Salka í fortíð og nútíð

[cs_text]
Yana Ross setti upp eftirminnilega og bráðskemmtilega sýningu á Mávinum eftir Anton Chekhov í Borgarleikhúsinu í fyrra. Í þetta sinn er annar mávur á dagskrá, „Fuglinn í fjörunni“ heitir seinna bindið af Sölku Völku Halldórs Laxness.
Sýningin á Sölku er miklu róttækari uppskurður á eldra verkinu en sýningin á Mávinum var, enda aðlögun á skáldsögu fyrir svið.

Margar sögur í marg-miðlun

Fyrir leikgerð verksins skrifast þær Yana Ross og Salka Guðmundsdóttir, leikskáld Borgarleikhússins. Sýningin er þríþætt. Í fyrsta lagi eru leikin atriði úr sögunni og sögumaður les brot úr Sölku Völku Halldórs Laxness sem ramma inn atriðin og leyfa rödd Halldórs að hljóma. Í öðru lagi eru innskot þar sem leikarar ræða um Laxness, verk hans og sýninguna. Í þriðja lagi er eins konar rammafrásögn um sýninguna  þar sem kvikmyndagerðarkona sem kallast Halla er að gera kvikmynd um Sölku Völku með leikurum og tæknimönnum. Tökumenn á hennar vegum eru oftast á sviðinu og völdum senum er varpað á vegg Bogesen- hússins ásamt nokkrum ljósmyndum frá gamalli tíð. Umræður leikaranna eru raunar hluti af því efni sem á að vera tekið upp á staðnum. Myndavélinni er líka beint að áhorfendum og talað til þeirra svo fjórði veggurinn er rofinn. Sýningin er þannig svolítið flókin en leikmynd Micheƚ Korchowiec býr til rými fyrir allt þetta.

hugras-salka-valka_3

Leikmyndin er þrískipt – í stóra villu Bogesen kaupmanns fyrir miðju sviði, sem jafnframt er aðsetur kvikmyndagerðarmanna og hótel fyrir túristahópa, í hljóðver fyrir sögumann og  loks opið rými sem sýnir gám eins og vera ber í sjávarþorpum, kirkjugarð, bekki sem gegna ýmiss konar hlutverkum og nokkra gamla húsmuni. Leikmyndin er kuldaleg og hrá en vinnur á þegar frá líður. Yfir þessum opna hlut rýmisins gnæfir mikil stálgrind sem erfitt er að ráða í eins og annað í leikmyndinni, gagnrýnendur eru ekki sammála um hvað sé hvað, hver eigi húsin og hvort grindin mikla hafi vísun til Leifsstöðvar og vísun til kvikmyndavers eða skemmu.

Stóra húsið tekur mikið til sín í sviðsmyndinni en framhlið þess er jafnframt notað eins og tjald fyrir myndbönd og ljósmyndir sem varpað er á það.  Ansi mikið er í lagt þegar sett er stórt hljóðver utan um Guðna Kolbeinsson sem les nokkur textabrot Halldórs Laxness, fallega eins og hans er von og vísa.

hugras-salka-valka_2

Lokuðu rýmin í sýningunni, villa Bogesen, hljóðverið og gámurinn, eru opnuð að vissu leyti með því að myndavélarfólkið eltir persónurnar inn í húsið og „streymir myndum“ þaðan á vegginn í Bogesen húsinu, röngunni er þannig snúið út, ef svo mætti að orði komast. Myndbandshönnuður var Algirdas Gradauskas. Notkun myndbanda og myndavéla á staðnum skapaði mikla möguleika og var mjög áhugaverð en blöndun þessara listforma getur verið ágeng og er vandmeðfarin.

Salka Valka og Sigurlína

Salka Valka er ein af elskuðustu bókum Halldórs Laxness og mjög margir áhorfendur hafa lesið hana, í skóla eða seinna, og séð fyrri leikgerðir. Um hana hefur verið deilt og hún túlkuð margvíslega. Það er erfitt að átta sig á því hvaða mynd þeir áhorfendur sem ekki hafa lesið bókina fá af þessari sýningu.

