Tregablær í Hestvík

[cs_text]
Gerður Kristný
Hestvík
Mál og menning, 2016
Í Hestvík segir frá mæðginunum Elínu og Dóra sem leggja upp í hversdagslega ferð í sumarbústað í Grafningi. Í upphafi birtist mjög hefðbundin mynd úr bíl, 12 ára drengur situr aftur í sem hefur áhyggjur af því að hafa ekkert að gera í bústað þar sem er ekki sjónvarp og engin tölva en móðir hans lætur hugann reika aftur til æskudaga í þessum sama bústað. Á leiðinni keyra þau reyndar fram hjá rútuslysi en svo virðist sem það hafi ekki sérstök áhrif á ferð þeirra. Frásögnin í upphafi er þess eðlis að hún gæti hvort heldur gefið fyrirheit um rólega og fallega sögu af mæðginum, sem njóta náttúrunnar og gleyma nútímatækni um sinn í fallegu umhverfi síðsumars, eða verið lágstemmd byrjun á einhverju stærra og verra. Þeir sem þekkja form spennusögunnar eða jafnvel hryllingsmynda verða ef til vill varir um sig. Eitthvað er yfirvofandi.

Höfundi tekst að vekja þá tilfinningu smám saman að ef til vill kraumi meira undir yfirborðinu en lágstemmdur textinn gefur til kynna …
Gerður Kristný hefur undafarin ár helgað sig sérstaklega öðrum bókmenntaformum en skáldsögunni, skrifað fjölda vinsælla barnabóka og er auk þess meðal fremstu ljóðskálda landsins en hér kemur þriðja skáldsaga hennar fyrir fullorðna. Þessi nýjasta bók Gerðar er ekki löng, um 160 síður, en rúmar mun stærri sögu en blaðsíðurnar gefa til kynna. Stíllinn er fallegur og meitlaður; einkenni ljóða Gerðar þar sem margt er sagt í fáum orðum birtast vel í skáldsögunni. Bókin er fljótlesin en ekki aðeins vegna þess að hún er stutt heldur ekki síður vegna þess að það er erfitt að leggja hana frá sér. Það er ekki auðvelt að skýra hvers vegna sagan heldur manni föstum því að atburðarásin er ekki hröð eða drifin áfram af æsispennandi sögufléttu og í raun gerist ekki mikið fyrr en undir lokin. Hins vegar tekst höfundi að vekja þá tilfinningu smám saman að ef til vill kraumi meira undir yfirborðinu en lágstemmdur textinn gefur til kynna, eins og raunin verður – þó að risið verði kannski ekki jafn hátt og beðið var eftir. Ýmis snjöll tákn og bendingar, jafnvel fyrirboðar, vísa fram í tímann og leiða að lokapunkti en það er erfitt að fjalla nánar um þennan þátt án þess að spilla fyrir lesendum og verður það því látið vera hér.

Sagan er sögð frá sjónarhorni Elínar og frásögnin er fleyguð með minningum úr lífi hennar á ýmsum tíma. Bústaðurinn tilheyrði fjölskyldu hennar og þegar þangað er komið birtast lesendum litlar myndir úr æsku, frá því að hún kom með foreldrum sínum þangað á sumrin. Minningarnar eru fallegar en um leið tregafullar; öðrum þræði lýsa þær góðum stundum Elínar og foreldra hennar sem heimsóttu bústaðinn títt yfir sumartímann og nutu góðra stunda í einni helstu náttúruperlu Íslands. Æskuminningar Elínar eru um margt hefðbundnar og margir kannast við slíkar minningar. Alltaf var gott veður á sumrin; berin voru ómótstæðileg og ísbíltúrinn spennandi. Mamma var glöð og pabbi dyttaði að bátnum. Um leið eru þessar minningar fullar fortíðarþrár, eða ef til vill lýsa þær fremur söknuði eftir öðrum og hamingjuríkari tíma þó að aldrei verði að fullu ljóst hvers vegna nútíðin er Elínu svo erfið. Þá blandast saman nýlegri og ljúfsárari minningar sem gefa skýrari mynd af lífshlaupi Elínar. Tíð skipti milli fortíðar og nútíðar eru ótrúlega áreynslulaus og þannig úr garði gerð að flæði textans er hnökralaust og ruglar lesanda ekki í ríminu. Minningarnar falla þannig alveg óþvingað að framvindunni.

Í þessu er galdur bókarinnar fólginn, höfundur nær fram þessum áhrifum með listilega hófstilltum texta sem rennur mjúklega en skilur mikið eftir sig.
Inn í frásögnina fléttast nokkrar utanaðkomandi persónur sem eru misjafnlega kunnugar aðalpersónunni; sumar alveg ókunnugar. Persónusköpunin er í heild vel heppnuð og verður sérstaklega að nefna börn og ungmenni, bæði í nútíð og fortíð sem spretta upp úr sögunni eins og fullsköpuð og gefa sögunni aðra vídd. Tvíburarnir á næsta bæ minna á ótuktir úr barnabókum og eru einkennilega áhugaverðir en um leið óviðkunnanlegir. Í næsta bústað eru síðan tvö pör sem birtast eins og fullkomnar andstæður við Elínu og bústaðinn hennar. Bústaðurinn er í eigu fyrrverandi bekkjarfélaga hennar sem hún hafði ekki séð síðan í skóla. Sá bústaður er nýtískulegur og stór, með „álmum“ – ólíkt bústað foreldra hennar sem er pínulítill og farinn að láta á sjá, hefur raunar verið óbreyttur frá því að hún var barn. Bekkjarbróðirinn og kona hans virðast ekki öll þar sem þau eru séð og hjónin sem eru í heimsókn í næsta bústað eru týpur sem flestir kannast við, yfirborðsleg með efnishyggju að leiðarljósi. Ef til vill hefði mátt skerpa aðeins samskipti þessara para og Elínar en ljóst er að hún á litla samleið með þeim.

Sem fyrr segir eykst sú tilfinning smám saman að sagan leyni á sér og má líkja henni við vatn í potti sem tekur lengi að ná upp suðu. Í síðasta þriðjungi sögunnar verður hún nánast andhverfa við upphafið. Hin hversdagslega bílferð síðsumars snýst upp í harmrænan óhugnað sem er þó svo fínlega ofinn að hann verður aldrei líkamlegur eða gróteskur heldur verkar aðeins á hugsunina. Í þessu er galdur bókarinnar fólginn, höfundur nær fram þessum áhrifum með listilega hófstilltum texta sem rennur mjúklega en skilur mikið eftir sig. Nokkrum dögum eftir lestur virðist sögunni takast að hafa áfram áhrif, hugurinn reikar til mæðginanna í bústaðnum, náttúrufegurðarinnar við Þingvallavatn og myrkursins sem verður ekki flúið þegar sumri hallar.[/cs_text]

Um höfundinn
Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir er doktor í íslenskum bókmenntum og stundakennari við Íslensku‐ og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er íslenskar miðaldabókmenntir. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701