Myndavél – og þú brosir

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Eigandi auglýsingastofu sem er á fallanda fæti (Theodór Júlíusson) segist geta gert auglýsingu um hvað sem er og biður dóttur sína (Elmu Stefaníu Ágústsdóttur) að nefna orð og hann komi með auglýsingu. Hún nefnir orðið „myndavél“ og hann bætir tilgerðarlega við „… og þú brosir!“ Auglýsingin hans gerir ekki ráð fyrir að neinn spyrji: Af hverju? Af hverju í ósköpunum ætti ég að brosa til þessarar myndavélar? Gagnrýnar spurningar eru lagðar til hliðar í þeim (hliðar)heimi sem áhorfandinn er kynntur fyrir í sýningu Borgarleikhússins á Auglýsingu ársins eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar.

Neyslusamfélagið alltumlykjandi

Auglýsingastofan hefur lýst metnaði sínum þannig fyrir kúnnanum að hún vinni allt upp á líf og dauða og nú spyr kúnninn hvort hún vilji standa við það, hve langt menn séu reiðubúnir til að ganga fyrir peningana. Svarið er: alla leið.
Starfsmenn auglýsingastofunnar eru Leikstjórinn (Björn Thors) og Listamaðurinn María (Kristín Þóra Haraldsdóttir) en á milli þeirra er mikil spenna. Listamaðurinn vill helst ekki leggja sig niður við auglýsingar en ef þörf krefur vill hún nota Leikkonuna, ástkonu sína, (Ólafíu Hrönn Jónsdóttur) til að leika í þeim. Þessi átök leysast úr læðingi þegar ungur maður (Hjörtur Jóhann Jónsson) kemur á vettvang sem fulltrúi moldríks kaupanda í leit að samhentu fjölskyldufyrirtæki sem getur búið til verðlaunaauglýsingu sem má kosta hvað sem er. Og það vilja allir á stofunni gera en menn greinir á um hvernig auglýsingin á að vera, enda fæst það ekki upp gefið hvað eigi að auglýsa.

Listamaðurinn gerir eina auglýsingu, leikstjórinn aðra, kúnninn er ánægður með hvoruga og pantar þá þriðju sem verður að vera sú besta. Auglýsingastofan hefur lýst metnaði sínum þannig fyrir kúnnanum að hún vinni allt upp á líf og dauða og nú spyr kúnninn hvort hún vilji standa við það, hve langt menn séu reiðubúnir til að ganga fyrir peningana. Svarið er: alla leið.

Póst-dramatík

Í Auglýsingu ársins er ekki lögð áhersla á sögu eða boðskap og þar af leiðandi ekki söguþráð eða framvindu og ekki persónur sem eftirlíkingar af raunverulegu fólki og það er ekki markmiðið að skrifa leikrit í hefðbundnum skilningi þess orðs. Þvert á móti. Meiningin er trúlega að búa til sýningu, sameiginlega reynslu leikara og áhorfenda, þar sem hver og einn leitar síns sannleika um það sem listamennirnir sem standa að sýningunni vilja vísa til. Í þessu tilviki er það neyslusamfélagið og hugmyndafræðilegt tæki þess númer eitt, þ.e. vald auglýsinganna. Tyrfingur Tyrfingsson lætur til sín taka í texta sem er bæði djúphugsaður og grimmur, tilfinningaríkur, fullur af ást eða ástarþrá en líka reiði og mannfyrirlitningu. Af nógu er að taka í þessu verki!

Ljósmynd: Grímur Bjarnason
Ljósmynd: Grímur Bjarnason
Konur

Leikmynd og búninga gerði Eva Signý Berger og leikgervi Árdís Bjarnþórsdóttir og Elín S. Gísladóttir. Um allt þeirra verk, tónlist og lýsingu mætti skrifa langt mál.

Auglýsingastofan var Ísland í hnotskurn …
Auglýsingastofan var Ísland í hnotskurn; afgreiðsluborðið var úr viði, stórt fundaborð (og leiksvið) var klætt gæru og tilkomumiklir skrifborðsstólar voru stílfærðir hreindýrshausar. Íslenskum landslagsmyndum í skærum litum var varpað á stóran skjá og meira að segja var miklum turni sem gat verið ísjaki rennt inn á sviðið og kallaðist á við Titanic skipið sem lék stórt hlutverk í Njálu. Til þeirrar sýningar var raunar oft vísað og í hana potað í þessari sýningu. Hin gróteska sölumennska á íslenskri náttúru sem „kitch“ eða listlíki náði hámarki í auglýsingu Maríu. Þar var raðað saman flekum með skærlitaðri íslenskri náttúru þar sem fossum og giljum og fjöllum og hverum og regnbogum og norðurljósum var hrúgað saman í réttri röð. Fyrir framan þá flögraði dóttirin Elma Stefanía, tággrönn og barnsleg og undurfalleg með slegið hárið í vindinum fylgt eftir af (fjölþreifnum) smala og undir var lesinn texti úr fyrir-hruns-landkynningu, heyrðist mér. Fullkomið! Sagði Listamaðurinn eftir fyrstu töku. „Klámútgáfa af íslenskri náttúru“ hvíslaði sessunautur minn.

