndarinnar er góð, persónurnar eru sannfærandi og samskipti þeirra marglaga. Góð leikstjórn og góður leikur skiptu þar sköpum.

Þensla

Þensla, eftir Þórdísi Helgadóttur, fjallar um hjónin Agnesi og Egil (Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Hannes Óli Ágústsson) sem eiga óuppgerða fortíð; þau hafa ekki unnið úr  skyndilegum og harmrænum dauða vinkonu Agnesar. Kvöld eitt býður Egill, ungu listamönnunum Marínu og Daníel (Ebba Katrín Finnsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson) heim að sjá „dýrið“. Í ljós kemur að „dýrið“ er egg, nokkur krókódílsegg, sem Agnes geymir í hitakassa í stofunni. Verkið tekur fyrir stöðu mannskepnunnar í dýraríkinu og þann kvíða og sektarkennd sem því getur fylgt að vera breysk manneskja sem hendir plasti í sjóinn og kaupir vörur unnar af þrælabörnum í útlöndum. Agnes vill flýja raunveruleikann; hún þráir að verða krókódíll líkt og Yeong-Hye í Grænmetisætunni eftir Han Kang þráir að breytast í tré. Þensla býr yfir sterkum höfundareinkennum Þórdísar en í smásagnasafni hennar Keisaramörgæsir (2018) notar hún einnig dýr og náttúruna til að varpa ljósi á stöðu mannsins í nútímanum. Þetta gerir hún með heillandi töfraraunsæi þar sem ekki er allt sem sýnist og allt getur gerst. Slöngumynstraður kjóll Agnesar og ýmis skinn sem liggja á gólfinu ýta undir dýraþemað í uppsetningunni. Í loftinu eru hitalampar og á sviðinu er rauð, hlý birta. Sem mótvægi við heimsendaspá Agnesar tekur Daníel sig til og flytur ræðu. „Manneskjan, what a concept,“ er meðal þess sem hann segir. Og svo er skálað.

Stóri Björn

Stóri Björn og kakkalakkarnir, eftir Matthías Tryggva Haraldsson, fjallar um mann (Hannes Óli Ágústsson) sem glímir við svefnvandamál, óhugnanlega blauta drauma og klámfíkn. Verkið er súrrealískt. Það fjallar á óröklegan hátt um leyndar óskir og hvatir mannsins. Aðalpersónan er á mörkum draums og vöku, endursegir martraðir sínar og berst við kakkalakkaskrímsli (Haraldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir) með hjálp ofurhetjanna Konu og Konu 2 (Ebba Katrín Finnsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir). Matthías Tryggvi leikur sér með þá hugmynd að konur séu annað hvort gyðjur eða hórur. Konurnar tvær eru klámiðnaðurinn holdi klæddur en gefa manninum, þegar þau þrjú hafa í sameiningu sigrast á kakkalökkunum, þau hollráð að lifa lífinu en vera ekki fastur á bak við tölvuskjá að horfa á klám. Konurnar eru þannig sýndar á írónískan hátt sem bjargvættir karlmannsins. Kakkalakkarnir eru forvitnilegar svartklæddar verur með typpi á kollinum í stað fálmara. Þeir eru auk þess með mislit augu og skapa þannig hugrenningatengsl við klæðnað grímuklædda trommuleikarans í hljómsveitinni Hatari sem Matthías Tryggvi er meðlimur í. Kakkalakkarnir eru ágengir, spyrja margra spurninga og vilja borða allt. Endurteknar spurningar þeirra: „Er þetta …? Namm!“ og „Hvað er þetta?“ minntu á „Af hverju“-frasa rassálfana í Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren. Konurnar tvær töluðu með hrynjandi sem minnti á ljóðaflutning og þar með, í sínu ævintýralega samhengi,  á sýninguna Tvískinnungur eftir Jón Magnús Arnarsson, ljóðaslammara. Verkin Stóri Björn og Tvískinnungur eiga það auk þess sameiginlegt að vera grótesk.

Undirliggjandi óhugnaður

Þrátt fyrir að verkin þrjú séu innbyrðis mjög ólík er undirliggjandi óhugnaður í þeim öllum. Áhugavert er að í öllum verkunum er komið inn á samskipti kynjanna og femínisma, með einum eða öðrum hætti. Í Sumó og Þenslu er komið inn á hjónabandserjur og í Þenslu og Stóra  Birni er unnið með mörk mennsku og dýra, samanber krókódílana og kakkalakkana. Sviðsmyndin er vel heppnuð. Snúningssvið gerir það að verkum að áhorfendur fá að sjá ólík sjónarhorn. Leikurinn er almennt sannfærandi og mínímalísk leikmynd og hversdagslegir búningar í bland við mjög skrautleg gervi styðja við upplifunina.

[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1112

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

12001

12002

12003

12004

12005

12006

12007

12008

12009

12010

20001

20002

20003

20004

20005

20006

20007

20008

20009

20010

30001

30002

30003

30004

30005

30006

30007

30008

30009

30010

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11017

11018

11019

12011

12012

12013

12014

12015

12016

12017

12018

12019

12020

20011

20012

20013

20014

20015

20016

20017

20018

20019

20020

30011

30012

30013

30014

30015

30016

30017

30018

30019

30020

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

9041

9042

9043

9044

9045

10196

10197

10198

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

30036

30037

30038

30039

30040

30041

30042

30043

30044

30045

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

12051

12052

12053

12054

12055

12056

12057

12058

12059

12060

20051

20052

20053

20054

20055

30061

30062

30063

30064

30065

30066

30067

30068

30069

30070

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

20056

20057

20058

20059

20060

20061

20062

20063

20064

20065

30071

30072

30073

30074

30075

30076

30077

30078

30079

30080

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

news-1112