The Last Jedi – Á milli steins og sleggju

[cs_text]Tvö ár eru liðin frá því að Stjörnustríðs–kvikmyndabálkurinn snéri aftur á sjónarsviðið og geta kvikmyndahúsagestir nú búist við nýrri Stjörnustríðsmynd á hverju ári um ófyrirséða framtíð. Á síðasta ári kom til að mynda út kvikmyndin Vafri einn: Stjörnustríðssaga (Rogue One: A Star Wars Story, Gareth Edwards, 2016) sem er sjálfstætt innlegg sem hefur engu síður beinar tengingar við aðalsagnabálk Stjörnustríðs-heimsins. Myndin hlaut almennt góðar viðtökur og er talin lofa góðu fyrir framtíð sjálfstæðra sagna í Stjörnustríðs-heiminum. Verið er að leggja lokahönd á mynd um rómaða geimsmyglarann Han Solo á sínum yngri árum, og mun sú mynd líta dagsins ljós í sumar. Önnur verkefni eru í kortunum og ætlunin er að flétta útgáfu sjálfstæðra sagna saman við útgáfu aðalmyndanna. Af þessu að dæma er ljóst að Stjörnustríð er komið til að vera og mun setja svip sinn á dægurmenningu komandi ára. Sökum þessa er mikilvægt að taka púlsinn með tilkomu nýrra mynda ef ætlunin er að skilja stöðu og stefnu þessa margmiðlunarrisa sem hefur tröllriðið hugmyndaflugi heimsbyggðarinnar allt frá því að fyrsta myndin kom út árið 1977.

Síðasti væringinn (e. The Last Jedi, 2017), sem hér er til umræðu, tilheyrir aðalsagnabálki Stjörnustríðs-kvikmyndaheimsins og er önnur myndin í þriðja þríleiknum um örlög Geimgengla-fjölskyldunnar og áhrif þeirra á fjarlæga vetrarbraut endur fyrir löngu. Líkt og með aðrar nýlegar Stjörnustríðsmyndir hefur mikil leynd ríkt yfir sögurþræði hennar og samstaða skapast á veraldarvefnum um að skemma myndina ekki fyrir þeim sem eiga eftir að sjá hana. Hér er þó ætlunin að fjalla um myndina og víðara samhengi hennar með beinum hætti. Því er ekki um hefðbundna kvikmyndarýni að ræða (sem aðstoðar óákveðna áhorfendur við að gera upp hug sinn) heldur svokallaða „spillirýni“, þ.e.a.s. greiningu á myndinni sem gerir ráð fyrir því að lesandinn sé búinn að sjá myndina og sé reiðubúinn að hugleiða innihald hennar vafningalaust.

Um er að ræða aðra myndina í fyrsta þríleiknum sem gerður hefur verið eftir að Disney hreppti Stjörnustríð úr heljargreipum skapara síns, leikstjórans George Lucas. Líkt og flestir áhorfendur myndarinnar vita nú þegar er hún beint framhald af Mátturinn glæðist (e. The Force Awakens, 2015), sem var leikstýrt af J.J. Abrams og tekur nýja myndin upp þráðinn þar sem frá var horfið. Rey (Daisy Ridley) hefur fundið Loga Geimgengil (Mark Hamill), niðurkominn á afskektri eyju á fjarlægri plánetu, og stormsveitar-liðhlaupinn Finn (John Boyega) vaknar úr dái eftir að hafa verið sneiddur eftir hryggnum endilöngum í bardaga við Kylo Ren (Adam Driver). Hamingjan er þó skammlíf þar sem Frumreglan (e. The First Order) hefur haft upp á bækistöðvum Andspyrnunnar og gerir allt sem í sínu valdi stendur til þess að kæfa síðasta vonarneistann í vetrarbrautinni. Endurfundir áhorfandans við lifandi goðsögnina Loga Geimgengil eru að sama sinni langt því frá gleðilegir þar sem hann virðist hafa snúið baki við köllun væringjanna og þar með hlutverki sínu í lífinu.

Þegar Mátturinn glæðist kom út var myndin gagnrýnd fyrir frumleikaskort, og var sannarlega innistæða fyrir slíkri gagnrýni þar sem hún endurtók nær einvörðungu kunnugleg stef úr Ný von (George Lucas, 1977), upprunalegu Stjörnustríðsmyndinni. Síðasti væringinn sækir að sama skapi margt í brunn næstu myndar í upprunalega þríleiknum, þ.e.a.s. Veldið hefnir sín (e. The Empire strikes back, Irvin Kershner, 1980). Líkt og þar er Uppreisnin, eða Andspyrnan í þessu tilfelli, á flótta undan hinum illu öflum og á heljarþröm. Í raun mætti segja að söguþráður myndarinnar sé framlenging á bardaganum á snjóplánetunni Hoth. Því er nokkuð táknrænt að lokauppgjörið eigi sér stað á saltplánetunni Crait, sem er að sama skapi hvít og felur þannig í sér augljósar skírskotanir til áðurnefndrar snjóplánetu (það er í rauninni ekki fyrr en einn úr röðum Andspyrnunnar bragðar á snjónum að mismunurinn verður skýr og andspyrnumanninum virðist jafn brugðið og áhorfandanum).

