Robert Wilson vitjar Eddu

[cs_text]Dagný Kristjánsdóttir og Hlín Agnarsdóttir fjalla um Eddu, sýningu Robert Wilson á Listahátíð í Reykjavík.

Robert Wilson er fæddur í Texas Bandaríkjunum 1941. Hiklaust má telja hann einn af fremstu sviðslistamönnum í framúrstefnuleikhúsi samtímans. Leikhús hans hefur haft gífurlega mikil áhrif á marga listamenn út um allan heim. Hann hefur unnið með skáldum, myndlistarmönnum (Ambrovic) popplistamönnum (Lady Gaga) – hefur sett upp eigin verk, verk annarra (Beckett t.d. Happy Days með Winonu Ryder) sviðsett sonnettur Shakespeares við músík kanadíska tónlistarmannsins Rufus Wainright svo nokkuð sé nefnt. Hann sló fyrst í gegn svo um munaði með verkinu Einstein on The Beach (1976 ) sem hann vann m.a. út frá textum og myndum einhverfa listamannsins Christopher Knowles við tónlist vinar síns, Philips Glass.

Framúrstefna og póstdramatík

Ekki er hægt að nefna Robert Wilson án þess að nefna „póstdramatíska“ leikhúsið til sögunnar en það er hugtak sem hefur verið notað um þróun framúrstefnuleikhússins um og eftir 1960 þegar áhrif gjörningalistar, nútímaballettsins og poppmenningar urðu stöðugt meira áberandi í sviðslistum. Hugtakinu „póstdramatík“ hefur fyrst og fremst verið gerð skil af þýska leikhúsfræðingnum Hans-Ties Lehmann í bók hans um þessa tegund af leikhúsi. Megineinkenni póstdramatíska leikhússins er að textinn sem slíkur og leikskáldið sem höfundur gegna ekki lengur sama lykilhlutverki í túlkun og framsetningu sviðslistamannanna og þau gerðu í dramatíska/aristóelíska leikhúsinu sem hafði verið ríkjandi meira og minna frá upphafi borgarlegs leikhúss á nítjándu öld. Natúralistískt raunsæi á leiksviðinu, hefðbundin framvinda sögunnar í leiktextanum, víkur fyrir nýrri sýn á miðlunarmöguleika leiksviðsins. Með póstdramatíkinni verða aðrir þættir leiksýningarinnar, ekki síst þeir sjónrænu, leikmynd og búningar, hreyfing, ljós og hljóð, að minnsta kosti jafnmikilvægir og textinn í  túlkun leikarans.

Áhrif úr vestri og austri

Robert Wilson er tvímælalaust einn af elstu fulltrúum þessa leikhúss og hann sækir hugmyndir sínar og áhrif úr ýmsum áttum, ekki aðeins í vestræna menningu með öllu sem henni fylgir í fjölmenningarsamfélögum nútímans, heldur ekki síður til austur-asískra sviðslista eins og japönsku Kabuki og Noh hefðarinnar þar sem stílfærður táknleikur er miðlægur í framsetningu efnisins á leiksviðinu. Þar skiptast líka á hægur taktur og hraður í texta og tónlistarflutningi. Það sem einkennir sviðslist Roberts Wilson mest af öllu er hin myndræna hlið sýningarinnar, einkum notkun hans á ljósi í tíma og rými. Í fagurfræði hans hefst öll listsköpun á leiksviðinu með notkun ljóss og skugga en hann er sjálfur höfundur að allri ljósabeitingu í uppsetningum sínum og málar með lýsingu og skáldar líkt og myndlistarmaður.

Annar mikilvægur þáttur í sýningum Wilsons er tónlistin en hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum samtímans, auk Philipp Glass má nefna John Cage, Tom Waits, Laurie Anderson og systurnar tvær sem kalla sig  CocoRosie en lögin í Eddu sýningunni eru eftir þær. Robert Wilson setur jöfnum höndum upp eigin höfundarverk og klassísk verk. Til að nefna nokkur dæmi um breiddina í verkefnum hans má nefna óperuna La Traviata eftir Verdi og einleikinn Happy Days eftir Samuel Beckett en í báðum þessum verkum, jafn ólík og þau eru, notast hann við sömu aðferðir og hann gerir í Eddu sem íslenskir áhorfendur fengu að sjá á Listahátíð nú í vor, leikgleði, myndræna framsetningu og stílfærslu.

Endurreisnarmaðurinn

Robert Wilson er sannkallaður endurreisnarmaður innan leikhússins, hann er ekki einhamur, heldur þúsundþjala smiður sem hefur afar næmt auga fyrir samspili hreyfingar og hljómfalls. Hæfileikar hans birtast í nákvæmni og samhæfingu allra listgreina þar sem megináhersla er lögð á framsetningu og list leikhússins og erindi þess við áhorfendur. Þó fagurfræði listar hans höfði meira til skynjunar og sköpunar áhorfenda en tilfinninga þeirra vekja sýningar hans samt alltaf upp miklar umræður um innihald, túlkun og gildi.

