Kynjasjónarhornið mikilvægt

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Kyn er breyta sem skiptir máli í sagnfræðirannsóknum og saga kvenna og kynja þarf að vera sjálfsagður hluti sagnfræðináms, segir Erla Hulda Halldórsdóttir, nýráðinn lektor í kvenna- og kynjasögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þetta er ný staða sem markar tímamót við deildina, og að mati Erlu Huldu eru þau löngu tímabær.
„Kvennasagan kemur fram um 1970 sem akademískt fagsvið og sérfræðingar í kvennasögu og síðar kynjasögu hafa síðan þá verið starfandi innan háskólanna í nágrannalöndum okkar. Þetta hafa ýmist verið fastar stöður í faginu eða í ákveðnum tímabilum sögunnar – en hvernig sem því var háttað var sérfræðiþekkingin til staðar innan stofnananna. Kvennasaga var fyrst kennd sem valgrein í sagnfræði veturinn 1982-83 en við deildina hefur sérfræðingur í kvenna- og kynjasögu aldrei verið í föstu starfi.
Ef við ætlum að halda í við það sem er að gerast í fræðunum í öðrum löndum þurfum við að efla rannsóknir á þessu mikilvæga sviði.
Ef við ætlum að halda í við það sem er að gerast í fræðunum í öðrum löndum þurfum við að efla rannsóknir á þessu mikilvæga sviði. Kyn og kyngervi snertir stöðu bæði kvenna og karla í samfélaginu og við þurfum að skoða áhrif kyngervis á þróun samfélaga fyrr og nú.“

Erla Hulda segir að fyrsta árið verði lögð áhersla á, í samvinnu við aðra fræðimenn við deildina, að samþætta kynjasjónarhornið sem allra mest við kennslu. Að saga kvenna og kynja verði sjálfsagður hluti sagnfræðináms svo nemendur geti sérhæft sig og fengið þekkingu á þessu sviði. Jafnframt segir Erla Hulda að mikilvægt sé að efla rannsóknir á kvenna- og kynjasögu og efla samstarf við aðrar deildir innan Hugvísindasviðs og önnur svið Háskólans.

Þjóðviljinn 10. nóv. 1974
Þjóðviljinn 10. nóv. 1974. Timarit.is

„Vilborg Dagbjartsdóttir, rithöfundur, kennari og rauðsokka orðaði það ágætlega í dagblaði árið 1974 þegar hún hafði flett í Íslandssögubók og talið myndir af körlum og konum (79 af nafngreindum körlum en ein af konu) og spurði af því tilefni: „Hvar er langamma, hvar er amma, hvar er mamma, hvar er ég sjálf, vorum við kannski aldrei til?” Þessar spurningar voru auðvitað í takt við það sem þá var að gerast víða um heim þar sem bæði konur í kvennahreyfingunni og ungar fræðikonur innan háskólanna spurðu hvar konurnar í sögunni væru, af hverju væri ekki skrifað um þær, hvort þær hefðu ekki skilið eftir sig heimildir. Þetta endurspeglar kannski þá þrá mannsins að eiga sér sögu, að skilgreina sig, svo ég vísi til ítalska heimspekingsins Adriana Cavarero sem hefur skrifað um löngun okkar mannfólksins til að þekkja rætur okkar, sögu okkar, er sterk og konur áttu ekki þá sögu. Á þessum tíma var lítið skrifað um konur og sögu kvenna nema þá helst þær sem kölluðust undantekningar eða „verðugar konur“, með öðrum orðum drottningar eða brautryðjendur, konur sem höfðu gert sig gildandi á því sem talið var til sviðs karla. Um venjulegar konur var minna skrifað og það átti auðvitað einnig við um ýmsa minnihlutahópa. Þótt rannsóknaráherslur og sagnaritun hafi breyst mjög síðustu áratugi má oft sjá þess merki að sagan sé skrifuð af sigurvegurum, svo gripið sé til þeirrar klisju, þeim sem fara með valdið. Með rannsókn og ritun á sögu kvenna fáum við einfaldlega annað sjónarhorn á söguna. ”

Erla Hulda að flytja fyrirlesturinn "Merkiskonur. Tilraunir til þess að skrifa sögu kvenna" á Hugvísindaþingi HÍ sl. föstudag.
Erla Hulda að flytja fyrirlesturinn “Merkiskonur. Tilraunir til þess að skrifa sögu kvenna” á Hugvísindaþingi HÍ sl. föstudag. Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson.
Ævisaga og bréfaskrif Sigríðar Pálsdóttur
Leiði Sigríðar Pálsdóttur á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Ljósmynd: Erla Hulda Halldórsdóttir, 2015.