Persóna Sölku Völku ber söguna uppi. Hún er afar flókin og samsett manneskja, óvelkomið stúlkubarn fátækrar móður. Hún verður í sögunni fórnarlamb barnagirndar stjúpföður síns, Steinþórs, og flækist inn í samband hans og móðurinnar á herfilegasta hátt. Það skapar mikla reiði og átök í persónunni sem Halldór lýsir af mikilli næmi. Girnd karla til hálfvaxinna stúlkubarna er raunar endurtekið þema í verkum Halldórs Laxness, mikilvægt í Sjálfstæðu fólki, Ljósvíkingnum, Paradísarheimt og Brekkukotsannál.

hugras-salka-valka-4

Samband þeirra Sigurlínu og Sölku er ein sterkasta lýsing íslenskra bókmennta á sambandi móður og dóttur. Steinþór tekur dótturina fram yfir móðurina, gerir hana að ást-konu sinni og ábyrgðinni á sorg og að lokum dauða móðurinnar er velt yfir á barnið. Þetta er myndrænt í leiksýningunni í afar fallegum þætti barnsins sem leikið var af Auði Aradóttur. Hún birtist okkur fyrst í barnslegum kjól eða serk, en næst við sjórekið lík Sigurlínu þar sem hún klæðir sig í sjóblautan kjól móðurinnar og tekur þannig á sig dauða hennar og hlutverk. Í síðasta sinn sem barnið birtist, undir lokin, er hún klædd í fornlegan svartan kjól sem gæti verið stúlkukjóll frá 18. öld. Búningarnir upphefja þannig tímann og sýna að fórnarlömb sifjaspella og misnotkunar eru tímalaus. Það er Filippía Elísdóttir sem gerir búningana og þetta er eitt af mörgum fínum smáatriðum í sýningunni sem vert er að gefa gaum.

[pullquote]Það er Filippía Elísdóttir sem gerir búningana og þetta er eitt af mörgum fínum smáatriðum í sýningunni sem vert er að gefa gaum.[/pullquote]Það er ekki auðvelt fyrir hina ungu leikkonu Þuríði Blæ Jóhannsdóttur að leika Sölku þegar svo mikið vantar af undirbyggingu persónunnar úr skáldsögunni og ekki heldur þá reyndu og flínku leikkonu Halldóru Geirharðsdóttur að leika Sigurlínu því að dýptina í hana vantar líka, ris hennar og fall í bókinni er nefnilega ekki bara persónulegt og bundið Steinþóri heldur einnig félagslegt og trúarlegt og því verður sjálfsmorðið enn harmrænna í bókinni.  Það eru að vísu ýmsar speglanir milli Sigurlínu og hinnar vel lukkuðu og glæsilegu kvikmyndagerðarkonu Höllu sem Halldóra leikur líka, vandræðagangur með sjálfstraust, karlamál og fleira.

Steinþór

Endurtekin svik Sigurlínu við Sölku verða til þess að hún hafnar kynferði sínu sem stelpa og neitar að klæða sig í annað en karlmannsföt. Sjúk athygli Steinþórs gerir síðar sambönd hennar við karlmenn mjög erfið og kynlíf nánast ómögulegt framan af sambandi þeirra Arnalds. Í sýningunni er hún hins vegar klædd í kvenleg pils og kjóla og víðar er skapað misræmi milli þess sem sagt er í texta Halldórs og þess sem er gert á sviðinu. Tilgangurinn er mér hulinn. Hið stríða  samband mæðgnanna, Sigurlínu og Sölku er undirskipað ástar- og haturssambandi Sölku og Steinþórs. Það er aftur vel unnið og sýnt hvernig hann merkir sér hana barnunga og bindur hana við sig að eilífu, táknað á sviðinu með böndum og leikjum, fuglafit, teygjutvisti og öðrum hæpnari og langsóttari leikjum með beisli og svipur.

Hilmir Snær var áhugaverður Steinþór, sjálfumglaður ruddi, haldinn af sinni óleyfilegu þrá. Fátt í texta Halldórs hefur staðist tímans tönn eins illa og einræðurnar sem hann leggur Steinþóri í munn og ekki sakna ég þeirra í þessari sýningu. Þó texti Steinþórs væri skorinn niður við trog tókst Hilmi Snæ að gera Steinþór að þeirri orkumiðju sem þær mæðgurnar snúast kringum.

