Lof mér að falla

[cs_text]Í Lof mér að falla (2018) tekst Baldvin Z á við undirheima Reykjavíkur á hátt sem ekki hefur sést áður í íslenskri kvikmyndagerð. Í henni er sögð ástarsaga tveggja kvenna sem báðar eru fíklar. Þetta er eitrað samband sem dregur þær báðar dýpra og dýpra í svaðið, þær eru ekki einungis háðar efnunum heldur hvor annarri líka og því skapast hér saga um fíkn og þráhyggju, í efni og í ást. Með þessum vinkli tekst Baldvin að fjalla um fíkniefnaheiminn á Íslandi á tilfinningalegu plani; þetta er ekki spennuþrungin frásögn heldur næm og grípandi umfjöllun um fíkla – sem hér eru venjulegar manneskjur með ástríður og drauma, ekki tölur á blaði eða hættulegir glæpamenn.

Enn fremur gefur það kvikmyndinni aukna merkingu að fjalla um konur innan þessa heims, en ljóst er að þó undirheimarnir séu grimmir við alla verða konur undir á annan og alvarlegri hátt en karlar, meðal annars vegna þess mikla kynferðisofbeldis sem þær eru beittar. Þær eru jaðarsettar innan jaðarsetts hóps. Með því að byggja handritið á raunverulegum frásögnum íslenskra kvenna í neyslu hefur Baldvin, ásamt Birgi Erni Steinarssyni, skapað heildarsögu sem er sannfærandi og heldur áhorfendum vel við efnið, en má jafnframt ætla að endurspegli reynslu fjölmargra íslenskra kvenna. Atburðirnir sem sjást á hvíta tjaldinu hafa gerst oft og mörgum sinnum, þeir eru að gerast akkúrat núna og munu eiga sér stað aftur og aftur og aftur.

Álfrún Laufeyjardóttir og Elín Sif Halldórsdóttir í hlutverkum sínum í Lof mér að falla.

Persónusköpun í kvikmyndinni er vel heppnuð og leikkonurnar fjórar sem fara með hlutverk Stellu og Magneu á mismunandi aldursbilum eru mjög sannfærandi. Elín Sif Halldórsdóttir (Magnea, yngri) og Eyrún Björk Jakobsdóttir (Stella, yngri) hafa góða tengingu sín á milli og ná að koma vel til skila eitraða ástarsambandinu sem persónurnar eiga í; hversu skemmandi samskipti þeirra eru en jafnframt hversu heitar tilfinningar þær bera til hvor annarrar. Í baksögu aðalpersónunnar er brugðið út frá hefðbundnum ímyndum fíkla í kvikmyndum að því leyti að Magnea kemur ekki úr hræðilegu umhverfi eða notar fíkniefni til að flýja áföll og fortíðardrauga. Hún er þvert á móti ósköp venjuleg íslensk stúlka sem lifir góðu lífi en rennur smám saman inn í heim fíknarinnar. Í kvikmyndinni er þróuninni komið til skila á raunsæjan hátt; hversu sakleysislega þetta byrjar og hvernig vítahringur áfalla og neyslu brýtur manneskjuna smám saman niður þar til hún hefur brennt flestar brýr að baki sér.

Þó Stella sé án efa í hugum margra einhverskonar sökudólgur í öllu saman (í mörgum lýsingum á kvikmyndinni er talað um að hún „notfæri sér“ Magneu) er ljóst að hún er veik manneskja sem þjáist líka. Í persónunni birtist sú siðferðislega hnignun sem fylgir langvarandi eiturlyfjaneyslu: siðferðisgildi breytast eftir hentisemi, vinskapur byggist eingöngu á því að útvega og nota efni, tilfinningar brenglast og engin dýpt er til staðar í samskiptum. Engum er treystandi og fólk svíkur þá sem því þykir vænst um til að bjarga eigin skinni. Í Stellu birtast sálarkvalirnar sem fylgja því að framkvæma eitthvað hræðilegt og þurfa síðan að lifa með afleiðingunum. Haldið er fast í þá staðreynd að fíklar eru ekki sérstök „tegund“, heldur eru þau venjulegt fólk sem fíknin og heimurinn í kringum efnin hefur breytt, gert þau siðlaus og sjálfselsk. Foreldrar Magneu eru svo á hliðarlínunni í gegnum alla atburðarásina og er vanmáttur þeirra sýndur á átakanlegan hátt samhliða því sem komið er inn á þau takmörkuðu úrræði sem standa fíklum til boða. Að þessu leyti er þörf samfélagsrýni til staðar í kvikmyndinni og hefur hún burði til að skapa aukna umræðu um þennan vanda.

Eyrún Björk Jakobsdóttir sem Stella í Lof mér að falla.