Aðra hliðstæðu er að finna í endurvinnslu á kaflanum í Skýjaborginni (e. Cloud City), þar sem Lando Calrissian (Billy Dee Williams) hélt um valdataumana og reyndist Han Solo (Harrison Ford) og föruneyti ótraustverðugur bandamaður. Að þessu sinni er sögusviðið borgin Canto Bight þar sem Finn og Rose (Kelly Marie Tran) hitta hinn siðferðislega vafasama DJ (Benicio del Toro) sem líkt og Lando bregst trausti söguhetjanna (enn er þó óvíst hvort DJ muni sjá að sér líkt og Lando gerði skömmu eftir samning sinn við Veldið). Auk þessa svipar sambandi Loga og Rey óneitanlega og vísvitandi til sambands Yoda (raddleikinn af Frank Oz) og Loga í Veldið hefnir sín. Að þessu sinni er það hins vegar Logi sem er meistarinn, þó hann sé tregur til að gangast við því hlutverki.

Hvernig leikstjóri Síðasta væringjans, Rian Johnson, kýs að nálgast áðurtaldar hliðstæður er þó með allt öðrum hætti en Abrams gerði tveimur áður árum. Má þar nefna að það sem í fyrstu virtist vera tilvísun (eða endurnýting, eftir því hvernig litið er á málin) í snjóumhverfi Hoth reynist vera saltkenndur jarðvegur, frekar en mjöll. Þar sem Abrams gerði tilraun til þess að blása lífi í glæður fornrar frægðar gerir Johnson allt sem í hans valdi stendur til þess að „leyfa fortíðinni að deyja,“ svo vitnað sé í Kylo Ren í nýju myndinni.

Bæði hvað form og innihald varðar leitast Síðasti væringinn við að slá nýjan tón innan söguheimsins og nýta eldri frásagnarstef á nýstárlegan hátt, eða í öllu falli á nýstárlegri hátt en gert var í Mátturinn glæðist. Áðurnefndur Kylo Ren gerist í þessu sambandi beinlínis talsmaður þess að líta fram á veginn og segja skilið við hið gamla heimsskipulag. Þar sem frásögn Abrams einkennist af blætiskenndri fortíðarþrá, sem er hönnuð til þess að höfða til aðdáenda upprunalega þríleiksins á sama tíma og hún afneitar forleiknum – en þar er átt við þær þrjár myndir sem George Lucas leikstýrði sjálfur löngu eftir að upprunalegi þríleikurinn var gerður, en vindur samt fram fyrr í innra tímatali söguheimsins – horfir Johnson fram á veginn og er óhræddur við að bregðast væntingum á sama tíma og hann skapar nýjar.

Í Mátturinn glæðist lagði Abrams töluvert púður í að skapa eftirvæntingu eftir fleiri myndum í röðinni, og kveikja umræður meðal aðdáenda um það hvert sagan kynni að fara með framhaldsmyndunum. Til að búa til slíka spennu skapar leiskstjórinn óvissu um fjölmörg atriði í söguþræðinum og leggur fram spurningar sem ekki er svarað í myndinni. Þessi frásagnaraðferð getur talist óhefðbundin fyrir Stjörnustríðsmyndir, þó hún sé vel þekkt í framhaldsþáttum og bókum. Stjörnustríðsmyndirnar sem George Lucas skapaði eða hafði yfirumsjón með miðluðu upplýsingum um söguheiminn og framvinduna með beinskeyttum og einföldum hætti. Faðerni Loga Geimgengils kom óneitanlega mörgum í opna skjöldu en ólíkt Abrams hafði Lucas ekki flaggað því sem leyndardómi heldur skaut þessari tilteknu fléttuvendingu niður sem þrumu úr heiðskýru lofti. Þetta sápuóperuminni festi í sessi ákveðna melódramatík sem hefur síðan fylgt þessari geimfjölskyldusögu. Melódramatíska faðernisforsagan er kannski það sem öðru fremur hefur fóðrað elda sögusagna og vangaveltna um leyndarmálið umhverfis foreldra Rey, en þessari gátu hefur verið haldið framan við nef áhorfandenda eins og gulrót allt frá því að mynd Abrams leit dagsins ljós. Abrams telfdi einnig fram persónunni Snoke (Andy Serkis) sem komst til valda á óútskýrðann hátt og hefur mikil leynd ríkt yfir uppruna hans. Til þess að bæta gráu ofan á svart endar Mátturinn glæðist í lausu lofti þar sem Rey og áhorfendur bíða eftir því að sjá langþráð viðbrögð Loga við komu hennar til hans á eyjuna.