Andstæða hans var Jukki sem Halldór Gylfason gerði afar sannfærandi í vonbrigðum sínum og hallærisgangi.

hugras-salka-valka-5

Þorpið

Þorpið Óseyri við Axlarfjörð er næst á eftir Sölku meginpersóna í verki Halldórs Laxness. Lýst er fátæklingum á kreppuárunum sem þræla linnulaust fyrir útgerðarmanninn og hafa svo lág laun að fólk sveltur og börnin deyja. Þetta samfélag er fámennt og kyrrstætt í fyrri hluta sýningarinnar. Athyglin beinist öll að ástarþríhyrningi Sölku litlu, Steinþórs og Sigurlínu sem voru oft jafnframt í nærmynd á stóra skjánum á meðan hinir leikararnir sátu á bekkjum til hliðar og í bakgrunni.  Kvikmyndavinnslan, sem fram átti að fara samtíma sviðsvinnslunni, var hugmyndarík, frumleg og oft skemmtileg eins og þegar hið fræga byltingarmálverk Delacroix: Frelsið leiðir þjóðina (1830) er endurskapað á sviðinu af leikarahópnum og varð virkt í sýningunni, sú sena varð morðfyndin.

salka-valka-frelsid-leidir-thjodina

Salka og Arnaldur eru einna verst settu börnin í þessu þorpi  og eina leiðin sem Salka kann til að berjast til sigurs er að breytast í Bogesen, kaupa hlut í bát, stofna stéttarfélag og verða útgerðarmaður. Það gerir hún en notar til þess peninga Steinþórs sem getur hvenær sem er kippt til sín kapítalinu og gerir það að lokum til að kúga hana. Salka missir allt, skiptir um pólitíska skoðun og segir „hef ég kannski ekki leyfi til að vera skynsamari en í fyrra“ og við vitum að byltingarandinn er betur kominn hjá henni en Arnaldi þegar hún kveður hann af ást sinni, í bókarlok.

Hvernig hún birtist í lokahluta sýningarinnar í buxnadrakt og á pinnahælum, orðin innsti koppur í búri í nýju fjármálafyrirtæki í eigu Steinþórs og fleiri klækjarefa, er væntanlega hluti af sögn sýningarinnar um að spillingin vinni sitt verk og allt sé falt fyrir peninga – ef ég hef skilið hina hröðu atburðarás undir lokin rétt. Niðurstaða sýningarinnar er þá sú að aðeins þannig komi Salka standandi niður í samtímanum. Eða hvað?

Hlutverk Arnaldar í leikgerð og sýningu varð mjög óskýrt. Hann verður flagari og hentistefnumaður, allt sem lætur Sölku elska hann í skáldsögunni er horfið en sýningin setur ekkert í staðinn. Hilmar Guðjónsson átti erfitt með að gera persónuna áhugaverða framan af en náði vopnum sínum í lokin og nærmyndin af síðasta ástarfundi þeirra Sölku sýndi okkur sterkan og áhrifamikinn leik þessara ungliða í rústunum af æskuástinni.

Að lokum
[pullquote]Það var margt fallegt í þessari sýningu, í leik, hugmyndum og úrvinnslu. Hún er skemmtileg en gerir alltof margt í senn, fókus hennar dreifist og verður yfirborðslegur.[/pullquote]Það var margt fallegt í þessari sýningu, í leik, hugmyndum og úrvinnslu. Hún er skemmtileg en gerir alltof margt í senn, fókus hennar dreifist og verður yfirborðslegur. Ég vil undirstrika að ósætti mitt við leikgerðina þýðir ekki að ég hefði viljað sjá raunsæilega, epíska leikgerð á Sölku Völku fjórða áratugarins og ég er ekki að biðja um melódramatískt „tilfinningaklám“. Þó ég hafi lagt fram minn skilning á því hver séu aðalatriði Sölku Völku hefði ég haldið þeim fyrir mig ef mér fyndist sýningin hafa teflt fram magnaðri  mótmynd við verkið. Þegar leikhúsið velur jafn sterkt bókmenntaverk og þessa sögu Halldórs Laxness og færir það yfir í nýjan miðil eða nýja miðla er það ljóst að það verður að „beita verkið ofbeldi“ eins og bandaríski leikstjórinn John Collins orðar það. Ef það er ekki gert af fyrirlitningu heldur virðingu fyrir stærð gamla verksins reynir leikhúsið að búa til sitt eigið verk, verk sem vinnur úr því stórkostlega í gamla verkinu og endurskapar það í nýrri sýningu sem talar við gamla verkið yfir gjá tímans.

Ljósmyndir: Grímur Bjarnason[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701