Kirkjugrið í Laugarnesi

[cs_text]
Að undanförnu hefur handtaka tveggja írakskra hælisleitenda í Laugarneskirkju í Reykjavík aðfararnótt 28. júní s.l. verið mikið til umræðu í fjölmiðlum en þó einkum netheimum. Eðlilegt er að fólki sé nokkuð niðri fyrir. Atvikið var sérstætt. Líklega þarf að leita rúm 450 ár aftur í tímann til að finna hliðstæðu, þ.e. að aðþrengdir menn leiti hælis í kirkju hér á landi og séu fjarlægðir þaðan með valdi.

Þar sem ég var viðstaddur atburðinn þykir mér við hæfi að varpa ljósi á það sem fram fór frá mínu sjónarhorni séð. Ég kom á hinn bóginn ekki að neinni ákvarðanatöku og átti enga hlutdeild í að skipuleggja atburðinn. Ekki er því í mínum verkahring að verja aðgerðirnar eða að tjá afstöðu þeirra sem frumkvæði höfðu. Það er að sjálfsögðu heldur ekki mitt hlutverk að miðla formlegri afstöðu Þjóðkirkjunnar til aðgerðanna ef slík afstaða liggur þá fyrir.

Táknrænt andóf

Ýmsir sem hafa tjáð sig af hve mestum sannfæringarkrafti hafa staðhæft að með aðgerðunum hafi lögum og reglu í landinu verið sagt stríð á hendur, að störf lögreglu hafi verið hindruð og fólk jafnvel gerst brotlegt gegn valdstjórninni. Frá mínum bæjardyrum séð er óravegur frá að svo hafi verið.

Öll mótmæli sem þannig fara fram eru táknræn og í þessu tilviki var beitt kirkjulegu táknmáli sem áður fyrr átti sér lagastoð og hefur notið virðingar og skilnings víða allt til þessa.
Mér er kunnugt um að lögreglunni hafði verið tilkynnt um hvar hælisleitendurnir yrðu staddir þegar til stóð að flytja þá úr landi. Þá varð ég vitni að því að gengið var nákvæmlega úr skugga um hvort skilaboð þess efnis hefðu ekki náð alla leið, kirkjudyrnar stóðu opnar, ljós var í kirkjunni og engin tilraun var gerð til að leyna hvar fólk væri að finna. Þá reyndi enginn úr hópi mótmælenda að standa í vegi fyrir eða tefja aðgerðir lögreglunnar. Aðeins fór fram stutt lágstemmt samtal milli sóknarprestsins og þess er stjórnaði lögregluaðgerðunum. Ekki heyrðust orðaskil en samræðurnar virtust á vinsamlegum nótum.

Öll mótmæli sem þannig fara fram eru táknræn og í þessu tilviki var beitt kirkjulegu táknmáli sem áður fyrr átti sér lagastoð og hefur notið virðingar og skilnings víða allt til þessa. Í Laugarneskirkju áttu sér því stað táknræn mótmæli eða andóf en ekkert umfram það.

Við erum nefnilega mörg sannfærð um að þeir hljóti ekki ávallt réttláta málsmeðferð hvorki hér á landi né annars staðar í Evrópu.
Það tákn sem beitt var eru svokölluð kirkjugrið. Áður fyrr giltu um þau nákvæmur lagarammi en þá var markmið þeirra að stuðla að því að fólk fengi réttláta málsmeðferð fyrir dómi eða á annan hátt af hálfu yfirvalda. Kirkjugriðin eru því beitt tákn þegar flóttamenn og hælisleitendur eiga í hlut. — Við erum nefnilega mörg sannfærð um að þeir hljóti ekki ávallt réttláta málsmeðferð hvorki hér á landi né annars staðar í Evrópu.

Mörg dæmi eru um það frá nálægum löndum að kirkjugriðum sé beitt á allt annan hátt. Hælisleitendur hafa t.a.m. verið faldir í byggingum kirkjunnar, starfsmenn hennar hafa neitað að framselja þá fyrr en mál þeirra hafa verið tekin fyrir og hafnað samstarfi við lögreglu og yfirvöld. Þegar þannig er staðið að málum er ljóst að um borgaralega óhlýðni er að ræða og hún lýtur allt öðrum „lögmálum“ en táknrænt andóf.

Í umræðunni hefur nokkuð borið á að menn séu ekki læsir á táknrænt atferli og skilji atburðinn í Laugarneskirkju á einhvern allt annan máta en til var stofnað. Þannig hafa t.a.m. mektarmenn í samfélaginu, sem væntanlega vilja láta taka mark á sér, spurt hvort Þjóðkirkjan og prestar hennar ætli að segja lögum og reglu í samfélaginu stríð á hendur sem og hvort Laugarneskirkja og jafnvel aðrar kirkjur verði í framhaldinu griðarstaðir nauðgara og glæpamanna.