Ljósmynd: Grímur Bjarnason
Ljósmynd: Grímur Bjarnason

Kristín Þóra Haraldsdóttir getur leikið hvað sem er en hin ískalda, eigingjarna og reiða Listakona, María, sem heldur að hún sé Mary Poppins var ekki þakklátt hlutverk. Sérstaklega af því að mótleikari hennar Leikkonan var eftirminnileg í túlkun Ólafíu Hrannar. Hún var bókstaflega eins og segull á sviðinu frá fyrstu innkomu. Hún var dívan sem hefur séð allt og upplifað allt og langar ekki til neins nema elska og vera elskuð en er fallin á tíma í því verkefni. Gervið var samsafn af tilvitnunum í ljóshærðar stjörnur og  kynbombur allra tíma, frá Shirley Temple, Marlene Dietrich, Anitu Ekmann, Gitu Nörby – svo nokkrar séu nefndar. Hún er hæfileikarík primadonna og eina persónan sem sér í gegnum ógeðið og hótar að hætta leiknum en um leið er það eðli þessa leiktexta að áhorfandinn getur ekki vitað hvort hún er bara að hóta því til að styrkja stöðu sína eða meinar það. Þær María yfirgefa sviðið í einni eftirminnilegustu útgöngu allra tíma …

Karlar

Næsta auglýsing var gerð af hinum unga Leikstjóra (Birni Thors) sem henti eldri konunum strax út úr sinni útgáfu og gerði ofsafengna auglýsingu með íslenska náttúru sem óljósan bakgrunn en erótíska barnunga stúlkuna (Elmu Stefaníu) í forgrunni og endaði í lostafullri senu þar sem hann var kominn upp á hana með myndavélina og sprautaði úr gosdós yfir andlitið á henni hræddri og reiðri við gríðarlegt crescendo í tónlistinni. Það fannst kúnnanum góð auglýsing. En hann vildi meira.

Kúnninn hefur alltaf rétt fyrir sér.
Leikstjórinn í túlkun Björns Thors byrjaði sem kjáni sem framkallaði miklar hlátursgusur en afhjúpast smám saman sem stækur kvenhatari og átti eina hroðalega einræðu sem slíkur í seinni hlutanum.  Hjörtur Jóhann villir á sér heimildir þegar hann kemur fyrst inn og segist vera umboðsmaður kúnnans, talandi afskaplega vandaða íslensku eins og í gömlum, þýddum útvarpsleikritum eða barnabókum. Hann klofnar svo í tvo „menn“, föður og son, kúnnann og senditík hans, sem hata hvor annan.  Tilþrif hans í geðklofanum minntu á Gollri í Hringadróttinsssögu og fallegt að sjá hvernig auglýsingstofufólkið var á augabragði tilbúið til að kaupa það að hann yrði annar maður ef hann breytti röddinni. Kúnninn hefur alltaf rétt fyrir sér.

[/cs_text]

 
[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]

Kynstur

Eins og í Shakespearetragedíu eru aðeins tveir uppistandandi á sviðinu í lokin, faðir og dóttir, og það er hún, tvíkynja, melankólísk og melódramtísk sem á bæði upphafs- og lokaorðin. Hún hefur smogið milli leikenda og brúað senur allan tímann, enginn tekur eftir henni eða tekur mark á henni því hún er fleyguð samtenging, hvorki – né eða bæði – og, utan við átökin – sjáandinn eða sögumaðurinn. Sumt af því sem hún segir er með því eftirminnilegasta í verkinu.

Allir sem hafa þegar skrifað um Auglýsingu ársins segja að sýningin sé of löng og teygður lopinn í síðasta þriðjungnum en það er ekki lengdin heldur ofgnóttin sem tekur á áhorfandann. Til hans eru gerðar miklar kröfur en þá verður líka að virða þolmörk hans. „Allir drepa ástina sína“ í þessu verki og leikstjórinn hefði mátt gera það líka og stytta það.

Eitt er þó víst að þetta er mest ögrandi sýning vetrarins.

Takk fyrir það.[line]Borgarleikhúsið: Auglýsing ársins
Höfundur: Tyrfingur Tyrfingsson
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist og hljóðmynd: Garðar Borgþórsson
Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir og Elín S. Gísladóttir
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Theodór Júlíusson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Björn Thors.

[Myndir eru af vefsíðu Borgarleikhússins.][/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701