Dásamlega Ronja ræningjadóttir!

[cs_text]Þjóðleikhúsið opnar leikárið með gullfallegri sýningu á söngleiknum um Ronju ræningjadóttur, eftir skáldsögu Astrid Lindgren, í leikstjórn Selmu Björnsdóttur.

Faðir og dóttir

Ronja ræningjadóttir (1981) var síðasta stóra skáldsagan fyrir börn sem Astrid Lindgren skrifaði. Eftir hana hélt hún áfram að skrifa minni sögur og texta en Bræðurnir Ljónshjarta (1973) og Ronja voru síðustu og dýpstu bækurnar hennar. Mikið hefur verið skrifað um þessi verk í barnabókafræðum enda „nóg til frammi“.  Flestir eru þó sammála um að Ronja ræningjadóttir lýsi þroskasögu Ronju og sambandi hennar við föðurinn, Matthías. Hann elskar þetta einkabarn sitt heitt en hún verður að losa sig frá honum til að geta orðið sjálfstæð og elskað aðra menn eða konur.

Matthías skilur að hún þarf að þroskast og læra til að geta lifað af og bæði hann og Lovísa fela náttúrunni að sjá um að kenna Ronju að vera sterk og sjálfstæð. Hún þarf að glíma við lífshættuleg fyrirbæri eins og grádvergana sem leita uppi óttaslegin fórnarlömb og drepa þau. Rassálfarnir eru ekki hættulegir en afar einfaldir og alveg lausir við samúð eins og náttúran er. Skógarnornirnar eru hins vegar máli gæddar, grimmar og árásargjarnar – afar viðsjárverðar. Þær eru ekki gerðar eins óhugnanlegar í sýningunni og í bókinni, kannski til að hræða ekki börnin of mikið, en það verður að vera ljóst að Ronja og Birkir eru hræddari við þær en aðrar vættir af því að þær eru mannleg rándýr. Þegar Ronja hefur lært að búa í skóginum með þessum fyrirbærum er hún orðin fullvaxta – hún er „born out of the dark forces of nature“ eins og fræðimaðurinn Roni Natov segir.

Því miður þýðir það, samkvæmt Matthíasi, ekki að henni leyfist að beina ást sinni og virðingu að öðrum körlum en pabba sínum. Þar kemur hin vitra og magnaða móðir, Lovísa, til skjalanna sem málamiðlari. Auk alls sem til þarf til að menn  „eyðileggi ekki allt, alveg að ástæðulausu“ sem er setningin sem Selma Björnsdóttir tekur út úr verkinu í leikskrá.

Átakasaga

Ronja ræningjadóttir skilur sig frá öðrum  fantasíum Astrid Lindgren í því að þar er meri áhersla á þroskasöguna en hetjuhlutverkið, þar er til dæmis ekki einn óvinur eða ófreskja sem barist er gegn heldur fjallar bókin um átök og óvild jafn sterkra aðila. Þetta er undirstrikað í sýningu Þjóðleikhússins. Í leikmynd Finns Arnar Arnarssonar er hin klofna Matthíasarborg sýnd eins og höll til að byrja með en helmingarnir taka á sig útlínur tveggja risa sem standa hvor gegn öðrum í bakgrunninum eins og hinar stríðandi ræningjaættir og foringjarnir Matthías (Örn Árnason) og Borki (Baldur Trausti Hreinsson). Leikmyndin býr til hugmyndaríka umgjörð, með landslagi og ógnum skógarins, undirgöngum kastalans og helvítisgjá. Hringsviðið er gjörnýtt og lýsing Ólafs Ágústs Stefánssonar er sömuleiðis bæði mystísk og markviss.

Dansatriðin  í sýningunni eru verkBirnu Björnsdóttur og Auðar B. Snorradóttur og voru óvenjulega vel af hendi leyst, sviðið nýtt mjög vel og uppbygging dansatriða flott. Allir vita að Salka Sól og Örn Árnason geta tekið lagið en Vigdís Hrefna Pálsdóttir kom á óvart í fallegum söngvum Lovísu og kórsöngurinn var með afbrigðum góður. Í þessari ævintýrasýningu voru búningahönnuðarnir María Th. Ólafsdóttir og leikgervahöfundarnir: Silfá Auðunsdóttur, Ástu S. Jónsdóttur og Þóru G. Benediktsdóttur afar mikilvægir. Úr þeirra höndum stigu vættir skógarins fram bæði skrautlegar, meinfyndnar og ógurlegar. Senuþjófurinn og krúttsprengjan voru þó rassálfarnir sem áhorfendur féllu greinilega fyrir og fögnuðu mjög.

