Myndheimur Van Gogh lifnar við

[cs_text]Loving Vincent (Dorota Kobiela og Hugh Welchman, 2017) er fyrsta kvikmynd sögunnar sem er handmáluð að fullu og brúar þannig, að vissu leyti, bilið milli málaralistar og kvikmyndatækni. Myndefnið var fyrst tekið upp á hefðbundinn hátt, í kvikmyndaveri með leikurum, og í kjölfarið tók við umfangsmikil listaverkasmíð þar sem römmunum, rúmlega 65.000 talsins, var breytt í málverk. Yfir hundrað málarar tóku þátt í framleiðslunni og stóð ferlið yfir í rúm tvö ár. Útkoman er sjónræn upplifun sem gefur unnendum Vincent Van Gogh tækifæri til að sjá myndheim hans lifna við og breytast í sviðsmyndir í kvikmynd.

Sögð er saga hins unga Armand Roulin, sonar póstmannsins Joseph Roulin, sem fær það verkefni að koma bréfi frá Van Gogh til bróður hans, Theo, ári eftir að málarinn féll frá. Hann leggur því upp í ferðalag sem leiðir hann til bæjarins Auvers í Frakklandi, þar sem Van Gogh lést, og hittir að máli ýmsa einstaklinga sem komu við sögu í lífi hans. Armand tengir saman frásagnir ólíkra aðila og þjónar því hlutverki eins konar leiðsögumanns fyrir áhorfendur.

Strax í upphafi birtist stórkostlegur himininn í Stjörnubjartri nótt, einu frægasta málverki Van Gogh. Áhrifin eru dáleiðandi þegar spírallaga formin, mynduð af fjöldamörgum smáum en áberandi pensilstrokum, lifna við í trylltum dansi. Þetta á sér hliðstæður í fleiri senum – umhverfið er ekki kyrrt, það er á hreyfingu og fylgir eftir formum málverksins, sem gefur áhorfendum tilfinningu fyrir því að svona hafi Van Gogh séð heiminn. Inn í þessa virkni spila síðan hreyfingar tökuvélarinnar. Ramminn færist ljúflega frá einum stað í umhverfinu til annars – jafnvel úr einu þekktu málverki yfir í annað – þannig að skyndilega er eins og þau hafi alltaf staðið hlið við hlið. Þegar tökuvélin fylgir persónum eftir á hreyfingu, til dæmis þegar þær ganga um, er líkt og söguheimurinn fljóti. Litirnir og pensilstrokurnar verða kaotísk og líða um eins og eftir sínu eigin höfði. Til verður stílfærð og listræn útgáfa af raunveruleikanum; töfraheimur sem gæti komið beint úr huga listamanns.

Persónurnar eiga sér einnig fyrirmyndir á strigum Van Gogh þó andlitsdrættir leikaranna fái að skína í gegn. Þótt bakgrunnurinn sé alla jafna einfaldari í nærmyndum njóta pensilstrokurnar sín engu að síður í völdum smáatriðum í útliti persónanna, til dæmis í skeggi póstmannsins og hatti Armand. Inn á milli er flakkað í tíma og persónurnar lýsa kynnum sínum af Van Gogh eða segja af honum sögur. Þessi atriði eru greinilega aðskilin frá því sem gerist í sögulínu Armand Roulin þar sem þau eru svart-hvít og stíllinn mun látlausari og raunsæislegri. Í þessu skapast ákveðinn kontrast og áhorfendur frá hvíld frá kaotískri litagleðinni, sem í kjölfarið verður enn áhrifaríkari þegar snúið er til baka í nútíð frásagnarinnar. Kvikmyndin er óður til verka Van Gogh. Ljóst er að mikill metnaður hefur ráðið för í framleiðsluferlinu og tæknilega séð stendur hún svo sannarlega undir væntingum.

Þar sem Loving Vincent er stórkostlegt sjónarspil er sorglegt að hún hafi verið unnin eftir jafn takmörkuðu handriti og raun ber vitni. Þó framleiðendur hafi markaðssett kvikmyndina sem umfjöllun um ævi málarans, með áherslu á dauðdaga hans, er staðreyndin sú að Loving Vincent fjallar alls ekki um ævi Van Gogh. Hún fjallar eingöngu um seinustu ævidaga hans og mismunandi kenningar um hvernig dauða hans bar að garði. Úr verður að söguþráðurinn minnir á lélega reyfara eða kvikmyndir um drykkfellda einkaspæjara (Armand Roulin fellur meira að segja vel að þeirri erkitýpu) og yfir öllu er óþægilega mikill samsæriskenningabragur. Þetta væri þolanlegt ef kvikmyndin fjallaði ekki um einn merkilegasta málara allra tíma. Mann sem þurfti að kljást við geðræn veikindi og mikla fátækt, mann sem bjó yfir magnaðri þrautseigju og afkastagetu í listsköpun sinni án þess að fá nokkru sinni viðurkenningu fyrir. Heimildirnar um lífshlaup hans skortir ekki og skömm er að því séu ekki gerð nein skil í myndinni nema í fullkomnu framhjáhlaupi – sáralítil tilfinning er gefin fyrir persónunni Vincent Van Gogh. Eina nálgunaraðferðin sem mögulega hefði verið klisjukenndari væri sú að einblína á atvikið þegar hann skar af sér eyrað, það eina í lífi og list málarans sem ratar inn í poppkúltúr hvað eftir annað.