Johnson er duglegur að grafa undan þeirri vinnu sem Abrams lagði upp með hvað varðar gildi og mikilvægi slíkra leyndardóma. Spurningum sem höfðu brunnið á aðdáendum í heil tvö ár er sópað óvarfærnislega til hliðar eins og þær hafi aldrei skipt máli til að byrja með. Viðbrögð Loga eru í raun táknræn fyrir nálgun Johnson þar sem hann kastar geislasverðinu kæruleysislega fram af bjargsbrúninni án þess að virða Rey viðlits snemma í nýju myndinni. Snoke er skyndilega drepinn án þess að áhorfandinn fái að vita neitt bitastætt um fortíð hans og Kylo Ren segir að foreldrar Rey komi sögunni í raun ekkert við. Þá mölvar Kylo Ren grímuna sem var hönnuð til þess að líkja eftir Svarthöfða og áfram mætti telja hvernig Johnson kýs að afbyggja kvikmynd Abrams. Ávítunum Snokes þess efnis að Kylo Ren sé í raun ekkert nema aum eftirherma mætti jafnvel beina að þeirri fortíðarhyggju sem nálgun Abrams gerist sek um. Með Síðasta væringjanum afneitar Johnson óþarfa leyndardómabrölti og fortíðardýrkun fyrirrenna síns og er myndin betri fyrir vikið.

Þó væri erfitt að saka Johnson um vanvirðingu fyrir gervöllum sagnabálkinum þar sem myndin er bersýnilega unnin með miklum skilningi á fyrri Stjörnustríðsmyndum. Þó djarfar ákvarðanir Johnson séu ekki líklegar til þess að friðþægja aðdáendahópinn í heild sinni fer ekki á milli mála að þær eiga rætur sínar í markvissri túlkun á sögunni. Nýstárleg túlkun Johnsons varð þó til þess að hann lenti í útistöðum við Mark Hamill, leikarann sem hefur leikið Loga Geimgengil frá upphafi, þar sem þeim kom ekki saman um sýn á persónuna. Hinn niðurbrotni Logi sem gerðist vís til þess að myrða hinn unga Ben Solo í svefni virtist vera í beinni andstöðu við Loga sem hafði tekist að snúa Svarthöfða frá myrku hlið máttarins með óbiljandi trú á hið góða í öllum. Þegar betur er að gáð liggja rætur þessarar túlkunar þó dýpra, nánar tiltekið í forleikinn „ógurlega“, og sækja í væringjareglunna og það dramb sem getur fylgt eignarhaldi yfir mættinum. Væringjareglan, sem lútir í öllu hinni ljósu hlið máttarins, hefur sögulega séð fordæmt hið myrka mótjafnvægi og þegar Logi skyggnist inn í sálarlíf systursonar síns sér hann nógu mikið af myrkri til þess að bregðast eigin sannfæringu um stundarsakir. Þessi beintenging við forleikinn kristallast í því þegar Logi fordæmir væringjana fyrir að hafa verið blindir gagnvart „Darth Sidious“, þar sem hann laumaði sér í æðstu stöður Lýðveldisins og holaði það að innan til þess að leggja grunninn að veldi sínu.

Það að Darth Sidious sé nefndur á nafn er merkilegt í ljósi þess sem á undan hefur gengið þar sem hann tilheyrir forleiknum. Forleikur Lucasar hefur almennt séð verið harðlega gagnrýndur og myndirnar almennt ekki taldar upp á marga fiska (fyrir tveim árum færði ég þó rök fyrir því hér á Hugrás að forleikurinn væri að svö stöddu betri en mynd Abrams). Mynd Abrams forðaðist forleikinn eins og heitan eldinn en Johnson nýtir tækifærið til uppgjörs við það sem hefur komið á undan og gerir forleiks–myndirnar þar með afturvirkt betri ásamt því að eigna þessu nýjasta innleggi ákveðið kennivald. Með því að afneita forleiknum gerir Abrams tilraun til þess að endurskrifa fortíðina á sama tíma og hann lofsyngur sína útgáfu af henni. Johnson virðist hins vegar eiga í heilbrigðara sambandi við fortíðina sem er lofsvert í sjálfu sér sama hvað fólki gæti finnst um stefnuna sem hefur verið tekin.