Edda í Norska leikhúsinu

Robert Wilson þáði boð Norska leikhússins í Osló um að setja Pétur Gaut á svið 2005. Aftur gekk hann til samstarfs við leikhúsið 2015 og í nú voru það Eddukvæðin sem honum var boðið að glíma við. Honum var „afhent sjálft ættarsilfrið“, eins og leikhússstjóri Norska leikhússins orðaði það.

Vinnan hófst í New York þar sem Wilson og teymi útvalinna samstarfsmanna hóf vinnu sína. Í maí 2016 hitti hann leikarana í Osló og lagði þeim línurnar í orðsins fyllstu merkingu. Hann skiptir æfingasalnum í reiti eins og skákborði, hverjum leikara er úthlutað sitt hreyfimynstur eða dans sem einkennir hann og verður að læra hann eins og hvert annað hlutverk.

Wilson er höfundur sviðsmyndar og lýsingar auk þess að leikstýra verkinu. Eftir að hafa farið í gegnum verkefnið með leikurunum fór Wilson úr landi með allt sitt fólk til að vinna að öðru verkefni í nokkra mánuði. Þegar hann kæmi aftur áttu allir leikararnir að kunna texta og tónlist, hreyfimynstur og helstu skiptingar. Fagmenn leikhússins höfðu þá unnið að sýningunni mánuðum saman. Vorið 2017 hófst vinna með leikurum, útfærslur og úrvinnsla. Hver af meginþáttum sýningarinnar var fínunninn og ekki hætt fyrr en Wilson var ánægður. Öllum meginþáttum sýningarinnar var svo rennt saman endanlega nokkrum dögum fyrir sýningu og allir voru þá orðnir ansi stressaðir nema leikstjórinn.

Wilsons Edda

Rithöfundurinn Jon Fosse gerði leikgerðina úr Eddukvæðunum úr völdum kvæðum auk Völuspár. Textinn var gefinn út á bók í tilefni sýningarinnar en aðeins lítið brot af honum var notaður í sýningunni. Fyrst stytti og valdi Wilson þemun sem hann vildi vinna með í samvinnu við dramatúrg Norska leikhússins en stytti svo enn meira í New York með aðstoðarmönnum sínum.

Maður, sem lýsir því yfir að hann hati natúralisma og trúi því ekki að það sé hlutverk leikhússins að segja sögur eða skoða sálarlíf fólks, er ekki líklegur til að leita að þeim orsaka- og afleiðinga-söguþræði sem við erum vön að lesa út Völuspá. Og það gerir Wilson ekki – beint.  Hann stefnir saman tveimur heimum, tvenns konar goðsögnum; annars vegar eru hinar fornu goðsögur Eddukvæðanna, hins vegar eru nútímagoðsagnir, (popp)goð og goðsagnir. Óðinn var í Elvisbúningi – rokkgoð númer eitt. Loki var eins og sambland af The Joker og Edda klippikló. Konurnar voru mótaðar eftir þýskum expressjónisma sem týpur, glæsikvendið Freyja eins og charleston-gella á öðrum áratugnum (meyjan) og Frigg (móðirin) eins og búttuð borgarafrú með blikkandi brjóst (móðirin). Kostuleg voru gervi Hymis og konu hans sem voru gerð eins konar sambland af púkum og/eða dýrum, einkar post-human! Sjálf völvan var hins vegar hvítklædd og tággrönn með mittissítt hvítt hár eins og drottningin Deaenerys í Game of Thrones. Þór var glaðbeittur germanskur þrumuguð sem neitaði sér ekki um að taka yfir hlutverk Freyju – ef kostur gafst á. Hér tvinnast sem sagt allt saman kynusli, fantasía, teiknimyndir, poppgoð, kvikmyndir, rokk og hægari kaflar með tónlist hins eistneska Arvo Pärt og fögrum myndverkum Wilson úr reyk og lofti. Brot úr hinum forna texta voru sýndir á skjám neðst og til hliðar á sviðinu en megináherslan var lögð á hljómfall þeirra, tónlistina í tungumálinu.

Að lokum

Wilson sagði í samtali við Vigdísi Jakobsdóttur listrænan stjórnanda Listahátíðar fyrir sýningu í Borgarleikhúsinu að hann ynni alltaf með kontrapunkta í sýningum sínum. Eins og við höfum sagt að framan setur hann sýningar sínar saman úr fáum en sterkum meginþáttum sem slær saman. Á móti hinum fornu goðsögum tefldi hann sem sagt rokkgoðsögnum og fjöldamenningu samtímans. Í sýningunni var þétt net af vísunum til listasögu og menningarheima en fyrst og fremst til leikhússins sjálfs. Þannig voru hryllingsskepnurnar Fenrisúlfur og Miðgarðsormur ódulbúnar plastfígúrur og öll sýningin benti á sjálfa sig sem leikhús og sjónarspil. Sýningin á Eddu ber öll helstu höfundareinkenni Roberts Wilson. Mörgum kann að þykja að hann fari tiltölulega létt með þá gersemi sem Eddan er. Búningar, gervi, raddbeiting og ekki síst kóreógrafía gera goðin að tvívíðum og yfirborðslegum týpum í sýningunni og harmleikurinn sem við erum vön að lesa úr verkinu verður gamanleikur eða bara rugl. Og til hvers er þá verið að segja þessa sögu?

