Heiðarleg tilraun til þess að villast

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Patrick Modiano
Svo þú villist ekki í hverfinu hérna
þýð. Sigurður Pálsson
Svo þú villist ekki í hverfinu hérna, í þýðingu Sigurðar Pálssonar, er fyrsta bók franska Nóbelsskáldsins Patricks Modiano sem kemur út á íslensku. Um er að ræða nýjustu skáldsöguna á löngum ritferli Modianos sem ratar nú loksins með beinum hætti inn í íslenska bókmenntasögu. Bókin kom upprunalega út árið 2014, sama ár og hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, og er von á því að fleiri bækur muni fylgja í kjölfarið (ég leyfi mér að geta mér til um það þar sem Modiano virðist fyrst núna vera að öðlast viðurkenningu á alþjóðavísu og meðfylgjandi dreifingu). Þrátt fyrir að hafa verið lítið þekktur utan Frakklands hefur Modiano lengi vel notið mikilla vinsælda í heimalandinu en aðeins tíminn mun leiða í ljós hvernig honum á eftir að farnast hér á landi. Með útgáfu Svo þú villist ekki í hverfinu hérna, sem er aðeins toppurinn á ísjaka höfundarverks Modianos, tel ég þó óvíst að allir nái að sannfærast um ágæti hans sem rithöfundar á heimsmælikvarða.

Bókin fjallar um rithöfundinn Jean Daragane sem hefur í seinni tíð kosið að fjarlægja sig frá umheiminum og forðast óþarfa samskipti við annað fólk. Þegar ungur maður neyðir hann til þess að hitta sig, undir þeim formerkjum að hafa fyrir „tilviljun“ fundið adressubókina hans, dregst Daragane hins vegar inn í áratuga gamla morðráðgátu með persónulegu ívafi. Í kjölfarið byrjar Daragane að takast á við grafnar og hálfgleymdar minningar sem leiða hann á æskuslóðirnar og til þess innra barns sem hann hélt að hann hefði fyrir löngu sagt skilið við. Úr verður spennandi saga sem leiðir lesandann í gegnum óljósa ævi og dregur upp ljóslifandi mynd af skapferli aðalpersónunnar.

Þegar upp er staðið fjallar sagan þó frekar um leitina að sjálfinu í heimi þar sem ekki er hægt að treysta sínum eigin minningum.
Af þessari lýsingu að dæma mætti halda að um væri að ræða hefðbundna glæpasögu, enda virðist atferli persónanna hverfast um óleyst morðmál. Slík lýsing myndi hins vegar afvegaleiða sanna glæpasöguaðdáendur með því að skapa væntingar sem Modiano virðist aldrei hafa ætlað sér að mæta. Í bókinni reiðir Modiano sig ef til vill á spennuna sem er yfirleitt eignuð glæpasögunni, þar sem lesandanum eru skammtaðar vísbendingar og þráin eftir heildarmyndinni knýr lesturinn áfram. Þegar upp er staðið fjallar sagan þó frekar um leitina að sjálfinu í heimi þar sem ekki er hægt að treysta sínum eigin minningum.

Modiano gerir Daragane þannig að holdgervingi þessara innbyggðu takmarkana mannskepnunnar og minnir lesandann endurtekið á að við séum gleymin, gjarnan vegna þess að við síum frá þær minningar sem samsvara ekki heimsmynd okkar eða hagsmunum. Veraldlegu ráðgáturnar í lífi Daraganes eru því ekki markmið í sjálfum sér heldur frekar tilefni til persónulegra uppgötvana, sem sökum eðlislægrar gleymsku mannsins fá þó aldrei að njóta sín til fulls. Afraksturinn er samansafn heiðarlegra hálfsannleika sem ná ekki að sýna heildarmyndina og skilja lesandann því viljandi eftir með aðeins brot af stærra samhengi.