Samtöl í kvikmyndinni eru í eðlilegu og raunsæju flæði, leikstjórinn er óhræddur við að leyfa persónum að tala óskýrt eða ofan í hvor aðra. Þetta er djarft val þar sem hérlendir áhorfendur eru vanir því að talað sé afskaplega skýrt í íslenskum kvikmyndum. Óhætt er að segja að þetta borgi sig, áhorfendur fá á tilfinninguna að þeir séu að horfa á eitthvað raunverulegt, ekki skrifuð samtöl. Af og til blandast myrk kímni inn í þau og ekki er hægt annað en að flissa þó efnið sé grafalvarlegt. Kvikmyndataka og eftirvinnsla vinna vel með efninu og ýta hvarvetna undir þau hughrif sem atburðarásin og persónurnar hafa á áhorfendur. Mikið er um nærgöngula, þrönga innrömmun sem sýnir andlit og líkama persóna í miklu návígi. Sömuleiðis er talsvert um handheldar, óstöðugar tökur og hraða klippingu. Með þessum aðferðum eru áhorfendur settir inn í augnablikið, þeir eru „á staðnum“ og upplifa ringulreiðina í huga persóna. Leikstjórinn getur síðan haft gríðarsterk áhrif með því að skipta skyndilega yfir í langt, stöðugt skot sem gefur engum færi á að líta undan (og er eitt slíkt líklega það magnaðasta í kvikmyndinni). Tónlistin er vandlega úthugsuð og ýtir undir myndefnið án þess að verða yfirgnæfandi – það er hreinlega hrollvekjandi þegar harðneskjulegir tónar hljómsveitarinnar Hatari hljóma í dóp-partíi. Í kvikmyndinni er mikið um ofbeldisatriði, en Baldvin fer þá leið að sýna ekki ofbeldið sjálft á grafískan hátt heldur að einblína frekar á tilfinningahliðina og á afleiðingar ofbeldisins. Hann gefur þannig áhorfendum tækifæri á að fylla í eyðurnar. Þetta er í andstæðu við þá tilhneygingu meginstraumsins að nota grafísk ofbeldisatriði til að krydda kvikmyndir, ýta við áhorfendum og jafnvel hneyksla þá.

Að lokum er vert að minnast á að í handriti Lof mér að falla er ekki sérstakt vægi sett á kynhneigð persónanna, þrátt fyrir að meginþráðurinn sé ástarsamband milli tveggja kvenna. Raunar eru kynhneigðir þeirra hvergi skilgreindar formlega og sú staðreynd að þær eru ekki gagnkynhneigðar er ekki gert að sérstökum drifkrafti eða uppsprettu átaka í frásögninni. Þetta er heldur óvenjulegt þegar kemur að hinsegin persónum í bíómyndum og sannarlega merki um jákvæða þróun í íslenskri kvikmyndagerð (svipað er uppi á teningnum í Andið Eðlilega (2018) eftir Ísoldu Uggadóttur).

Líklega er engin kvikmynd fullkomin og að sjálfsögðu mætti tína til einhver atriði við Lof mér að falla sem betur gætu farið. Mögulega var óþarfi að hnýta sögulokin saman á jafn dramatískan hátt og gert var. Mögulega hefði mátt veita persónusköpun Stellu meira rými, gefa henni baksögu og sýna meira af hennar mannlegu hlið. Jafnvel hefði mögulega mátt leggja meira upp úr því að líkamsbygging eldri leikkvennanna samsvaraði þeim yngri. Þetta eru þó smáatriði í heildarupplifuninni. Lof mér að falla er raunveruleg saga af raunverulegu fólki, saga sem í einhverri útfærslu er að eiga sér stað akkúrat núna. Hún hefur forvarnargildi, hún gefur innsýn í heim sem flestum er hulinn og vekur athygli á mikilvægum málefnum. Í henni heyrast raddir sem hingað til hafa ekki fengið rými.

Vefsvæði Engra stjarna er hér.[/cs_text]

Um höfundinn
Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen er kvikmyndafræðingur (BA), meistaranemi í ritlist og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

118000571

118000572

118000573

118000574

118000575

118000576

118000577

118000578

118000579

118000580

118000581

118000582

118000583

118000584

118000585

118000586

118000587

118000588

118000589

118000590

118000591

118000592

118000593

118000594

118000595

118000596

118000597

118000598

118000599

118000600

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

128000636

128000637

128000638

128000639

128000640

128000641

128000642

128000643

128000644

128000645

128000646

128000647

128000648

128000649

128000650

128000651

128000652

128000653

128000654

128000655

128000656

128000657

128000658

128000659

128000660

128000661

128000662

128000663

128000664

128000665

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

208000311

208000312

208000313

208000314

208000315

208000316

208000317

208000318

208000319

208000320

208000321

208000322

208000323

208000324

208000325

208000326

208000327

208000328

208000329

208000330

208000331

208000332

208000333

208000334

208000335

208000336

208000337

208000338

208000339

208000340

news-1701