Ferðalag á fjölunum

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Umhverfis jörðina á 80 dögum
Leikgerð: Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson
Þjóðleikhúsið, 2016
Flestir þekkja eitthvað til hins fræga franska rithöfundar Jules Verne sem skrifaði hið merka verk sem fjallar um 80 daga ferðalagið um jörðina. Ásamt því skrifaði hann einnig sögurnar Ferðin til tunglsins, Sæfarinn og Leyndardómar Snæfellsjökuls en sögusvið þess verks er hér á landi. Allt eru þetta bækur skrifaðar fyrir aldamótin 1900 en á einhvern ótrúlegan hátt tekst Verne oft að spá fyrir um framtíðina, farartæki og framþróun.

Verkið Umhverfis jörðina á 80 dögum var gefið út árið 1873 og fjallar það um Englendinginn Fílías Fogg sem er sannfærður um að vegna bættrar samgöngutækni sé hægt að ferðast umhverfis jörðina á aðeins 80 dögum. Til þess að sannreyna þetta leggur hann af stað ásamt þjóni sínum í ferðalag. Fara þeir um framandi staði á ýmsum farartækjum, allt í kappi við tímann. Bíða þeirra ævintýri og upplifanir sem breyta sýn þeirra á lífið og tilveruna.

Bókin hefur notið mikilla vinsælda og verið þýdd á fjölda tungumála. Upp úr henni hefur verið skrifaður fjöldi leikgerða og kvikmyndahandrita sem annað hvort segja beint frá eða byggja á sögunni. Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson eru meðal þeirra sem tekist hafa á við það verkefni og eiga heiðurinn af þessari frábæru nýju leikgerð Þjóðleikhússins sem er uppfull af nýjum lögum og textum sem gera verkið að einstökum söngleik.

hugras_Umhverfis-jordina

Tjöldin opnast og við manni blasir falleg og einföld leikmynd. Tvö timburklædd skilrúm, annað skreytt klukku og tannhjólum en hitt klætt með gömlu heimskorti sem gegnir stóru hlutverki í að staðsetja gesti í sögunni. Til hliðar eru hinir flinku tónlistarmenn Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben með píanó og ýmis smærri hljóðfæri. Taka þeir virkan þátt í sýningunni sem leikarar og flytjendur. Á ótrúlega fágaðan og einfaldan hátt tekst leikstjóranum Ágústu Skúladóttur og leikmyndahönnuðinum Baldri Ragnarssyni að ferðast með leikhúsgesti um heiminn á nokkrum lausum trékössum. Einungis er framhluti Stóra sviðs leikhússins nýttur þar sem leikarar breyta aðstæðum jafnóðum með því að færa trékassana til og skapa þannig nýtt umhverfi.

Leikgerðin dansar oft á mörkum þess að vera leikrit, brúðuleikhús eða fjölleikahús þar sem búningar, brúður og skuggamyndir leika stórt hlutverk.
Leikgerðin dansar oft á mörkum þess að vera leikrit, brúðuleikhús eða fjölleikahús þar sem búningar, brúður og  skuggamyndir leika stórt hlutverk. Þessi skemmtilega samsetning, í bland við lýsingu og einfalda leikmuni, örvar ímyndunaraflið og fær gesti til þess að skapa sinn eigin hugarheim í sætum sínum. Var slíkt svo vel heppnað að í tvígang hlaut sá er hér ritar gæsahúð niður í tær. Undirritaður hefur séð flest allar stærstu barna- og fjölskyldusýningar atvinnuleikhúsanna á síðustu árum en telur þessa komast mjög ofarlega á lista þrátt fyrir að vera töluvert minni og einfaldari í sniðum en mörg önnur verk.