Ummæli af þessu tagi eru þvaður sem ekki er svaravert. Það er þó ekki ástæða til annars en að ætla að þeir sem þannig tjá sig geri það gegn betri vitund. Það er svo umhugsunarvert að menn jafnvel í opinberum stöðum skuli leggjast svona lágt í jafn alvarlegri umræðu og flóttamannamálin eru.

Hér má sjá myndband Stundarinnar af atburðinum. Myndband: Þorgeir Helgason

Gerðu mótmælin lítið úr lögreglunni?

Í umræðunni hafa ýmsir bent á að með táknrænum mótmælum sínum hafi kirkjunnar fólk gert lítið úr lögreglumönnunum sem sendir voru í aðgerðirnar og jafnvel stuðlað að því að þeir hafi verið sýndir í fasísku ljósi.

Það er gott að þessi rödd komi fram. Það er allt of sjaldgæft að hugað sé að stöðu og líðan þeirra sem ætlað er að framkvæma misgrundaðar ákvarðanir yfirboðara sinna. Þeir sem ákvarðanirnar taka koma aftur á móti sjaldan fram í mynd og þá við fullkomlega öruggar aðstæður. Þær eru á hinn bóginn ekki alltaf til staðar við lögregluaðgerðir. Aðstæður í Laugarneskirkju um nóttina virtust þó fullkomlega öruggar og undir stjórn. Ég skal þó ekki draga í efa að lögreglumönnunum hafi þótt óþægilegt að þurfa að fjarlægja hælisleitendurna úr kirkjuhúsinu.

Mynd fengin að láni af facebook síðunni "Ekki fleiri brottvísanir".
Mynd fengin að láni af facebook síðunni “Ekki fleiri brottvísanir“.
Í mótmælum liggur hin raunverulega átakalína ekki milli lögreglumanna og þeirra sem að mótmælunum standa.
Í mótmælum liggur hin raunverulega átakalína ekki milli lögreglumanna og þeirra sem að mótmælunum standa. Hér á landi ríkir oftast fullkominn skilningur milli þessara hópa og þannig hygg ég raunar að staðan hafi verið í Laugarneskirkju. Mótmæli beinast alltaf að „æðri“ aðilum en lögreglunni. Ef svo er ekki hafa mótmæli þróast yfir í óeirðir. Sem betur fer kemur sjaldan til þeirra hér og ekki áttu óeirðir sér stað í Laugarneskirkju. Þar beindust mótmælin gegn stjórnvöldum, ekki síst Útlendingastofnun, málsmeðferð hennar og verklagi.

Þeir sem telja að lögreglumennirnir hafi verið settir í erfiða stöðu — ég játa fúslega að þann hóp fylli ég — ber á hinn bóginn að spyrja: Voru það í raun við aðgerðasinnarnir sem það gerðu? Voru það ekki frekar Útlendingastofnun og lögregluyfirvöld? Höfðu þessir aðilar ígrundað nægilega hvernig lögregluaðgerð í kirkju kæmi fyrir sjónir í mynd? Höfðu þeir velt vöngum yfir því hvernig yrði fyrir lögreglumenn að athafna sig í kirkjunni og hvað tilfinningar því kynnu að fylgja? Hafði þetta verið rætt við lögreglumennina fyrirfram og þeim gefið svigrúm til að taka afstöðu til aðgerðanna og búa sig undir þær? Höfðu þeir sem ákvarðanir tóku leitað leiða til að leysa málið með öðrum hætti?

Mér er mjög til efs að þessi aðgerð hafi verið undirbúin með sérstaklega faglegum hætti eða að leitað hafi verið annarra leiða til lausnar en þeirrar allra stystu og reglustrikulegustu. Það er venjulega íslenska leiðin, praktísk en ekki alltaf heppileg.

Mergurinn málsins er að eftir að lögreglan var komin á vettvang er vandséð að nokkuð hafi getað gerst öðru vísi en raun varð á.
Mergurinn málsins er að eftir að lögreglan var komin á vettvang er vandséð að nokkuð hafi getað gerst öðru vísi en raun varð á. Í kirkjunni voru engar þær aðstæður að lögreglan hefði ástæðu til að draga sig í hlé eða breyta áformum sínum. Þar hefði þá einungis komið til sú ákvörðun að virða ætti kirkjugriðin. Slík ákvörðun var þó á engan hátt á valdi lögreglumannanna á vettvangi né átti að taka þá ákvörðun á staðnum. Hún hefði átt að liggja fyrir áður en aðgerðir voru hafnar.