Erla Hulda hefur síðustu tvo áratugina um það bil fengist við ýmislegt er tengist kvenna- og kynjasögu og eitt af þeim verkefnum vakti sérstakan áhuga. Bréf til bróður míns er rannsókn sem á sér tvenns konar markmið. Annars vegar að rannsaka bréfaskrif Sigríðar Pálsdóttur (1809-1871) út frá ýmsum sjónarhornum og kenningum æviskrifa (e. life writing). Hins vegar að skrifa ævisögu Sigríðar og byggja hana á þeim 250 sendibréfum sem hún skrifaði Páli Pálssyni bróður sínum á árunum 1817–1871.

„Þessi rannsókn á langa sögu,” segir Erla Hulda „en kom þannig til að ég las þessi bréf ásamt fleiri hundruð annarra bréfa í tengslum við meistaraprófsritgerð mína í sagnfræði, sem var um sjálfsmyndir og ímyndir kvenna á 19. öld. Eitthvað við þessa konu hreif mig og löngu síðar, þegar ég var búin með doktorsritgerðina mína, ákvað ég að vinna með bréfin hennar sem eru skrifuð frá því hún er átta ára, árið 1817, til ársins 1871, þegar hún deyr. Mig langaði að vinna meira með bréfin, nota þau til að skrifa ævisögu hennar þó Sigríður væri ekki skilgreind sem „merkileg“ kona. Einnig að nýta sendibréfin sem heimildir í rannsóknir um tengslanet, sjálfsmyndarsköpun og læsisiðkanir, þá einkum í samhengi við skriftarkunnáttu en miklu færri konur en karlar voru skrifandi á þeim tíma sem Sigríður lifði.”

Ég veit aldrei allt í kringum tilurð heimildanna en þverstæðan er að um leið veit ég miklu meira en bréfritarinn á sínum tíma því ég veit hvernig allt fór.
„Þessi bréf eru heillandi heimur því hægt er að fylgjast með þroska einstaklings þótt á því séu auðvitað takmarkanir. Bréfin eru til dæmis mjög fá sum árin, allt niður í eitt til tvö bréf á ári og þá má spyrja sig hvað þau segi mikið um líf viðkomandi. Í ævisögunni sem ég er að skrifa tengi ég Sigríði takmarkað við stórsögu þjóðarinnar sem hefur verið þessi karlasaga um stjórnmálin, þjóðernishyggju og sjálfstæðisbaráttu. Þessi stórsaga sést lítið í bréfum Sigríðar og þar sem þau ráða frásögninni mun ég ekki fjalla mikið um hana. Hún nefnir til dæmis aldrei endurreisn Alþingis árið 1845. Það er hreinlega eins og það hafi ekki gerst – eða einfaldlega, þetta er eitthvað sem var svo mikið í umræðunni að það var ekkert endilega tilefni til umræðu í hversdagslegum bréfum. Líf hennar eins og það líður hjá í bréfunum finnst mér áhugavert og þannig er það raunar í vaxandi mæli í rannsóknum erlendis þar sem ævi venjulegs fólks er til rannsóknar og  á þess eigin forsendum.

Bréf sem Sigríður skrifaði aftan á bréf ömmu sinnar Sigríðar Ørum, í janúar 1820.
Bréf sem Sigríður skrifaði aftan á bréf ömmu sinnar Sigríðar Ørum, í janúar 1820. Ljósmynd: Handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns

Öll stór verkefni, eins og rannsókn mín á lífi Sigríðar, eiga sér margar hliðar og taka breytingum meðan á þeim stendur. Heimildirnar segja manni eitthvað nýtt, ég les einhverja spennandi erlenda rannsókn og sé hliðstæðu hér heima sem kveikir nýjar hugmyndir. Þetta verkefni hefur því þroskað mig sem fræðimann, ekki eingöngu sem sérfræðing í kvenna- og kynjasögu heldur sagnfræði yfir höfuð. Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni en það er ekki einfalt að fást við líf einstaklings. Hver er ég til að túlka líf sem er löngu liðið? Og það getur verið erfitt, eða ómögulegt, að lesa og skilja heimildirnar í sínu rétta samhengi. Ég veit aldrei allt í kringum tilurð þeirra en þverstæðan er að um leið veit ég miklu meira en bréfritarinn á sínum tíma því ég veit hvernig allt fór.“

[Ljósmynd fyrir ofan grein: Kristinn Ingvarsson][/cs_text]

Um höfundinn
Hugrás

Hugrás

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701