Hér er því ekki haldið fram að ævintýri Daraganes sé dulbúin sjálfsævisaga Modianos heldur frekar að Modiano sjái skáldsögu sína sem vettvang fyrir frjálslega sjálfskoðun, þar sem skáldið fær tækifæri til þess að glíma við sjálfan sig með óbeinum hætti.
Stíll bókarinnar er skýr og einfaldur, jafnvel upp að því marki að vera hógvær. Það verður þó ekki tekið frá Modiano að allt sem hann kýs að vinna með ferst honum kostulega vel úr hendi, burtséð frá því hvað einstaka lesendum má finnast um hversu áhugavert viðfangsefni hans sé. Hér mætti sérstaklega nefna lifandi persónusköpun þar sem Modiano virðist einkar laginn við að setja sig í spor söguhetju sinnar. Hjá mér vaknaði sú tilfinning að ég væri að fylgjast með færum leikara, sem virtist með áralangri þjálfun hafa lært að tjá innra líf annarra. Þegar leið á sýninguna fór þó að læðast að mér sá grunur að leikarinn væri í raun í hlutverki sjálf síns og að snilli hans væri frekar sprottin af næmni fyrir eigin persónu heldur en almennum skilningi á mannskepnunni. Hér er því ekki haldið fram að ævintýri Daraganes sé dulbúin sjálfsævisaga Modianos heldur frekar að Modiano sjái skáldsögu sína sem vettvang fyrir frjálslega sjálfskoðun, þar sem skáldið fær tækifæri til þess að glíma við sjálfan sig með óbeinum hætti.

Svo þú villist ekki í hverfinu hérna, er bók sem lætur ekki mikið fyrir sér fara og er mikil þörf á því að lesandinn lesi á milli línanna. Hins vegar getur verið jafn áhugavert að skilja eyðurnar eftir og leyfa tóminu að tala sínu máli. Modiano hefur reynt að skapa gátt á mörkum skáldskapar og raunveruleikans en þegar betur er að gáð er aðeins um að ræða móðugan glugga inn í hugarheim hans. Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að villast í hverfi skáldsins en endaði í stofufangelsi – engu síður var útsýnið ágætt og móðan sem byrgði mér sýn hafði sína eigin sögu að segja.

[line]
Grein þessi var unnin sem verkefni í námskeiðinu Gagnrýni og ritdómar við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.[/cs_text]

Um höfundinn
Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl er með BA-gráðu í Japönsku máli og menningu og MA-gráðu í almennri bókmenntafræði. Hann stundar nú nám í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1512

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

82001

82002

82003

82004

82005

82006

82007

82008

82009

82010

82011

82012

82013

82014

82015

9041

9042

9043

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80037

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

80142

80143

80144

80145

80146

80147

80148

80149

80150

82016

82017

82018

82019

82020

82021

82022

82023

82024

82025

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

82026

82027

82028

82029

82030

82031

82032

82033

82034

82035

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80156

80157

80158

80159

80160

80161

80162

80163

80164

80165

80166

80167

80168

80169

80170

82036

82037

82038

82039

82040

82041

82042

82043

82044

82045

82046

82047

82048

82049

82050

82051

82052

82053

82054

82055

80171

80172

80173

80174

80175

80176

80177

80178

80179

80180

82056

82057

82058

82059

82060

82061

82062

82063

82064

82065

80181

80182

80183

80184

80185

80186

80187

80188

80189

80190

80191

80192

80193

80194

80195

82066

82067

82068

82069

82070

82071

82072

82073

82074

82075

82076

82077

82078

82079

82080

80196

80197

80198

80199

80200

80201

80202

80203

80204

80205

80206

80207

80208

80209

80210

82081

82082

82083

82084

82085

82086

82087

82088

82089

82090

82091

82092

82093

82094

82095

80211

80212

80213

80214

80215

80216

80217

80218

80219

80220

82096

82097

82098

82099

82100

82101

82102

82103

82104

82105

news-1512