Hvað varðar myndina sem hluta af þríleik er þó spurning hvort þessi djarfa sýn Johnsons eigi eftir að fá að njóta sín til hlýtar þar sem nú liggur fyrir að Abrams sjálfur muni leikstýra þriðju myndinni. Abrams gæti því allt eins dregið í land og kosið að ljúka verkinu sem hann hóf með Mátturinn glæðist frekar heldur en að taka mið af Síðasta væringjanum. Myndin er því að vissu leyti á milli steins og sleggju þar sem geld sýn Abrams er vís til þess að þjarma að henni úr báðum áttum með innihaldslausu leynimakki og friðþægingu ímyndaðra aðdáenda með því að endurskapa aðeins fortíðina frekar en að byggja á henni. Johnson hefur þó lagt sitt af mörkunum til að setja slíkar fyrirætlanir – séu þær eða verði þær fyrir hendi – rækilega útaf sporinu þar sem Síðasti væringinn fjarlægir sig markvisst frá upprunalega sagnabálkinum með því að fara sínar eigin leiðir.

Mynd Johnsons er þó alls ekki gallalaus og er mikið af mjög alvarlegum vandamálum, sérstaklega hvað varða flæði myndarinnar og ýmsa veika söguþætti sem rýra sennileika frásagnarinnar. Heimsókn Finns og Rose í spilavítið á Canto Bight var til að mynda fullmikill útidúr, þrátt fyrir að vera áhugaverð tilraun til þess að taka afstöðu til dýraníðs og gróðahyggju í stríði. Ákvörðun Holdo (Laura Dern) um að halda nauðsynlegum upplýsingum frá Poe (Oscar Isaac), sem verður til þess að hann stofnar til uppreisnar í trú um að hann sé eina von Andspyrnunnar, er að sama sinni vanhugsuð. Í fyrstu er gefið til kynna að ástæðan fyrir því að Holdo heldur upplýsingum frá Poe sé að hún hafi ekki trú á honum. Í síðustu samskiptum sínum við Lilju hershöfðingja kemur þó fram að Holdo hafi í raun miklar mætur á Poe og grafa slík ummæli undan upprunalegri afstöðu hennar til hans.

Hlutverk Holdo hefði í raun átt að vera tekið yfir af Ackbar flotaforingja (sem dó úr mynd, aðstandendum myndarinnar til ævarandi skammar). Ackbar hefði getað neitað Poe um upplýsingar á grundvelli þess að vera fyrir löngu búinn að fá nóg af hvatvísinni í honum. Ackbar er þar að auki persóna sem Stjörnustríðsaðdáendur þekkja nú þegar og hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Ef Ackbar hefði verið við stjórnvölinn í einu tilþrifamesta atriði myndarinnar, þar sem Holdo fórnar sjálfri sér með því að fljúga á ljóshraða í gegnum flaggskip Frumreglunnar, hefði missirinn óneitanlega verið enn áþreyfanlegri þar sem þar með hefði verið að kveðja ástkæra persónu með viðeigandi hætti. Það er þó ef til vill ákveðin óskhyggja að gera kröfur um að slíkar tilfæringar og einkennist óánægja margra aðdáenda án efa af því að þeir hafi ekki fengið myndina sem þeir voru búnir að óska sér.

Hugmyndin um ljóshraða sem vopn hefur þó ýmis vandamál í för með sér, sama hversu tilþrifamikið sjónarspil slík árás getur reynst. Þetta útspil varpar nefnilega fram spurningunni hvers vegna þessu herbragði sé ekki beitt í meiri mæli, jafnvel með ómönnuðum geimskipum. Hlutverk máttarins virðist að sama sinni halda áfram að taka breytingum þar sem við sjáum Lilju fljúga til baka í skipið sitt eftir að hafa sogast út í geim og Rey tekur framförum í beitingu máttarins á methraða þó þjálfun hennar sé svo góð sem engin. Vitaskuld gæti hlutverk og virkni máttarins verið að breytast en þegar Logi var í sporum Rey þurfti hann að hafa sig allan við til þess að mynda tengsl við máttinn. Þetta þarf ekki endilega að vera vandamál en að svo stöddu hafa þessi fyrirbæri ekki verið útskýrð á fullnægjandi hátt og því ekki nema von að áhorfendur viti ekki alveg hvar þeir standa gagnvart þessum breytingum.

Þrátt fyrir þá ágalla sem hér hafa verið nefndir er Síðasti væringinn mjög áhrifamikil Stjörnustríðsmynd sem markar sér ákveðna sérstöðu þvert á myndina sem hún fylgir eftir og kveður hér við þann tón sem hefði átt að slá strax í upphafi með nýja þríleiknum. Hvort Síðasti væringinn fái að njóta sín sem hluti af heildstæðum þríleik er þó óvíst og kemur ekki í ljós fyrr en síðasta myndin í þríleiknum er frágengin og Abrams hefur haft sitt að segja um túlkun Johnsons á þessu sameiginlega verkefni þeirra.[/cs_text]

Um höfundinn
Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl er með BA-gráðu í Japönsku máli og menningu og MA-gráðu í almennri bókmenntafræði. Hann stundar nú nám í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701