Mynd fengin að láni af facebook síðunni "Ekki fleiri brottvísanir".
Mynd fengin að láni af facebook síðunni “Ekki fleiri brottvísanir“.

Úti fyrir varð atburðarásin nokkuð hraðari og háværari en verið hafði inni í kirkjunni. Þar hefði vissulega mátt óska að einn úr vinahópi hælisleitendanna og einn af lögreglumönnunum hefðu sýnt meiri stillingu. Annars var fátt sem kom þeim á óvart sem gegnt hefur báðum hlutverkunum, verið lögreglumaður og tekið þátt í mótmælum. Vonandi er enginn svo skilningssljór að hann áfellist sjálfa hælisleitendurna sem fjarlægðir voru fyrir að veita viðnám. Sá sem upplifir sig í raunverulegri hættu sýnir önnur viðbrögð en þeir sem aldrei hafa reynt ógn af líku tagi.

Sýndarmennska?

Ýmsir hafa legið skipuleggjendum mótmælanna á hálsi fyrir sýndarmennsku sem m.a. hafa komið fram í að þeir hafi boðað fjölmiðla á vettvang. Tilgangur mótmæla er að koma sjónarmiðum á framfæri. Mótmæli í felum hafa litla þýðingu. Því má segja að eðli máls samkvæmt hafi skipuleggjendur hlotið að vekja athygli á fyrirhuguðum aðgerðum sínum. Allt öðru máli hefði gegnt ef stefnt hefði verið að því að hindra lögregluna í störfum, leyna hælisleitendunum eða fremja annað það sem brotið hefði í bága við lög. Þá væri eðlilegt að halda fjölmiðlum, vökumönnum lýðræðisins, í sem mestri fjarlægð.

Raunin er sú að einn fjölmiðill mun hafa verið á staðnum með töku- og fréttamann. Af nærveru þeirra spratt ekkert sem kalla má fjölmiðlafár. Allir verða á hinn bóginn að gera sér grein fyrir að nú á dögum erum við alltaf og öll í mynd. Flestar þær myndir sem sést hafa á netmiðlum að undanförnu eru því ekki frá fjölmiðlum komnar heldur teknar á síma af einhverjum þeirra fáu einstaklinga sem voru á staðnum.

Í Laugarnessöfnuði hafa nýbúar, flóttafólk og hælisleitendur einfaldlega átt skilningi og samstöðu að mæta. Það var því í fyllsta máta eðlilegt að hinu táknræna andófi kirkjunnar væri beitt þar en ekki einhvers staðar annars staðar.
Þá er fjarri öllum sanni að ætla að persónuleg athyglisþörf hafi knúið þau áfram sem öðrum fremur stóðu að hinum táknrænu aðgerðum. Þar fóru fremst í flokki prestur innflytjenda og sóknarpresturinn í Laugarnesi en síðustu misserin hafa nýbúar og hælisleitendur verið áberandi í lífi safnaðarins. Svo vill til að starf sóknarprests hefur nú verið auglýst laust til umsóknar. Meðal sjö átaksverkefna sem sóknarnefnd hefur kosið að leggja áherslu á í þarfagreiningu sinni vegna auglýsingarinnar er einmitt að auka „ […] þjónustu við nýbúa og umsækjendur um alþjóðlega vernd“. Málaflokkurinn á því áfram að vera í forgrunni. Með því á sóknarnefndin þó væntanlega ekki við að í framtíðinni skuli jafnan látið reyna á kirkjugrið!

Í Laugarnessöfnuði hafa nýbúar, flóttafólk og hælisleitendur einfaldlega átt skilningi og samstöðu að mæta. Það var því í fyllsta máta eðlilegt að hinu táknræna andófi kirkjunnar væri beitt þar en ekki einhvers staðar annars staðar. Vera má að það hefði þó verið sterkara hefði það farið fram í dómkirkjunni eða Hallgrímskirkju en ekki einfaldri hverfiskirkju. Þar hefði það þó ekki sprottið úr jafn lífrænu samhengi í safnaðarstarfinu sjálfu.

Kirkjan og pólitíkin

Sagt hefur verið að með aðgerðunum í Laugarnesi hafi Þjóðkirkjan stigið inn á hið pólitíska svið. Vel má það vera en þá má spyrja hvað sé nýtt við það. Hefur kristin kirkja ekki verið pólitísk frá upphafi og ber henni jafnvel ekki skylda til að vera það? Var Kristur t.a.m. ópólitískur og var krossfesing hans laus við pólitíska undirtóna?