Þegar á heildina er litið er erfitt að mæla með Loving Vincent en samtímis væri fráleitt að segja fólki að sniðganga hana. Hún er jafn mögnuð og hún er ómöguleg. Fyrir áhorfendur sem hrífast af málverkum Van Gogh og vilja sjá þau lifna við á hvíta tjaldinu er kvikmyndin sjónræn veisla. Nauðsynlegt er hins vegar að þessir sömu áhorfendur búi sig undir þann möguleika að þeir muni upplifa handritið sem móðgun við minningu Vincent Van Gogh.[/cs_text]

Um höfundinn
Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen er kvikmyndafræðingur (BA), meistaranemi í ritlist og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 710000011

article 710000012

article 710000013

article 710000014

article 710000015

article 710000016

article 710000017

article 710000018

article 710000019

article 710000020

article 710000021

article 710000022

article 710000023

article 710000024

article 710000025

article 710000026

article 710000027

article 710000028

article 710000029

article 710000030

article 710000031

article 710000032

article 710000033

article 710000034

article 710000035

article 710000036

article 710000037

article 710000038

article 710000039

article 710000040

article 710000041

article 710000042

article 710000043

article 710000044

article 710000045

article 710000046

article 710000047

article 710000048

article 710000049

article 710000050

article 710000051

article 710000052

article 710000053

article 710000054

article 710000055

article 710000056

article 710000057

article 710000058

article 710000059

article 710000060

kasus 898100001

kasus 898100002

kasus 898100003

kasus 898100004

kasus 898100005

kasus 898100006

kasus 898100007

kasus 898100008

kasus 898100009

kasus 898100010

kasus 898100011

kasus 898100012

kasus 898100013

kasus 898100014

kasus 898100015

kasus 898100016

kasus 898100017

kasus 898100018

kasus 898100019

kasus 898100020

kasus 898100021

kasus 898100022

kasus 898100023

kasus 898100024

kasus 898100025

kasus 898100026

kasus 898100027

kasus 898100028

kasus 898100029

kasus 898100030

kasus 898100031

kasus 898100032

kasus 898100033

kasus 898100034

kasus 898100035

kasus 898100036

kasus 898100037

kasus 898100038

kasus 898100039

kasus 898100040

cuaca 898100001

cuaca 898100002

cuaca 898100003

cuaca 898100004

cuaca 898100005

cuaca 898100006

cuaca 898100007

cuaca 898100008

cuaca 898100009

cuaca 898100010

cuaca 898100011

cuaca 898100012

cuaca 898100013

cuaca 898100014

cuaca 898100015

cuaca 898100016

cuaca 898100017

cuaca 898100018

cuaca 898100019

cuaca 898100020

cuaca 898100021

cuaca 898100022

cuaca 898100023

cuaca 898100024

cuaca 898100025

cuaca 898100026

cuaca 898100027

cuaca 898100028

cuaca 898100029

cuaca 898100030

cuaca 898100031

cuaca 898100032

cuaca 898100033

cuaca 898100034

cuaca 898100035

cuaca 898100036

cuaca 898100037

cuaca 898100038

cuaca 898100039

cuaca 898100040

article 868000011

article 868000012

article 868000013

article 868000014

article 868000015

article 868000016

article 868000017

article 868000018

article 868000019

article 868000020

article 868100021

article 868100022

article 868100023

article 868100024

article 868100025

article 868100026

article 868100027

article 868100028

article 868100029

article 868100030

article 868100031

article 868100032

article 868100033

article 868100034

article 868100035

article 868100036

article 868100037

article 868100038

article 868100039

article 868100040

article 868100041

article 868100042

article 868100043

article 868100044

article 868100045

article 868100046

article 868100047

article 868100048

article 868100049

article 868100050

article 868100051

article 868100052

article 868100053

article 868100054

article 868100055

article 868100056

article 868100057

article 868100058

article 868100059

article 868100060

article 878000011

article 878000012

article 878000013

article 878000014

article 878000015

article 878000016

article 878000017

article 878000018

article 878000019

article 878000020

article 878800021

article 878800022

article 878800023

article 878800024

article 878800025

article 878800026

article 878800027

article 878800028

article 878800029

article 878800030

article 878800031

article 878800032

article 878800033

article 878800034

article 878800035

article 878800036

article 878800037

article 878800038

article 878800039

article 878800040

article 888000031

article 888000032

article 888000033

article 888000034

article 888000035

article 888000036

article 888000037

article 888000038

article 888000039

article 888000040

article 888000041

article 888000042

article 888000043

article 888000044

article 888000045

article 888000046

article 888000047

article 888000048

article 888000049

article 888000050

article 888000051

article 888000052

article 888000053

article 888000054

article 888000055

article 888000056

article 888000057

article 888000058

article 888000059

article 888000060

article 888000061

article 888000062

article 888000063

article 888000064

article 888000065

article 888000066

article 888000067

article 888000068

article 888000069

article 888000070

article 328000601

article 328000602

article 328000603

article 328000604

article 328000605

article 328000606

article 328000607

article 328000608

article 328000609

article 328000610

article 328000611

article 328000612

article 328000613

article 328000614

article 328000615

article 328000616

article 328000617

article 328000618

article 328000619

article 328000620

article 328000621

article 328000622

article 328000623

article 328000624

article 328000625

article 328000626

article 328000627

article 328000628

article 328000629

article 328000630

article 328000631

article 328000632

article 328000633

article 328000634

article 328000635

article 328000636

article 328000637

article 328000638

article 328000639

article 328000640

article 328000641

article 328000642

article 328000643

article 328000644

article 328000645

article 328000646

article 328000647

article 328000648

article 328000649

article 328000650

article 999990001

article 999990002

article 999990003

article 999990004

article 999990005

article 999990006

article 999990007

article 999990008

article 999990009

article 999990010

article 999990011

article 999990012

article 999990013

article 999990014

article 999990015

article 999990016

article 999990017

article 999990018

article 999990019

article 999990020

news-1701