Leikgerðin kemur frá Finnlandi (Amoma Enckell) og söngvarnir frá Danmörku (Sebastian) en í myndrænni útgáfu Þjóðleikhússins sýnist mér meira sótt til eistneska myndlistarmannsins Ilon Wikland sem var eftirlætismyndskreytir Astrid Lindgren. Það finnst mér afar vel til fundið.

Ronja og Birkir (í húsi ræningjanna)

Verkið stendur og fellur með hlutverki Ronju. Salka Sól Eyfeld fer afskaplega vel með það  og túlkar þessa mögnuðu stelpu af einlægni og styrk sem gerir hana bæði sannfærandi og heillandi. Það er ekki auðvelt af því að Ronja er mjög samsett persóna, saklaus og barnsleg en líka hörð og réttsýn eins og mamma hennar.

Sigurður Þór Óskarsson fer líka afar vel með hlutverk Birkis sem er bróðursál Ronju og líka sterk persóna. Einnig hann þarf að slíta böndin við foreldra sína, föðurinn Borka (Baldur Trausta Hreinsson) og móðurina skapsterku Valdísi (Eddu Arnljótsdóttur). Þau tvö eru nógu lík til að skapa samkennd og nógu ólík til að lenda í árekstrum og semja um útkomuna. Samband þeirra Birkis og Ronju er sagan af Rómeó og Júlíu og þau eru tilbúin til að deyja fyrir sínar ungu tilfinningar en öfugt við ítölsku krakkana þarf ekki að koma til þess. Bæði Salka og Sigurður Þór syngja mjög vel og textaframburður þeirra, og raunar næstum allra í sýningunni var alveg einstaklega skýr og áheyrilegur. Og textarnir ekkert slor. Þorleifur Hauksson þýddi leiktextann og Böðvar Guðmundsson söngtextana og málið á verkinu er einstaklega fallegt.

Átökin milli ættanna og ræningjahópanna eiga kannski sögulegar rætur í vegaræningjum sem gerðu mönnum lífið leitt í Svíþjóð í lok átjándu aldar. Eitt er víst að foreldrar Ronju og Birkis og fylgismenn þeirra eru þjófar og mögulega morðingjar og á því er ekki legið í leikgerðinni. Eins og söngleikja er háttur syngja og dansa ræningjahóparnir af list, þeir eru bæði hér og í bókinni látnir vera einfaldir, hrjúfir en góðir undir niðri. Þeir eru skýrari og afmarkaðri persónur í bókinni en söngleiknum, nema Litli Skratti (Oddur Júlíusson) og Skalla-Pétur sem hér er gömul kerling, Skalla-Pésa (Edda Björgvinsdóttir) sem er eins konar fóstra Ronju, ómótstæðileg persóna og sárt saknað þegar hún deyr úr elli.

Þó glatt sé á hjalla hjá ræningjunum er það undirstrikað að þeirra tími er liðinn og yfirvöld munu ná þeim frekar fyrr en síðar. Þarna hefði verið ágætt tækifæri til að tengja yfir í landlausa pólitiska flóttamenn dagsins í dag – ef einhver hefði viljað taka Ronju út úr ævintýrinu og inn í veruleikann – en ef það er góð hugmynd bíður hún seinni tíma?[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

118000721

118000722

118000723

118000724

118000725

118000726

118000727

118000728

118000729

118000730

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000746

118000747

118000748

118000749

118000750

118000751

118000752

118000753

118000754

118000755

118000756

118000757

118000758

118000759

118000760

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

158000346

158000347

158000348

158000349

158000350

158000351

158000352

158000353

158000354

158000355

158000356

158000357

158000358

158000359

158000360

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

228000091

228000092

228000093

228000094

228000095

228000096

228000097

228000098

228000099

228000100

228000101

228000102

228000103

228000104

228000105

228000106

228000107

228000108

228000109

228000110

228000111

228000112

228000113

228000114

228000115

228000116

228000117

228000118

228000119

228000120

228000121

228000122

228000123

228000124

228000125

228000126

228000127

228000128

228000129

228000130

228000131

228000132

228000133

228000134

228000135

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701