Eitt af þekktum verkum Bretans Richards Burchett (1815–1875) ber stutta titilinn Kirkjugrið. Það er frá árinu 1867.Eitt af þekktum verkum Bretans Richards Burchett (1815–1875) ber stutta titilinn Kirkjugrið. Það er frá árinu 1867. Copyright City of London Corporation / Supplied by The Public Catalogue Foundation
Eitt af þekktum verkum Bretans Richards Burchett (1815–1875) ber stutta titilinn Kirkjugrið. Það er frá árinu 1867. Mynd tekin héðan.
Vissulega er pólitískur ferill kirkjunnar á heimsvísu ekki þannig að sérstök ástæða sé fyrir kirkjufólk að hreykja sér yfir honum. […] Á ýmsum tímum og ýmsum stöðum hefur hún hins vegar borið gæfu til að standa með lítilmagnanum og þeim sem staðið hafa höllum fæti líkt og flóttafólk gerir nú.
Vissulega er pólitískur ferill kirkjunnar á heimsvísu ekki þannig að sérstök ástæða sé fyrir kirkjufólk að hreykja sér yfir honum. Langtímum saman hefur kirkjan komið fram sem framlengdur armur ríkisvaldsins. Stundum hefur hún líka veðjað á rangan hest. Á ýmsum tímum og ýmsum stöðum hefur hún hins vegar borið gæfu til að standa með lítilmagnanum og þeim sem staðið hafa höllum fæti líkt og flóttafólk gerir nú. Er það sérstaklega pólitísk afstaða eða er ástæða til að áfellast kirkjuna fyrir hana? Er slík samstaða ekki eitt af hlutverkum kirkjunnar eða hvað átti upphafsmaður hennar við þegar hann sagði: Hvað sem þér hafið gert mínum minnstu bræðrum hafið þið gert mér? Þau sem hugleitt hafa að yfirgefa Þjóðkirkjuna vegna atburðanna í Laugarnesi ættu að gefa sér tíma til að hugleiða þessa hlið málsins áður en þau láta af úrsögn verða.

Vandamál kirkjunnar á Vesturlöndum í seinni tíð er e.t.v. að hún hefur virt um of mörk þess sem nú á dögum er kallað pólitískt svið og látið útiloka sig frá því. Uppskipting samfélagsins í pólitísk svið og einhver önnur er aftur á móti ekki náttúrulögmál. Þetta er síðari tíma uppfinning sem raunar má setja spurningarmerki við. Hið pólitíska svið er a.m.k. ekki frátekið fyrir einhverja sérstaka pótintáta þar sem öðrum beri að þegja og hlýða. Þvert á móti er lýðræðinu hollt að sem flestir láti pólitísk málefni til sín taka, bæði einstaklingar og stofnanir. Þannig verður umræðan fjölbreytt, heilbrigð og holl og samfélagið vonandi líka.

Loks má spyrja hvort augljóst sé að málefni flóttafólks og hælisleitenda sé pólitísk mál. Er það ekki miklu frekar samfélagslegt í víðtækum skilningi og þar með siðfræðilegt. Er ekki eðlilegt að kirkjan, líka Íslenska þjóðkirkjan, láti sig slík mál varða?

Umræða á refilstigum

Auðvitað ber að fagna þeirri athygli sem atburðirnir í Laugarnesi hafa hlotið. Það á raunar líka við um þá neikvæðu athygli og umræðu sem sprottið hafa í kjölfarið. Hún hefur afhjúpað hugarfar sem er gott að við séum minnt á að eigi töluvert fylgi meðal okkar og ástæða sé til að andæfa.

[pullquote]Það er þó bagalegt en í raun dálítið dæmigert fyrir okkur Íslendinga að umræða um sjálft málefnið sem sett var á oddinn hefur að mestu farið forgörðum[/pullquote]Það er þó bagalegt en í raun dálítið dæmigert fyrir okkur Íslendinga að umræða um sjálft málefnið sem sett var á oddinn hefur að mestu farið forgörðum. Þar er átt við málefni hælisleitenda og hvernig við viljum mæta þeim — ekki síst forsjárlausum börnum sem hingað leita. Fyrir þeim hafa orð eins og „heim“ og „heima“ enga merkingu. Þeim mun meiri er reynsla þeirra af öryggisleysi og höfnun. Það væri óskandi að stofnanir samfélagsins, þar á meðal Þjóðkirkjan, hæfu markvissari umræðu um þau mál. — Þar með yrði hið táknræna andóf í Laugarneskirkju til nokkurs gagns.

Ljósmynd ofan við grein fengin að láni af facebook síðunni “Ekki fleiri brottvísanir“.[/cs_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701