Þá sem verkið sjá ætti ekki að undra að Karl Ágúst hafi komið nálægt útfærslunni en flest þekkjum við færni hans í handrita- og textagerð í gegnum Spaugstofuna. Handritið sjálft er fullt af ódýru en frábæru orðagríni og einstaka prumpubröndurum sem virka alltaf fyrir yngstu leikhúsgestina. Þó svo að sagan sé einföld og skemmtileg í framsetningu er hún einnig mjög fræðandi. Höfundar reyna ekki að mæta áhorfendum með barnalegu orðalagi. Þess í stað er málfar nokkuð fágað og reyna þeir þannig að ýta undir orðaforða yngstu barnanna.

Við fáum innsýn í ólíka menningarheima og hittum á ferðalaginu þekktar persónur úr mannkynssögunni á aðeins tveimur klukkustundum. Um er að ræða persónur sem börn jafnvel þekkja fyrir eða kynnast nú í fyrsta sinn.
Við fáum innsýn í ólíka menningarheima og hittum á ferðalaginu þekktar persónur úr mannkynssögunni á aðeins tveimur klukkustundum. Um er að ræða persónur sem börn jafnvel þekkja fyrir eða kynnast nú í fyrsta sinn. Þar má nefna Viktoríu drottningu, listamanninn Van Gogh, sálfræðinginn Sigmund Freud, skáldið Strauss, hetjuna Gandhi og Lincoln forseta svo einhverjir séu nefndir. Auk þess að kynnast farartækjum eins og loftbelgnum og skipum með gufuvélar, ferðumst við með þeim á staði eins og París, Kaíró, Bombay, Hong Kong og New York. Verkið er því frábær vettvangur til þess að kynna börn fyrir umfangi jarðar. Þeir Spaugstofubræður hika ekki við að bæta inn bröndurum fyrir okkur fullorðna fólkið, til að mynda með ádeilu á karlaklúbba, grín um Rauðu mylluna og klúrar hugmyndir Sigmunds Freud. Einnig er tekin sú stefna í leikgerðinni að blanda saman við söguna annarri sögu Jules Verne; Sæfarinn: Ferðin kring um hnöttinn neðansjávar. Í stað þess að ferðast um Kyrrahafið á gufuskipi, eins og í upprunalegu útgáfunni af Umhverfis jörðina á 80 dögum, er tekinn kafbátur sem færir persónur á nýtt sögusvið og gerir framsetninguna mun ævintýralegri. Karl og Sigurður reyna ekki að fela þessa viðbót fyrir áhorfendum því persónur minnast óspart á að nú verði stokkið inn í aðra sögu um stund.

hugras_Umhverfis-jordina2

Leikarahópinn skipa þau Sigurður Sigurjónsson í hlutverki ferðalangsins Fílíasar Foggs, Örn Árnason sem hinn franski aðstoðarmaður Passepartout, Karl Ágúst Úlfsson sem rannsóknarlögreglumaðurinn Fix, sem einnig kemur fram í ýmsum öðrum hlutverkum á sambærilegan hátt og Ólafía Hrönn Jónsdóttir gerir í gegnum allt verkið. Þessi fjögur skipa kjarna hópsins en með þeim eru þau Jón Stefán Sigurðsson og Stella Björk Hilmarsdóttir í ýmsum hlutverkum og sviðskiptingum. Það var ekki við öðru að búast en að leikur þeirra Spaugstofumanna væri upp á tíu. Hafa þeir stillt strengi sína í um áratugaskeið og eru þeir allir sem ein fíngerð fiðla. Tímasetningar og samhæfing þeirra minnti oft á fimleikasirkus sem keyrði sýninguna áfram í leik og gleði. Hlutverkum skiptu þeir vel á milli sín og getur maður vart ímyndað sér persónurnar með öðrum hætti. Örn Árnason var án efa senuþjófurinn sem hinn klaufski og kjánalegi franski aðstoðarmaður. Örn hefur sýnt það og sannað fyrir þjóðinni að hann getur talað öll heimsins tungumál bara með því að nota réttan hreim, hraða og hrynjanda, þó orðin ein séu uppspuni. Uppskar hann tíð hlátrasköll allra aldurshópa.