Þau sem sögðu hana fyrst vissu ekki hver skapaði heiminn eða hvernig hann ferst. Hugmyndin um heimsendi er myndhverfing sem  sýnir það sem getur gerst ef allt fer á versta veg. Því að öll sköpun mannsins, öll sönn list, tjáir það sem ekki er hægt að skilja. Og það er kannski betra að hlæja að goðunum en að hylla þau sem fyrirmyndir eins og ákveðið stjórnmálaafl vill gera.

Robert Wilson minnti okkur á taka ekkert alvarlega nema listina í áðurnefndu viðtali fyrir sýninguna á Eddu. Við þökkum fyrir að hafa fengið að sjá þessa sýningu.

Dagný Kristjánsdóttir og Hlín Agnarsdóttir[/cs_text]

 
[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

cuaca 638000011

cuaca 638000012

cuaca 638000013

cuaca 638000014

cuaca 638000015

cuaca 638000016

cuaca 638000017

cuaca 638000018

cuaca 638000019

cuaca 638000020

cuaca 638000021

cuaca 638000022

cuaca 638000023

cuaca 638000024

cuaca 638000025

cuaca 638000026

cuaca 638000027

cuaca 638000028

cuaca 638000029

cuaca 638000030

cuaca 638000031

cuaca 638000032

cuaca 638000033

cuaca 638000034

cuaca 638000035

cuaca 638000036

cuaca 638000037

cuaca 638000038

cuaca 638000039

cuaca 638000040

cuaca 638000041

cuaca 638000042

cuaca 638000043

cuaca 638000044

cuaca 638000045

cuaca 638000046

cuaca 638000047

cuaca 638000048

cuaca 638000049

cuaca 638000050

cuaca 638000051

cuaca 638000052

cuaca 638000053

cuaca 638000054

cuaca 638000055

cuaca 638000056

cuaca 638000057

cuaca 638000058

cuaca 638000059

cuaca 638000060

article 710000066

article 710000067

article 710000068

article 710000069

article 710000070

article 710000071

article 710000072

article 710000073

article 710000074

article 710000075

article 710000076

article 710000077

article 710000078

article 710000079

article 710000080

article 710000081

article 710000082

article 710000083

article 710000084

article 710000085

article 710000086

article 710000087

article 710000088

article 710000089

article 710000090

article 710000091

article 710000092

article 710000093

article 710000094

article 710000095

article 710000096

article 710000097

article 710000098

article 710000099

article 710000100

article 999990026

article 999990027

article 999990028

article 999990029

article 999990030

article 999990031

article 999990032

article 999990033

article 999990034

article 999990035

article 999990036

article 999990037

article 999990038

article 999990039

article 999990040

article 999990041

article 999990042

article 999990043

article 999990044

article 999990045

article 999990046

article 999990047

article 999990048

article 999990049

article 999990050

cuaca 898100101

cuaca 898100102

cuaca 898100103

cuaca 898100104

cuaca 898100105

cuaca 898100106

cuaca 898100107

cuaca 898100108

cuaca 898100109

cuaca 898100110

cuaca 898100111

cuaca 898100112

cuaca 898100113

cuaca 898100114

cuaca 898100115

cuaca 898100116

cuaca 898100117

cuaca 898100118

cuaca 898100119

cuaca 898100120

cuaca 898100121

cuaca 898100122

cuaca 898100123

cuaca 898100124

cuaca 898100125

cuaca 898100126

cuaca 898100127

cuaca 898100128

cuaca 898100129

cuaca 898100130

cuaca 898100131

cuaca 898100132

cuaca 898100133

cuaca 898100134

cuaca 898100135

article 868100061

article 868100062

article 868100063

article 868100064

article 868100065

article 868100068

article 868100069

article 868100070

article 868100071

article 868100072

article 868100073

article 868100074

article 868100075

article 868100076

article 868100077

article 868100078

article 868100079

article 868100080

article 888000081

article 888000082

article 888000083

article 888000084

article 888000085

article 888000086

article 888000087

article 888000088

article 888000089

article 888000090

article 888000091

article 888000092

article 888000093

article 888000094

article 888000095

article 888000096

article 888000097

article 888000098

article 888000099

article 888000100

article 328000641

article 328000642

article 328000643

article 328000644

article 328000645

article 328000646

article 328000647

article 328000648

article 328000649

article 328000650

article 328000651

article 328000652

article 328000653

article 328000654

article 328000655

article 328000656

article 328000657

article 328000658

article 328000659

article 328000660

news-1701