Markaðssetning Þjóðleikhússins á verkinu á hins vegar last skilið. Síðastliðið haust skar leikhúsið mikið niður í bæklingaútgáfu sinni og var auglýsingapési þeirra með það litlu sniði að hann kynnti vart verkin. Ekki hefur farið mikið fyrir auglýsingum á verkinu Umhverfis jörðina en segja má um markaðssetninguna að hún hæfi ekki þessu verki. Plakat sýningarinnar þjónar verkinu ekki vel, það er full smábarnalegt og yfirbragð þess heldur kjánalegt. Þó er reynt að sækja í efnivið verksins með því að birta teikningu af fíl, járnbrautalest, skipi og fræga loftbelgnum sem einkennir verkið í hugum margra. Letrið á reyndar vel við uppruna og aldur verksins og minnir á franska bókarkápu þess tíma með nýju ívafi. Heilt yfir hefur kynningarefnið þó ekki það aðdráttarafl sem verk á fjölum Stóra sviðsins þarfnast. Varð þetta til þess að þessi reglulegi leikhúsgestur var hársbreidd frá því að sækja ekki sýninguna.

hugras_Umhverfis-jordina_300pxLeikhúsin hafa einnig fært sig inn í nútímann með aukinni rafrænni markaðssetningu og hafa reglulega sett kitlur úr verkum sínum á netið. Stikla sú er þessu verki fylgir gerir því heldur engin almennileg skil. Hún er róleg og væmin. Í henni er lítill gangur og atriði ekki spennandi. Auðveldlega hefði mátt klippa saman nokkra góða brandara í bland við fjörugri og meira einkennandi tónlist sýningarinnar. Myndi ég leggja til „lestarlagið“ í því samhengi sem óma mun í höfði gesta fram á vor. Sjaldan hef ég fundið fyrir jafn miklum samhug með húsgögnum og þegar krakkarnir hossuðust í sætum sínum af gleði í takt við lagið og leikarana í lestinni.

Sögunni fylgir fallegur boðskapur um virðingu og jöfnuð með undirliggjandi ádeilu á heimsveldakapphlaupið. Umhverfis jörðina á 80 dögum er stóra barnasýning Þjóðleikhússins í ár.
Heilt yfir er um frábæra sýningu að ræða sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Hún er bæði fræðandi og skemmtileg, bæði fyrir börn og fullorðna. Sögunni fylgir fallegur boðskapur um virðingu og jöfnuð með undirliggjandi ádeilu á heimsveldakapphlaupið. Umhverfis jörðina á 80 dögum er stóra barnasýning Þjóðleikhússins í ár. Þrátt fyrir umdeilanlegt markaðsefni er sýningin vel sótt, sem vert er að fagna. Hvet ég alla, sem tök hafa á, til að fjárfesta í tíma með börnum sínum og færa þeim þessa upplifun. Það er mikilvægt að kynna leikhúsið og töfra þess fyrir krökkum á öllum aldri. Það fylgir því ákveðinn agi og ný reynsla að fara í leikhús. Það er skapandi iðkun að sækja slíkar listir því áhorfandinn er í mörgum tilvikum mikill þátttakandi í sýningunni og þarf að fylla í eyðurnar með ímyndunaraflinu einu. Leikhúsin vanrækja oft að færa fullorðnum hina sönnu töfra leikhússins og almenna gleði í uppsetningum sínum. Því er þessi sýning gullið tækifæri fyrir alla aldurshópa til þess að upplifa slíkt. Foreldar fá nú kost á að gleyma dagsins amstri og vera börn um stund.

Grein þessi var unnin sem verkefni í námskeiðinu Gagnrýni og ritdómar við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.[/cs_text]

Um höfundinn
Kristinn Pálsson

Kristinn Pálsson

Kristinn Pálsson er með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands. Hann er nú MA-nemi í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701